blaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 30
Plötusnúðurinn
Róbert Aron
Magnússon
I heimsókn á Islandi
Róbert Aron sótti ísland
heim i vikunni ásamt
fjölskyldu sinni. Hér sést
hann ásamt syni sinum,
Oliver Einari Nordquist.
Lærir í stórborginni
London
Þeir sem stundað hafa
skemmtistaði hér á
Klakanum kannast
flestir við Róbert Ar-
on Magnússon, eða
Robba „chronic” eins
og hann er gjarnan kallaður. Róbert
hefur verið iðinn við að þeyta skíf-
um hérlendis og var af mörgum
talinn einn helsti plötusnúður lands-
ins. Hann ákvað þó að venda kvæði
sínu í kross og hefja nám í stórborg-
inni London þar sem mun útskrifast
núna i sumar.
Bók: The Rise and Fall of
Death Row Records. (sagan
um heitasta plötufyrirtæki á 9.
áratugnum sem gaf út snoop,
tupac og fleiri. Ansi skemmtileg
lesning...
Kvikmynd:. Scarface.
Skil aldrei við mig: Símann.
Elska: Fjölskylduna mína.
Þoli ekki: Þegar mamma
tautar í mér.
Matur: Pitsuborgarinn hans
pabba og kjötsúpan hennar
mömmu.
Tónlist: Ég ætla ekki að segja
alæta en ég er opinn fyrir öllu
og opinn fyrir nýjungum. Annars
er hipphopp- og danstónlist efst
á lista.
Draumaverkefni: Á það ekki
eftir að koma í Ijós bara?
Ráð og speki: Hlustaðu alltaf á
mömmu þína.
Hamingjan felst í: Að vera í
faðmi fjölskyldunnar.
Lærir allar hliðar tónlistarbransans
„Ég er að klára mastersnám í svo-
kölluðu music business manage-
ment. í rauninni veit ég ekki al-
veg hvernig á að þýða þetta yfir á
íslensku en þetta er allavega tengt
viðskiptastjórnun innan tónlistar-
geirans, ef svo má að orði komast,
og ætti vonandi að geta komið
manni í stjórnunarstöðu innan
einhvers fyrirtækis á þessu sviði,“
segir Róbert aðspurður um námið
í London.
„Þetta býður án efa upp á fjöl-
mörg tækifæri fyrir mig enda mikil
gróska í tónlistarheiminum og öllu
sem tengist tónlist, hvort sem um
er að ræða auglýsingar, kvikmynd-
ir, uppákomur eða annað. Þarna
förum við í fjármálahliðina, mark-
aðshliðina og viðskiptalegu hliðina
tengda tónlistinni. Við fáum marga
fyrirlesara frá umboðsmönnum, yf-
irmönnum stórra útgáfufyrirtækja
og fleiri aðilum sem er óneitanlega
mjög lærdómsríkt og skemmtilegt.
Maður lærir mjög mikið af þessu og
fær innsýn í þennan stóra tónlistar-
heim sem hringiðan í London er.“
Ekki á leiðinni heim
Róbert hafði starfað sem plötu-
snúður hér á landi áður en hann
ákvað að leggja land undir fót og
freista gæfunnar á erlendri grund.
„Ég var búinn að vera að spila í
eitthvað um 10-12 ár en langaði allt-
af að læra eitthvað sem ég gæti nýtt
mér og mér þætti skemmtilegt. Ég
ákvæð því að leita aðeins fyrir mér
og sló svo til þegar ég komst í tæri
við þetta nám. Auðvitað nýttist
reynslan mér svo vel þegar ég sótti
um í skólanum ásamt meðmælum
sem ég hafði fengið. Það var allt
skoðað sem maður hafði gert áður
en ég fékk inngöngu," segir Róbert
sem sér svo sannarlega ekki eftir
búferlaflutningum til stórborgar-
innar. „Þetta er alveg æðislegt og ég
er ekki á leiðinni til íslands aftur í
bráð. Við seldum bara íbúðina og
sjáum ekkert fyrir okkur að koma
heim. 1 London er auðvitað miklu
meira að gerast og yfirhöfuð meira
líf auk þess sem tækifærin eftir
námið verða vafalaust meiri hérna
en heima."
„Þetta er alveg æöislegt
og ég er ekki á leiðinni til
íslands aftur í bráð. V\ð
seldum bara íbúðina og sjá-
um ekkert fyrír okkur að
koma heim.“
Hættur að þeyta skífum
Róbert hefur sagt skilið við skíf-
urnar og segist vilja vera hinum
megin við borðið. Hann hefur sett
sig í stellingar umboðsmanns auk
þess sem hann kemur að hinum
ýmsu tónlistartengdu viðburðum á
Islandi.
„Mér var farið að finnast frekar
hvimleitt að spila allar helgar og vera
kannski að koma heim klukkan sjö
eða átta á morgnana. Þetta var orð-
ið frekar þreytandi og ég vildi snúa
þessu aðeins við,“ segir Róbert, sem
kveðst vinna mikið fyrir íslensku
hljómsveitina Steed Lord með þeim
Svölu, Einari, Ella og Edda. „Ég er
umboðsmaður Steed Lord og hef
haft mikið að gera í tengslum við
það. Þau hafa meðal annars verið
að spila í Austurríki, New York, Mi-
ami, Svíþjóð og eru núna í London
um helgina. Það er alveg brjálað
að gera og maður nýtir auðvitað
námið á þessum vettvangi. Svo hef
ég verið að vinna með Ölgerðinni á
íslandi við partihald og fíeira slíkt
með því að fá erlenda plötusnúða til
landsins og aðra listamenn auk þess
að hafa verið eitthvað í tónleikahald-
inu líka.“
Hægt að læra allt erlendis
Aðspurður segist Róbert vera
farinn að huga að starfi eftir nám-
ið. Hann mun leggja lokahönd á
ritgerðina í sumar og reyna svo
fyrir sér í tónlistarbransanum.
„Ég er alveg farinn að skoða í kring-
um mig. Það verður örugglega eitt-
hvað skemmtilegt sem bíður mín.
Annars hvet ég fólk til að prófa
að læra á erlendri grund. Ef það
er eitthvað sérstakt svið sem þú
hefur áhuga á, en getur ekki lært
heima, er alveg pottþétt að þú get-
ur fundið slíkt nám úti. Það er ein-
hvern veginn allt til. Auðvitað er
stofnkostnaðurinn mikill en von-
andi fær maður það borgað marg-
falt til baka þegar á líður,“ segir
Róbert að lokum.
halldora@bladid.net
5 SPURNINGAR:
ROBERTO BABD015 ÁRA
Hvað heltlr höfuðborg Líbanons?
Veit ekki
Hvaða flokkar mynduðu nýja ríkisstjórn á
dögunum?
Veit það ekki alveg
Hvað heitir núverandi forsætisráðherra?
Ingibjörg
Að hvaða löndum á Portúgal landamæri?
Veit það
Hvað hét trommuleikari Bítlanna?
Veit það ekki
SINDRIMÁR JÓNSSON15 ÁRA
Hvað heitir höfuðborg Libanons?
Kasakstan
Hvaða flokkar mynduðu nýja ríkisstjórn á
dögunum?
Veit það ekki
Hvað heitir núverandi forsætisráðherra?
Man það ekki
Að hvaða löndum á Portúgal landamæri?
Ekki hugmynd
Hvað hét trommuleikari Bítlanna?
Robert Starr
GUNNAR SMÁRIJÓNSSON15 ÁRA
Hvað heitir höfuðborg Llbanons?
Ekki viss
Hvaða flokkar mynduðu nýja ríkisstjórn á
dögunum?
Sjálfstæðisflokkur og Samfylking
Hvað heitir núverandi forsætisráðherra?
Ekki viss
Að hvaða löndum á Portúgal landamæri?
Spáni og ftalu
Hvað hét trommuleikari Bítlanna?
Man það ekki
AUÐUR ÝR GÍSLADÓTTIR16 ÁRA
Hvað heitir höfuðborg Líbanons?
Veit það ekki
Hvaða flokkar mynduðu nýja rikisstjórn á
dögunum?
Veit það ekki
Hvað heitir núverandi forsætisráðherra?
Man það ekki
Að hvaða löndum á Portúgal landamæri?
Veit það ekki
Hvað hét trommuleikari Bitlanna?
Veit það ekki
ueis oöufy 'S
lueds 't? apjBBH 'HtiúO'E 6u!>||í)iues
60 jm(>|0|)S!Qæis)|e[s '2 )nj|eg' 1 'JfiAS
ELSAINGÓLFSDÓTTIR 25 ÁRA
Hvað heitir höfuðborg Libanons?
Veit það ekki
Hvaða flokkar mynduðu nýja rikisstjórn á
dögunum?
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur
Hvað heitir núverandi forsætisráðherra?
Geir H. Haarde
Að hvaða löndum á Portúgal landamæri?
Spáni
Hvað hét trommuleikari Bitlanna?
Man það ekki