blaðið - 28.04.2007, Blaðsíða 14
blaði
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árog dagurehf.
Trausti Hafliðason
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Köld slóð
Nokkuð skuggalegar fréttir bárust af Kárahnjúkum í vikunni þegar í
ljós kom að á aðeins tíu dögum höfðu 180 manns leitað til heilsugæslunnar
á staðnum vegna veikinda.
Um páskana fór að bera á því að starfsmenn, sem unnu í aðrennslis-
göngum, leituðu til Þorsteins Njálssonar yfirlæknis vegna slappleika. í
ljós kom að þeir voru með eitrunareinkenni sem talið er að rekja megi til
mengunar í einum hluta aðrennslisganganna. Auðvitað geta alltaf orðið
slys en það sem vekur helst athygli í þessu öllu saman eru viðbrögð vinnu-
veitandans, ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo.
Þorsteinn Njálsson, yfirlæknir á Kárahnjúkum, gerði yfirmönnum fyr-
irtækisins strax viðvart en þeir sáu ekki ástæðu til að gera neitt. Það var
ekki fyrr en menn komu út úr göngunum með virkilega slæm eitrunarein-
kenni, bronkítis, lungnabólgu og astma sem hreyfing komst á hlutina. Það
var sem sagt ekki fyrr en starfsmenn voru komnir í lífshættu sem brugðist
var við. Og hverjir voru það sem brugðust við? Það var Vinnueftirlit ríkis-
ins, ekki Impregilo. Þegar starfsmenn Vinnueftirlitsins sáu hvernig ástatt
var lokuðu þeir strax þeim hluta ganganna þar sem mengunin var.
Viðbrögð Impregilo hafa verið röng frá upphafi þessa máls. Þorsteinn
segir að eftir að göngunum hafi verið lokað hafi yfirmenn fyrirtækisins
látið stela sjúkralista með nöfnum þeirra 180 starfsmanna sem veiktust.
Eftir það hóf talsmaður Impregilo að draga í efa að allir á listanum hefðu
veikst vegna mengunarinnar. Það er algjört aukaatriði hversu margir
veiktust og það er leitt að menn skuli reyna að breiða yfir vandann með
þessum hætti. Matthías Halldórsson landlæknir sagði Impregilo hafa
brotið lög með því að taka listann og að þeim bæri að skila honum sem
þeir gerðu í gær.
I Blaðinu í gær sagði Þorsteinn að skelfilegt væri að eiga við Impregilo.
„Ég myndi ekki senda neinn sem mér þykir vænt um inn á þetta vinnu-
svæði,” sagði yfirlæknirinn. Formaður Starfsgreinasambands íslands tók
í svipaðan streng og læknirinn. „Að senda menn kílómetra inn í alvarlega
menguð göng og skipuleggja vinnu í margar vikur, vitandi það að staður-
inn er heilsuspillandi, segir manni að það er ekki allt í lagi með stjórnendur
þessa fyrirtækis,” sagði Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasam-
bandsins, í samtali við Blaðið. Hann útilokar ekki málssókn vegna þessa.
Þegar yfirlæknirinn á Kárahnjúkum, landlæknir og formaður Starfs-
greinasambandsins láta jafn þung orð falla um starfshætti Impregilo og
raun ber vitni verða stjórnendur þess að hugsa sinn gang. Þeir geta í raun
þakkað guði fyrir það að enginn starfsmaður skyldi hafa látist vegna eitr-
unarinnar því þeir vissu af menguninni löngu áður en göngunum var
lokað. í stað þess að taka ákvörðun um að loka þeim og bæta loftræsting-
una var vinnu haldið áfram. Heilsu starfsmanna var stefnt í voða til þess
eins að verkið drægist ekki á langinn. Er það rétt forgangsröðun?
Trausti Hafliðason
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingan Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
PENZIM
ÍSLENSK NÁTTÚRUVARA UNNIN
Ú R SJÁVARRÍKINU UMHVERFIS
ÍSLAND
Dr. Jón Bragi Bjamason, prófessor í lífefnafræði, hefúr
unnið að rannsóknum og þróun Pensímtækninnar um
áratuga skeið og er hún nú einkaleyfisvarin um allan heim.
Penzim fyrir húðina, liðina og vöðvana
14 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 blaóiö
Breytum rétt
í gær sýndu niðurstöður Capa-
cent-könnunar að yfirgnæfandi
meirihluti þjóðarinnar er sammála
um að ójöfnuður hefur aukist á Is-
landi á þessu kjörtímabili. Það fer
heldur ekki fram hjá neinum. Það
er ein af helstu ástæðum þess að við
viljum breytingar í kosningunum í
vor - að við vitum að jöfnuðurinn
hefur verið stærsti kostur og mesti
styrkleiki íslensks samfélags og
helsta ástæðan fyrir því hvað hér
er gott að búa. Vegna jafnaðarins
og þeirrar samstöðu sem honum
fylgir hefur traust milli fólks í sam-
skiptum og viðskiptum verið meira
en víðast. Sömuleiðis hefur jöfnuð-
urinn skilað okkur litlum glæpum
og þannig öryggi í daglegu lífi sem
er öfundsvert. Hann hefur Iika gert
það að verkum að við höfum náð að
nýta mikið af mannauðnum sem í
hinni hörðu alþjóðlegu samkeppni
samtímans um lífskjör reynist vera
mikilvægasta auðlindin. Fyrir nú
utan að hann hefur einfaldlega
gefið okkur manneskjulegra sam-
félag með samskiptum frjálsra
jafningja. Það er þess vegna höfuð-
atriði til að varðveita farsæld okkar
og lífsgæði að vinna gegn vaxandi
ójöfnuði.
Allra gróði
Það hefur komið í ljós að það
eru eldri borgarar, öryrkjar og
barnafjölskyldur sem þrengt er að.
Fyrrnefndu hópunum bæði með
stórauknum sköttum og gríðarlega
óréttlátum og harkalegum tekjuteng-
ingum í almannatryggingakerfinu.
Svo kemur auðvitað í ljós í vikunni
hjá Hagfræðistofnun að það er eng-
inn að græða á þessari miðstýrðu
skipulögðu fátækt. Ef ríkið frelsaði
þetta fólk og leyfði því sjálfsbjörg-
ina án þess að hirða af því bæturnar
þá myndi afkoma ríkissjóðs batna
en ekki versna því allt greiðir þetta
fólk jú skatta af tekjum sínum. Því
miður er svo skatta- og bótakerfið
okkar fyrir barnafjölskyldur ekki
öflugra en svo að hér eru miklu
fleiri börn sem alast upp við fátækt
en á hinum Norðurlöndunum. Ef
Helgi Hjörvar
við beittum sköttum og vaxta- og
barnabótum til að styðja þessar
fjölskyldur með sama árangri og
jafnaðarsamfélögin á Norðurlönd-
unum væru hér meira en 2000 færri
fátæk börn. Og ætli það sé ekki eins
með barnafjölskyldurnar og lífeyris-
þegana að það myndi líka borga sig
að hjálpa þeim til sjálfsbjargar því
kostnaðurinn við fátækt, s.s. heil-
brigðisvandamál, brottfall, örorku
o.s.frv. er mikill. Það er einfaldlega
reynsla af norræna jafnaðarmódel-
inu að það borgar sig ekki bara fé-
lagslega og siðferðislega, heldur líka
fjárhagslega.
Enga vitleysu
Þótt við viljum snúa af braut
ójafnaðar og fá stjórnvöld sem
ráðast á biðlistana á BUGL, eftir
hjúkrunarheimilum og í önnur
augljós verkefni í velferðarkerf-
inu er lítill áhugi á kollsteypu eða
umbyltingu á íslensku samfélagi.
Við viljum að hjól atvinnulífsins
haldi áfram að snúast greiðlega,
að aukin alþjóðavæðing og minni
höft bæti áfram lífskjör almenn-
ings því það eru aðeins öfgaöfl
sem vilja stöðva atvinnugreinar
eða alþjóðavæðingu. Flestir kjósa
þó sennilega meira jafnvægi í efna-
hags- og atvinnumálum og minni
ríkisafskipti. Við höfum einfald-
lega illa ráðið við ójafnvægið sem
sýnir sig í vöxtum og verðbólgu
en líka slæmum aðbúnaði og að-
lögun innflytjenda og fleiri vaxt-
arverkjum. Það er þess vegna ekki
bara mikilvægt að breyta heldur
breyta rétt þannig að ekki leiði til
stöðnunar eða ógni árangri okkar
í atvinnu- og efnahagsmálum. Evr-
ópskir jafnaðarmenn hafa sýnt
það og sannað um áratuga skeið
að þeim er bæði treystandi fyrir
sterku velferðarkerfi og eflingu
atvinnulífs og efnahags. Lengst af
var flokkur þeirra á Islandi hins
vegar svo lítill að hér varð hann
aldrei burðarflokkur í ríkisstjórn
eins og systurflokkar hans i Evr-
ópu. Með Samfylkingunni er jafn-
aðarmannaflokkurinn á íslandi
hins vegar orðinn jafnstór og
stjórntækur og almennt í Evrópu
og því er hennar tími kominn.
Höfundur er þingmaður Samfylkingar
PENZIM er hrein,
tærog litarlaus
náttúruvara byggð á
vatnl en ekki fitu.
PENZIM inniheldur
engin ilmefni,
litarefni eða gerviefni
sem geta valdið
ofnæmisviðbrögðum.
PENZIM inniheldur
engar fitur, oílur eða
kremblöndursem
geta smitað og eyðilagt
flfkur eöa rúmföt.
PENZIM
PENZIM
rufvxauKUt*
CLL
WttHÁtl K\JV*al
H/pf.K u m»
\íARl\f fJííTMÖ
LOTION
SVfrH Al.J KATt tut
M t»R AfTIV f
HUrfV- f vrvsn1*
Adtíwnj SLhi f* Mj
AdtannU.MtB *r
Penzim faest í apótekum, heilsubúóum og verslunum Nóatúns um land allt.
penzim.is
Klippt & skorid
rátt fyrir að íslendingar hafi nú um
fimmtán ára skeið keypt húsnæði á
ströndum Spánar hefur algjör sprengja
orðið hvað þetta varðar síðustu tvö árin. Sölu-
skrifstofur hafa sprottið upp eins og gorkúlur
og eftirspurn hérlendis virðist næg. Það skýtur
engu að síður skðkku við því spænski fasteigna-
markaðurinn er staðnaður i algjörum toppi
eftir margra ára hækkanir og búast flestir við
lækkunum á mörgum helstu
stöðum landsins strax á þessu
ári. Framboð er mun meira
en eftirspurn í þeim löndum
hverra þegnar hafa fjárfest
hvað grimmast á Spáni
gegnum tíðina. (Bretlandi, Þýskalandi og Sví-
þjóð horfa menn ekki lengur til Spánar sem
þykir orðið dýrt heldur beina sjónum einna
helst að Búlgaríu og Marokkó.
Sitt sýnist hverjum um „varnarsamning"
(slands og Noregs. ( bloggheimum
fagna ýmsir auknu öryggi en aðrir
setja stór spurningarmerki við gjörðir ríkisins.
Margir spyrja hver kostnað-
urinn sé en það veit enginn.
Miðað við samkomulagið er
það að mörgu leyti nær því að f ' 'g -
vera ný landhelgisgæsla en sér-
stakurvarnarsamningur. Mark-
miðið er að „efla samstarf um skipulagningu
og um aðgerðir flugsveita, sjóhers og landhelg-
isgæslu á íslandi og hafsvæðinu umhverfis
fsland". Hvaða flugsveita? Hvaða sjóhers?
Ekki þarf mikla skipulagningu fyrir þau tvö ís-
lensku varðskip sem hér um miðin sigla. Ekki
þarf mikla skipulagningu fyrir einu eftirlitsvél
Landhelgisgæslunnar. Mörgum spurningum
erósvarað.
Sífellt fleiri brögðum er beitt til að fá
starfsfólk á vist- og hjúkrunarheim-
ili hérlendis enda duga lág launin
skammt til að heilla atvinnuleitendur. Nú
vantar sjúkraliða og annað starfsfólk á
hjúkrunarheimili aldraðra á Kjalarnesi
og i boði er meðal annars ansi vænn bíla-
styrkur séu áhugasamir bú-
settir í Reykjavík. Þannig
greiðast rúmar 60 þúsund , -
krónurhvern mánuð miðað Ú ,-WLjé
við 40 kílómetra akstur
sem skagar upp í að vera 1
helmingur þeirra launa sem í boði eru fyrir
störfin. En vissulega dágóð búbót fyrir
starfsmenn hverra störf hafa verið van-
metin um árabil.
albert@bladid.net