blaðið - 28.04.2007, Page 42
42 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007
blaðið
lcelandic Theatre 1860-1920. Þetta er fyrsta bók um íslenska
leiklist og leikhúsfræði sem kemur út á ensku.
menning@bladid.net
Síðasti sýningardagur sýningarinnar Foss
á Kjarvalsstöðum verður næstkomandi
sunnudag, þann 29. apríl, en klukkan 15
sama dag er leiðsögn um sýninguna.
Varúlfur í
Ölpunum
[ tilefni frönsku menningarhátíðar-
innar Fransks vors hefur Grámann
___ bókaútgáfa gefið út spennu-
bókina Varúlfinn eftir franska
metsöluhöfundinn Fred Vargas.
Varúlfurinn er önnur glæpasaga
Vargas sem kemur út á íslensku
en hin fyrri, Kallarinn, kom út árið
2005 og hlaut afar góðar viðtökur
gagnrýnenda.
I Varúlfinum fær Adamsberg
yfirlögregluþjónn í París heldur
óvenjulegt sakamál til rann-
sóknar. Suður í frönsku Ölpunum
gengur sá orðrómur fjöllum
hærra að þar eigi varúlfur sök á
óhugnanlegum drápum á sauðfé
og mönnum. Adamsberg fylgist
úr fjarlægð með blóði drifnu
ferðalagi morðingjans milli fjalla-
þorpanna uns hann ákveður að
skerast í leikinn og komast að
hinu sanna. Getur verið að þarna
sé varúlfur á ferð, eða er þetta
kannski bara ósköp venjulegur
úlfur úr nærliggjandi þjóðgarði?
Eða eitthvað annað?
Klassík fellur aldrei úr tísku
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hildur@bladid.net
Gerður Bolladóttir sópransöngkona
syngur á tónleikum á Þjóðminjasafn-
inu á morgun, sunnudaginn 29. apríl
klukkan 15. Flutt verða veraldleg og
trúarleg lög sem spanna tímabilið frá
Eysteini munki til Jónasar Hallgríms-
sonar, en Gerður syngur veraldlegu
lögin við hörpuleik Sophie Schoonj-
an í útsetningum Ferdinands Raut-
ers. Trúarlegu lögin flytur Gerður við
undirleik Hlínar Erlendsdóttur fiðlu-
leikara í nýjum útsetningum önnu
Þorvaldsdóttur tónskálds.
„Þetta eru lög af diski sem kom út
síðastliðið haust en hann ber nafnið
Fagurt er í Fjörðum en með titlinum
er vísað í ljóð eftir Látra-Björgu sem
er eitt af þeim ljóðum sem við flytj-
um á disknum og á tónleikunum.
Það er mjög við hæfi að flytja þessi
lög núna á þessum tíma árs enda eru
nokkur sumarlög á dagskránni,“ seg-
ir Gerður.
Hún lærði óperusöng i bænum Blo-
omington í Indiana í Bandaríkjunum
en síðan hún sneri aftur heim til ís-
lands hefur hún lagt nokkra áherslu
á íslenskþjóðlög. „Þetta eru ódauðleg
lög sem falla aldrei úr tísku og það er
alltaf áhugi fyrir þeim hér á landi, hjá
ungum jafnt sem öldnum. Reyndar
eru þetta nýjar og frumlegar útsetn-
BloölKPÚI(
Veraldleg og trúarleg þjóðlög.
Gerður Bolladóttir ásamt Sophie
Schoonjan hörpuleikara.
ingar hjá Önnu og henni tekst listavel
að gera það með bæði nútímalegum
og fornlegum blæ í einu, en það gerði
hún alveg sérstaklega fyrir mig og
Hlín. Lögin eru í sjálfu sér einföld, en
þegar ég segi einföld meina ég ekki
að þau séu auðveld í flutningi. Að
syngj a þau við undirleik fiðlu er alveg
sérstaklega krefjandi þar sem bæði
röddin og fiðlan eru sólóhljóðfæri.
Það krefst því mikillar nákvæmni að
láta hvort tveggja passa saman og í
raun er þetta mest krefjandi og jafn-
framt skemmtilegasta verkefni sem
ég hef tekið mér fyrir hendur."
Aðspurð segist Gerður vera að
vinna að nýjum, spennandi verkefn-
um þessa dagana. „Ég verð fertug
á árinu og af því tilefni stefni ég að
því að gera eitthvað spennandi og
skemmtilegt. En ég vil samt ekki vera
að gefa of mikið upp enda er ýmislegt
óráðið enn þá. Ég get þó staðfest að
ég er áfram að vinna með Önnu Þor-
valdsdóttur, enda hefur samstarfið
með henni gefist mjög vel hingað til,“
segir hún að lokum.
Sumarlegir götuskór
Skóverslun Kringlunni 8 -12 - S: 553 2888
Karlakórinn Þrestir heldur síðustu vortónleika ársins
í Grafarvogskirkju í dag laugardaginn 28.apríl kl 16
Á tónleikaskránni eru bæði innlend og erlend lög
Með söngvaseið á vörum # Er sumarið kemur # Ég veit ekki af... #
Ritters Abschied # Jag vet en dejlig rosa # Heima # Góðanótt # Lindin #
Það er svo margt að minnast á # Hrim # Skógarsöngur # Höggin í
smiðjunni # Huldur # Senn kemur vor # Down among the dead men #
Ríðum, sveinar, senn # Finlandia # Frá Nýja heiminum # Shenandoah #
Tell my why # Vivel' amour # Coney Island Baby #
PegO'My Heart # Funiculi, funicula #
Söngstjóri er Jón Kristinn Cortez og píanóleikari Jónas Þórir.
Meingallaöur Grettir
Borgarleikhúsið frumsýndi á
sunnudaginn tsöngleikinn Gretti
eftir Ólaf Hauk Símonarson, Þórar-
in Eldjárn og Egil Ólafsson. Grettir
fjallar um lífshlaup unglingsins
Grettis, sem er latur, illa gefinn
strákur sem lítið virðist ætla að ræt-
ast úr þar til hann hittir fegurðardís-
ina Siggu. Eftir fáránlega atburðarás
fær hann hlutverk í sjónvarpsþátt-
um um Gretti hinn sterka, og bjarg-
ar að lokum landinu úr klóm hins
illa draugs Gláms.
Kannski var þetta fyndið verk
árið 1980, þegar það var fyrst sýnt.
Það er það svo sannarlega ekki leng-
ur. Þegar ég steig út í kuldann eftir
sýninguna skildi ég lítið sem ekkert
í sundurlausu handritinu, og ég var
virkilega sár yfir því að hafa misst
af Boston Legal vegna þess. Ég býst
við að leikarar og leikstjóri hafi gert
það besta sem þeir gátu úr vonlausu
handritinu, en það var þó fleira í
sýningunni sem fór í taugarnar á
mér en það. Leikmyndin virtist hafa
verið tekin úr lélegum bandarískum
spurningaþætti og ég skildi aldrei
hvernig hún kom sögunni við. Það
sama má segja um hár og búninga.
Ég skildi ekki samhengið milli útlits
og sögu.
Tónlistin var heldur ekki upp á
marga fiska, en ég hafði þó gaman af
þeim lögum sem ég þekkti fyrir, eins
og Tarzan konungi apanna, og söng
Gullauga, sem eru sennilega einu
skemmtilegu lögin í sýningunni.
Nú fæddist ég nokkru eftir að
verkið var fyrst sýnt og hélt því að
kannski hefði þetta verið meistara-
stykki á sínum tíma og ég væri bara
ekki að skilja húmorinn. Ég talaði
hins vegar við mér eldra fólk sem
sá verkið á sínum tíma, og það var
víst ekki mikið skárra þá. Ég held
að Grettir hefði bara átt að falla í
gleymsku. Mig grunar alltént að
unga kynslóðin i dag kunni ekki að
meta þetta afsprengi fortíðarinnar.
Grettir
Borgarleikhúsið
Rúnar Freyr Gíslason.
Ólafur Haukur
Símonarson,
Þórarinn Eldjárn og
Egill Ólafsson..
Ingimar Björn Davíösson
ingimar@bladid.nét
Leikhús
Atli, Grettir og Gullauga „Kannski var þetta fyndið
verk áriö 1980, þegarþað var fyrst sýnt. Pað er það
svo sannarlega ekki lengur. {...} og ég var virkilega
sár yfir þvt að hafa misst af Boston Legal vegna
þess.“ segir ingimar Björn Davíðsson ídómnum.