blaðið - 28.04.2007, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007
bla6ið
Verkamannaflokki spáð ósigri
Ósigur Verkamannaflokksins í sveitarstjórnarkosning-
unum í næstu viku verður sá stærsti í 20 ár, sam-
kvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Daily Telegraph.
Búist hefur verið við að Tony Blair forsætisráðherra
greini frá afsögn sinni strax eftir kosningar.
Utlendingum boðin hærri laun
Mikil eftirspurn eftir vinnukrafti í heimalöndum erlendra
verkamanna hefur í för með sér launahækkun hjá
erlendum byggingaverkamönnum i Noregi. Byggingariðnað-
urinn í nýjum ESB-löndum hefur glæðst og þess vegna er
það orðið eftirsóknarvert að starfa þar.
Lögga skaut 92 ára konu
Tveir lögreglumenn í Atlanta hafa viðurkennt að hafa skotið
til bana 92 ára konu á heimili hennar og komið fíkniefnum
þar fyrir til að dylja glæpinn. Lögreglumennirnir fölsuðu hús-
leitarheimild til að komast inn á heimili konunnar í nóvember
síðastliðnum ásamtfjórum öðrum lögreglumönnum.
SMÁAU6LÝ SiNGAR
KAUPA
/SELJA
blaöið—
SMAAUQLYSINGAR@BLADIO.NET
Frábært tækifæri
Umboð og lager er til sölu af sérstökum ástæðum.
Þetta umboð er með ýmiskonar fatnað og heilsuskó.
Með einstakan viðskiptamannahóp. Mjög vel þekkt innan
heilbrigðisgeirarns fyrir þægindi og gæði.
Hentar vel fyrir duglegt fólk sem vill vinna sjálfstætt.
Miklir tekjumöguleikar.
Upplýsingar f síma 691-0808
framsokn.is
Kröftugt atvinnulíf
- undirstaða velferðar
Jón Sigurðsson
formaður Framsóknarflokksins
Vinsælasti auðmaður Israels
í
SL
2007
Lampard
Rooney
Gerrara
Einar*
Ronaldo
I fangelsi
eða stjórn
■ Fæddi þúsundir í mánuð
■ Ólögleg vopnasala og peningaþvottur
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Vinsælasti auðmaðurinn í Israel,
Arkadi Gaydamak, gæti orðið ráð-
herra í næstu ríkisstjórn eða lent
í fangelsi. Gaydamak er grunaður
um ólöglega vopnasölu, peninga-
þvott og skjalafals og hann virðist
vera á leið í pólitíkina.
Gaydamak, sem talinn er eiga
á milli í og 4 milljarða dollara,
fæddist í Úkraínu árið 1952 og var
fjögurra ára þegar fjölskylda hans
flutti til Moskvu. Árið 1972, þegar
Gaydamak var tvítugur, flutti hann
til Israels, ári seinna til Frakklands
og svo aftur til ísraels árið 2000.
Gaydamak, sem hefur fengist við
viðskipti og á tvo íþróttaklúbba,
lýsir sjálfum sér mannvini sem
verji persónulegum fjármunum
sínum í þágu samfélagsins. Þess
vegna stofnaði hann nýlega sam-
tökin Félagslegt réttlæti og full-
yrðir að ekki sé um stjórnmála-
flokk að ræða, ekki enn.
Norska blaðið Aftenposten
greinir frá þvi að tvisvar á síðast-
liðnu ári hafi auðmaðurinn hjálpað
Israelum í neyð. Þegar hundruð
flugskeyta frá Líbanon lentu í
norðurhluta ísraels flýðu hundruð
þúsunda Israela suður á bóginn.
Þeir sem urðu eftir höfðu annað-
hvort ekki ráð á að flýja eða höfðu
ekki möguleika til þess. Þá skorti
í mörgum tilfellum bæði mat og
vatn. Gaydamakreisti flóttamanna-
búðir fyrir sunnan Tel Aviv og sá
þúsundum fjölskyldna fyrir fæði.
Þetta kostaði hann sem svarar um
30 milljónum íslenskra króna á dag
eða alls 900 milljónir þann mánuð
sem búðirnar voru reknar.
I nóvember síðastliðnum kom
hann aftur til bjargar. Þegar flug-
skeyti frá Gazasvæðinu lentu í
bænum Sderot bauð hann bæjar-
búum í frí til strandstaðarins Eilat.
Rúmlega eitt þúsund manns munu
hafa þegið boðið.
Niðurstöður nýlegrar skoðana-
könnunar sýna að fleiri en fimmti
hver ísraelsmaður myndi snúa
sér til Gaydamak þyrftu þeir á að-
stoð að halda en aðeins 2,5 prósent
myndu leita til Ehuds Olmerts
forsætisráðherra.
Þegar Gaydamak var í Frakk-
landi setti hann á laggirnar þýð-
ingamiðstöð og þannig komst hann
í samband við sovéskar viðskipta-
nefndir. Þessi sambönd nýtti hann
sér í umsvifamiklum viðskiptum.
Það kom síðan að því að frönskum
yfirvöldum þótti hann of umsvifa-
mikill. Samkvæmt tímaritinu
Time fékk hann skilorðsbundinn
dóm fyrir skattsvik árið 1999 og ári
seinna var hann ákærður fyrir þátt-
töku í ólöglegum viðskiptum við
uppreisnarmenn í Angóla.
Gaydamak flýði til Israels sem
neitaði að framselja hann. Israelsk
yfirvöld gruna hann þó um ýmis-
legt vafasamt, eins og til dæmis
peningaþvott og skjalafals, en
hann neitar allri sök.
Árekstrarnir við yfirvöld hafa
ekki dregið úr vinsældum auð-
kýfingsins. Samkvæmt skoðana-
könnunum gæti hann fengið 13 af
sætunum 120 á ísraelska þinginu
breytti hann samtökum sínum í
stjórnmálaflokk.