blaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 20
blaði
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árogdagurehf.
Sigurður G. Guðjónsson
Trausti Hafliðason
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Vinur Hafnarfjarðar
Hafnfirðingar ganga að kjörborði og kjósa um stækkun álversins í
Straumsvík í dag. Það verður spennandi að fylgjast með þeim kosningum,
enda um fátt meira talað í Firðinum undanfarnar vikur. Hvort sem menn
eru með eða á móti stækkun álversins er það einna merkilegast í þessum
kosningum að Hafnfirðingar skuli fá að kjósa um málefnið. Virkt íbúalýð-
ræði er nútímalegt og gefur kjósendum kost á að vera með í stórum ákvörð-
unum sem áhrif geta haft á alla bæjarbúa. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað
eftir síðustu kosningar að setja inn samþykkt þess efnis að þau mál sem
hún álítur vera mjög þýðingarmikil fyrir bæjarfélagið beri að leggja í dóm
kjósenda. Hafnarfjörður er eina sveitarfélagið í landinu sem hefur sett slíkt
ákvæði inn í samþykktir sínar. Með þessu var komið á virku íbúalýðræði
sem nú reynir á í fyrsta skipti.
I þessu máli virðist þó sem flestallir landsmenn hafi skoðun á málinu
og margir hefðu viljað kjósa um stækkun þótt ekki búi þeir i Hafnarfirði.
Stóriðja skiptir alla landsmenn máli. Það hvílir því mikil ábyrgð á Hafnfirð-
ingum í dag.
A undanförnum dögum hafa komið fram margvíslegar upplýsingar um
áhrif þess á samfélagið og umhverfið ef af stækkun verður. Meðal annars
telur Seðlabankinn líklegt að stýrivextir muni hækka enn frekar og að
þenslan muni aukast. Það þýðir að greiðslubyrði heimilanna í landinu þyng-
ist til muna. Stækkun álversins getur ýtt stýrivöxtum upp í 15 prósent en
þeir eru núna 14,25 prósent og þykir mörgum það ógnvekjandi há tala. Ef
Hafnfirðingar hafna stækkun álversins gæti það hins vegar leitt til lækk-
unar vaxta, að því er greiningardeild Glitnis spáir, og þar með verðbólgu-
hjöðnunar. Þetta er eitt af því sem Hafnfirðingar þurfa að huga að þegar þeir
kjósa í dag.
Annað sem er umhugsunarefni er virkjun Þjórsár. Ibúar við Þjórsá hafa
sent Hafnfirðingum bréf þar sem minnt er á að það séu þeir sem þurfi að
leggja til rafmagn til stækkunar álvers með því að fórna landslagi í og við
ána. Langur vegur sé frá því að almennur stuðningur sé meðal íbúa við
Þjórsá. I bréfinu biðja 23 bændur á svæðinu Hafnfirðinga um að hjálpa þeim
að vernda Þjórsá, „skraut hennar, fossa, flúðir, hólma, eyjar og bújarðir
þannig að komandi kynslóðir fái notið hennar, eins og hinar fyrri“.
Álverið í Straumsvík hefur stækkað margsinnis frá því það var upphaf-
lega byggt á þessum stað. Á þeim tíma hefur Hafnarfjörður einnig stækkað
og breyst. Afstaða fólks til stóriðju hefur líka gjörbreyst á þessum árum. Það
er ekkert atvinnuleysi í landinu. Vinnuafl er í stórum stíl sótt til útlanda.
Höfuðborgarsvæðið er því ekki í þörf fyrir stækkandi stóriðju. Það getur
heldur vart talist eðlilegt að erlent stórfyrirtæki dæli út milljónum í kosn-
ingabaráttu þar sem lýðræðisleg íbúakosning fer fram.
Leikararnir og Hafnfirðingarnir, Laddi og Siggi Sigurjóns, sungu vinsælt
lag fyrir nokkrum árum sem hét Vinur Hafnarfjarðar. Hvernig svo sem
kosningin um álverið fer í dag er mikilvægast af öllu að engin eftirmál verði,
að allir haldi áfram að vera vinir.
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aöalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaösins
PENZIM
ÍSLENSK NÁTTÚRUVARA UNNIN
Ú R SJÁVARRÍ KIN U UMHVERFIS
ÍSLAND
Dr. Jón Bragi Bjamason, prófessor í lífefnafræði, hefur
unnið að rannsóknum og þróun Pensímtækninnar um
áratuga skeið og er hún nú einkaleyfisvarin um allan heim.
Penzim fyrir húðina, liðina og vöðvana
20
LAUGARDAGUR 31. MARS 2007
blaöiö
^ trLH/ LtNGuRdTMttí.
H-P 20 /jjfUM OF StífJin Mep
OTPUA/lR/tóywA OG fjý ERllp tf-Þ
ÁR-um of SeíNír. j/tfo
Til hamingju Hafnarfjörður
I Garðabæ dettur engum í hug
að leyfa byggingu álvers í bænum.
Álver í Garðabæ hljómar jafnvel
skemmtilega fjarstæðukennt. Þar
hvarflar auðvitað ekki að nokkrum
manni slík áhersla í atvinnuupp-
byggingu og óhugsandi er að íbú-
arnir þar myndu samþykkja að
færa þær fórnir í umhverfi, ímynd
og loftgæðum sem slíkri starfsemi
fylgir. Svona stóriðja er jafnan
byggð upp á láglaunasvæðum þró-
unarlandanna og í iðnríkjunum á
svæðum sem lengi hafa átt í erfið-
leikum og glímt við atvinnuleysi
eða fólksflótta. Á slíkum stöðum er
fólk nefnilega tilbúið að færa fórnir
fyrir verksmiðjustörf.
Hafnarfjörður er athyglisverð
undantekning frá meginreglunni
en þar er verksmiðja frá gamalli
tíð sem vill gott betur en tvöfalda
sig. Auðvitað orkar það tvímælis
í nútímasamfélagi og hefur bæjar-
stjórnin undir forystu Samfylking-
arinnar brugðið á það ráð að láta
bæjarbúa sjálfa ákveða í atkvæða-
greiðslu í dag hvort leyfa skuli
stækkun. Það er óvenjulegt að
almenningi sé með þessum hætti
leyft að ráða úrslitum stórra mála
og full ástæða til að óska Hafnfirð-
ingum til hamingju með þetta tæki-
færi til að ráða sjálfir þróun bæj-
arins. Þetta er spennandi tilraun
í þróun lýðræðis og gaman að sjá
hinn mikla áhuga sem á kosning-
unni er.
Austur og öfgar
Eins og í öðrum kosningum
eru engar skorður settar við aug-
lýsingum. Óhóflegur og einhliða
fjáraustur í áróður sýnir að í fram-
tíðinni þarf að setja aðilum mörk
því menn kunna sér ekki hóf. En
fjáraustur getur auðvitað slegið í
báðar áttir og óhóf í auglýsingum
getur skerpt andstöðu.
Helgi Hjörvar
Sama máli gegnir um öfgarnar á
báða bóga, þær eru sjaldnast mál-
staðnum til framdráttar. Þannig
var eðlilegt fyrir andstæðingana að
afsaka ómálefnalega auglýsingu um
hræðilega mengun því þó mengun
frá álverum sé mikil er hún langt
undir heilsuverndarmörkum. Með
svipuðum hætti hefur verið leiðin-
legt að fylgjast með hræðsluáróðri
um lokun og að sjá starfsmönnum
og atvinnu þeirra beitt fyrir vagn-
inn með myndbirtingum o.fl. Og
þó vita allir að álfyrirtæki slást
um að fá að byggja hér verksmiðju
af þeirri stærð sem er í Straums-
vík núna. Hún er því ekki að fara
að loka, hvernig sem atkvæða-
greiðslan fer.
Hræðsluáróður á báða bóga
lýsir auðvitað helst vantrausti á
kjósendum. Auðvitað vita Hafnfirð-
ingar að bæði eru kostir og gallar
við stækkunina. Þeir vita að verk-
smiðjan skapar störf en fælir frá
önnur. Að hún mengar en borgar
í bæjarsjóð. Að hún eykur verð-
bólgu og hækkar vexti en eykur
hagvöxt. Og það eru engir betur til
þess fallnir en bæjarbúar sjálfir að
meta þessa kosti og galla, þó komm-
únistar kunni að vera annarrar
skoðunar.
Davíð í Samfylkinguna
Ekki er líklegt að ráðist verði í
nema eitt verkefni í stóriðju. Jafn-
vel Seðlabankastjóri er genginn til
liðs við Samfylkinguna og segir
það óráðlegt. Kyoto leyfir heldur
ekki nema eitt verkefni. Ef um-
hverfismál og efnahagsástand leyfa
að ráðist verði í þessa einu stóriðju-
framkvæmd þarf að liggja fyrir
hverjir vilja svona starfsemi. Þær
raddir hafa heyrst að um stækkun
í Straumsvík ættu fleiri en Hafn-
firðingar að mega kjósa en það er
misskilningur því við kjósum um
umhverfis- og atvinnustefnuna í al-
þingiskosningum í maí.
Hvort Hafnfirðingar vilja fyrir
sitt leyti leyfa stækkun í Straums-
vík er alfarið bæjarmál, því það
snýst um bæjarbraginn og sjálfs-
mynd bæjarbúa. Þó að á mörgum
öðrum svæðum suðvestanlands
leggi menn áherslu á þjónustu og
þekkingarstörf þá er það algjör-
lega mál Hafnfirðinga ef þeir vilja
leggja áhersluna á þungaiðnað. Það
val þeirra hlýtur fyrst og fremst að
ráðast af trú á eigin getu og mögu-
leikum Hafnarfjarðar í framtíðinni
og það mat leggja þeir sjálfir. Og
þó lýðræðið sé flókið, seinvirkt, erf-
itt og dýrt er engin betri leið til að
ráða úrslitum mála.
Höfundur er þingmaður Samylkingar
PENZIM er hrein,
tærog litarlaus
náttúruvara byggð á
vatni en ekki fitu.
PENZIM inniheldur
engin ilmefnl,
litarefni eða gerviefni
sem geta valdið
ofnæmisviðbrögðum.
PENZIM inniheldur
engar fitur, oílur eða
kremblöndur sem
geta smitað og eyðilagt
flíkur eða rúmföt.
PENZIM PENZIM
GEL SVirHALL NAÍI.IUI kjimiMMC LfrriON' UIÍM Mi KATVUAt
UAHINV L.vr¥N»rs Atlvtnuil Skrts Sx ffcUr UAHINf IXT.YXU* VJvjimoí SilnM K*ly 14» rmMli KVmturamt áf
'Vlp- -é
*
PENZfM
tOIIOfl
8
Penzim fæst í apótekum, heilsubúðum og verslunum Nóatúns um land allt.
penzim.is
Klippt & skorið
SPREHGI
AFSLATTAR
TIISQÐ
Allrar athygli verð er
herferð Múrbúðar-
innar gegn svokall-
aðriMúskóvæðinguhjástaerri
fyrirtækjum. Múskóvæðing
er þegar verslarnirslá um sig
með gylliboðum sem byggð
eru á fölskum forsendum og eru til þess fallin að
kasta ryki í augu neytenda. Klippari hefur langa
reynslu af verslunarstörfum og eru þar notuð öll
hugsanleg meðul til að fá viðskiptavininn inn og
senda hann út aftur með eins mikið og dýrt og
hægt er. Svokölluð sölunámskeið sem vinsæl voru
og eru ganga aðeins út á að selja viðskiptavini
annað og meira en hann kom upphaflega til að
kaupa. Fleiri og fleiri eru þó að sjá í gegnum rykiö
enda hefur umrædd Múrbúð náð umtalsverðri
markaðshlutdeild á skömmum tíma.
Dóms- og kirkjumála-
ráðherra,BjörnBjarna-
son, gerir tillögu um
240 manna varalið til viðbótar
við lögreglu sem kallað verði
til ef þörf krefur vegna öryggis wv.
rikisins, eins og hann orðar
það. Varalið þetta yrði til taksvegna varðgæslu mik-
ilvægra mannvirkja eða staða, landamæragæslu,
almennrar öryggisgæslu, mannfjöldastjórnunar,
umferðarstjórnar og annarra löggæsluverkefna.
Sjálfsagt er að hafa viðbragðsáætlun vegna ófyrir-
séðra ógna í framtíðinni en upphæðin sem Björn
talar um, rúmar 500 milljónir á fyrsta ári, er einnig
nýtileg í fjölmargt annað sem þegar liggur fyrir að
þurfi frekari fjárstuðning frá ríkinu. Barnavernd, að-
búnaður fatlaðra, húsnæðisskortur ellilífeyrisþega,
biðlistareftirheyrnartækjum...
Enn fjölgar þeim lífs-
ins lystisemdum sem
sauðsvarturalmúginn
verður að lifa án hér á landi.
Sportveiði hefur löngum þótt
mannsgamanogþóttlöngum
hafi verið dýrt að kasta iínu í
vinsælar ár víða um landið þá er nú svo komið
að séu áhugasamir ekki með dágóðar fúlgur í
tekjur hvern mánuð verða menn að láta spún
og maðk í Reynisvatni nægja héðan f frá.
Búið er að verðleggja allar helstu ár landsins
í samræmi við greiðslugetu erlendra auðjöfra
og verð á stöng tvö- til þrefaldast á fáeinum
árum. Eigendur flestra jarða að ánum, bændur
í flestum tilfellum, njóta mjög góðs af.
albert@bladid.net