blaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 31. MARS 2007
blaðið
folk@bladid.net
HVAÐ Er ekki nauðsynlegt að vera
Fir^NST í tengslum við barnið í sér?
„ Jú, og mestu skiptir að vera alltaf barnslega glaður. Pess vegna er ég líklega
MT M-J X\ • eins og bam í stjómmálum samanborið við alla pólitísku refma I kringum mig.“
Össur Skarphéðinssott,
þingmaður Samfylkingarinnar
Össur Skarphéðinsson kallar tilraunir Björns Bjamasonar dóms-
málaráðherra til að koma upp varaliði lögreglu „tindátaleik fyrir
fullorðna“ á netbloggi sínu. Hann segir jafnframt að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi gert hermál að sínu eina kosningamáli.
Nasa við Austurvöll
Mynd/Ámi Torfoson
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Eivor Pálsdóttir er vafalaust fræg-
asti Færeyingurinn í sögu Færeyja.
Hún hefur skapað sér stóran sess
á Islandi og þykir frumlegur og
flottur flytjandi. Hún er nú búsett í
Danmörku og hyggst reyna fyrir sér
á stærri markaði.
„fá, ég er að klára núna nýja plötu
sem hefur tekið hálft ár í vinnslu.
Hún er tekin upp í Dublin á írlandi
og er bœði sungin á ensku og fœr-
eysku, nokkuð sem éghefekki prófað
áður," sagði Eiver spennt.
„Við erum að hljóðblanda og það
líður ekki á löngu þar til hún verður
alveg tilbúin. Þetta eru allt lög i
mínum hefðbundna stíl má segja,
nema hvað hún er kannski örlítið
meira pródúseruð. Ég sem sjálf alla
textana á fœreysku en síðan voruþeir
þýddir fyrir mig á ensku. Mér finnst
það koma mjög vel út; hljómurinn og
boðskapurinn heldur sér alveg sem er
það sem ég var að leita eftir."
Eivor segist ekki vera að leita eftir
heimsfrægð þótt svo hún gefi nú út
á ensku.
„Auðvitað vill maður að
sem flestir fái tækifæri til
að hlýða á tónlistina og þá
er auðvitað sjálfgefið að
syngja á ensku“
„He, he, nei, nei, ekki þannig sko.
Auðvitað vill maður að sem flestirfái
tœkifæri til að hlýða á tónlistina og
þá er auðvitað sjálfgefið að syngja á
ensku. Eins og ég segi þá hef ég ekki
prófað þettafyrr en ég er mjögspennt
að sjá hvernig til tekst."
Hún segist þó ekki getað neitað
því að eflaust sé hún frægasti
Færeyingurinn.
„Jú, það er rétt. Samlandar mínir
hafa tekið mér mjög vel sem betur
fer. Plöturnar mínar virðast selj-
ast ágætlega þar ennþá og kann ég
þeim bestu þakkir fyrir það. Síðan
hef ég nú verið svo lánsöm að falla í
kramið hjá íslendingum einnig sem
ég er afar þakklát fyrir líka. En nú
bý í ég Danmörku og er að spila út
um alla Skandinavíu nánast.
Eivor segist sífellt fá hugmyndir að
lögum sem hún reyni að vinna með.
„Já, ef ég fœ hugmynd þá er ég
alltafmeð gítarinn á mér til þess að
gleyma henni ekki. Síðan reyni égað
vinna úr henni og þróa hana áfram
þar til hún verðurað lagi. Ogþarsem
ég á helling af gíturum fer ég aldrei
að heiman án eins slíks. Reyndar á
ég mér einn uppáhaldsgítar núna
sem ég keypti fyrir um ári. Merkið
heitir Martin og hann er besti vinur
minn núna!"
Þessi færeyska söngdíva kemur
fram á Atlantic Music Event-tónlist-
arhátíðinni í kvöld ásamt löndum
sínum úr öðrum hljómsveitum.
Hún segir mikinn uppgang tónlistar
í Færeyjum jákvæða þróun.
„Það eru margir spennandi hlutir
að gerast heima. Það er fullt afefni-
legum og ungum hljómsveitum að
gera góða hluti og ég hvet Islendinga
til að sjáþá íkvöld á Nasa."
Sagði þessi einlæga og almenni-
lega söngkona að lokum.
HEYRST HEFUR
í NETHEIMUM
sveimar nú mynd-
band eitt, pínlegra
en áróðursmynd-
band Róberts
Marshall.
Þar fer
Herbalife-
kóng-
urinn
Óskar Finnsson á kostum ásamt
Maríu Hjaltadóttur við landkynn-
ingu á íslandi. Myndbandið er vel
unnið í alla staði en athyglisvert er
að hlusta á enskukunnáttu kynn-
anna, eða öllu heldur vankunnáttu
þeirra. Mætti halda að þeir hafi
lært enskuna hjá Valgerði Sverris-
dóttur...
MÖNNUMer
tíðrætt um tind-
átaleiki Björns
Bjarnasonar
þessa dagana.
Vilji hans
til að koma
upp varaliði
lögreglunnar
hefur farið
misjafnlega í menn og eru frið-
arsinnar duglegir að
gagnrýna Björn fyrir
vikið. Þó hefur verið
bent á að Björn er
mikill aðdáandi
Bruce Willis
og Die Hard-
myndanna og
kannski má
leita skýringa
á „herbrölti“
Björns í þeirri staðreynd
að ný Die Hard-mynd
kemur einmitt út
í lokjúní...
BOLVfKINGAR
bjóða upp á bombu þann 4. apríl,
nánar tiltekið kosningabombu.
Þetta er svokölluð kosninga-
skemmtun þar sem frambjóðendur
flokkanna ásamt tónlistarmönnum
koma fram. Uppátækið er upp-
hitun fyrir alþingiskosningarnar f
vor og tækifæri fyrir pólitíkusa til
að koma málum sínum á framfæri.
Nafnbótin „Kosningabomban" er
þó athyglisverð og gefur til kynna
að sjóða muni upp úr, eða einhvers-
konar sprenging muni eiga sér stað.
Þó skal tekið fram að Bubbi Mort-
hens verður hvergi nálægur...
Fivor Rmlar i U\/n n a
Eiv0r Palsdottir aXerð og flugi:
Færeyingurmn
Kauptu EarPlanes^
eyrnatappa med þrýstijafnara
og njóttu þess ad fljúga án verkja eda
óþœginda í eyrum
Heymrtœkni
Glæsibæ j Álfheimum 741104 Reykjavík | sími: 568 6880 | www.heyrnartaekni.is
Su doku
7 9 3 4
8 7 5
4 5 1 3
8 6 1 9 4
9 3 2 8
4 6 3
3 8 7 4
5 6 1
8 9 1
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
HERMAN
eftir Jim Unger
Ása, lánaðir þú kettinum
6-21
<D LaughingStock International IncVdist. by Unitod Modia. 2004
röndóttu skyrtuna mína?