blaðið - 28.04.2007, Page 35
blaðið
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 35
„Rolling Stones er mitt uppáhald og hver heldur ekki upp á
Mick jagger, þótt hann sé ekki smáfríður? Hvaða karlmaður
á hans aldri vill ekki vera í jafngóðu formi og hann?"
Sólveig Pétursdóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins og forseti Alþingis,
ætlar ekki að gefa kost
á sér til áframhaldandi
þingsetu. Eitt af síðustu
verkum hennar sem for-
seti Alþingis var ferð sendinefndar
þingsins til Kaliforniu. Ferðin hefur
verið nokkuð gagnrýnd. „Mér finnst
umræðan hafa verið skrýtin,“ segir
Sólveig. „Við vorum að endurgjalda
heimsókn frá Kaliforníuþingi en
þar eru menn mjög áhugasamir um
aukin samskipti milli Kaliforníu og
íslands. Þessi ferð var gagnleg, við
fórum víða og áttum mjög góða fundi
og hittum marga ráðamenn og þar var
meðal annars rætt um umhverfis- og
orkumál. Við höfðum tækifæri til að
kynna þau íslensku orkufyrirtæki
sem eru að koma inn á Bandaríkja-
markað og leiðrétta misskilning varð-
andi íslenska þorskstofninn. Þetta var
ánægjuleg ferð og vonandi til hags-
bóta fyrir islenska hagsmuni og það
er alveg ljóst að það er mikill áhugi í
Kaliforníu á að efla þessi samskipti
enn frekar.
Mér skilst að það hafi verið gagn-
rýnt að þingmenn sem eru að hætta
þingstöfum fari i slíka ferð. Auðvitað
er það þannig að þingmenn eru ekki
að stofna til persónulegra tengsla. Þeir
eru fulltrúar Alþingis og íslenskra
stjórnvalda þannig að sá árangur sem
svona heimsókn skilar er varanlegur
og bundinn við þær stofnanir sem við
erum fulltrúar fyrir.
Alþjóðleg samskipti hafa mjög
mikið að segja fyrir okkur sem búum
á eyju í norðanverðu Atlantshafi. Við
lifum í heimi hnattvæðingar og þar
hafa alþjóðleg tengsl og samstarfvaxið
hröðum skrefum. íslenska hagkerfið,
sem lengi var tiltölulega einangrað,
hefur tekið þátt í alþjóðavæðingunni
af krafti og uppskorið ríkulega eins
og góðæri síðustu ára ber glöggt vitni
um. íslendingar hafa orðið vitni að
kraftinum í útrásinni þar sem íslensk
fyrirtæki vaxa og dafna á stórum al-
þjóðlegum markaði en það má ekki
gleyma því að alþjóðavæðingin á sér
stað á öllum sviðum þjóðlífsins. Þetta
sjáum við meðal annars í menningu
og listum, alls kyns grasrótarstarfi og
ekki síst hjá unga fólkinu okkar sem
sækir nám og störf erlendis í æ ríkari
mæli. Allt þetta auðgar menningu
okkar og þjóðlíf. Alþingi hefur fylgt
þessari þróun og stuðlað að henni
og tekur af krafti og metnaði þátt í al-
þjóðasamtökum þjóðþinga. Þannig á
það að vera.“
Að þekkja sinn vitjunartíma
Þú ert að hcetta sem forseti Al-
þingis, afhverju?
„Eg er búin að vera lengi í stjórn-
málum, hef verið viðloðandi þingið í
tuttugu ár og var áður í borgarstjórn-
armálum. Ég var búin að hugsa þetta
nokkuð lengi. Það skiptir miklu máli
fyrir stjórnmálamenn að þekkja sinn
vitjunartíma og mér finnst gott að
hafa getað tekið þessa ákvörðun sjálf.
Þetta hefur verið lærdómsríkur og
ánægjulegur timi og ég hef verið svo
heppin að fá að gegna mörgum trúnað-
arstörfum. Ég er einlægur sjálfstæðis-
maður og trúi á hugsjónir Sjálfstæðis-
flokksins. En sem forseti Alþingis var
ég í þeirri stöðu að vera forseti fyrir
alla þingmenn. Ég hef eignast mjög
marga vini á þessum árum og ekki
bara úr mínum eigin flokki.
Mér fannst þetta orðið gott og ég
tók þá ákvörðun að hætta en það er
auðvitað skrýtin tilhugsun. Ég er
mjög pólitísk og verð það áfram og
fylgist af áhuga með félögum mínum
í kosningabaráttunni. Ég geri ráð
fyrir því að ég verði áfram í tengslum
við Sjálfstæðisflokkinn og taki þátt í
störfum fyrir hann. Annars er óráðið
hvað ég fer að gera. Ég hef hins vegar
engar áhyggjur af því að mér muni
leiðast. Ég er komin með barnabarn,
litla sonardóttur sem er rúmlega eins
árs, og mér finnst spennandi að geta
eytt tíma með henni. Ég hlakka til.
Það er nefnilega líf eftir pólitík.“
nær þrjá áratugi. Hvenær vaknaði
stjórnmálaáhugi þinn?
„Stjórnmálaáhuginn vaknaði þegar
ég var barn. Á æskuheimili mínu var
oft setið við matarborðið og rætt um
pólitík og þjóðfélagsmál, sérstaklega
í hádeginu á sunnudögum, þegar
menn fengu lambalærið eða hrygg-
inn og þessar umræður gátu jafnvel
staðið í nokkra klukkutíma. Pabbi og
fjölskylda hans voru mjög virk í starfi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann var
formaður Óðins, sem var félag laun-
þega í Sjálfstæðisflokknum, og var
mjög virkur í verkalýðshreyfingunni.
Hann var lengi vörubílstjóri hjá Þrótti
áður en hann fór að vinna hjá borg-
inni og varð deildarstjóri. Ég er alin
upp í sjálfstæðisstefnunni og það var
brýnt fyrir mér að allir eigi sín tæki-
færi og að menn eigi að standa fast á
sínu og ekki láta beita sig órétti.
Foreldrar mínir ólust bæði upp við
erfiðar aðstæður. Föðurafi minn fékk
berkla og missti allt sitt. Börnin voru
ellefu þannig að pabbi þurfti að byrja
að vinna sextán ára gamall. Móður-
amma mín upplifði líka basl, hún
skildi við mann sinn og fluttist með
börn sín til Siglufjarðar þar sem síldin
varð þeim til bjargar. Það var lítið af
peningum á mínu æskuheimili og ég
er ekki fædd með silfurskeið í munn-
inum. Ég er alin upp í verkamannabú-
stöðum í Stórholtinu. Foreldrar mínir
lögðu mikla áherslu á við okkur systk-
inin að við skyldum afla okkur mennt-
unar. Við fengum allan þann stuðn-
ing og væntumþykju sem hægt er að
hugsa sér. Ég tel að sú umhyggja sem
ég hlaut í æsku hafi fyrst og fremst
mótað mig sem persónu og er ævin-
lega þakklát foreldrum mínum fyrir
það. Pabbi dó fyrir nokkrum árum
en móðir mín er ennþá á lífi, orðin
áttræð, og hún er ein besta vinkona
mín.“
Önnur hlið á borgarlífinu
Manni finnst eins og það sé
innbyggt í þig að þú eigir að hafa
metnað og eigir að standa þig. Er
það rétt?
„Ég hugsa að þetta sé rétt hjá þér. Ég
er alin upp í metnaði. Ég fékk stuðn-
ing en það var líka ýtt á mig svo ég-
gæti bjargað mér sjálf. Sennilega
hefur þessi uppeldisaðferð foreldr-
anna að einhverju leyti mótast af
erfiðum aðstæðum þeirra þegar þau
voru ung. Ég er alin upp i því að berj-
ast fyrir réttindum annarra og ég held
að það sé óhætt að segja að ég hafi
sterka réttlætiskennd. Ég vil hjálpa
fólki og vinna fyrir það. Þegar ég, eftir
stúdentspróf, stóð frammi fyrir því að
velja mér námsbraut valdi ég lögfræð-
ina. Ég sé ekki eftir því. Þótt lögfræðin
virki kannski dálítið þurr til að byrja
með þá kennir hún manni ákveðinn
þankagang sem er góður skóli í stjórn-
málastarfi og svo mörgu öðru. Ég
eignaðist þrjú börn fyrir þrítugt og
varð að aðlaga minn karríer að því. Ég
fékkst við ýmislegt, starfaði hjá borg-
arfógetaembættinu, var fulltrúi á lög-
mannsstofu Ragnars Aðalsteinssonar
og kennari við Verslunarskólann.“
Doris
3+1 + 1 áklœöi
verö kr. 209.000
3+1 + 1 I e ö u r
verö kr. 229.000,
Belmar
3 + 2
verö kr. 1 52.000.
3+1 + 1
verö kr. 1 96.000.
3 + 2+1
verö kr. 207.000,
Opnunartímar
Virka daga frá 11:00 - 18:00
Laugardaga frá 11:00 - 16:00
Ella
3+1 + ]
Leöur
verö kr. 298.000
Caleido
áklœöi
verö kr. 1 69.000.
(
VcTOTUI
HÚSGAGNAVERSLUN
Bœjarlúid 6 - 200 Kóp. S: SS4-7800
Ekki fædd með silfurskeið
Þú hefur sinnt stjórnmálum í
HÚSGÖGNIN FAST EINNIG IHÚSGAGNAVAL. HOFN S: 478 2535