blaðið

Ulloq

blaðið - 01.06.2007, Qupperneq 16

blaðið - 01.06.2007, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 blaAiö fólk folk@bladid.net HVAÐ Mun Marshall-aðstoðin reyn- FllsjNST ast íslandi vel í annað sinn? [3 f »Sú fyrri reyndist einstaklega vel og augljóst að Möllerinn treystir á 1 V • að hún geti komið að sama gagni fyrir hann núna, 50 árum seinna." Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur ráðið flokksbróður sinn, Róbert Marshall, sem aðstoðarmann. Marshall-aðstoðin var fjárhags- aöstoð Bandaríkjanna við Evrópu eftir síðari heimsstyrjöldina og var nefnd eftir George Marshall, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. HEYRST HEFUR Tímamót hjá Samúel Erni: BLOGGARINN... SAMKVÆMT áreiðanlegum heim- ildum úr herbúðum Samfylkingar- innar er fólk þar margt mjög hissa og/eða reitt yfir því að Lúðvík Bergvinsson hafi verið valinn þingflokksformaður flokksins. Hann tapaði jú fyrir Margréti Frímanns í prófkjöri fyrir þing- kosningarnar 2003, skíttapaði fyrir Ágústi Ólafi í varaformanns- slagnum 2005 þrátt fyrir stuðning forystufólks og tapaði miklu fylgi með Vestmannaeyjalistann i bæj- arstjórnarkosningum síðastliðið vor þar sem Sjálfstæðisflokk- urinn náði hreinum meirihluta. Þá tapaði hann fyrir Björgvini G. um fyrsta sætið í prófkjöri Samfylkingar- innar í Reykjavíkurkjördæmi suður í haust og reyndar munaði örfáum atkvæðum að hann félli niður í fjórða sætið. Einnig segja menn óskiljanlegt að Ágúst Ólafur láti ganga svona yfir sig. Hann hafi augljóslega verið fúll að fá ekki ráðherrastól, hann fékk ekki þing- flokksformannsstólinn og hann fékk ekki heldur formannsstól fjárlaganefndar Alþingis, heldur verður hann að láta sér lynda formannsstól viðskiptanefndar. Og já, svo er hann varaformaður Samfylkingarinnar... í DAG kemur út tímaritið ísafold. Þá kemur í ljós hvort grein um tíðar heimsóknir Gunnars I. Birg- issonar á súlustaðinn Goldfinger verður þar á meðal, en á vefsvæði Mann- lífs segir að mikill titringur sé vegna málsins og að áhrifamenn hafi reynt að stöðva birtingu greinarinnar. BB birti í gær frétt um Birgi Leif Hafþórsson á Opna velska meist- aramótinu í golfi. Hins vegar fylgdi með mynd af bolvíska kylfingnum Birgi Olgeirs- syni í miðri sveiflu. Það er greinilega sama hvort er, Birgir eða Birgir Leifur... Mun setjast á skólabekk Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net Samúel Örn Erlingsson þarf varla að kynna fyrir þjóðinni. Hann hefur verið góðkunningi landsmanna á öldum ljósvakans í 25 ár en stendur nú á tímamótum í lífi sínu. Hann er að draga sig í hlé frá RÚV og hyggst setjast á skólabekk. „Jú, það er rétt. Ég er orðinn rúm- lega 45 ára og hef átt alveg yndisleg 25 ár á mínum vinnustað. En RÚV stendur á tímamótum og ég einnig og því fannst mér þetta tilvalinn tími til þess að staldra við og velta aðeins fyrir mér hlutunum. Það væri óeðlilegt eftir 25 ára starf að ég segði amen við öllu sem sagt er hérna en ég vona sannarlega að þessi breyting gangi upp. Eg er sjálfur kennaramenntaður og hver veit nema ég bæti við þá þekkingu, það er bara ekki komið í ljós ennþá,“ segir Samúel sem á margs að minn- ast úr starfi sínu. „Jú, mikil ósköp. Það er af mörgu að taka. Ég byrjaði hérna 1982, en var þá aðeins lausráðinn um helgar. Eitt af mínum fyrstu verkum var að lýsa knattspyrnukappleik milli Fram og í A í útvarpinu, en á þeim tíma var að- eins ein útvarpsrás og höfðu aðeins fjórir menn lýst slíkum kappleikjum áður. Þeir Sigurður Sigurðsson, Jón Ásgeirsson, Bjarni Fel og Hemmi Gunn, sem ég leysti af þennan dag- inn. Því þótti þetta örlítið merkilegur viðburður að þessu leyti og greinilega það merkilegur að eitt dagblaðanna birti dóm um lýsingu mína! Gagn- rýnin var bara nokkuð jákvæð, hún bar yfirskriftina .Brasilískur tónn' þar sem ég þótti frekar blóðheitur og átti auðvelt með að hrífast með leiknum,“ segir Samúel sem man ekki betur en að leikurinn hafi farið 2-2, þó svo hann segist ekki þora að veðja upp á það. „Éinnig eru Ólympíuleikarnir í Barcelona 1992 og í Atlanta 1996 minnisstæðir en fyrir ólíkar sakirþó. Á þeim fyrri tókst mér að misskilja hafnaboltareglurnar í samantekt dagsins og þurfti að spila svolítið af fingrum fram þegar lýsingin var send hingað heim yfir gervihnött. En það bárust engar kvartanir yfir þessu og því slapp ég með skrekk- inn. Á þeim síðari hins vegar, eftir langan og strangan vinnudag, hafði ég ætlað mér að njóta útiveru og skemmtunar og ákvað því að labba „Ég var inni á þingi í 11 mínútur, sem erlengd fótboltaleiks. Þá munaði aðeins 11 atkvæðum að ég hefði komist inn, sem er fjöldi leikmanna eins fótboltaliðs. Þetta varþví kaldhæðni ödaganna má segjat í átt að Ólympíugarðinum. Þegar ég átti um 50 metra eftir hringir far- síminn og Jónas Tryggvason, vinur minn, frændi og fimleikagúru sem aðstoðaði okkur við lýsinguna þarna úti, segist vanta hótellykilinn sinn, sem ég var með. Ég sný þá við á punktinum og held áleiðis til hans, en þegar ég er kominn um 50 metra í burtu, sömu vegalengd og ég átti ólokið að Ólympíugarðinum, springur þar sprengja sem tekur líf tveggja manna. Þarna hafði þá verið framið hryðjuverk, sem varð alheimsfrétt og ég lýsti þarna frá fyrstu hendi aðstæðum sem voru vægast sagt hörmulegar. Ég reyndi ítrekað að ná heim í fjölskyldu mína, en tókst ekki fyrr en um síðir, þar sem þær mæðgur voru í heimsókn úti á landi. Þessu gleymi ég aldrei, en hrósa happi að ekki fór verr.“ Samúel var nálægt því að komast á þing fyrir Framsóknarflokkinn í nýafstöðnum kosningum. „Ég var inni á þingi í 11 mínútur, sem er lengd fótboltaleiks. Þá mun- aði aðeins 11 atkvæðum að ég hefði komist inn, sem er fjöldi leikmanna eins fótboltaliðs. Þetta var því kald- hæðni örlaganna má segja!“ sagði Samúel Örn að lokum. Gengið framhjá Gúsfta „Lúðvík Bergvinsson hefur verið kjörinn formaður þingflokks Sam- fyikingarinnar.j..] Ekki hefur komið nein fullnægjandi skýring á þvíhvers vegna Ágúst Ólafur var ekki gerður að ráðherra. Sú skýring að Ágúst Ól- afurþurfi sem varaformaöur að sinna innra starfi flokksins heldur ekki vatni. Framkvæmdastjórn flokksins og formaður hennar á að sinna innra starfi." Þráinn Þárinsson diddibjuga.blog.is Sigurjón sér á báfti „Eftirað ÓiafurÞ. Stephensen er orðinn ritstjóri Blaðsins er staðan á ís- lenskum blaðamarkaði sú að ritstjórar þriggja útbreiddustu dagblaða á Is- iandi hafa allir gegnt trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. [...] Sigur- jón M. Egilsson, ritstjóri DV, er nú eini ritstjóri íslensks dagblaðs sem ekki hefur komist til metorða hjá Flokkn- um og hefur líklega aldrei komist nær Sjálfstæðisflokknum en það að vinna í sama húsi og Jón heitinn Sólnes á Akureyri fyrir mörgum árum, efég man söguna rétt. “ Björgvin Guðmundsson gudmundsson.blog.is Möller fær Marshall-aðstoð „Kristján L. Möller, samgönguráð- herra og leiðtogi Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, hefur ráðið Róbert Marshall, varaþingmann Samfylkingarinnar, sem aðstoðar- mann sinn. Ég verð að viðurkenna að ég átti von á aö Kristján myndi velja flokksmann héðan úr Norð- austurkjördæmi sem aðstoðarmann sinn en engu að síður þarf valið ekki beint að koma að óvörum. [...] Auk þessa finnst mér val Kristjáns sýna vet að hann vilji reyndan fjölmiðla- mann til starfa; mann með tengsl í fjölmiðlabransann. Það er oft gott að eiga tengslamann inn á fjölmiðla sem aðstoðar- mann sinn. Þetta veit Kristján Möller. Valiö ijtj sýnir mjög vel þá áherslu Stefán Friðrik Stefánsson stebbifr.blog.is Félag SkrúSgarðyrkjumeistara GARÖHEIMAR Su doku 2 4 8 9 7 5 1 4 6 5 3 7 9 9 3 7 2 1 6 5 7 6 9 1 1 4 8 7 2 4 4 1 Su Doku þrautin snýst um aö raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Þetta er orðið fínt í dag karlinn minn, sjáumst á þriðjudaginn.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.