blaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 16
FIMMTUDAGUR 26. JULI 2007
blaöiö
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@bladid.net
Það eina sem bjargar okkur frá
embættismannakerfinu er hversu
óvirkt það er. Virkt embættismanna-
kerfi er mesta ógnunin við frelsið.
Eugene McCarthy
Hekla á
mörkunum
Hekla Dögg Jónsdóttir opnar
einkasýningu sína „Liminality;
alveg á mörkunum" í Nýlista-
safninu, laugardaginn 28. júlí
kl. 17.
„Liminality“ útleggst sem
millibilssvæði, ástand eða griða-
staður sem áhorfandanum gefst
færi á að dvelja í. Hekla Dögg
mun gefa gestum tækifæri á að
sjá og upplifa ný verk í bland
við eldri. Með sýningunni gefst
almenningi því kostur á kynna
sér skemmtilegan feril Heklu
Daggar þar sem fyrirbæri eins
og gosbrunnar, bálkestir, svanir,
loftsteinar og perlur, tálsýnir
og töfrar, leika lausum hala í
höndum listakonunnar.
Hekla Dögg Jónsdóttir útskrif-
aðist frá Myndlista- og handíða-
skólanum árið 1994. Hún hlaut
meistaragráðu í myndlist frá
California Institute of the Arts
í Los Angeles árið 1999. Síðan
hefur Hekla Dögg sýnt verk sín
við góðan orðstír hér heima og
erlendis. Hekla er einn af stofn-
endum Gallerí Kling & Bang sem
opnaði í Reykjavík árið 2003.
AFMÆLI í DAG
Salvador Allende forseti, 1908
Stanley Kubrick leikstjóri, 1928
Mick Jagger rokkstjarna, 1944
METSÖLULISTI
Innlendar bækur
1.
2.
Leyndarmáli
Rhonda Byrne
Viltu vinna milljarð? - kilja
Vikas Swarup
3. Lost in lceland
Sigurgeir Sigurjónsson
4. Flugdrekahlauparinn - kilja
Khaled Hosseini
5. Tvíburarnir - kilja
Tessa de Loo
6. Kortabók 1:300.000
örn Sigurðsson
7. Konungsbók - kilja
Arnaldur Indriðason
8. Leynda kvöldmáltfðin - kilja
Javier Sierra
9. íslenska vegahandbókin
Ýmsir
10. Wonders of lceland
Helgi Guðmundsson
Listinn er gerður út frá sölu í Pennanum
Eymundsson og Bókabúð Máls og
menningar dagana 17.07 - 23.07.
METSÖLULISTI
Erlendar bækur
1. Harry Potter & the Deathly Hallows
J.K. Rowling
2. The Secret
Rhonda Byrne
3. HarryPotter&theHalf-BloodPrince
J.K. Rowling
4. A Thousand Splendid Suns
Khaled Hosseini
5. The Water’s Lovely
Ruth Rendell
6. HarryPotter&thePhilosopher’sStone
J.K. Rowling
7. Lisey's Story
Stephen King
8. A Mission Song
John le Carré
9. HarryPotter&theChamberofSecrets
J.K. Rowling
10. Like the Flowing River
Paulo Coelho
Listinn er gerður út frá sölu í Pennanum
Eymundsson og Bókabúð Máls og
menningar dagana 17.07 - 23.07.
Reykholtshátíð hefst í dag
Falleg tónlist í
vönduðum flutningi
Steinunn Birna Ragnars-
dóttir, stjórnandi Reyk-
holtshátíðar, segir að
tilgangurinn með hátíð-
inni sé að búa til vettvang
fyrir innlenda tónlistar-
menn til að starfa með
erlendum gestum.
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@bladid.net
Reykholtshátíð hefst í dag,
fimmtudag, og lýkur á sunnudag.
Hátíðin, sem er alþjóðleg tónlistar-
hátíð, er haldin í ellefta sinn. Fjöldi
tónlistarmanna víða að, 49 flytj-
endur frá sex löndum koma fram á
hátíðinni í Reykholtskirkju.
„Tilgangurinn með Reykholtshá-
tíð er að búa til vettvang fyrir inn-
lenda tónlistarmenn til að starfa
með erlendum gestum og skapa
fallegt umhverfi utan um fallega
tónlist í vönduðum flutningi,"
segir Steinunn Birna Ragnars-
dóttir, píanóleikari og stjórnandi
Reykholtshátíðar.
Einstakur karlakór
Karlakór Basil-dómkirkjunnar
í Moskvu mun opna hátíðina nú
í kvöld og halda aðra tónleika á
föstudagskvöldið. Kórinn hefur
áður komið til landsins og söng
á Listahátíð í Reykjavík 2004 við
mikla hrifningu. „Mér fannst eðli-
legt að láta kórinn halda tvenna
tónleika því færri komust að en
vildu þegar hann kom á Listahá-
HÁTÍÐIN
►
Karlakór Basil-dómkirkj-
unnar heldur tónleika í
Reykholtskirkju í kvöld,
fimmtudagskvöld, og föstu-
dagskvöld kl. 20.00.
St. Christopher-hljómsveit-
in kemur fram á tónleikum á
laugardagskvöldið kl. 20.00
og á sunnudaginn kl. 16.00.
w Hanna Dóra Sturludóttir
og Lothar Odinius syngja á
tónleikum laugardaginn kl.
15.00 og Hummel Ensamble
kemur fram á sunnudags-
kvöldið kl. 20.00.
Steinunn Birna ..Núna fæ ég hringingar
frá virtum umboðsmönnum sem bjóða
mér að velja úr bestu listamönnunum.”
tíð og söng í Hallgrímskirkju. Mér
sýnist að það muni verða uppselt á
báða tónleikana. Það er gaman að
fá þessa tónlist beint í æð en fá lög
ná jafn vel til manns og rússnesku
þjóðlögin flutt af þessum frábæra
karlakór," segir Steinunn Birna.
Christopher hljómsveitin frá
Vilnius í Litháen undir stjórn Don-
atas Katkus kemur einnig fram
á hátíðinni. „Það er sérstaklega
skemmtilegt fyrir mig að fá þessa
hljómsveit til landsins því ég spil-
aði einleik með henni árið 2000
þegar Litháar héldu upp á frelsis-
afmæli sitt og síðan hef ég látið
mig dreyma um að fá hana hingað,"
segir Steinunn Birna.
Steinunn Birna kemur sjálf fram
á tónleikum á laugardag þegar hún
leikur með Hönnu Dóru Sturlu-
dóttur og Lothar Odinius. Á loka-
tónleikunum sem verða á sunnu-
dag flytur Hummel Ensamble frá
París verk eftir Beethoven, Dvorák
og fleiri.
Eftirsóknarverður vettvangur
Steinunn Birna segir að aðsóknin
að Reykholtshátíð fari stöðugt vax-
andi. „Víðast hvar í heiminum er
samdráttur i aðsókn á klassíska
tónleika en það á ekki við um há-
tíð eins og þessa sem dregur fólk
að. Mjög vel gengur að fá erlenda
tónlistarmenn á hátíðina. I byrjun
þurfti ég að hafa fyrir því vegna
þess að hátíðin var ekki þekkt.
Núna fæ ég hringingar frá virtum
umboðsmönnum sem bjóða mér
að velja úr bestu listamönnunum.
Hátíðin hefur spurst út og er komin
á kortið erlendis sem eftirsóknar-
verður vettvangur. Mér þykir veru-
lega vænt um að þetta hafi gerst."
MENNINGARMOLINN
Háðfugl fæðist
Á þessum degi árið 1856 fæddist
leikritaskáldið og gagnrvnandinn
George Bernard Shaw. Á löngum
ferli skrifaði hann fimmtíu leik-
rit og var auk þess áhrifamikill
gagnrýnandi og frábær bréfritari.
Hann hlaut Nóbelsverðlaunin í
bókmenntum árið 1925 fyrir leikrit
sitt Heilög Jóhanna. Shaw fór nýjar
leiðir í umfjöllunarefnum í leik-
ritum sínum sem einkenndust af
beittri þjóðfélagsgagnrýni og háði
sem hitti í mark. Shawlést árið 1950,
94 ára gamall. Allt til dauðadags
hélt hann áfram að skrifa af snerpu
og einstakri greind.
Myndin sem hér birtist sýnir
Shaw 93 ára gamlan fylgjast með
útiæfingu á leikriti sínu Buoyant
Billions. Þetta er ein af síðustu
myndunum sem var tekin af
honum.
-(