blaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 26. JÚLl' 2007 blaðið blaði Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Óflokkaður sóðaskapur Tvær fréttir í Blaðinu í gær, báðar tengdar sorphirðu og endurvinnslu, verða að teljast með nokkrum ólikindum. Annars vegar var sagt frá því að sumir borgarbúar, sem koma að lokuðu hliði í endurvinnslustöð Sorpu bs. við Jafnasel, sturta sorpinu sínu einfald- lega á útivistarsvæði á Vatnsendahæð. „Við höfum séð fólk á lokunartíma Sorpu koma með fullar kerrur af rusli og sturta svo bara úr þeim rétt fyrir ofan garða okkar ef Sorpa er lokuð. Þegar hvasst er fýkur þetta svo i garðana hjá okkur,“ sagði Kristjana Jónat- ansdóttir, íbúi í Jóruseli, í samtali við Blaðið. Samkvæmt hinni fréttinni sýna kannanir á vegum Sorpu bs. að þeim fer fækkandi, sem hafa trú á að úrgangur, sem Sorpa tekur við, fari í raun til endurvinnslu. Þá noti ungt fólk á aldrinum 25-34 ára endurvinnslustöðvar fyrirtækisins minnst. Ragna Halldórsdóttir, deildarstjóri hjá Sorpu, segir að hugsanleg skýring á þessu sé að móttökustöð fyrirtækisins í Gufunesi berist stórir farmar af óáokkuðu rusli sem verði að urða og slíkt kunni að ýta undir þau viðhorf að rusl fari ekki til endurvinnslu. Ef þessi tilgáta er rétt, er orðinn til sérkennilegur vítahringur. Slóðarnir, sem ekki flokka úrgang sem þeir senda i Sorpu, koma því inn hjá öðrum að tilgangslaust sé að flokka sorpið sitt; það sé urðað í stað þess að fara til endurvinnslu. Sorpa hefur lagt mikið upp úr því seinni árin að greina viðskiptavinum sínum nákvæmlega frá ferli endurvinnslu hjá fyrirtækinu; hvert t.d. dag- blaðapappír er sendur í endurvinnslu, hvernig hann er endurunninn og til hvers hann er síðan notaður. I því efni fer ekkert á milli mála. Einkarekin fyrirtæki á borð við Gámaþjónustuna og Islenzka gámafélagið eru líka fram- arlega í endurvinnslu og bjóða upp á ýmsar lausnir fyrir þá, sem vilja nýta sorpið upp á nýtt í stað þess að grafa það í jörð. Það er hins vegar til lítils unnið ef fólk vill ekki flokka sorpið sitt sjálft. Þó ætti það að vera öllum sæmilega upplýstum borgurum ljóst að þeir bera sjálfir ábyrgð á umgengni sinni við umhverfið. Opinberir aðilar geta gert ýmislegt til að auðvelda fólki þá vinnu. Með því að bjóða upp á að sorpið sé flokkað heima í mismunandi sorpílát, sem sveit- arfélagið sér síðan um að hirða, er stuðlað að því að fólk flokki ruslið sitt. Og auðvitað á gjaldskráin fyrir sorphirðu að hvetja til slíks; það á að vera ódýrara að láta frá sér flokkað rusl en óflokkað. Með því að henda ruslinu sínu á víðavangi þegar Sorpa er lokuð, sýna menn dæmalausan sóðaskap og leggja bæði kostnað og óþægindi á samborg- arana. En það er líka sóðaskapur og kostnaðarauki að flokka ekki sorpið sitt, þannig að hægt sé að endurvinna sem mest af því. r b b r Ólafur Þ. Stephensen 6ott til endurvinmlu Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aöalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Er fyrlrtækið þitt uaktað? Ávextir í áskrift er einhver besta fjárfesting sem þú gerir í starfsmannamálum. www.avaxtabiliinn.is C-' — óKtr-SrM SftGr lit Ar >f8S(JM JVU&K’LNlNftl. —fcQ VÁ7? j\ Lrif) Á ÆFINGU-v'/AltIST ... PANrKERfl Sv» HViní FJAUAMtwii 0íAlLT..MMV fiET Eo Sa&r-MflouB ...VU S V° MiMMa ^ /to í H j/Erjfi W .000 vfytfwj ÖR WVÆRiNCU Heilbrigðistengd ferðaþjónusta Um árabil hefur vikudvöl á Isa- firði í júlímánuði verið á dagskrá fjölskyldunnar. Dæturnar eru alsælar með þessa tilhögun. Þær elska svefnloftið hjá Möggu frænku og Pétri á Kirkjubæ sem hefur að sögn húseigenda verið gert upp sérstaklega fyrir þær stuttu. Þær skottast upp í hlíðar og niður í fjöru með hundana Tuma og Blöndu, gera tilraunir með veiðar og varðelda á ólíklegustu stöðum undir handleiðslu Sverris Karls, stóra frænda, fara í siglingu á Her- móði gamla eða Otrinum, skjótast í flottu sundlaugina í Súganda, æfa fótbolta í garðinum hjá Möggu og Pétri sem hafa óendanlega þolin- mæði til að bera, kíkja reglulega i ískistuna hjá afa Sverri og ömmu Deddu á Grund og koma oftar en ekki sigri hrósandi til baka með súkkulaðipakka sem afi Sverrir segir þeim að sé nauðsynlegur orkugjafi í allt baukið. Svona hefur þetta gengið fyrir sig á hverju sumri frá því að þær litlu fæddust, í sex ár. Með hverju árinu sem líður eykst þeim kraftur og kostunum sem úr er að velja fjölgar. I vikunni gengum við til dæmis upp í Naustahvilft. Það er nokkurt klifur en þegar upp er komið býðst dásamlegt útsýni yfir ísafjarðarbæ og nágrenni. Fullorðna fólkið fór þetta rólega en stelpur og hundar hlupu léttilega og skemmtu sér á leiðinni i feluleik á milli risastórra klettahnullunga sem hafa hrapað úr fjallinu í tímans rás. Tilhlökk- unin var nokkur, enda vita þær systur að áfangastaðurinn, hvilftin sjálf, myndaðist fyrir langalanga- löngu þegar risi nokkur hafði þar viðkomu á langri leið sinni yfir landið, sat þar og baðaði þreytta fætur í höfninni. Skemmtilegur útivistarleikur Það sem gerði útslagið með að það var ráðist i göngu upp í Naustahvilft að þessu sinni var ekki eingöngu sú staðreynd að þær stuttu ráða nú við slíkan leiðangur, heldur höfðum við frétt af stórskemmtilegum leik; Fjölskyldan á fjall, sem nokkrir að- ilar á Isafirði hafa átt frumkvæði að. Á völdum stöðum í bænum getur maður nálgast lítinn bækling með leiðbeiningum og mynd af nokkrum gönguleiðum í nágrenni bæjarins: Upp í Naustahvilft, á Miðfell og Hnífa. Á þessum áfangastöðum er Hanna Katrín Friðriksson hægt að nálgast stimpil til að stimpla í bæklinginn og þegar hann hefur verið útfylltur, stimplað í alla reiti, eiga þeir sem senda hann inn mögu- leika á veglegum vinningi. Isafjörður hefur ekki frekar en aðrir staðir á íslandi farið varhluta af þeirri miklu fjölgun ferðamanna sem orðið hefur á undanförnum árum. ísafjarðarbær hefur til dæmis síðustu daga verið fullur af erlendu ferðafólki sem komið er af besta aldri. Það fólk kemur með skemmtiferðaskipum sem í ríkum mæli leggja leið sína til bæjarins á sumrin, það setur skemmtilegan svip á bæinn, spókar sig um göt- urnar og skoðar nágrenni í rútum eða bátum. Annar flokkur ferða- manna sem er áberandi, ekki bara á Vestfjörðum heldur um allt land, tilheyrir svokölluðum „garpaflokki" þ.e. ferðamönnum á besta aldri sem mæta til leiks vel útbúnir til útivistar og fjallaklifurs við frum- stæðar aðstæður og tilbúnir í hvaða veður sem er. En hvar eru börnin? Það þykir ekk- ert tiltökumál að þvælast með þau um götur og stræti milljónaborga, aka með þau hundruð ef ekki þús- undir kílómetra á milli áfangastaða erlendis og bjóða þeim upp á enda- lausar skoðunarferðir með tilheyr- andi biðröðum í miklum hitum. Er sumarfrí á Islandi virkilega ekki barnavænt? íslenskir frumkvöðlar Samkvæmt Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnuninni, WHO, munu lífsstílstengdir sjúkdómar verða okkur dýrkeyptir á komandi árum og áratugum ef ekki verður spyrnt við fótum. Hreyfingarleysi og offita ungmenna er mikið áhyggjuefni og einnig streita og kvíði sem fylgir þessum mikla hraða sem er í samfé- laginu. Foreldrar þurfa að verja meiri tíma, gæðatíma, með börnum sínum. Islensk náttúra og hin ríka sagnahefð sem við búum yfir, gefur okkur allar forsendur til þess að vera framarlega í flokki í þróun fjölskylduvænnar ferðaþjónustu. Aðilar í ferðaþjón- ustu á íslandi hafa lyft Grettistaki á síðustu árum í þróun á framboði og allri aðstöðu. Það ber sannarlega að fagna þessari áherslu sem hægt er að merkja á þjónustu við barnafjöl- skyldur. Þarna er um að ræða vaxtar- brodd sem getur komið Islendingum á framfæri sem frumkvöðlum í heil- brigðistengdri ferðaþjónustu. Höfundur er aðstoðarmaður heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra KLIPPT 0G SKORI0 Fyrir tveimur árum varð tölu- vert fjaðrafok í fjölmiðlum vegna klæðaburðar alþingis- manna í hinu háa Alþingi. Þegar Hlynur Halls- son kom inn á þing sem vara- þingmaður VG setti hann allt á annan endann þar sem hann var bindislaus. Bindi skipta máli því nú hefur dómstjóri Héraðsdóms Reykja- víkur, Helgi I. Jónsson, komið þeim skilaboðum til lögmanna að þeir mæti með bindi við aðalmeð- ferð mála og dómsuppsögn en eitt- hvað mun hafa borið á bindisleysi lögmanna undanfarið. Kannski góða veðrið hafi haft þessi áhrif á frjálslyndi lögmannanna. Boðað er til ráðstefnu í Þjóð- minjasafninu í dag á vegum Háskóla Islands sem nefnist Skattalækkanir til kjarabóta. Kynnt verður rannsóknarverkefni um skatta og velferð sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson pró- fessor stýrði. Meðal fyrirlesara eru Geir Haarde, Björgvin G. Sigurðsson og aðrir fínir herrar en engin kona er á mælendaskrá. Mikið er gert úr lækkun skatta á ís- landi undanfarin ár í þessari rann- sókn en vefsíðan andriki.is bendir hins vegar á að tekjuskattur einstaklinga á íslandi sé enn mjög hár í sögu- legum saman- burði og stefnir allt í að ísland líti út eins og kommúnista- ríki í samanburði við Albaníu. Al- banir stefna í 10% flatan tekjuskatt. Hvað segir Hannes við því? elin@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.