blaðið - 28.04.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 28.04.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 blaöiA VEÐRIÐ I DAG Hiti Víða léttskýjaö en skýjaö Sunnanlands og dálítll súld viö ströndina. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast Norðan- og Austanlands Á FÖRNUM VEGI Ætlarðu að fara að veiða í sumar? Sigríður Kamilla Alfreðsdóttir „Það getur vel verið.“ Sigurður Skarphéðinsson „Já, Þingvallavatn er í uppáhaldi." Þórir Kjartansson „Já, konur!" Guðmundur Haukur Guðmundsson „Nei.“ Pétur Kristjánsson „Ég ætla að fara eins mikið og ég get.“ Á MORGUN A morgun: Suðaustan 5-10 m/s og dálítil væta með köflum, en hægarl og léttskýjað norðan- og austanlands. Hiti víða 10 til 15 stig. | VÍÐA UM HEIM | Algarve 19 Amsterdam 24 Barcelona 20 Berlín 26 Chicago 14 Dublin 14 Frankfurt 27 Glasgow Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Montreal 18 New York 25 Orlando 17 Oslo 19 Palma 17 París 18 Stokkhólmur 11 Þórshöfn 10 21 19 20 26 17 11 Nægt framboð lóða í nýjum hverfum 1 Reykjavík: Þúsund íbúðir í boði hið minnsta ■ Fast lóðaverð ■ Nýjar úthlutunarreglur ■ Úthlutað þrisvar á ári Eftir Þröst Emilsson the@bladid.net Lóðir fyrir að minnsta kosti 1000 íbúðir verða í boði í nýbygginga- hverfum í Reykjavík á næstu árum og 500 nýjar íbúðir í miðborg og ná- grenni. Gert er ráð fyrir að úthlutað verði þrisvar á ári eða í maí, sept- ember og desember. Borgarstjórnarmeirihluti Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks kynnti í gær uppbyggingar- og út- hlutunaráætlun fyrir íbúabyggð í Reykjavík til næstu ára. Yfirskrift áætlunarinnar er „Veldu þinn stað í Reykjavík”. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sagði að lykilorð þeirrar áætlunar væru fjöl- breytni, framboð oggæði. Hann sagði að lykilsvæðin væru Úlfarsárdalur, Reynisvatnsás, Slippasvæðið, Geld- inganes, Örfirisey og Vatnsmýrin. „Markmiðið er að allir sem vilja geti byggt og búið í Reykjavík og að borgin verði fyrsti búsetukostur sem flestra,” sagði borgarstjóri. Við þetta tilefni opnaði hann nýjan vef sem sýnir áætlun næstu ára í lóðaúthlutun. Borgarbúum er nú gert kleift að skoða á Netinu ný íbúðasvæði og lóðir sem í boði verða. Hanna Birna Kristjánsdóttir, for- maður skipulagsráðs, sagði að nægt framboð lóða í Reykjavík væri fram- tíðin og í samræmi við málefna- samning meirihlutaflokkanna. 1 máli borgarstjóra kom fram að nú verði nýjar úthlutunarreglur viðhafðar í Reykjavík. Hver einstak- lingur geti sótt um eina lóð. „Eftir að farið hefur verið yfir allar umsóknir verður dregið úr þeim um- sóknum sem uppfylla öll skilyrði. Þannig ræðst í fyrsta lagi hverjir fá lóðir og í öðru lagi í hvaða röð um- sækjendur fá að velja sér lóð.” Fast verð er á lóðum í nýju regl- unum, 11 milljónir fyrir einbýlishús, 7,5 milljónir fyrir parhús og raðhús og 4,5 milljónir fyrir fjölbýlishús. Sykursýki 2: Erfðavísar greindir Vísindamönnum, þar á meðal sérfræðingum deCODE, hefur tekist að greina erfðavísa sem auka hættu á að fólk fái sykur- sýki. Erfðavísarnir eru taldir auka hættu á að fólk fái áunna sykursýki, svokallaða sykursýki 2, sem um 200 milljónir manna í heiminum hafa. Sykursýki veldur því að líkaminn fram- leiðir ekki nóg insúlín til að viðhalda nægu blóðsykurmagni í líkamanum. Tíðni áunninnar sykursýki hefur aukist gríðarlega á undan- förnum áratugum en talið er að hún stafi meðal annars af ofáti og hreyfingarleysi. Vonir standa til að uppgötv- unin leiði til þróunar nýrra lyfja gegn sjúkdómnum. Slys í KófÆtvogslaug: Var að þreyta kafsundspróf Drengur er enn þungt haldinn eftir að hafa fundist meðvitund- arlaus á botni Kópavogslaugar. Hann er í 10. bekk Snælands- skóla og var í kafsundsprófi. Sundkennara og starfsmanni laugarinnar tókst að lífga dreng- inn við á bakkanum, og var hann fluttur á gjörgæslu Land- spítala-háskólasjúkrahúss, þar sem honum er haldið sofandi. FVRIRTÆKJA & MANNLÍFSSVNINGIN DAGANASV10. JÉNÍ. í ÍÞRÓmiróSI SOIVJI I.ASKÓM! ER ÞITT FYRIRTÆKIBÉID AD SKRÁ SIG? SKRÁNING í FIMIIM MMlÍl.SIMl 897-0787 4 Á VEFNIIM WWW.JRB0lG2007.IS iDl'lon í lH'lnnl..„lflkiífkl Itrtr Mm!n,,*,iilii Inn,..; Guðrún Ögmundsdóttir í allsherjarnefnd: Undanþágurnar nauðsynlegar Forstjóri Útlendingastofnunar, Hildur Dungal, segist ekki vita til hvers allsherjarnefnd horfi þegar hún veiti undanþágur frá þeim skil- yrðum sem uppfylla þarf til að fá rík- isborgararétt.Dómsmálaráðuneytið megi ekki líta framhjá upplýsingum lögreglu og Útlendingaeftirlitsins þegar veittur er íslenskur ríkisborg- araréttur líkt og Alþingi. Nefndarmennirnir þrír í allsherj- arnefnd Alþingis sem veittu Luciu Celeste Molina Sierra íslenskan rík- isborgararétt segjast ekki hafa kann- ast við tengsl stúlkunnar við Jón- ínu Bjartmarz umhverfisráðherra. Lucia, sem kemur frá Gvatemala, er kærasta sonar Jónínu og er skráð á lögheimili hennar. { Kastljósi Ríkis- útvarpsins í fyrrakvöld kom fram að aðstæður Luciu hafi verið allt WmELei A /IfN BbSÍm ,tzrj mv t... uu tiM'gTTT fci m Alþingi Má líta framhjá R upplýsingum lögreglu og |í Útlendingaeftirlitsins við : V ý iC ly veitingu ríkisborgararétts ■ ■ • * * \ 1 "X aðrar en hinna 17 sem allsherjar- nefnd þingsins samþykkti að veita íslenskt ríkisfang á sama tíma. Nefndarmennirnir þrír eru Guðjón Ólafur Jónsson , Guð- rún Ögmundsdóttir og Bjarni Benediktsson. Guðrún Ögmundsdóttir sam- fylkingarmaður vísaði á nefndar- formanninn og vildi ekki tjá sig um mál Luciu Sierra. Spurð hvort henni fyndist rétt að undanþágur frá reglunum væru í höndum Al- þingis svaraði hún því játandi. Mál fólksins væru misjöfn og æðra stjórnvald ætti að geta skorið úr um hvort veita ætti undanþágur frá regl- unum. Hvorki náðist í Guðjón Ólaf né Bjarna Benediktsson nefndarfor- mann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.