blaðið - 06.07.2007, Page 24
24
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007
blaöiö
Sportvöruqerðin tif.,
Skipllolt 5. 562 H3II3.
Merkið sem
þú treystir
—Abu
Garcia
DREIFING/ÞJÓNUSTA:VEIÐITÆKNI S:5771400 FOR LIFE.
Arnarvatnsheiði
Sériræðinpar
í fluguveiði
Nælum stangir,
splæsum línur
og setjum upp,
Veiðin er að glæðast í Þverá í Borgarfirði
Flyðra veiddist
í Straumunum
Veiðin er að glæðast í Þverá í
Borgarfirði og veiðimenn sem voru
að hætta í ánni veiddu yfir 20 laxa
og sáu töluvert af laxi neðarlega í
ánni.
„Það hafa verið að togast upp laxar
í Straumunum í Borgarfirði. Sið-
ustu veiðimenn hafa veitt ágætlega,"
sagði Þorkell Fjeldsted í Ferjukoti.
Veiðimenn sem voru að veiða
þarna í fyrradag í Straumunum
veiddu flyðru, vel væna, en fyrir
einhverjum dögum veiddistsama
og veiðimenn sem hafa verið þar síð-
ustu daga hafa fengið vel í soðið.
Fyrsti laxinn er kominn á land
úr Andakílsá í Borgarfirði og veiði-
menn sáu nokkra laxa í viðbót.
Eitthvað hefur togast upp úr
Flókadalsá í Borgarfirði. Hjálmar
Árnason, fyrrverandi alþingismað-
ur, var þar fyrir fáum dögum og
veiddi að minnsta kosti tvo laxa.
Rétt á eftir honum kom síðan Einar
Þorvarðarson, framkvæmdastjóri
HSÍ. Við höfum ekki frétt hvað
Tveir laxar
í Ölfusá
Gunnar Sigurgeirsson, ljós-
myndari á Selfossi og veiði-
niaður, veiddi tvo laxa á gömlu
ruslahaugunum á svæði þrjú í
Ölfusá. Gunnar tók báða laxa
á flugu, bláa Snældu. Margir
halda því fram fyrir austan að
veiði hefjist ekki á þessu svæði
fyrr en með haustinu. Gunnar
hefur greinilega afsannað það
með þessari góðu veiði.
Veiðin hefur verið sæmileg í
Ölfusá en er enn róleg í Stóru-
Laxá í Hreppum.
Á bleikju-
slóðum
Hópur veiðimanna var við
veiðar í Breiðdalsá fyrir fáum
dögum og veiddi eitthvað af
vænni bleikju. Einn af þeim
sem veiddu þar var Eggert
Skúlason og undi hann hag
sínum vel á bleikjuslóðum í
Breiðdalnum.
' V-
LÍFSSTÍLLVEIÐI
veidi@bladid.net
Að venju voru menn hæfilega „væld" en
snyrtimennskan er þó í fyrirrúmi hjá
þessu veiðifélagi sem kallast „Veiðifélagið
udd á heiðar"
Veiðifélagið upp á heiðar var í góðu yfirlæti
Veiðin dræm á
Eftir Gunnar Bender
g.bender@bladid.net
„Við lögðum í hann á fimmtudags-
kvöldið, 28. júní, og að vanda var
stefnan sett á Úlfsvatn á Arnarvatns-
heiði þar sem áætlað var að draga
björg í bú,“ sagði Ólafur Ólafsson
veiðimaður en hann var að koma af
heiðinni fyrir fáum dögum.
„Þegar komið var á staðinn var hita-
stig við ffostmark en líkt og nokkur
undanfarin ár var gist í nýja skál-
anum við Úlfsvatn. Þar vorum við í
góðu yfirlæti og frábæru veðri ffam
á sunnudag, 1. júlí. Við reyndum
drjúgt við lónbúann bæði föstudag
og laugardag og svo voru kvöldvökur
niðri við vatn fram á nótt þar sem
magnaðar veiðsögur fóru að renna
viðstöðulítið upp úr görpunum, helst
var stoppað við þá iðju til að draga
andann og væta kverkarnar."
En hvernig var veiðin, Ólafur?
„Veiðin var fremur dræm í Úlfs-
vatninu í þessari ferð þótt oft hafi
hún verið góð þar en á móti kom
að fiskurinn var vænn og feitur. Á
laugardeginum fengum við okkur
góðan göngutúr yfir í Refsveinu og
upp í Arnarvatn litla. Bæði við Arn-
arvatn litla og í efsta hluta árinnar
þar niður af lentum við í góðri veiði
bæði á beitu og flugu. Jafn og góður
afli, frá 2 upp í 6 pund, aðallega
urriði en eitthvað af bleikju. Mest
var veitt þar á flugu sem hnýtt var á
staðnum eftir æti úr veiddum fiski,
lítil kúluhauspúpa, rauðleitt vaf og
rautt skott. Svo skæð var flugan að
við þurftum nánast að fara á bak við
stein til að hnýta hana á og svo var
nauðsynlegt að sækja um löndunar-
pláss því það voru oft margir fiskar
á í einu þegar best lét. Sá sem hnýtti
heitir Henrik Þórðarson.
Að venju voru menn hæfilega
„væld“ en snyrtimennskan er þó í
fyrirrúmi hjá þessu veiðifélagi sem
kallast „Veiðifélagið upp á heiðar“ og
veiðitúrinn endar að venju á að fara
í sund í Húsafelli og skola þar af sér
ferðarykið.“
Og hverjir eru í þessum frcega
félagsskap?
„Meðlimir veiðifélagsins eru Berg-
þór Bjarnason, Brynjar Sveinbjörns-
son, Freyr Franksson, Henrik Öskar
Þórðarson, Kristján D. Sigurbergs-
son, Ólafur Ólafsson, Sæmundur
Gunnarsson, Ásgeir K. Ólafsson og
Heiðar Sigurðsson,“ sagði Ólafur að
lokum.
■VæffiORTJÐj
ted
JSmZjvatnasvæoi
fyrir aðeins 5000 krónur!
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
FlSHER’S Mohon, Gore-Tex
6 laga Gore-Tex vöðlur
og vöðlujakkar.
10 ára reynsla á íslandi.
Hafa reynst frábærlega
að sögn kröfuharðra
neytanda. Jt
Toppgæði
og gott verð! JM
■/} f 'f Jj ,f ft