blaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 40

blaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 40
LAUGARDAGUR 9. JUNI 2007 Færeyjar Litlu eyjakrúttin milli Islands og Skotlands, Færeyjar, draga nafn sitt af sauöfé. Höfuöborgin heitir Þórshöfn og er jafnframt sú fjölmennasta, en á eyjunum, sem eru 18 talsins, búa í kringum 50.000 manns. Færeyskunni svipar talsvert til islensku og dönsku. Færeyingar eru enn aö einhverju leyti undir járnhæl Dana en í dag er þar umtalsverð sjálfstjórn. blaöiö Tónleikar og Eiffel- turninn um helgina ,Ég er bara á leiðinni til Parísar í fyrramálið," segir Birgitta Birgisdóttir leikkona að- spurð um það hvernig hún hefur í hyggju að eyða helginni. „Það má eiginlega segja að ég sé að fara að slappa af. Ég er að fara með kærastanum mínum og fleirum en hljómsveitin hans er að fara að spila í París og ég fer með þeim, enda er ég dyggur aðdáandi. Við ætlum að vera í nokkra daga en við komum svo heim á þriðjudaginn. Annars erum við ekkert búin að skipuleggja neitt svakalega. Við ætlum að slappa af og ganga um götur Parísar enda stendur það alltaf fyrir sínu. París er dásamleg borg. Ég hef nú komið þangað nokkrum sinnum áður, en ég held að þetta sé í svona fimmta eða sjötta skiptið sem ég heimsæki borgina. Þannig að það má segja að ég sé orðin nokkuð vön þarna. En reyndar er kærastinn minn að fara til Parísar í fyrsta skipti og hann hefur aldrei farið i Eiffel-turninn og ég ætla að fara með honum þó ég hafi komið þangað áður. Það er eiginlega svona það eina sem við höfum skipulagt, fyrir utan tónleikana að sjálfsögöu. En ég hlakka allavega alveg rosalega til að komast aðeins í burtu.“ BIRKENSTOCK Flottir með innleggi í stœrðum 36-41 á kr. Sömuleiðis með þessu klas- síska innleggi í 36-41 á kr. 7.480,- Miög smart með innleggi í 36-41 ákr. 6.585,- Misty, Laugavegi 178, Sími 551 2070 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf VILTU SEUA...? SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET blaðiös Jógvan Hansen sendir frá sér plötu ■ Hvað elskar þú? Ég elska mat, að syngja og klippa hár. Amánudag kemur út grip- ur sem unninn er af söngglöðum hæfileika- manni. Gripur þessi gæti fangað athygli ungra snóta og tónlist- arunnenda víðs vegar um landið, jafnvel heim allan. Hann verður fáanlegur í öllum betri verslun- um bæjarins en um er að ræða geisla- diskinn Jógvan. Er það fyrsta plata hins færeyska sigurvegara X-Factor og hárklippara, Jógvan Hansen. Þó að kappinn tali nánast óaðfinnanlega íslensku eru öll ellefu lög plötunnar sungin á ensku. Bæði eru á henni al- þekktar ballöður á borð við Time aft- er Time, She Will Be Loved og Hello en einnig smellir sem Færeyingurinn hefur sjálfur samið og vonast að sjálf- sögðu til þess að sjá klífa upp íslenska vinsældarlista á komandi vikum. Ég er ekki þessi bankatýpa „Þetta er frekar róleg plata myndi ég segja, bæði rómantísk og skemmtileg. Á henni er elckert brjálæðislegt rokk heldur rennur hún ljúflega í gegn þannig að fólk þreytist ekki við hlust- unina.“ Jógvan segir plötuna unna í sam- starfi við hreina snillinga og að hún endurspegli á vissan hátt persónu- leika sinn, þó hann sé á köflum dálít- ill vitleysingur. Jógvan segist ennfrem- ur frekar rólyndur yfirhöfuð, þó hann sé engan veginn týpan sem myndi vinna í banka. „Ævintýri mitt á íslenska tónlist- arsviðinu hófst með X-Factor, þó ég eigi að baki feril sem tónlistarmaður í Færeyjum. Ég lærði ótrúlega mikið á þátttökunni í X-Factor og fékk tæki- færi út frá þættinum sem koma engan veginn á hverjum degi. Álagið var á köflum mjög mikið og það var oft erf- itt að vera ekki einungis dæmdur af dómurunum þremur, heldur allri ís- lensku þjóðinni. Þá er nauðsynlegt að vera dálítið kærulaus á milli og taka hlutina ekki of alvarlega.“ Jógvan segist ekki verða fyrir miklu aðkasti á strætum höfuðborgarinnar í kjölfar sigursins, en hann viti vel að ekki líki öllum það sem hann er að gera. „Svo lengi sem maður er ákveð- inn í því sem maður er að gera og veit hvað maður vill, þá er allt í góðu.“ Hæstu nótunum ekki náð samkvæmt Ellý Líf hins unga pilts hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum mánuðum. „Dagurinn hjá mér er eig- inlega allt of stuttur. Núna er ég ein- hvern veginn kominn miklu meira inn í tónlistarbransann auk þess sem ég á og rek mína eigin hárgreiðslu- stofu. Því fæst ég stanslaust við hluti sem ég elska að fást við. Þannig verð ég einungis þreyttur í lok dags, en aldrei reiður.“ Aðspurður hver erfiðasti dómari X-Factor sé segir Jógvan að erfitt sé að gera það upp við sig. „Það var að- eins einu sinni sem ég varð pirraður á Ellý, en það var þegar hún sakaði mig um að ná ekki hæstu nótunum í lagi sem ég flutti. Það var alls ekki rétt hjá henni, þvi ég var alveg á háa C-inu. Annars voru dómararnir allir mjög skemmtilegir og hvetjandi og við keppendurnir auðvitað viðbúin hverju sem var frá þeim.“ Hvað þolir þú ekki? Of mikla seinkun og óskipulag. Það að bíta mig í tunguna og vont kaffi sem ég hef reyndar ekki fengið á Islandi, aðeins í Bandaríkjunum. Ef þú ættir hest, hvað myndir þú skíra hann? Ég myndi skira hann Orra. Hvað skilur þú aldrei við þig? Símann minn. Og skærin mín. Síðan ferðast ég alltaf með vasahníf. Það er mjög hentugt. En eins og gamalt færeyskt máltak segir: hníflaus maður er líflaus maður. Uppáhaldsbók? Ég held ég verði að segja Harry Potter- bækurnar. Ég fæ þær alltaf í færeyskri þýðingu í jólagjöf. Uppáhaldskvikmynd? Seven. Hvaða vefsiðu ferðu oftast inn á? Það eru nokkrar færeyskar fréttasíður og auðvitað e-mailið mitt. Uppáhaldstónlist? Sting, George Michael, Frank Sinatra og flest músík úr Walt Disney-teiknimynd- unum. John Mayer er líka góður. Smáútgáfa færeysk- íslensku orðabókarinnar Hárfríðkari - hárgreiðslumaður Bólkur - hljómsveit Kvinna - kona Viðgerð - aðgerð Sálarhirðir - sálfræðingur Sjálfvbrúnaraviðgerð - tilbúin brúnka Les íslenskar barnabækur Jógvan er mikill lífsspekingur og hefur viss mottó sér til halds og trausts í lífinu. „Ég hef eitt gott en það hljómar svo: Það sem drepur mann ekki styrkir mann og annað hérna: Ef til vill hafði sá neikvæði rétt fyrir sér en sá jákvæði skemmti sér mun betur á lífsleiðinni. Mér finnst nefnilega svo mikilvægt að lífið sé skemmtilegt, þó maður hafi ekkert endilega alltaf rétt fyrir sér.“ Jógvan hefur dvalist hérlendis í á hálft fjórða ár og hefur náð lygi- legum tökum á tungumálinu, ef til vill vegna þess að móðurmál hans, færeyskan, er ekki ósvipuð íslensk- unni. „Já, ég tala málið ágætlega en mér reynist hins vegar erfiðara að lesa það. Eins og staðan er núna les ég mest barnabækur.“ Ræðir ekki ástina opinberlega „Varðandi framtíð mína þá vona ég að fólk taki vel á móti plötunni þannig að ég geti haldið áfram í þessum geira. Mig langar mjög að ná langt innan tónlistarbransans og öðlast meiri virðingu og skemmti- leg tækifæri í kjölfarið.“ Þegar talið berst að ástarmálum piltsins virðist skyndilega slokkna á raddböndum hins færeyska söngmanns en hann neitar alfarið að tjá sig um ástina opinberlega. Einnig neitar hann að tjá sig um það hvort athygli kvenpen- ingsins hafi stóraukist við frægðar- sólina sem skín á hann um þessar mundir. Annars líkar Jógvan ágæt- lega við íslendinga. „íslendingar eru svo ótrúlega jákvæðir og opnir fyrir nýjum hugmyndum, hérna eru ein- hvern veginn allar hugmyndir góðar og framkvæmanlegar. Þannig að ef fólki leiðist þá er það algjörlega þvi sjálfu að kenna.“ bjorg@bladid.net Við öllu búin á útihátíð Það eru eflaust þó nokkrir sem ætla að skella sér á útihátíð í sumar hvort sem það er hér heima eða erlendis. Til þess að komast hjá óþarfa óþæg- indum er um að gera að vera við öllu búinn og hafa allt það nauðsyn- legasta meðferðis. Stígvél Það er miklu flottara að vera vel stígvélaður en blautur og kaldur í fæturna. Stígvélatískan hefur líka tröllriðið öllu undanfarin ár þó ekki sé um vaðstígvél að ræða, en nú má kannski segja að þeirra tími sé kominn. Stuttermabolir Helst stórir og víðir, en þó ekki sniðlausir og alls ekki þeir sem ýmis stórfyrirtæki gefa. Það er ekki flott að vera í magabol og mittisbuxum út í guðsgrænni náttúrunni og á frekar að leggja meira upp þægindum en lúkki. Kjólar Þá er alls ekki átt við við- kvæma partíkjóla heldur mjúka og þægilega úr efni sem þolir hnjask. 70 s kjólar koma vel til greina svo lengi sem ekki er farið algjörlega yfir strikið í hippatískunni. Leggings Þær eru ekki bara ótrúlega smart heldur líka svo hrikalega þægi- legar. Ef um er að ræða útihátíð eða útilegu hérlendis er um að gera að hafa þær þykkar og hlýjar. Leggings fara líka svo hrikalega vel við síðar, þykkar peysur og stígvél. Taska Stór og góð taska þar sem öllu má koma fyrir er nauð- synleg. Sérstak- lega ef farið er á stóra útihátíð þar sem það getur tekið sinn tíma að finna tjaldið sitt. Pínulitlir leðurbak- pokar eru ekki málið. En það á við hvort sem maður er á útihátíð eða ekki. Sokkar Þykkir sokkar og legghlífar verða að vera með. Kaldir fætur gera engum gott og þess vegna þarf að muna að taka nokkur pör með sér. Trefill Stórir treflar eru til margs nýtilegir en þá er hægt að vefja um sig og svo má alltaf nota þá sem yfirbreiðu eða teppi þegar setið er í röku grasinu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.