blaðið - 31.03.2007, Qupperneq 15
blaðið
LAUGARDAGUR 31. MARS 2007
15
Bílgreinasambandið:
Einn flokk
vörugjalda
Bílgreinasambandið hvetur
stjórnvöld til að breyta núverandi
íyrirkomulagi á vörugjöldum á bif-
reiðum. Lagt er til að skattlagning
bifreiða verði einfölduð þannig
að aðeins verði einn flokkur vöru-
gjalda á öllum ökutækjum sem
nemi 15% af innkaupsverði, nema
af ökutækjum til atvinnurekstrar
yfir 5 tonnum að heildarþyngd.
Þau gjöld verði áfram óbreytt.
Þetta á að mati sambandsins að
skila ríkissjóði óbreyttum tekjum.
Borgarstjórnarfundur:
Heimila niðurrif
á húsum
Fulltrúar Framsóknarflokks,
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar
samþykktu að heimila niðurrif
á húsunum Laugavegi 33,35 og
Vatnsstíg 4 á borgarstjórnarfundi
á fimmtudagskvöld. Hins vegar
leggjast fulltrúar Vinstri grænna
og F-lista gegn fyrirhuguðu niður-
rifi þessara húsa sem og annarra
gamalla húsa við Laugaveg
milli Vatnsstígs og Frakkastígs.
ísrael:
Olmert fagnar
tillögum araba
Ehud Olmert, forsætisráð-
herra ísraels, hefur hrósað
tillögum Arababandalagsins að
friðaráætlun og sagt hana vera
„byltingarkennda". Olmert tók
þó fram að hann væri engan
veginn sáttur við allt sem fram
kæmi í áætluninni, sem Araba-
bandalagið samþykkti á fundi
sínum í Riyadh, höfuðborg
Sádi-Arabíu, á fimmtudaginn.
Samkvæmt áætluninni munu
arabaríkin viðurkenna fsra-
elsríki gegn því að ísrael láti
frá sér landsvæðin sem voru
hertekin árið 1967. Áætlunin var
fyrst lögð fram árið 2002, en
var á þeim tíma strax hafnað
af ísraelskum stjórnvöldum.
E
Auglýsingasíminn er
510 3744
Forsetinn fundar með bandarískum ráðamönnum í Washington:
Ræða samstarf háskólastofnana
Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, þingaði með banda-
rískum ráðamönnum í Washington
á fimmtudag. Hitti hann meðal
annars Nancy Pelosi, forseta fulltúa-
deildar Bandaríkjaþings, Harry
Reid, leiðtoga meirihlutans í öld-
ungadeildinni, og Barack Obama
öldungadeildarþingmann. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu frá
skrifstofu forseta íslands.
Á fundunum kom fram áhugi á
þvf að sendinefndir bandarískra
áhrifamanna kæmu til íslands á
næstu mánuðum til að ræða sam-
starfsverkefni um baráttu gegn lofts-
lagsbreytingum, samvinnu háskóla-
og tæknistofnana og endurnýjalega
orku. Kom fram að það væri heill-
andi framtíðarsýn ef þessi verkefni
myndu leysa af hólmi áratugalanga
samvinnu þjóðanna um varnarmál.
Forsetinn í Washington Nancy
Pelosi forseti fulltrúadeildar Ban-
daríkjaþings, Tom Lantos formaður
utanríkismálanefndarfulltrúadeildar
og forseti Islands Ólafur Ragnar
Grímsson