blaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007
blaöiö
Ekkert öðruvísi en aðrir
Ég myndi ekki segja að ég hafi fundið fyrir miklum hita
í mönnum en líkt og aðrir hef ég auðvitað orðið var við smá
öðruvísi en aðrir. Og ég óttast engin eftirmál af þessum
kosningum, hvernig sem þær fara.
Steinn Ármann
Magnússon leikari
Undanfarna daga og vikur hefur
Hafttarfjörður verið tnikið í sviðs-
Ijósinu vegna tbúakosninga um
nýtt deiliskipulag sem fara fram
í dag, 31. mars. Andstæðar fylk-
ingar ltafa tekist hart á um hvort
álver Alcan við Straumsvík eigi
aðfá að stækka eður ei og stefnir
í hnífjafnar og æsispennandi
kosningar. En hverttig er stemn-
ingin t bænum? Geta Hafnfirð-
ingar orðið vinir aftur? Fer það ef
til vill eftir útkomu kosningantta?
Fimm valinkunnir Hafnfirðingar
voru spurðir álits á þvt.
Hver er ekki vinur
Hafnarfjarðar?
Það hefur verið mikill hiti og sviti í Hafnar-
firðinum undanfarið, enda er fólkið sem býr
í bænum afskaplega meðvitað og klárt. Eg
hef nánast getað sleppt því að hita upp í þol-
fimitímunum mínum undanfarið, bara sagt
,álver“ í byrjun tímanna og það nægir til að
öllum hitni mjög í hamsi.
Ef fólk kýs annars i íbúakosningunum í dag
með hreina samvisku þá geta allir unað sáttir
við sitt og hafa ekkert við aðra að sakast sama
hvernig kosningarnar fara.
Hafnarfjörður er alveg einstakur bær og
býður upp á svo margt annað en álver. Sem
dæmi má nefna leikhús, veitingastaði, kaffi-
hús, listasöfn, heilsuræktarstaði, útivistar-
svæði, sundlaugar og umfram allt frábæra
íbúa.
Við erum öll miklir vinir. Hver er ekki vinur
Hafnarfjarðar?
Sigurður Sigurjónsson, leikari
Erum ein
stór fjölskylda
Umræðan um stækkun álversins og íbúa-
kosningarnar hefur verið mjög heit hér í bæ
og sitt sýnist hverjum, það fer auðvitað ekki á
milli mála. Enþó svo að margir Hafnfirðingar
hafi verið mjög eindregnir i afstöðu sinni með
eða á móti hef ég líka orðið var við að menn
hafa verið að sveiflast í skoðunum fram og til
baka og ég met sem svo að þannig hafi það
verið alveg fram á síðustu stundu.
Það er svo sem ágætt fyrir okkur að takast á
um þessi mál og ég held við höfum bara gott af
því. Reyndar held ég að það styrki sambandið
og böndin á milli okkar en eins og margoft
hefur komið fram erum við Hafnfirðingar ein
stór fjölskylda þannig að ég óttast ekki eftir-
málin af þessu máli.
Ég held að það sé líka alveg sama hvernig
þessar kosningar fara, þar sem við getum vel
aðskilið þær frá vináttu okkar. Það er ekki
nokkur vafi á því að við eigum eftir að halda
áfram að vera vinir, sama hvað þessum íbúa-
kosningum líður.
Kostir og gallar
við íbúakosningar
Það hefur verið talsverður hiti á milli stríð-
andi fylkinga og hefur það komið berlega í
ljós á þeim borgarafundum sem haldnir hafa
verið að undanförnu í Hafnarfirði um málið.
Umræðan hefur á tíðum orðið mjög tilfinn-
ingaþrungin og að mörgu leyti ólík annarri
þjóðfélagsumræðu. Ákveðnir hópar hafa
verið mjög eindregnir í afstöðu sinni til fyrir-
hugaðrar stækkunar en stór hópur bæjarbúa
hefur kynnt sér málin síðustu daga og reynt
að mynda sér skoðun út frá þeim gögnum sem
liggja fyrir um kosti og galla stækkunarinnar.
Ég á nú ekki von á öðru en að bæjarbúar sætti
sig við og virði niðurstöður atkvæðagreiðsl-
unnar, annars væri til lítils að vera að fara út
í íbúakosningu af þessu tagi. Reyndar hefur
meirihluti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn
Hafnarfjarðarboðað að atkvæðagreiðslur sem
þessar verði tíðar á komandi árum. Þá verður
kannski kosið um framtíð annarra fyrirtækja
í bænum, deiliskipulag í miðbænum, stórar
framkvæmdir á vegum bæjarfélagsins eða
önnur „mikilvæg“ mál eins og það er kallað.
Hvort Hafnfirðingar skiptast í fylkingar í
hverju málinu á fætur öðru verður tíminn að
leiða í ljós. En ljóst er að kostir og gallar íbúa-
kosningar eins og hér um ræðir eiga án efa
eftir að verða mikið ræddir í kjölfar þessarar
kosningar um stækkun álversins og reynslan
af henni metin.
Margrét Gaua Magnúsdóttir
bæjarfulltrúi
Ástríðufullt fólk
með eindæmum
Við Hafnfirðingar höfum alltaf náð að
sameinast eftir allar kosningar og eftir alla
FH-Hauka-leiki. Við erum vissulega heitt og
ástríðufullt fólk með eindæmum og skerum
okkur að mörgu leyti úr á landsvísu. Það sést
ekki síst á þeirri staðreynd að 8 af n bæjarfull-
trúum hneigjast til vinstri. En þótt við eigum
til að rífast hatrammlega elskumst við að
sama skapi vel á eftir.
Vissulega hafa menn deilt mikið og ég get
ekki ímyndað mér annað en að fermingar-
veislur i bænum hafi verið svakalegar þótt
ég hafi reyndar ekki farið í neina sjálf. Það er
mikill hiti í fólki og þetta er mikið tilfinninga-
mál á báða bóga og það ber að virða það. Þarna
er auðvitað bara tvennt í boði, já og nei.
Ég held að það sé alveg sama hvernig kosn-
ingarnar fara, fólk mun sættast eftir þær og
verða vinir aftur. Það að ibúarnir fá að kjósa
þýðir vonandi að það verður meiri sátt í sam-
félaginu heldur en hefði verið ef ákvörðunin
hefði verið tekin af n manns. Þá hefðu sárin
verið lengur að gróa. Ég er mjög stolt af þessari
kosningu í alla staði, enda erum við með henni
að brjóta blað í íslenskri stjórnmálasögu.