blaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 30

blaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 blaðið Hinn vinsæli fjöl- miðlamaður Egill Helgason hefur átt í miklum deildum við forstjóra 365 miðla sem telur hann samnings- bundinn fyrirtækinu en Egill, sem neitar því, hefur ráðið sig til RÚV þar sem Silfur Egils verður á dagskrá í haust aukbókmenntaþáttar. „Ég sé ekki að ég hafi gert samning við 365. Það er mjög einkennilegur samningur ef annar samningsaðilinn þekkir ekki innihald samningsins og hinn er sífellt að prjóna inn í hann einhver ákvæði eftir á. Samningavið- ræður voru komnar á góðan rekspöl en þeim lauk aldrei með undirskrift eða handsali. Það eru bara til tölvu- póstar þar sem samningaþreifingar eru í gangi og svo samtöl milli tveggja manna. Ég skynjaði það ekki sem samning. Ari Édwald sagði að hann ætlaði að leggja fyrir mig skriflegan samning „síðar í vikunni“ eins og það var orðað, en svo heyrði ég ekki frá honum í mánuð,“ segir Egill. „Ég er mjög seinþreyttur til vand- ræða og mér leiðist allt þras og hef aldrei áður þurft að leita til lögfræð- ings. Ég skil heldur ekki af hverju málið fór beint í fjölmiðla. Þeim var sent bréf lögmanns 365 löngu áður en ég fékk það. En ég hef einsett mér að vinna eftir mottóinu: Sá vægir sem vitið hefur meira. Ég bekenni samn- inginn upp að því marki að ég segi að það hafi verið kominn meintur ,samningur“ og segi honum upp til að forðast að þurfa að standa í stappi fyrir dómstólum. Þetta eru mjög harð- skeyttir menn sem ég á í höggi við, vanir að beita fyrir sig lögfræðingum út af smæstu málum. Ég viðurkenni að ég óttast þetta hálfpartinn. Ég vona að þetta leiði til þess að þessu máli ljúki og ég geti byrjað með þætti uppi á Ríkisútvarpi í haust eins og ætlað var. Það eina sem 365 gæti haft upp úr þessu er að ég verði launa- laus í sumar. Þannig að þeim tekst kannski að gera mig aðeins fátækari. Ég ætla ekki að vera of hátíðlegur, en að sumu leyti snýst þetta um atvinnu- og tjáningarfrelsi mitt. Ein sögusögnin sem reynt hefur verið að breiða út er að ég sé á ein- hverjum ofurlaunum. Það er fjarri sanni. En það er erfitt að neita svona þegar það er komið í loftið. Þetta er einhver tegund af spuna að dreifa svona kjaftagangi til að gera andstæð- inginn ótrúverðugan. Let them deny it! Staðreyndin er líka sú að ég verð á talsvert lægra kaupi á RÚV en ég gat fengið hjá 365. Það eru ekki pening- arnir sem draga mig þangað. Þar er ég hins vegar fastráðinn, ólíkt tveggja ára samningnum sem mér bauðst hjá 365. Ég er ekki unglingur lengur og þarf aðeins að hugsa um starfskjörin. Það hefur hvað eftir annað verið sagt að ég hafi tjáð Ara Edwald að eitt- hvað sem fór á milli okkar stæði eins og „stafur á bók“. Það getur bara ekki verið. Ég er mjög viðkvæmur fyrir kli- sjuskotnu máli og forðast það eins og pestina. Ég mundi aldrei nota þetta orðalag. Sögusögnum um mig hefur verið dreift í gegnum Fréttablaðið, í slúð- urdálkum þar. Svo þarf maður að standa í að neita þeim og þá er sagt að maður hafi brotið einhvern trúnað! Enn einu sinni finnst manni sorglegt hvernig Fréttablaðið gengur þægt og hlýðið erinda eigenda sinna, ólíkt til dæmis Stöð 2. Það er ákveðin hefð á fréttastöð Stöðvar 2 sem er sönn og heil og miklu eldri en 365 eða Baugur.“ Hef viðkvæma lund Af hverju vildirðu skipta um vinnustað? „Ég vil fyrst og fremst sækja lengra og gera betur. Þarf maður ekki alltaf að ögra sjálfum sér? Þetta er ögrun og örvun. Ég er svolítið eins og maður í tölvuleik sem er að fara upp á næsta borð. Á RÚV er betra vinnu- umhverfi, betri aðstaða, betri tæki og betra tæknifólk en í stúdíóinu litla i Skaftahlíð. Ég fæ að gera fleiri hluti, „Ég er afskaplega lítið hrifinn affjölmenningarhyggj- unni og erfarinn að skynja í mér nokkuð sem ég hafði aldrei skynjað áður, sem er þjóðerniskennd. Ég veit ekki hvaðan hún kemur. Ég erfarinn að trúa á fjölskylduna og þjóðernið."

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.