blaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 27
blaðið
folk@bladid.net
HVAÐ Verður nokkuð hægt að
fip^nst synda fyrir öllu þessu fólki?
ÞER? Við l'slendingar eigum nóg af sundlaugum og það ættu
allir að komast fyrir.
HEYRST HEFUR
ÞAÐ ER EKKl tekið út með sæld-
inni að vera fegurst fljóða á landi
hér. Jóhanna Vala Jónsdóttir, ný-
krýnd fegurðardrottning Islands,
vandar að minnsta kosti ekki sam-
keppendum sínum kveðjurnar í nýj-
asta hefti Vikunnar. Ber hún þeim
á brýn að hafa komið illa fram við
sig, baktalað og lagt í einelti bæði
meðan á keppni stóð og eftir að
henni lauk. Það er þvi af sem áður
var þegar fegurstu konur landsins
voru undantekningarlaust „rosal-
ega góðar vinkonur“. Heyrst hefur
að hinar stúlk-
urnar sem þátt
tóku í keppninni
séu afar ósáttar
við umfjöllun
fegurðardrottning
arinnar og að
von sé á yfirlýs-
ingu frá þeim
á næstunni
þar sem þær
bera af sér
sakir.
ARNA SCHRAM, formaður Blaða-
mannafélags Islands, greindi frá
því á bloggsíðu sinni í gær að senn
tæki til starfa nýr fréttamiðill sem
eingöngu myndi vinna fréttir fyrir
Netið. Undirbúningur vefsins ku
hafa staðið yfir um nokkra hrfð og
er nú kominn á lokastig. Að sögn
Örnu eru þekktir bloggarar í hópi
þeirra sem standa að vefnum og
kann jafnvel að fjölga í þeim hópi.
Hún greinir ekki frá hvejir hinir
þekktu bloggarar eru en heimildir
Blaðsins herma að Pétur Gunn-
arsson, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri þingflokks
Framsókn-
arflokksins,
og Andrés
Jónsson,
fyrrverandi for-
maður Ungra
jafnaðarmanna,
standi að
vefnum.
BÆÐI Andrés og Pétur hafa látið
mikið að sér kveða f fréttabloggi á
undanförnum misserum, Andrés
með vefnum
Orðið á göt-
unni og Pétur
með síðunni
hux.blog.is.
Benedikt Lafleur stefnir á Ermarsund:
BLOGGARINN.
Hræðist ekki samkeppni
Eftir Einar Jónsson
einar.jonsson@bladid.net
Sjósundkappinn Benedikt S. Lafleur
stefnir á að synda yfir Ermarsundið
í næsta mánuði og undirbýr sig af
krafti fýrir sundið þessa dagana.
Upphaflega ætlaði hann að þreyta
,Ermarsundið“ í fyrrasumar en
þurfti að hætta við vegna slæmra
veðurskilyrða.
„Það var mikil synd að hætta al-
gerlega við þessa tilraun sérstaklega
þegar maður var búinn að leggja
svona mikið á sig í undirbúningi,"
segir hann.
Að þessu sinni er Benedikt á
ferð aðeins fyrr á árinu en síðasta
sumar. Hann segir að flestir reyni
við sundið í ágúst enda sé hitastig
í sjónum þá yfirleitt orðið hærra þó
að undantekningar geti verið á því.
„Núna var ákveðið að fara svona
snemma vegna þess að veðrið er
stöðugra, það eru ekki eins miklar
öldur og það er ákjósanlegra fyrir
mann að synda í sjónum og sérstak-
lega með tilliti til þess hvað ég þoli
vel kuldann," segir Benedikt og
bendir á að kuldinn reynist mörgum
vandamál.
Fram og til baka
Það er talsverð þolraun að synda
yfir Ermarsundið en Benedikt býr
að reynslu síðasta sumars auk þess
sem hann hefur æft vel og segist vera
í betri þjálfun núna en í fyrra. Engu
að síður er margs að gæta þegar út í
sjóinn er komið.
„Maður þarf að halda stefnunni og
passa sig á að nærast rétt og er ég bú-
inn að vera að æfa mig fyrir það. Svo
er bara að passa sig að súpa ekki of
mikinn sjó því að það getur valdið
velgju og verið óþægilegt," segir
Benedikt sem hyggst jafnvel synda
aftur til baka ef aðstæður leyfa. „Ég
er í raun skráður í sund fram og til
baka þannig að ef veður er óvenju-
hagstætt og ég er í ógurlegu stuði
þá hef ég kost á að synda aftur til
baka.“
Benedikt verður ekki einn á ferð
yfir Ermarsundið því að fjögurra
manna hópur mun fylgja honum í
báti. Með í för verður meðal annars
kvikmyndatökumaður þvi að verið
er að vinna að heimildarmynd um
sundið og sjósund hér á landi. Ekki
má hann þó vera í of nánum sam-
skiptum við aðstoðarmenn sína.
„Ég má ekki einu sinni snerta bátinn.
Ég hef æft mig í að nærast í sjónum
„Það eiga ábyggilega fleirí
íslendingar eftir að feta
í fótspor mín. Það eru að
minnsta kosti fimm eða
sex íslendingar sem eiga
góðan séns í þetta. Við
verðum bara að sjá til. Ég
er ekki hræddur við neina
samkeppni
og þarf að troða marvaða á meðan,"
segir hann. Það tekur sundmenn
mislangan tíma að synda yfir Erm-
arsundið. Þeir hraðsyndustu gera
það gjarnan á tíu til tólf tímum en
algengt er að menn ljúki sundinu á
15-16 tímum. „Fyrir mig gæti þetta
tekið hátt í 20 klukkutíma því að ég
er ekkert mjög hraðsyndur og er að
fara þetta í fyrsta sinn,“ segir hann.
Barátta gegn mansali
Benedikt tileinkar sundið barátt-
unni gegn mansali og alþjóðlegri
klámvæðingu og verður efnt til
áheitasöfnunar á næstunni. Þá getur
fólk hringt í áheitanúmer Símans
905 20 20 og verða þá 1500 krónur
gjaldfærðar af reikningi þess sem
hringir. Ágóðinn rennur í sjóð Sak-
leysis sem ætlað er að sporna við al-
þjóðlegri klámvæðingu.
„í fyrra var svolítil umræða um
þetta málefni og þetta hefur verið
mér sjálfum mjög hugleikið og ég
er mjög hrifinn af því sem Stíga-
mót hafa verið að gera. Svo er líka
annað sem við megum ekki gleyma
að þetta er náttúrlega smyglsvæði.
Þó að maður eigi kannski ekki að
auglýsa Ermarsundið þannig þá
verðum við bara að viðurkenna það
að það er miklu smyglað á þessu
svæði þannig að mér finnst það vera
táknrænt,“ segir hann.
Að sögn Benedikts er Eyjólfur Jóns-
son eini Islendingurinn sem reynt
hefur að synda yfir Ermarsund en
hann sér fram á að fleiri eigi eftir að
reyna það í framtíðinni. „Það eiga
ábyggilega fleiri íslendingar eftir
að feta í fótspor mín. Það eru að
minnsta kosti fimm eða sex íslend-
ingar sem eiga góðan séns í þetta.
Við verðum bara að sjá til. Eg er
ekki hræddur við neina samkeppni,“
segir Benedikt og hlær.
Hægt er að fylgjast með Ermar-
sundinu á heimasíðunni ermasund.
is.
Samfylkingarlestin
stjórnlaus
Kristján Möller samgönguráðherra
segir í Fréttablaðinu í dag að það
,þýði ekkert að horfa í baksýnisspegil-
inn“. Petta eru athyglisverð ummæli
frá yfirmanni umferöaröryggismála í
landinu. Ég hélt einmitt að baksýn-
isspegillinn væri eitthvert mikilvæg-
asta öryggistækið og að hverjum
ökumanni bæri að fylgjast vel með
þvísem gerist fyriraftan hann...
En ég hef svo sem aldrei skilið sam-
göngutengt líkingamál samfylkingar-
manna. Sérstaklega minnist ég þess
þegar Björgvin G. Sigurðssyni vartið-
rætt um að Samfylkingarlestin væri
komin af stað og yrði ekki stöðvuð.
Aðeins íjárnbrautarlausu samfélagi
held ég að fólki geti þótt það
snjöll myndlíking að
bera sig saman við
stjórnlausa, hemla-
lausa eimreið...
Stefán Pálsson
kaninka.net/stefan
Kauphækkun
mótmælt
Því miður er Seðlabankinn ekki
viðskiptabanki og maður getur ekki
stofnað bankabókþar. Ef það væri
hægt gæti maður núna mætt
alveg tjúllaðuryfir
kauphækkun Davíðs
og tekið allt út til að
mótmæla kauphækk-
uninni. Það myndi
sko sýna þessu liði...
Gunnar Hjálmarsson
his.is/drgunni
Timi Steingríms
að liða
Þingmenn sem ég hitti á röltinu í
góða veðrinu í bænum í dag voru
flestir á því að tími Steingríms J.
Sigfússonar í pólitíkinni væri aö líða.
Hann virkar þreyttur og argur. Það
voru mikil vonbrigði að komast ekki
í ríkisstjórn. Hans bíður fjögurra
ára hark íafarsundurleitri stjórnar-
andstööu. Þingræður hans þessa
dagana virðast aðallega
beinast að össuri
Skarphéðinssyni
fremur en til dæmis
kjósendum.
Egill Helgason
silfrid.blog.is
Su doku
3 7 2 5
1 8 4 6
6 8 1
4 5 7 9 1
1 9 5
2 4 3
4 1 7 5 6
8 6 7 2
5 4 7
Su Doku þrautin snýst um aö raða tölunum frá 1 -9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
HIRMAN
eftirJim Unger
8-10 © LaughingStock Internationai Inc./dist. by Unltad Modia. 2004
Hann er að spyrja hvort hann megi
fá lánaðan stiga hjá okkur.
Skóli fyrir þig?
Ertu strókur eða stelpa á aldrinum 16-25?
Langar þig að stunda skemmtilegt ndm:
• í heimavistarskóla?
• í góðum félagsskap?
• í fögru umhverfi?
Innritun stendur yfir j tí
HússtjórnarskólanpJ1
Skólinn kennir m
og handver,
f