blaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 47
blaðið
LAUGARDAGUR 31. MARS 2007
41
að fara algjörlega í þetta af fullum
krafti og sinna þessu. Þangað til
hafði ég verið með þetta í bakhönd-
inni og verið að hjálpa til. Það sem
menn þurfa að horfast í augu við
þegar þeir fara út í rekstur er að
þetta er vitanlega áhætta en ef menn
vakna snemma á morgnana, vinna
allan daginn og reyna að vera bestir
í því sem þeir eru að gera þá rætist
þetta einhvern veginn.“
Þegar Einar er inntur eftir því
hver sé lykillinn að hans velgengni
segir hann: „Það er fyrst og fremst
það að vera duglegur, rífa sig fram
úr á morgnana, vinna af krafti og
reyna að fylgjast með. Það er líka
mikilvægt að bera gæfu til að velja
með sér gott fólk. Auk þess reyni ég
að koma þannig fram við fólk að það
vilji halda áfram að vinna með mér
og eiga við mig frekari samskipti.“
Keppni í lýðhyili
Einar hefur verið dómari í sjón-
varpsþættinum X-Faktor í vetur
sem hann segir vera mjög skemmti-
legt starf. Aðspurður hver muni
vinna X-Faktor næstkomandi föstu-
dag segir hann að bara einn komi
til greina. „Ég hef enga trú á öðru
en að Jógvan vinni þetta, hann er
algjörlega það sem við erum að
leita að í þessari keppni. X-Faktor
og Idol eru hraðbraut til frægðar og
frama og kostnaður söngvaranna
er að hlusta á gagnrýni okkar sem
sitjum við þetta borð. Þeir sem kom-
ast alla leið fá sennilega mestar sví-
virðingar og hól en samt sem áður
Sennilega geri ég oflítið
afþví að slappa af Þegar
maður hefur svona gaman
afþví sem maður er að gera
og er það gæfusamur að
vera að vinna við það sem
mannifinnst gaman þá
hleður það mann um leið.
eru dómararnir heima á íslandi
bara kettlingar miðað við það sem
fólk þarf að ganga í gegnum annars
staðar í heiminum,“ segir Einar og
viðurkennir að keppnin snúist ekki
eingöngu um söng. „Það er verið að
keppa í almennri lýðhylli en ekki
söng. Þetta er vinsældarkeppni, þátt-
takendur koma fram og heilla fólk
með söng, framkomu, yfirbragði og
útgeislun. Bestu söngvarar í heimi
eru ekki endilega þeir vinsælustu
því það fer ekki alltaf saman. Ef
einhver er góður söngvari, hundleið-
inlegur og hrokafullur þá nær hann
ekki árangri því hann getur ekki
náð langt einn, það þarf meira til.“
Heimili í tveimur löndum
Það er óneitanlega mikið verkefni
að reka farsælt fyrirtæki ásamt því
að sinna fjölskyldunni og þessa dag-
ana segir Einar að honum líði eins
og hann sé að vinna allan sólarhring-
inn. „Ég hef lagt mikið undir í verk-
efnið í Bretlandi og það þýðir ekkert
annað en að vinna mikið, bæði fyrir
mig sjálfan og þá sem fjárfesta með
mér. Ég verð að geta horft framan í
fólk og sagt að ég gerði allt sem hægt
var að gera til að ná árangri. Eg
held að það sé eina leiðin til að ná
árangri. Sennilega geri ég of lítið af
því að slappa af. Þegar maður hefur
svona gaman af því sem maður er
að gera og er það gæfusamur að vera
að vinna við það sem manni finnst
gaman þá hleður það mann um leið.
Eg og fjölskyldan reynum að taka 2
vikur öðru hvoru þar sem ég loka
öllu, fer aðeins frá og hvíli mig. Ég er
farinn að meta það miklu meira, að
fara frá og fara þá svo langt i burtu
að maður geti hvílst. 1 augnablikinu
erum við með heimili í Bretlandi og
á íslandi og það hefur gengið ágæt-
lega þar sem konan mín er ennþá í
fæðingarorlofi. Við þurfum reyndar
að endurskoða þetta í maí þegar
hún hverfur aftur til sinna starfa.
En eins og staðan er í dag erum við
með mjög notaleg heimili á báðum
stöðum þar sem við getum haft eðli-
legt heimilislíf."
Fallegasta kona sem ég hafði séð
Einar er giftur Áslaugu Thelmu
Einarsdóttur og saman eiga þau tæp-
lega eins árs gamla dóttur.
„Við erum búin að vera saman í
næstum tíu ár en við kynntumst í
Arizona State University. Þetta hefur
verið mjög farsælt og gott samband.
Ef þetta var ekki ást við fyrstu sýn þá
var þetta allavega gríðarlegur áhugi
við fyrstu sýn. Frá fyrsta degi fannst
mér Áslaug vera fallegasta kona sem
ég hafði séð og hún er afskaplega
falleg að innan og utan. Fyrir utan
að vera konan mín þá er hún trún-
aðarvinur, ráðgjafi og hefur komið
að þessari uppbyggingu. Það hefur
reynt jafn mikið á hana og á mig í
þessu öllu saman," segir Einar en líf
hans breyttist til frambúðar þegar
hann eignaðist litla dóttur. „Föður-
hlutverkið er yndislegt og eitthvað
sem maður getur eiginlega ekki
alveg lýst. Það hefur gefið mér al-
veg gríðarlega mikið og breytt sýn
minni á lífið. Dóttir mín hefur gefið
mér mjög mikið og ég vona að ég
geti gefið henni jafnmikið. Forgangs-
röðunin hefur breyst í kjölfar komu
hennar. Maður sneiðir gríðarlega
mikið utan af alls kyns óþarfa, ég
reyni að fókusera bara á stóru hlut-
ina í vinnunni og reyni svo að gefa
henni það sem eftir er af tímanum.
Ég get ekki annað en verið gríðar-
lega hamingjusamur enda á ég fal-
legt og heilbrigt barn með fallegri,
heilbrigðri og yndislegri konu og
nýt lífsins til fulls.“
svanhvit@bladid.net
Einar Bárðarson „Ég
get ekki annað en verið
gridarlega hamingju-
samur enda á ég fallegt
og heilbrigt barn með
fallegri, heilbrigðri og
yndislegri konu og nýt
lífsins til fulls. “
Austurland tækifæranna
Tækifæri til að nýta og njóta
Á Mið-Austurlandi er að myndast öflugur byggðaklasi í skjóli einstakrar
náttúru, friðsæll og fjölskylduvænn staður. Hátt í þúsund ný framtíðar-
störf bjóðast fólki með margs konar menntun og reynslu. Með eflingu
atvinnulífs og fjölgun íbúa skapast fjölbreytt viðskiptatækifæri fyrir
hugmyndaríka frumkvöðla.
Sveitarfélög á Mið-Austurlandi hafa kostað kapps um að styrkja innviði
samfélagsins og hundruð nýrra íbúðarhúsa eru að rísa. Á svæðinu er
yfirbyggður knattspyrnuvöllur, glæsilegar útisundlaugar og frábært
skíðasvæði. Þjónusta á Mið-Austurlandi færist stöðugt nær því sem
gerist á höfuðborgarsvæðinu og neytendur hafa úr mörgu að velja.
Samgöngur til og frá svæðinu eru góðar, á landi, í lofti og á sjó.
Tækifæri til hvers konar útivistar eru fjölmörg. Fallegar gönguleiðir
eru við hvert fótmál, stærsti skógur landsins og góðir hálendisvegir.
Hægt er að stunda hvers kyns veiðar, hestaíþróttir njóta vaxandi
vinsælda og golfurum fjölgar stöðugt. Einnig bjóðast frábær tækifæri
til afþreyingar, listirnar dafna og íþróttastarfsemi er öflug.
^ L
5 AUSTURLAND
/ :%v TÆKIFÆRANNA
'' ■ • •; -
Gríptu þitt tækifæri
Hjá Fjarðaáli er nú búið að ráða hátt í 300 starfsmenn og
við leitum enn að fólki sem vill starfa með okkur, að konum
jafnt sem körlum. Konur er nú um þriðjungur starfsmanna
hjá Fjarðaáli og hlutfall kvenna af starfsmannafjölda í álveri
er hvergi í heiminum jafnhátt.
Síðustu 100 störfin í boði
Framleiðslustarfsmenn
Okkur vantar fleiri eldhressa starfsmenn i álframleiðslu og
málmvinnslu. Til framleiðslustarfsmanna eru ekki gerðar
ákveðnar krófur um menntun eða kunnáttu. Allir fá viðamikla
þjálfun og fræðslu i fyrirtækinu. Verkefni hvers starfsmanns
verða fjölbreytt og mikið er lagt upp úr starfsþróun og
símenntun.
Rafiðnaðarmenn og véliðnaðarmenn
Við leitum að faglærðum rafiðnaðarmonnum og véliðnaðar
mönnum til að sinna viðhaldi tækja og búnaðar i hátæknivæddu
álveri Fjarðaáls. Hjá fyrirtækinu verða um 120 tæknimenntaðir
starfsmenn. Faglegur metnaður og stóðug þróun verða
leiðarljós okkar inn í framtíðina.
Öll störf henta bæði konum og körlum.
Umsóknarfrestur er til og með 2. april.
Viðkomandi munu hefja störf á næstu sex mánuðum.
capacent
RÁDNINQAR
Hægt er aö sækja um störf hjá Alcoa FjarÖaáli á capacent.is (áöur IMG-Mannafl).
Nánari upplýsingar fást á www.alcoa.is og hjá Sigurlaugu Þorsteinsdóttur
(sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is) og Helgu Snædal
(helga.snaedal@capacent.is) hjá Capacent í síma 540 1000.
1
| www.alcoa.is
Alcoa Fjarðaál
s
ALCOA