blaðið - 28.04.2007, Qupperneq 54
54 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007
blaðið
Binujoiu ag} u; uijedeu jo nauis ai|} aA0| | g
uinuujs uinjofd 't?
jaijiejpoo ai}i | uaöen uioi •£
ubiujjoh upsna z
aai 'BlJaqoH 'l
ÚTVARPSSTÖÐVAR:
RÁS 1 92,4 / 93,5 • RÁS 2 90,1 / 99,9 • REYKJAVÍK FM 101,5 • BYLGJAN 98,9 • FM 95,7 • X-IÐ 97,7 • ÚTVARP SAGA 99,4 • LÉTTBYLGJAN 96,7
Til hvaða fræga hershöfðingja rekur hann ættir sínar?
Með hvaða fræga leikara bjó hann í upphafi ferilsins?
Hvaða hlutverk skaut honum upp á stjörnuhimininn?
Hversu oft hefur hann verið giftur?
Hvaða frægu setningu sagði hann í Apocalypse Now?
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
®Hrútur
(21. mars-19. apn'l)
Um þessar mundir reynist þér best að hnýta alla lausa
enda. Grannskoðaðu líf þitt til að sjá hvað það er sem
þarf að Ijúka.
©Naut
(20. apríl-20. maQ
Velgengnin fer þér vel og það er ekkert henni líkt. Þú hef-
ur afrekað ansi míkið og étt skilið að slappa ærlega af.
©Tvíburar
(21. mai-21. júnO
Að gera úlfalda úr mýftugu getur verið skemmtilegt en
bara einstaka sinnum. Taktu þá ákvörðun að taka hlut-
um ekki persónulega.
®Krabbi
(22. júní-22. júlí)
Þú hefur nóg að gera við að annast annarra mál auk
þess að halda öllu þínu. Kannski þarftu að fá fleiri til að
hjálpa þér, þú getur ekki gert allt ein/n.
®Ljón
(23. júll-22. ágiist)
Það eru spennandi möguleikar framundan, jafnvel þó
fjárútlátin verði mikil. Þegar á líður sérðu að þetta var
vel þess virði.
€* Meyja
|f (23. ágúst-22. september)
Þetta verður róleg helgi og jafnvel leiðinleg á köflum en
þú hefur gott af því. Það er ekki nauðsynlegt að vera allt-
af út um allt, stundum er slökun allt sem þarf.
©Vog
(23. september-23. október)
Ertu föst/fastur í umræðu um eitthvað sem skiptir þig
ekki máli lengur. Láttu vita hvernig þér líður, fljótlega
feta fleirí í þm spor.
®Sporðdreki
(24. október-21.nóvember)
Ýttu sjálfsáliti þinu til hliðar. Þegar þú venur þig á það
viðhorf geturðu gert miklu meira og komist miklu
lengra.
©Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
Áhugaverð hugmynd kyndir undir ástríðunni hjá þér og
ástvini þína. Hugmyndaauðgi er einmitt það sem þetta
samband þarfnast. Góða skemmtun.
©Steingeit
(22. desember-19. janúar)
Vinir og fjölskylda sem hafa svikið þig þurfa nú að vinna
traust þitt aftur. Hafðu það í huga og ekki gefa þeim ann-
að tækifæri þartil þau hafa tekið sig á.
@Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
Þér líður best þegar starf þitt gagnast öðru fólki.
Kannski ættirðu að íhuga að skipta um starfsvettvang.
Hvað er það sem þú virkilega vilt gera?
©Fiskar
(19.febniar-20.mars)
Líkur sækir líkan heim. Þú finnur nýjan félaga sem hent-
ar þér fullkomlega. Þótt þú sért í skýjunum skaltu samt
sem áðurekki
Fyrir þær brjóstgóðu
Þessi vinsæli slétti í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr.
5.350,-
wHIBBHRS
Mjög fallegur í
D,DD,E,F,FF,G,GG,H,HH
skálum á kr. 5.990,-
Virkilega flottur í
D,DD,E,F,FF skálum á
kr. 5.990,-
Misty, Laugavegi 178
Sími 551 2070
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Listin að hata
„Hvaða skólakrakki sem er getur elsk-
að eins og kjáni en að hata er list,“ sagði
bandaríska skáldið Ogden Nash einhvern
tíma fyrir löngu.
Ef mark er takandi á þessum orðum
er ég listamaður. Ég hata sjónvarpsdag-
skrána.
Ég hata Jay Leno. Hann getur ekki verið
skemmtilegur. í hvert skipti sem hann birt-
ist á skjánum óska ég þess að Conan O’Brian
drífi sig að skipta við hann um hlutverk.
Ég hata Janice Dickinson. Mér líður
illa þegar ég horfi á hana. Það er
eitthvað að henni.
Ég hata Survivor. Hvað ætla
þeir að framleiða margar þátta-
raðir af þessum hryllingi? Eru
þeir ekki að verða búnir með
afskekktar eyjur? Mér skilst
að 43. þáttaröð sé í gangi núna.
Nóg komið. Plís.
Ég hata líka Everybody Loves
Raymond og ég hata Raymond
sjálfan af öllu mína litla hjarta.
Hvernig er hægt að vera
svona lélegur eigin-
maður? „Elskan, ég
tók körfuboltaleik
AtU Fannar Bjarkason
Kann listina að hata.
Fjölmiðlar
atli@bladid.net
yfir brúðkaupsmyndbandið okkar... vúpsí!“
Þvílíkur hálfviti. Þættirnir eru dæmi um kven-
fyrirlitningu af verstu gerð því hvaða kona
sem er með snefii af sjálfsvirðingu væri búin
að lauma rottueitri í morgunkornið hans.
Sirkus
-siýn sýn
08.00 Morgunstundin okkar
08.01 Fyndin og furðuleg dýr
08.06 Litil prinsessa (11:30)
08.17 Halli og risaeðlufatan
08.29 Músahús Mikka (5:28)
08.53 Skordýr í Sólarlaut (2:26)
09.18 Leyniþátturinn (6:26)
09.31 Matta fóstra og ímynd-
uðu vinir hennar (31:40)
09.54 Heimskautalíf (5:6)
10.20 Stundin okkar (e)
10.45 Kastijós (e)
11.30 Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva 2007 (e)
(Inför ESC 2007)
12.30 Stúlknasveitin (e)
(The Cheetah Girls)
14.00 Alþingiskosningar 2007
- Kjördæmin (3:6)
15.05 Hvað veistu? (e)
(Viden om)
15.45 Iþróttakvöld (e)
16.05 íþróttir
18.00 Táknmálsfréttir
18.10 Vesturálman (12:22)
(West Wing VII)
18.54 Lottó
19.00 Fréttir
19.30 Veður
19.40 Jón Ólafs
Tónlistarmaðurinn Jón
Ólafsson fær til sín góða
gesti í þessum lokaþætti
vetrarins.
20.20 Spautjstofan
Karl Agúst, Pálmi, Sigurður,
Randver og Örn bregða á
leik í síðasta skipti á þess-
um vetri.
20.50 JOHN Q
Bandarísk bíómynd frá
2002. John Q þarf að
koma syni sínum í hjarta-
aðgerð með hraði en hann
er ótryggður og tekur því
starfsfólk spítalans í gísl-
ingu og þvingar það til að
gera aðgerðina.
22.45 Barnaby ræður gátuna
- Ránfuglar
(Midsomer Murders: Birds
of Prey)
00.25 Gríman (e)
(The Mask of Zorro)
02.40 Utvarpsfréttir í
dagskrárlok
07.00 Barnaefni
12.00 Hádegisfréttir
12.45 Bold and the Beautiful
13.05 Bold and the Beautiful
13.25 Bold and the Beautiful
13.45 Bold and the Beautiful
14.05 Bold and the Beautiful
14.30 Leitin að strákunum (2:9)
15,20 Þegar Eva hittl Eastwood
(Stöð 2 heimsækir Clint
Eastwood)
15.50 Undirfatasýning
Victoriu Secret
(Victoria's Secret Fashion
Show)
16.35 Sjálfstætt fólk
17.15 The New Adventures of
Old Christine (8:13)
17.45 60 mínútur
(60 Minutes)
18.30 Fréttir
19.00 fþróttir og veður
19.05 Lottó
19.15 HowlMetYour Mother
Marshall fer á sitt fyrsta
stefnumót eftir skilnaðinn
en vinir hans eru ekki
hrifnir af nýju kærustunni
og reyna að stía þeim í
sundur.
19.35 Joey (13:22)
Joey ákveður að halda
partí í gömlu íbúðinni en
það fer ekki vandræðalaust
fram.
20.00 Stelpurnar (17:20)
Fyndnustu stelpur íslands-
sögunnar geta aðeins fagn-
að áramótum á einn hátt;
með léttu gríni og glensi.
20.30 Fever Pitch
Bráðtyndin og rómantísk
mynd með þeim Drew
Barrymore og Jimmy Fall-
on í aðalhlutverkum. Linds-
ey og Ben eru ástfangin en
þau eiga við stórt vanda-
mál að stríða.
22.15 Carandiru
00.45 Something s Gotta Give
02.50 Avenging Angelo
04.25 From Justin to Kelly
öllum aldurshópum.
05.45 Fréttir (e)
06.25 Tónlistarmyndbönd frá
Popp TÍVÍ
10.20 Vörutorg
11.20 Rachael Ray (e)
13.35 Skólahreysti - Úrslit (e)
15.35 Top Gear (e)
16.30 Psych (e)
17.20 World’s Most Amazing
Videos (e)
18.10 Survivor: Fídji (e)
19.10 Gametíví(e)
19.40 Everybody Hates Chris
Chris gengur allt í haginn
heimafyrir og í skólanum
eftir að hann fær lukku-
sokkana hans pabba síns
lánaða.
20.10 World’s Most Amazing
Videos (6:26)
Ótrúleg myndbrot sem
fest hafa verið á filmu.
Raunveruleikinn er lyginni
líkastur og hjartað slær
hraðar þegar þú sérð þessi
einstöku myndbönd. Sum
eru bráðfyndin en önnur
hádramatísk.
21.00 Mr.World
Upptakafrá keppninni um
titilinn Herra heimur, sem
fór fram í Sanya í Kína laug-
ardaginn 31. mars.
23.00 The Dead Zone (3:12)
Johnny Smith sér ýmislegt
sem öðrum er hulið. Hann
reynir sitt besta til að nýta
gáfuna til góðs, en finnst
stundum að hún sé bölvun
en ekki blessun.
23.50 Hack (6:18)
Mike Olshanzky, leikinn af
David Morse á ekki sjö dag-
ana sæla. Hann var rekinn
úr lögreglunni fyrir agabrot
og gerðist í kjölfarið leigu-
bílstjóri. Fljótlega kemst
hann að raun um að starf
leigubílstjórans er ekki
síður erilsamt en lögreglu-
mannsins og gráu svæðin
fullt eins mörg.
00.40 Dexter (e)
01.30 Happy Birthday Elton! (e)
03.00 Kidnapped (e)
03.50 House (e)
04.40 Jay Leno (e)
05.30 Vörutorg
06.25 Óstöðvandi tónlist
17.00 Trading Spouses (e)
17.45 KFNörd (15:15)
(KF Nörd)
18.30 Fréttir
19.10 American Inventor
20.05 Joan of Arcadia 1
21.00 Oasis - Lord Don't Slow
Me Down (e)
Heimildarmynd um hljóm-
sveitina Oasis.
22.00 Leitin að Strákunum (2:9)
Leitin aö Strákunum er alís-
lenskur og ofurraunveruleg-
ur skemmtiþáttur. Eins og
nafnið gefur til kynna geng-
ur Leitin að Strákunum út á
að finna sjónvarpsstjörnur
framtíðarinnar.
22.50 Gene Simmons: Family
Jewels
(Sexercise)
23.15 Supernatural (11:22)
Bræðurnir Sam og Dean
halda áfram aö berjast
gegn illum öflum og eiga
í baráttu við sjálfan djöful-
inn. Nú leita þeir hefnda.
Hörkuspennandi þættir
sem hafa slegið í gegn út
um allan heim.
00.05 Dr. Vegas (e)
00.50 Joan of Arcadia 1
01.35 Tónlistarmyndbönd frá
Popp TV
Skjár sport
10.50 Upphitun (e)
11.15 Everton - Man. Utd.
13.35 Á vellinum með Snorra Má
13.50 Portsmouth - Liverpool
Á sama tíma á hliðarrásum:
52 Wigan - West Ham
53 Middlesbro - Tottenham
54 Sheff. Utd. - Watford
55 Blackburn - Charlton
15.50 Á vellinum með Snorra Má
16.00 Man. City - Aston Villa
18.00 Chelsea - Bolton
20.00 Wigan - West Ham
22.00 Middlesbr. - Tottenham
00.00 Dagskrárlok
09.00 PGATour 2007
- Highlights
(Zurich Classic of New
Orleans)
09.55 Það helsta í PGA-
mótaröðinni
10.25 Pro bull riding
(Omaha, NE - Omaha Open)
11.20 World Supercross GP
2006-2007
12.15 NBA 2006/2007
- Regular Season
(Utah - Houston)
14.05 Meistaradeild Evrópu
í handbolta
(Flensburg - Kiel)
15.20 Meistaradeild Evrópu
(Man. Utd. -ACMilan)
17.05 Meistaradeildin
með Guðna Bergs
17.20 Spænski boltinn -
upphitun
(La Liga Report)
17.50 Spænski boltinn
(Atl. Madrid - Betis)
19.50 Spænski boltinn
(Valencia - Recreativo)
21.50 Box
(Oscar De la Hoya vs. Ri-
cardo Mayorga)
22.35 Box
(Floyd Mayweather vs Zab
Judah)
23.55 Hnefaleikar
(Valuev - Chagaev)
06.00 A View From the Top
08.00 Win A Date with
Ted Hamilton!
10.00 13 Going On 30
12.00 Awfully Big Adventure
14.00 A View From the Top
16.00 Win A Date with
Ted Hamilton!
18.00 13 Going On 30
20.00 Awfully Big Adventure
22.00 THE FORGOTTEN
00.00 Chasing Beauties
02.00 Everbody’s Doing It
04.00 The Forgotten
Star Wars grín:
Vélknúna hænan snýr aftur
Leikarinn Seth Green, sem margir kannast við
úr Buffy-sjónvarpsþáttunum, er um þessar
mundir að gera hálftíma langa sérútgáfu af
Robot Chicken-brúðuþættinum sínum
sem verður helguð Star Wars-mynd-
unum. Þátturinn er gerður í góðu
samstarfi við LucasFilm og munu
bæði George Lucas og Mark
Hamill lesa inn á þáttinn. Robot
Chicken-þættir njóta gífurlega
vinsælda enda stútfullir af
kolsvörtum húmor og góðu
kvikmyndagríni. Robot
Chicken: Star Wars verður
frumsýndur á Cartoon
Network í Bandaríkjunum
þann 17. júní.
Stöð 2 kl. 22.00
Hin gleymdu
The Forgotten er hrollvekjandi
spennumynd í anda The Sixth
Sense þar sem verðlaunaleik-
konan Julianne Moore leikur konu
sem fær þær upplýsingar skömmu
eftir andlát sonar síns að hann hafi
aldrei verið til og að minningarnar
um hann séu hugarburður einn.
En hún neitar að trúa þessum
skelfilegu tíðindum og einsetur
sér að sanna tilvist sonar síns.
Aðalhlutverk: Julianne Moore,
Christopher Kovaleski, Matthew
Pleszewicz. Leikstjóri: Joseph Ru-
ben. 2004. Bönnuð börnum.
RUV kl. 20.50
Yndislegt
heilbrigðiskerfi
John Q er bandarísk bíómynd
frá 2002 sem gefur fólki óhugn-
anlega innsýn í bandaríska
heilbrigðiskerfið. John Q þarf að
koma syni sínum í hjartaaðgerð
með hraði en hann er ótryggður
og tekur því starfsfólk spítalans
í gíslingu og þvingar það til að
gera aðgerðina. Leikstjóri er Nick
Cassavetes og meðal leikenda eru
margir hágæðaleikarar á borð við
Denzel Washington, Robert Duvall,
James Woods og Anne Heche.