blaðið - 28.04.2007, Qupperneq 19
blaöiö
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 19
Jafnaðarstefnan skilar okkur öllum áfram
Jafnvægi og framfarir; efling vel-
ferðarkerfisins og ábyrg efnahags-
stjórn eru rauði þráðurinn í stefnu
Samfylkingarinnar. Samfylkingin
vill þjóðarsátt um nýtt jafnvægi í
efnahagsmálum ognývinnubrögð til
að tryggja samstillingu efnahagsað-
gerða. Efnahags- og umhverfisstefna
Samfylkingarinnar slær á þenslu og
skapar svigrúm fyrir átak í velferðar-
og samgöngumálum. Við viljum
stuðla að gjaldfrjálsri menntun frá
leikskóla að háskóla. Námsbækur
í framhaldsskólum verði nem-
endum að kostnaðarlausu. Fjölga
á nemendum sem ljúka framhalds-
skólaprófi og samþætta símenntun
menntakerfinu í heild. Breyta skal
30 prósentum námslána í styrk og
greiða námslán út mánaðarlega.
Áratugur hátækni
Samfylkingin vill búa atvinnu-
lífinu hagstætt rekstrarumhverfi
þannig að hingað sæki erlend fjár-
festing í auknum mæli. Samfylk-
ingin vill hefja áratug hátækninnar
með samræmdum aðgerðum í þágu
þekkingariðnaðarins og m.a. fjór-
falda framlag í Rannsóknasjóð og
Tækniþróunarsjóð á næstu fjórum
árum. Samfylkingin vill treysta
undirstöður menningarstarfsemi
sem mikilvægrar auðlindar í land-
inu. Samfylkingin leggur áherslu á
að skattar af lífeyrissjóðsgreiðslum
Aukum
lifsgæðin,
velferð og
jöfnuð hérá
landi.
Umrœðctn
Gunnar Svavarsson
verði lækkaðir niður í tíu prósent og
frítekjumark fyrir atvinnu- og lífeyr-
istekjur eldri borgara verði 100.000
krónur, stimpilgjöld af lánum vegna
húsnæðiskaupa verði afnumin, sem
og vörugjöld og tollar af matvælum,
virðisaukaskattur af lyfjum verði
lækkaður og að tekið verði upp gagn-
særra og réttlátara skattkerfi þar
sem „grænir skattar” fá aukið vægi.
Sambærileg lífskjör
Samfylkingin vill tryggja öllum
landsmönnum sambærileg lífskjör
óháð búsetu og að þeir eigi greiðan
aðgang að menntun, atvinnu og
þjónustu. Forsenda þessa er raunhæf
byggðastefna sem byggist á stórátaki
í samgöngumálum, neti háskóla-
stofnana á landsbyggðinni og auknu
athafnafrelsi í landbúnaði. Á næsta
kjörtímabili verði 1200 störf óháð
staðsetningu á vegum ríkisins aug-
lýst laus til umsóknar. Jafnaðarmenn
hafa lagt grunninn að velferðarsamfé-
lögum Norðurlanda. Þar er jöfnuður
meiri en annars staðar og atvinnu-
lífið jafnframt samkeppnishæfast. Á
undanförnum áratug hafa stjórnvöld
á íslandi ekki hugað að sér, við höfum
aukið misskiptingu og ójöfnuð. Þessu
viljum við breyta. Jafnaðarstefnan
skilar okkur öllum áfram og skilur
engan eftir. Aukum lífsgæðin, velferð
og jöfnuð hér á landi - eyðum biðl-
istum, verðbólgu, háum vöxtum og
viðskiptaójöfnuði - stuðningur við
Samfylkinguna tryggir okkur betri
tíma fyrir alla.
Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í
Suðvesturkjördæmi
Borgar sig
að bjarga
mannslífi?
Ársfundur Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss í dag var mjög góður.
Mörg áhugaverð erindi og bar þar
hæst innlegg gestafyrirlesarans
Sir Michael Rawlins frá heilbrigð-
isstofnuninni NICE (National
Institut for Health and Clinical
Excellece). Hann ræddi siðferði-
legan vanda heilbrigðiskerfisins
sem stendur frammi fyrir mik-
illi fjölgun sjúklinga m.a. vegna
hærri lífaldurs, betri tækni sem
greinir alla fyrr, vaxandi vænt-
inga til lækninga og síðast en ekki
síst takmarkaðs fjármagns.
Umrœðan
Mannslíf getur
kostað allt að
15 milljónir
punda
Margrét Sverrisdóttir
Réttlæti?
Stofnunin sem hann stýrir
(NICE -sem er opinber stofnun)
leitast við að tryggja gæðastaðla
í bresku heilbrigðiskerfi og styðja
almennt heilsufar. En hvernig er
réttlátast að skipta kökunni? Með
aðferð frjálshyggjunnar; Hver
er sjálfum sér næstur og borgar
fyrir sig; með nytsemishyggju svo
flestir njóti góðs af eða með ein-
hvers konar jafnræðishyggju?
Stofnunin leitast við að meta
áhrif læknisaðgerða til betri
heilsu með tilliti til kostnaðar að-
gerða sem framkvæma þarf. Mæli-
einingin er LÍFSGÆÐI (QUALY),
metin út frá mörgum þáttum sem
aðgerðin mun hafa áhrif á, s.s.
hreyfanleika, að geta séð um sig
sjálfur í daglegu lífi, vera laus við
sársauka o.s.frv. hvort sem sjúk-
lingur þjáist af þunglyndi eða er
með bilaða mjöðm, svo dæmi sé
tekið.
Mannslíf á 1,5 milljónir punda
Mörkin verða alltaf óljós því
kerfið á að vera sveigjanlegt. Að
sögn Sir Rawlins getur mannslíf
kostað allt að 1,5 milljónir punda.
Þar höfum við það. Þetta er gróf
og hraðsoðin endursögn hjá mér
en mér finnst þetta mjög áhuga-
verð umræða. Það er sérkennilegt
að menn skuli vera komnir frá
lækningaeiðnum um skyldu til
að lina allar þjáningar yfir í um-
ræðu um hvernig eigi að reikna
út hvenær það borgi sig að bjarga
mannslífi.
Höfundur er varaformaður
(slandshreyfingarinnar
Greinin er tekin af
www.margretsverris.blog.is.
iMnpÍBK
STOR MEIRIHLUTI KYNF
ÞEKKJA BARNIÐ EÐA
Kynferðisofbeldismönnum er treyst af fjölskyldunni og barninu. Þeir
eru í aðstöðu til að “lokka” börn með ástúð og athygli þannig að börnin
eiga erfitt með að greina þá athygli sem misnotkun. Þeir verjamiklum
óáreittum tíma með barninu og gefa því gjafir og peninga að
tilefnislausu ... Kynferðisofbeldismenn eru flestir mjög viðkunnalegir.
Kynferðislegt ofbeldi á börnum er glæpur. Kynntu þér hvernig þú getur
leitað eftir aðstoð á www.blattafram.is. Ef velferð barns er í húfi
hringdu þá i sima
Rjúfum þögnina!
ÞOGNIN ER VERSTI OVINURINN
BL TT AFRA/VI!
WWW.BLATmFRAM.IS
tr?ís
HESIAR