blaðið - 31.03.2007, Side 40
LAUGARDAGUR 31. MARS 2007
blaöiö
menning@bladid.net
Gleymd framtíð
Sýning á vatnslitamyndum eftir Erró hefst í Listasafni Reykjavíkur mánu-
daginn 2. apríl og stendur til 15. apríl. Sýningin nefnist Gleymd framtíð
og uppistaða hennar kemur frá sýningu í Galerie Lous Carré & Pie í
París sem opnuð var í mars undir yfirskriftinni The Forgotten Future.
Bókmenntir i Wales
Bókmenntahátíðin Hay Festival, sem er styrkt af
dablaðinu Guardian, verður haldin í tuttugasta sinn
í bænum Hay-on-Wye í Wales dagana 24. maí til 3.
júní í ár en þar er rík bókmenntahefð.
Borghildur Óskarsdóttir opnar sýnfngu í dag:
Ættar- og
usaga
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Borghildur Óskarsdóttir opnar í
dag klukkan 14:00 sýningu í Lista-
safni ASl. Sýningin ber heitið
,Opnur“ og uppistaðan í henni er
ættar- og fjölskyldusaga sem teng-
ist hinum ýmsu stöðum á sunnan-
verðu landinu, náttúrunni þar og
húsunum.
„Þessi sýning tengist sögu og
ættfræði föðurfjölskyldu minnar
frá Árnes- og Rangárvallasýslu og
víðar. Faðir minn var áhugamað-
ur um ættfræði og rannsakaði
sínar ættir langt aftur í aldir og
að hluta til byggir sýningin á hans
vinnu, en hún tengist líka sögum
af barnæsku hans og systkina
hans frá byrjun 20. aldar," segir
Borghildur. „Ég tók ljósmyndir af
stöðunum sem tengjast þessu fólki
eins og þeir eru í dag. f sumum til-
fellum eru húsin horfin og ný kom-
in í þeirra stað og í öðrum eru að-
eins tóftir eftir á staðnum. En það
eru engar myndir af fólki heldur
bara náttúrunni og húsunum auk
texta um söguna og fólkið.“
Borghildur segist lengi hafa
gengið með þessa sýningu í koll-
inum. „Sögu fátæks fólks og alþýð-
unnar hefur ekki verið gerð eins
mikil skil í sagnfræðinni eins
og sögu þeirra sem meira mega
sín. Sumar af þessum myndum
á sýningunni tók ég árið 2002
þegar ég var búin að ákveða að
ég vildi mynda þessa staði þótt
ég hefði ekki alveg verið búin að
gera upp við mig hvað ég ætlaði
nákvæmlega að gera við þær. Ég
hafði áhuga á að fjalla um sögu
þessa fólks en treysti mér ekki
beint til þess að skrifa ættfræðirit.
Þess í stað skoraði ég á sjálfa mig
að vinna þetta sem myndlist og
flétta þá inn í verkið öðrum þátt-
um, eins og handunnum skálum
og stjörnumerki.
Sýningin stendur til 29. apríl.
SKI'.VTI
5. Veisluborð
6. Sálmabækur
PÓSTURINN
allur pakkinn
Sendu skeyti
Skeytaþjónusta Póstsins er á www.postur.is eða (slma 1446
Skeyti standa alltaf fyrir sínu og bæði er Ijúft að senda þau og
taka við þeim. Hvert sem tilefnið er: skírn, ferming, brúðkaup,
útskrift, ástarjátning, frábær árangur, þakklæti eða jólakveðja.
Samúðarskeyti sýna I verki hlýhug sem oft er erfitt að koma
orðum að.
Á www.postur.is velurðu hvaða mynd á að vera á skeytinu og
skrifar textann. Þú getur pantað skeyti fram (tímann svo það
gleymist ekki á stóra deginum!
Pósturinn býður einnig upp á: • Hugskeyti
• Almenn skeyti
• Gjafaskeyti
• Hraðskeyti
1. Blöðrur
3. Hjónasæng
4. Hringar
7. Skírnarkjóll
Styttist í Aldrei
fór ég suður
Nú eru 37 atriði komin á „lista
hinna staðföstu" eins og hann
er kallaður, sem er listi yfir þá
sem koma fram á Aldrei fór ég
suður -Rokkhátíð alþýðunnar
sem haldin verður á ísafirði
næstkomandi páska. Á nýjum
og uppfærðum lista yfir þá
sem koma fram á hátíðinni
kemur fram að rokksveitin I
adapt hefur dottið út að þessu
sinni, en í staðinn hafa bæst
við franska hljómsveitin Nos-
fell, Ólöf Arnalds og Dónadú-
ettinn og heimaatriðin Hrólfur
Vagnsson, Kristina Logos,
Xenophobia og Lúðrasveit Tón-
listarskólans á ísafirði. Hátíðin
hefst þann 7. apríl.
Leiðsögn Valgerðar
Valgerður Bergsdóttir, myndlistar-
maður og kennari, fjallar um verk Jó-
hanns Briem á yfirlitssýningunni í Lista-
safni fslands á morgun, sunnudaginn 1.
apríl klukkan 14.00. Valgerður hyggst
ganga með gestum um sýninguna og
varpa Ijósi á verk listamannsins út frá
persónulegri reynslu. Með þátttöku Val-
gerðar í fræðsludagskrá safnsins gefst
listunnendum tækifæri til að nálgast
verk listamannsins í víðu samhengi.
Sýning á verkum Jóhanns Briem og
Jóns Engilberts stendur yfir í lista-
safninu til 29. apríl og er boðið upp á
leiðsögn hjá sérfræðingum alla þriðju-
og föstudaga í hádeginu og á sunnu-
dögum klukkan 14.00.
23. Liljur
24. Calla/Fenjadísir
Pöntunarsíminn er 1446
eða á www.postur.is
Lausir miðar
Enn eru lausir miðar á fyrstu stórtónleika
Bjarkar á íslandi í sex ár sem haldnir verða
í Laugardagshöll þann 9. apríl. Þetta verða
fyrstu tónleikarnír í heimstónleika-
ferð Bjarkar til kynningar á nýrri
breiðskifu, Volta, sem kemur út
um heim allan þann 7. maí. Á
tónleikunum hyggst Björk frum-
flytja ný lög af plötunni ásarrit
eldri lögum af fyrri plötum. Hægt
er að nálgast miða á midi.is.