blaðið - 26.07.2007, Side 1
ÓLK»30
Skatar
100 ar
Bragi Björnsson aðstoðarskáta
höfðingi er á leið til Bretlands
til að taka þátt í alheimsmóti
skátaálOOáraafmæli
" hreyfingarinnar
f' I ásamt430öðrum
V íslendingum.
Systir Magna syngur
Aldís Fjóla Ásgeirsdóttir er
meðal þeirra sem syngja
á tónlistarhátíðinni
Bræðslunni um helgina
en hún er systir söngvar-
ans Magna sem einnig
treður upp.
RÐLAUS»27
138. tölublað 3. árgangur
Fimmtudagur
26. júlí 2007
FRJALST, OHAÐ &
Öðruvísi tómatar
Guðjón Birgisson, garðyrkju
bóndi á Melum á Flúðum,
er sá eini hér á landi sem
ræktar svokallaða lýkópen
tómata sem taldir eru
vinna gegn ýmsum
sjúkdómum.
MATUR»19
Segir Lyf og heilsu
sauma að einyrkjum
■ Lyfsali á Akranesi kvartar til Samkeppniseftirlits yfir óeðlilegum viðskiptaháttum
Eftir Elías Jón Guðjónsson ellas@bladid.net
Ólafur Adolfsson, lyfsali í Apóteki Vesturlands á
Akranesi, hefur kvar tað til Samkeppniseftirlitsins
vegna viðskiptahátta Lyfja og heilsu. Ólafur bar
fyrr í vikunni saman verð á þremur vörum í versl-
unum Lyfja og heilsu á Akranesi og á Melhaga í
Reykjavík. f ljós kom að verðið er mun lægra á
Akranesi en í Reykjavík.
Guðni Guðnason, framkvæmdastjóri Lyfja
og heilsu, sagði í samtali við Blaðið í gær að
sama verð væri í verslunum fyrirtækisins um
allt land.
Á Akranesi er lyfjaverslun Ólafs eini keppinaut-
urinn en í Reykjavík standa Lyf og heilsa í sam-
VERÐ í LYFJUM OG HEILSU
Melhagi Akranes Afsláttur
Paratabs 500 mg 334 219 34,40%
Ibúfen 400 mg 699 550 21,30%
Loritín 10 mg 614 379 38,20%
keppni við mörg önnur apótek, meðal annars
Lyfju, hinn risann á markaðnum. Ólafur spyr:
„Af hverju er þessi samkeppni eingöngu þar sem
um er að ræða einyrkja?"
Ólafur segir að hann hafi heyrt af því að Lyf
og heilsa hafi lækkað verðið á Ákranesi eftir að
hann opnaði sina verslun fyrir skömmu. „Ég
gerði einfaldlega mann út af örkinni til þess að
versla hjá þeim, bara til þess að gera könnun í
lausasölunni á þessum þremur vörum. Á sama
tíma sendi ég annan mann til að versla hjá þeim
í Reykjavík,“ segir Ólafur. Hann segir mennina
ekki hafa framvísað neinum afsláttarkortum.
„Ég geri ráð fyrir því að þeir geri þetta af sam-
keppnisástæðum, þeir séu einfaldlega að bregð-
ast þvi að búið sé að opna annað apótek hér,“ segir
Ólafur. „Maður myndi ætla að hatrammasta sam-
keppnin væri ekki við einyrkjana heldur hinn
stóra aðilann á markaðnum," segir Ólafur en
hann sendi inn formlega kvörtun til samkeppnis-
yfirvalda í gær vegna málsins.
SEGIR SAMA VERл2
Innfluttar vörur
lækka í verði
Gengi Bandaríkjadals er óvenjulágt
um þessar mundir. Kaupgengi dals-
ins í gær var komið niður í tæpar
6o krónur. Innflutningur á vörum
frá Ameríku er því hagstæður um
þessar mundir og er vöru- a
verð þegar farið að lækka. O
Það borgar sig að
búa miðsvæðis
Kostnaður við að koma sér til og
frá vinnu hefur aukist svo undan-
farin ár að það borgar sig fyrir þá
sem vinna miðsvæðis að kaupa
fasteign 1 miðbæ Reykjavíkur, þrátt
fyrir hærra verð en í út- <m
hverfum borgarinnar. I Æm
Gróðureldar geisa á Ítalíu
„Nánast ólíft úti á heitasta tímanum"
Á ströndinni í Peschici á ftalíu, austan við Róm, urðu miklir gróðureldar fjórum ferðamönnum að fjörtjóni í gær.
Fjöldi bíla, sem lagt var á ströndinni, brann til kaldra kola. „Eg hálfvorkenni ferðamönnum sem koma hingað því
það er nánast ólíft úti á heitasta tímanum," sagði Elva Rut Erlingsdóttir, sem búsett er í Róm, í samtali við Blaðið.
Miklir eldar geisa víða í suðurhluta Evrópu og tengjast gífurlegri hitabylgju. HITABYLGJA 4/7
Hreimurinn
pirrar Dani
Margir Danir láta fara í taug-
arnar á sér þegar danskan er
töluð með útlenskum hreim.
Þó er ljóslega skárra að tala
með íslenskum hreim en t.d.
arabískum. Vísindamenn
létu nýlega 232 Dani hlusta og
greina svo frá því hvernig þeir
skynjuðu raddir sextán útlend-
inga sem lásu sama textann,
segir Politiken frá.
Danirnir álitu N-Evrópubúana
sjálfstæða, metnaðarfulla,
áhugaverða, trausta og gáfaða.
Fólkið sem las textann með
miðausturlenskum hreim var
hins vegar álitið óöruggt, latt,
pirrandi og leiðinlegt. aí
Verö á Ora-sardinum 106 g. ‘ s
Verslun Krónur
Nettó 99
Melabúðin 149
Spar Bæjarlind 149
Nóatún
Samkaup-Strax
11-11
179
186
196
Upplýsingar frá Neytendasamtökunum zm
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
■ USD 60,16 1,10 ▲
rMm GBP 123,25 0,47 ▲
11 II DKK 11,07 0,16 ▲
• JPY 0,50 1,42 ▲
EH EUR 82,44 0,17 ▲
GENGISVÍSITALA 111,66 0,45 A
ÚRVALSVÍSITALA 8.870 -0,38 ▼
COUPE
Nýskr: 2007,
3246cc, 6 cyl,
342 hestöfl,
ekinn 8000 þús.
Verð: 8.300.000
ÍUPsöTfl]
bilolond.is
575 1230
BMW M5
Nýskr: 12/2005, f,
5000cc, 10 cyl,
507 hestöfl,
ekinn 14.000 þús.
Verð: 10.900.000