blaðið - 28.04.2007, Blaðsíða 44
44
LAUGARDAGUR 28. APRIL 2007
tíska
tiska@bladid.net
blaðið
Bush hannar poka
Lauren Bush, frænka Georges Bush, berst gegn hungri í heiminum og vinnur að umhverfisvernd í leiðinni og hefur í þeim
tilgangi hannað stóra strigapoka með áletruninni FEED. Lauren sem er talskona fyrir verkefnið Mat fyrir heiminn sem
starfrækt er af Sameinuðu þjóðunum hannaði pokana til að safna fé fyrir verkefnið. Pokarnir hafa vakið mikla eftirtekt,
enda nokkuð smart, og eru meðal söluhæstu hluta í vefversluninni Amason, en hver poki kostar tæpa 60 dollara.
Dáleiðandi ilmur
Hypnose er ferskur ilmur og fram-
andi, í senn ilmur af sítrusávexti,
ástríðublómi og vanillu. Sumarlegur
og léttur ilmur.
£3*
Nemendur sýna lokaverkefni sín
Fatahönnunarnemar í útrás
MAC í Kringlunni
Aödáendur MAC-snyríivara ættu
að gleðjast því nú hefur MAC-
verslun verið opnuð í Kringlunni.
Eins og margir vita er verslunin
einnig með aðsetur í Smáralind en
verslunin sem verður opnuð í Kringl-
unni er sú fyrsta sinnar tegundar á
Norðurlöndum þar sem vöruúrval
verður meira en hingað til hefur
verið.
Kate Moss
fær sér lógó
Fyrirsætan Kate Moss hefur
ákveðið að gera nafn sitt að skráðu
vörumerki og hefur uppi ýmsar hug-
myndir sem munu án efa auka á
velgengni hennar. Kate fékk til liðs
við sig grafíska hönnunarsnillinginn
Peter Saville til að hanna lógóið
fyrir sig. Saville, sem varð fyrst
þekktur fyrir að hanna plötuumslög
fyrir hljómsveitirnar Joy Division
og New Order, er strax búinn að
leggja fyrstu skissur undir Kate.
Saville var ánægður
með leiðina sem
Moss vildi fara,
enda er fyrir-
sætan þekkt
fyrir góðan
smekk, og
vinnur hann nú
að lokaútgáf-
unni sem von-
andi kemurfyrir
augu almenn-
ings innan tíðar.
Nú er bara að
bíða og sjá hvað
skráða
vöru-
merkið
Kate
Moss
hefur fram
að færa...
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartaskjúklinga
HjartaHeill
sími 552 5744
Gíró- og kreditkortþjónusta
Auglýsingasíminn er
5103744
EES
Eftir Lóu Auðunsdóttur
loa@bladid.net
Islensk hönnun í útrás var þemað
sem nemendur í fata- og textíl-
hönnun á listnámsbraut Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ fengu þegar þeir
áttu að hanna tiskulínu fyrir loka-
verkefnið sitt við skólann. Afrakst-
urinn sýndu nemendurnir á tísku-
sýningu í vikunni og þar kenndi
ýmissa frumlegra grasa íslenskrar
hönnunar í útrás.
„Bæði vildum við fá nemendur
til að huga að íslensku útrásinni af
Íiví að hönnun er stór liður í útrás
slendinga. Það er líka góð tilfinn-
ing fyrir hönnuði að vita af því að
það er ekki bara markaðurinn hér
heima sem er þeirra markaður held-
ur heimurinn allur. Við hugsuðum
líka þemað sem útrás fyrir nemend-
urna fyrir eigin sköpunarkraft, hug-
myndir og nýsköpun,“ segir Ásdís
Jóelsdóttir, kennari við deildina.
Tískusýningin var mjöjg fjöl-
breytt og flott að sögn Asdísar.
„Hver nemandi sýndi 4-6 heilklæðn-
aði sem hugsaðir voru sem heil
tískulína og þar mátti sjá föt á ást-
fangið par, föt fyrir magadansara
og nærföt. Sumir nemendurnir
leituðu fanga í íslenskri náttúru og
hefðum en aðrir túlkuðu útrásina
á sinn persónulega hátt.“
Elísabet Ósk Elvarsdóttir er einn
af sjö nemendunum sem sýndu
lokaverkefnið sitt á tískusýning-
unni.
„Ég ákvað að hanna föt á ástfang-
ið par og þemað mitt var ást og ham-
ingja sem ég tengdi við íslensku
útrásina með því að sýna glæsilegt
par á rauða dreglinum í íslenskri
náttúru. Ég lét prenta ljósmyndir
af íslenskum fossum á efni sem ég
notaði síðan í kjól og bindi. Ég vildi
líka prófa ýmsar nýjungar og gerði
frumlega útgáfu af herraskyrtu úr
silki,“ segir Elísabet.
Það er mikil vinna sem fylgir því
að hanna fyrir svona sýningu en
undirbúningur fyrir lokaverkefn-
ið hófst í janúar með skissuvinnu
og rannsókn. „Við erum búnar að
vera uppi í skóla frá morgni fram á
Sólarúði
fyrir andlitið
Nu þurfa fölir vangar ekki að
örvænta því að nú er hægt að
fá sprey sem gefur
jafnvel hvítustu
húð eðlilegan sól-
artón. Úðinn er í
Terracotta-línunni
frá Guerlain og er
sniðugur fyrir þær
sem ekki vilja nota
sólarpúður en
úðinn gefur jafna
og eðlilega áferð
á húðina svo hún
virðist sólbrún og
sumarleg. Úðinn
er fyrst og fremst
fyrir andlitið en
það er líka hægt
að stelast til að
nota hann á axlir
og fætur.
Léttur og
heilbrigður líkami
- kíktu inn á metasys.is
metasys.is
Mynd/Frikki
Ástfangið par í íslenskri náttúru
Elisabet Ósk Elvarsdóttir hannaði út
frá ástinni fyrir sína fatalínu.
„Vildum fá nemendur.til að
huga að íslensku útrásinni
afþví að hönnun er stór
liður í henni.“
kvöld þennan síðasta mánuð fyrir
sýninguna. Við saumum allt sjálf-
ar og gerum efnið sjálfar í sumum
tilvikum þannig að þetta er heil-
mikil vinna.“
Elísabet stefnir á framhaldsnám
í fatahönnun og draumurinn er að
stunda nám í Parsons í New York.
„Það er frábær skóli og ekki spillir
fyrir að hann er staðsettur á Man-
hattan í New York.”
Frá tískusýningu nemenda í fata- og textílhönnun á list-
námsbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ íslenska útrásin
var þemað og nemendur unnu á fjölbreyttan hátt úr þvi.
Litlir og stuttir
pallíettukjólar
Pallíettukjólar eru heitir fyrir sumarið og falla vel til ýmissa athafna sem
krefjast ákveðins glamúrs.
Það er fallegt þegar sumarsólin skín á pallíetturnar svo að kjólarnir nánast
skína. Margir þekktustu fatahönnuðir heims sýndu pallíettukjóla af ýmsum
gerðum fyrir sumarið 2007. Flestir eru þeir stuttir og annað hvort í Ijósum
og brúnleitum tónum, gylltir eða silfraðir eða klassískir svartir.
« I
f *
• •
Ávextir um
hálsinn
Ávextir, hjörtu og plastdemantar
eru þemun í skartinu nú í sumar.
Hálsmenin eru stór og litrík og
formin eru jarðarber, epli, vín-
berjaklasar og aðrir sumarlegir
ávextir auk skordýra og stórra
ástartákna...
Þessi flotti vínberjaklasi fæst i
Skarthúsinu...