blaðið - 01.06.2007, Side 24
blaðið
Safankir
Lokkandi grillió
Ekki geyma grillið í skúrnum og nota það einungis við há-
tíðleg tækifæri. Grillið pylsur handa krökkunum um helgar,
eftirrétti á kvöldin og hitið upp bollurnar á morgnana. Það
er bara eitthvað svo lokkandi við grilllyktina.
Sleppið gosdrykkjunum í sumar en blandið frekar ferska
og góða safa. Bæði er hægt að nota safapressu og blanda
sódavatni saman við ávaxtasafa. Hvort tveggja er Ijúffengt
og einkar sumarlegt.
24
FOSTUDAGUR.l. JUMI 2007
matur@bladid.net
.
SlfilPp
Sumarspagettí
með brie
Þegar sumarið lætur sjá sig er alvanalegt
að neysluvenjur hins hefðbundna fslendings
breytist. Grillið er dregið fram og notað
reglulega en þess á milli vilja flestir léttar
og þægilegar máltíðir. Kannski ekki að furða
því enginn vill finna fyrir þyngslum í maga
á miðju sumri enda nauðsynlegt að hreyfa
sig og njóta náttúrunnar. Spagettí hentar
sérstaklega vel í létta og þægilega máltíð
því það má nota með nánast hverju sem er
auk þess sem fljótlegt er að matbúa það.
Hér má finna Ijúffenga uppskrift að spaget-
tíi með brie og tómötum, hina fulkomnu
sumarblöndu.
Sumarspagettí með brie
• 300 gr. spagettí
• 500 g kúrbítur
• 3 msk ólífuolía
• 2 hvítlauksgeirar, smátt skornir
• 1 sítróna, safi og fínt rifið hýði
• 6 þroskaðir tómatar, niðurskornir
• 140 gr. brie
• Salt
• Svarturpipar
Aðferð:
Eldið spagettí í sjóðandi söltu vatni í 10-12
mínútur þar til það er mjúkt. Farið eftir
leiðbeiningum á pakka. Skerið kúrbítana tii
helminga og í sneiðar. Hitið oiíuna á stórri
pönnu, steikið kúrbítinn og hvítlauk í 3-4
mínútur þar til það er orðið mjúkt. Bætið
sítrónuhýði, tómötum og 3 matskeiðum
af pastavatninu saman við. Sjóðið í 2-3
mínútur þar til tómatarnir mýkjast. Takið
pönnuna af hellunni og hrærið brie í sósuna,
þar til osturinn byrjar að bráðna. Kryddið
sósuna með salti, pipar og sítrónusafa.
Bætið spagettíinu við sósuna og hrærið vel
saman. Berið fram með fersku salati og
brauði.
Rúnar Gislason á sér engan uppáhaldsmat en elskar naut og góðan fisk:
Oftast bara græðgi
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu Guðmundsd.
svanhvit@bladid.net
Rúnar Gíslason, matreiðslumað-
ur og eigandi veisluþjónustunn-
ar Kokkarnir, hefur lengi haft
áhuga á matargerð enda byrjaði
hann að læra til kokks við 18 ára
aldur. „Ég hef lengi haft áhuga á
matargerð en það er reyndar ekki
svo að ég hafi ætlað að verða kokk-
ur frá fimm ára aldri. Ég á yngri
systkini og þurfti því oft að vera
búinn að setja upp kartöflur og
taka eitthvað til áður en foreldr-
ar okkar komu heim. Ég minnist
þess sérstaklega að eitt skiptið
þegar ég sauð kartöflur setti ég
þær í pottinn án vatns og rankaði
síðan við mig í reyknum,“ segir
Rúnar og hlær.
„Maturínn verðuraldrei
betrí heldur en hráefnið
sem unnið ermeð. Ef hrá-
efnið er ódýrt mun matur-
inn bragðast ódýrt.“
Gott hráefni skiptir öllu
Rúnar segir að það sé allt önnur
tilfinning að elda í vinnunni en að
elda heima. „í vinnunni er eitthvert
ákveðið verkefni sem liggur fyrir
og ég elda í meira magni en heima.
Auk þess er öll aðstaða í vinnunni
sérstaklega góð, kraftmiklar elda-
vélar, stórir pottar, uppvaskarar og
fleira. Reyndar er ég duglegur að
elda heima hjá mér og elda mjög
oft en ekki á hverju einasta kvöldi.“
Aðspurður hvað hann fái út úr elda-
mennskunni segir Rúnar að oftast
sé þetta bara græðgi. „Ég er mjög
sérstakur að því leyti að ég get
fundið fyrir mikilli löngun í eitt-
hvað ákveðið og enda jafnvel út í
búð á miðvikudegi með nautasteik
í höndunum. Aðra daga langar
mig kannski alls ekki í nautasteik.
Annars fer ég eftir sömu grundvall-
arreglum heima og í vinnunni, ég
nota ferskt og gott hráefni og kaupi
ekki frosið. Það skiptir öllu að hafa
gott hráefni í eldamennsku. Matur-
inn verður aldrei betri heldur en
hráefnið sem unnið er með. Ef hrá-
efnið er ódýrt mun maturinn bragð-
ast ódýrt.“
Rúnar Gíslason: „Ég á yngri systkini og
þurfti því oft að vera búinn að setja upp
kartöflur og taka eitthvað til áðuren foreidr
ar okkar komu heim.“
Ysa með geitaosti
og tómötum
Fyrir 4
• 600 gr kartóflur
• 900 gr roð og beinlaus ýsa
• 3 stk. tómatar
• 200 gr mjúkur geitaostur
• 80 gr valhnetukjarnar
• 1A stk. grænn kúrbítur
• 200 gr sykurbaunir
• Vá stk rauð paprika
• 2 stk hvítlauksgeirar
• 2 stk estragongreinar
• Salt,
• Pipar
• Olía
Algjör desertkall
Rúnar á sér engan uppáhalds-
mat enda segist hann elska naut,
önd og góðan fisk. „Það er ómögu-
legt að gera upp á milli matarteg-
unda. Reyndar er ég algjör desert-
kall og elska góðan desert," segir
Rúnar sem fær sér samt sem áð-
ur ekki desert á hverju kvöldi.
„Það er meira um að ég laumist
í súkkulaði öðru hverju. Við höf-
um nær alltaf desert þegar við
höldum matarboð og ég er mikið
fyrir ber sem ég flambera gjarn-
an auk þess sem mér finnst bak-
aðir ostar æðislegir." Rúnar lætur
fylgja með ljúffenga uppskrift af
ýsu með geitaosti og tómötum.
Aðferð:
Skerið kartöflurnar í sneiðar og
steikið á pönnu þar til þær eru
gullinbrúnar. Saltið og piprið.
Setjið kartöflurnar í eldfast mót.
Sneiðið hvítlauksgeirana niður,
setjið aðeins á pönnuna og setjið
yfir kartöflurnar. Skerið niður
kúrbítinn og paprikuna og setjið
yfir kartöflurnar ásamt sykurbaun-
unum. Setjið inn í ofn í um 10
mínútur. Á meðan er ýsan skorin
í hæfilega bita og smá salt sett á
bitana. Tómatarnir eru skornir í
sneiðar. Um 3-4 estragonlauf eru
sett á hvern ýsubita, ofan á það
eru settar tómatsneiðar. Geitaost-
urinn er mulinn ofan á tómatana
og valhnetukjarnarnir saxaðir
og settir á toppinn. Að lokum er
mulinn pipar settur yfir. Setjið
ýsubitana ofan á kartöflurnar og
grænmetið og bakið í 12-15 mín-
útur. Borið fram með fersku salati.
' I §m
Matur með
Völu Matt
Valgerður Matthíasdóttir, eða Vala
Matt eins og flestir þekkja hana,
stýrir nýjum þætti sem hefst á
Stöð 2 í kvöld. Þátturinn ber nafnið
Matur og lífsstíll en f þættinum
þiggur Vala heimboð hjá fólki sem
á það sameiginlegt að vera höfð-
ingar heim að sækja og kunna að
elda og njóta góðs matar. í fyrsta
þættinum heimsækir Vala Bubba
Morthens og Hrafnhildi Hafsteins-
dóttur sem munu sýna á sér nýjar
Frönsk súkkulaðikaka
Það er fátt, ef nokkuð, sem jafn-
ast á við súkkulaði og sumir vilja
meina að það bragðist líkt og
himnaríki. I sífelldri umræðu um
hollustu og hitaeiningar gleym-
ist stundum hve ómótstæðilega
gott súkkulaði er. Þar fyrir utan
hafa nýlegar rannsóknir sýnt að
súkkulaði er ekki eins óhollt og
oft hefur verið haldið fram og sér-
staklega á það við dökkt súkku-
laði. Franskar súkkulaðikökur
hafa verið vinsælar í saumaklúbb-
um landsins um nokkurt skeið
enda tljúffengar með ís, fersk-
um ávöxtum eða rjóma. Annar
kostur súkkulaðikökunnar er
hve einfalt er að gera hana og á
flestra færi. Fyrir þá sem hafa
aldrei bragðað og uppgötvað
dýrð súkkulaðikökunnar fylgir
HHK
Frönsk súkkulaðikaka
Botn:
• 2 dl sykur
• 200 g smjör
• 200 g suðusúkkulaði
• 1 dl hveiti
• 4 stk egg
Súkkulaðibráð:
• 150 g suðusúkkulaði
• 70 g smjör
• 2 msk síróp
Botn:
Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Bræðið smjörið og súkkulaðið
saman við vægan hita í potti. Blandið hveitinu saman við eggin og
sykurinn. Bætið bráðnu súkkulaðinu og smjörinu að lokum varlega út í
deigið. Bakið í vel smurðu tertuformi við 170°C í 30 mínútur, kakan á að
vera blaut í miðjunni.
Súkkulaðibráð:
Látið allt saman í pott og bræðið saman við vægan hita. Kælið bráðið
svolítið og berið það síöan á kökuna.