blaðið - 28.04.2007, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007
Sigmar Guðmundsson mun lýsa Eurovision-
keppninni fyrir íslensku þjóðinni
blaöiö
Tek mig
ekki mjög
hátíðlega
Sigmar Guðmundsson,
aðstoðarritstjóri Kast-
Ijóss, er á leið til Helsinki
eftir tæplega viku en
rétt eins og ífyrra mun
hann lýsa Eurovision
fyrir áhorfendum heima
í stofu. Sigmar var óneit-
anlega spenntur þegar
Svanhvít Ljósbjörg Guð-
mundsdóttir hitti hann
og sagðist hlakka mikið
til enda hafi keppnin í
fyrra verið ómetanleg
lífsreynsla.
Eg þurfti að hugsa mig
talsvert um áður en
ég lýsti Eurovision-
keppninni í fyrra og
það var smá beygur
í mér því hingað
til hefur keppnin
ekki verið í uppáhaldi hjá mér. Það
verður að segjast eins og er að mörg
laganna eru ekki fýsileg í sjálfu sér
og ekki merkilegar tónsmíðar,“ segir
Sigmar. „Ég hafði alltaf hugsað um
Eurovision sem tónlistarkeppni og
hafði því ekki mikið álit á henni.
Eftir upplifun mína í fyrra hætti ég
að hugsa um Eurovision sem metn-
aðarfullan tónlistarlegan viðburð
því þetta er risastór uppákoma og
það skiptir máli að hafa húmor fyrir
sumum atriðunum.
Ég sé svo sannarlega ekki eftir
að hafa slegið til því þetta voru ein-
hverjir skemmtilegustu tíu dagar
erlendis sem ég hef lifað. Þetta var
meiriháttar ævintýri en auðvitað var
þetta sérstaklega skrautlegt af því
Silvía Nótt var þarna fyrir íslands
hönd. Fyrir vikið var mjög mikil at-
hygli á öllum íslendingunum og það
voru mikil læti í kringum okkur
sem var mjög skemmtilegt. Ég lýsti
keppninni sjálfri en auk þess vann
ég fréttir og Kastljósefni. Þetta var
því botnlaus vinna frá morgni til
kvölds. Ég hef mjög gaman af þess-
ari keppni núna og er mjög spenntur
fyrir keppninni í ár. Ég horfi á þetta
með þeim augum að þetta eigi að
vera skemmtilegt.“
Grípandi lag og frábær söngvari
Sigmar er hóflega bjartsýnn fyrir
íslands hönd og finnst sem lagið
mælist nokkuð vel fyrir. „Lagið er
ofboðslega melódískt og grípandi.
Hins vegar segir sagan okkur að
við ættum ekki að vera sérstaklega
bjartsýn. Það eru mörg sterk lög
í undankeppninni, þar á meðal
mikið af lögum frá Austur-Evrópu-
þjóðunum og þær, eins og aðrar
þjóðir, detta í þann pytt að greiða
nágrannaþjóðunum atkvæði. Ég
hef lúmskan grun um að af tíu
þjóðum sem komast í aðalkeppn-
ina verði allt að 7 þjóðir frá Austur-
Evrópu og þá eru eftir nokkur sterk
lög frá öðrum þjóðum. Það er engin
ástæða til að ganga að því sem gefnu
að Eiríkur fari áfram en ég giska á
að hann verði einhvers staðar frá
sjöunda sæti og niður í fjórtánda.
Það eru um átta af lögunum í und-
ankeppninni sem eru það léleg að
það er öruggt að þau komast ekki
Félag SkrúSgarSyrkjumeistara
GARÐHIIMAR.
meistari.is
MyndirÆyþór
Sigmar Guðmundsson .,/ dag jbegar
ég hugsa um vinnuna er ég fegínn aó
vera í fjölmidlum því fjölmiðlaáhuginn er
nokkurs konar baktería sem maður fær
og hún grasserar i mér. “