blaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 39
blaðið
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 39
“j - ~ "
. 1
■O. ■ • . V
Frábært lið Francesco Totti er aðdáandi
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
Allir vegir liggja til Rómar segir
máltækið en næstu skref Jóns
Arnórs Stefánssonar, fremsta
körfuboltamanns landsins, liggja
þó frá borginni. Tímabili hans
með Lottomatica Roma lauk í
vikulokin þegar liðið bar skarðan
hlut frá borði í rimmu félagsins
við besta lið ftalíu, Montepaschi
Siena, í þarlendri úrslitakeppni.
Sigurvegarinn fer í úrslitaleikinn
sjálfan en Jón Arnór og félagar
eru komnir í sumarfrí.
Farsæl flökkukind
Orðið flökkukind á vel við Jón
Arnór sem hefur farið um víðan
völl í körfuboltaheiminum undan-
farin ár. Gerði hann garð frægan
hér heima lengi vel en atvinnu-
mennskan heillaði og síðan hefur
Jón meira eða minna átt heimili úti
í heimi. Frægastur er hann fyrir að
hafa spilað með Dallas Mavericks
og helstu stjörnum NBA-körfubolt-
ans þar en Jón hefur einnig spilað
fyrir félögin Trier í Þýskalandi,
Dynamo St. Petersburg i Rússlandi,
Valencia á Spáni og var áður um
tíma á Ítalíu með Eldo Napoli en
það félag varð einmitt fórnarlamb
Lottomatica Roma í fyrstu umferð
úrslitakeppninnar nú.
Svekktur en sáttur
Jón Arnór segist afar sáttur við
veru sína í Rómaborg. Borgin sé
afar lifandi, veðurfar frábært og
andinn og stemningin i liðinu
með eindæmum. „Þjálfarinn er
frábær og mér líst mjög vel á hann
og hans hugmyndir. Ég á ár eftir
af samningi mínum og tel víst að
liðið muni aftur gera góða atlögu
að titlinum næsta ár. Við vorum
fannst mér afar óheppnir gegn
Siena. Vorum jafnir og stundum
sterkari en þeir en þeirra boltar
féllu á réttum augnablikum meðan
það tókst ekki hjá okkur. Þrífram-
lengt í þriðja leiknum og við klár-
uðum okkur þar og áttum lítið i þá
í fjórða leiknum. Heilt yfir er ég
þó á þeirri skoðun að við vorum
beinlinis óheppnir að komast ekki
í úrslitin."
Siena vann rimmu liðanna 3-1
sem dugði til að komast í úrslit gegn
annaðhvort Armani Jeans Milano
eða Vidi Vici Bo.
Heim vill hugur
Stefnan er tekin á ströndina og
kaffihús næstu dagana segir Jón
og ætlar að slaka vel á áður en
hann kemur heim til íslands þar
sem hann ætlar að dvelja í sumar.
„Það verður fínt að komast heim.
Þar liggur ekkert annað fyrir en
hvíld og njóta sumarsins og hitta
vini og ættingja. Eitthvað mun ég
líka spila með landsliðinu. Það er
ávallt einhver söknuður heim en
ég er orðinn vanur því að búa hér
og þar og hef valið það sjálfur. Sé
ekkert eftir því enda gengur mér
vel, félagið hér er gott og vinsælt
og það er engu minni stemning
í höll Roma en var á bestu NBA-
leikjunum með Dallas. Höllin er
nánast alltaf full og þar komast
12 þúsund áhorfendur fyrir. Franc-
esco Totti er tíður gestur og hann
væri vart að sýna sig mikið ef ekki
væri gaman að þessu.“
Skeytin inn
Nýtt upphaf
hjá Bayern
Munchen. For-
ráðamenn liðsins eru
óragir að koma
þeim skilaboð-
um áleiðis að
Bayern sé langt
frá því að falla í gleymskuheim
meðalmennsku þrátt fyrir að
ýmsir telji liðið hafa staðið sig illa
í vetur. I vikunni kynnti félagið til
sögunnar Luca Toni og Franck
Ribery en stærri kaup hefur
félagið ekki gert í einu í mörg ár.
Prósentuyfirlýsing-
ar Gianluca Buff-
on hafa nú loks
náð 100 prósenta mark-
inu en markvörðurinn
skrifaði loks undir nýj-
an samning við Juventus.
Hefur hann í allan vetur
talað um mismunandi líkur
á að hann skrifi undir og
líkurnar að hans mati fyrir rúmum
mánuði voru aðeins 45 prósent.
Segið svo að það borgi sig ekki að
læra stærðfræði f grunnskóla.
Thierry Henry hefur
umtímáverið
orðaður
við önnur
félög en ny
sitt ástkæra <
Arsenal.Nú geng-
ur hann skrefinu
lengraoglýstiyfir
mikilli ánægju með
áhuga annarra stórliða á að gera við
sig vænan samning. Sérstaklega er
hann sáttur við áhuga Ancelotti
hjá AC Milan en auðvelt er að sjá
fyrir sér önnur lið slgálfandi á
beinunum að mæta snarpasta og
hættulegasta framherja heims við
hlið Kaka sem næsta víst er að
verður valinn knattspyrnumaður
ársins f Evrópu og ekki að ósekju.
Eggert Magnússon
blæs enn á sögu
sagnir um að
Carlos Tevez fari
frá félaginu. ítrekar
hann að Argent-
ínumaðurinn sé
meðþriggjaára
samningvið
félagið. Víst er að
haldiWestHam
kappanum er
stigið stórt skref í
að koma liðinu aftur
í hóp þeirra bestu.
BMW 330i
Árg 01,99þ km, bnsk, 233 hö, svartur, 4 dyra, 17" álfelgur.
Leöursæti, sóllúga, hlaðinn aukabúnaöi. Gullfallegur bíll!
Verö 2590þ. Möguleiki á 90% láni í 60 mánuði.
S. 862-0000