blaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 6
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2007
blaóið
Nýtt torfærusvæði við Hellu
Hrepparáð Rangárþings ytra ákvað
á síðasta fundi sínum, sem haldinn
var 19. júlí síðastliðinn, að verja
fimm hundruð þúsund krónum til
stofnframkvæmda á torfærusvæði
í landi Grafar rétt austan við Hellu.
Fyrir liggja drög að samningi um
að Rangárþing ytra leigi svæðið
af Landgræðslu ríkisins sem nýtt
verði til akstursíþrótta. Þetta
kemur fram á fréttavefnum suður-
land.is.
Byrjað var á vinnu við aksturs-
svæðið síðastliðið haust en þar
verða motorcross- og Enduro-
brautir. Örn Þórðarson sveitarstjóri segir í samtali við suðurland.is
að mótorhjólamenn hafi verið tií vandræða með því að hjóla á göngu-
stígum á Hellu og nokkrum sinnum legið við stórslysi. Sé því verið að
reyna að færa mótorhjólaakstur úr þorpinu. h!
Nýr ráðu-
neytisstjóri
Viðskiptaráð-
herra, Björgvin
G. Sigurðsson,
hefur skipað
Jónínu S. Lárus-
dóttur ráðu-
neytisstjóra í
viðskiptaráðu-
neytinu frá 1.
ágúst 2007.
Jónína útskrifaðist sem lögfræð-
ingur frá Háskóla íslands árið
1996 og lauk mastersgráðu frá
London School of Economics and
Political Science árið 2000. Hún
hóf störf í viðskiptaráðuney tinu
haustið 2000 og var skipuð skrif-
stofustjóri þar árið 2004.
Jónína er 36 ára, gift Birgi Guð-
mundssyni, viðskiptastjóra hjá
Landsbankanum í London og
eiga þau eitt barn.
mbl.is
3200 vestur
á einni viku
Á einni viku er von á að 3200 far-
þegar komi með skemmtiferða-
skipum til f safjarðar, samkvæmt
fréttavefnum Bæjarins besta.
Skemmtiferðaskipið Saga Ruby
var í Prestabugtinni í Skutuls-
firði í gær en það er tólfta skipið
af tuttugu og sex sem kemur til
ísafjarðar i sumar.
Saga Ruby er tæp 25 þúsund brút-
tótonn að stærð og komu 650
farþegar með því. Skipið Europa
er væntanlegt til ísafjarðar á
föstudag og Princess Danae og
Thompson Spirit á Iaugardag.
hbv
Bílaflotinn stækkar Mikil aukn
ing hefur verið í bílainnflutningi
undanfarið, enda gengi dollar-
ans verið hagstætt.
Innfluttar vörur
lækka í verði
■ Gengi Bandaríkjadals er óvenjulágt um þessar mundir ■ Fór
niður fyrir 60 krónur í gær ■ Neytendur njóta góðs af
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
Staða krónunnar er óvenju
sterk í dag gagnvart öðrum gjald-
miðlum, ekki síst gagnvart doll-
ara þar sem kaupgengið í gær var
komið niður í tæpar 60 krónur.
Innflutningur á vörum frá Amer-
íku er því hagstæður um þessar
mundir og ættu neytendur að
njóta góðs af lágu gengi dollarans
í lægra vöruverði.
Lækkanir þegar hafnar
Olíufélögin hafa þegar tekið við
sér og lækkað verðið á bensíni
fyrr í vikunni um allt að 4 krónur
á lítrann. Aðrir birgjar sem Blaðið
ræddi við virðast hafa gert slíkt hið
sama. „Við erum eina bílaumboðið
sem hefur lækkað verðið á bílunum
hjá sér út af genginu. Þeir bílar sem
koma frá Evrópu hafa lækkað hrað-
ast því afgreiðslutíminn er stystur
þar. Svo hafa allir bílarnir frá Asíu
lækkað líka,“ segir Jón Eyjólfsson
hjá Bílabúð Benna. Hann segir eftir-
spurn eftir nýjum bílum hafa aukist
töluvert undanfarið. „Það er meira
að gera, það er augljóst. Við höfum
GENGI DOLLARANS
SÍÐUSTU 18MÁNUÐI
Dags. Kaupgengi
25. 7. 2007 59,55 kr.
23. 3. 2007 66,31 kr.
22. 12. 2006 69,5 kr.
25. 8. 2006 69,91 kr.
25. 4. 2006 74,31 kr.
25.1. 2006 61,02 kr.
ákveðið að láta viðskiptavinina
njóta þess.“
Ingimar Ingimarsson, sölustjóri
matvörusviðs hjá Islensk-Ameríska,
hefur sömu sögu að segja. „Megnið
af vörunum okkar koma frá Dan-
mörku og evrusvæðinu. En gengið
hefur verið að lækka þar líka og við
lækkuðum allt í lok júní.“
Krónan sterk fram á haust
Þrátt fyrir spár um yfirvofandi
samdrátt virðist sem lítið lát sé á
þenslunni í efnahagslífinu. Ingólfur
Bender, forstöðumaður greiningar
Glitnis, segir að krónan haldist
sterk fram á haust og jafnvel fram á
næsta ár. Hann segir íágt gengi doll-
arans gagnvart íslensku krónunni
skýrast einkum af sterkri stöðu ís-
lensks efnahagslífs, sem og veikri
stöðu bandaríska hagkerfisins um
þessar mundir. „Við sjáum það
núna að það er mikill innflutningur
á bifreiðum frá Bandaríkjunum og
öðrum neysluvörum sem þaðan
koma. Það er ekki oft sem dollarinn
hefur farið undir 60 krónurnar.“
I ástandi sem þessu freistast
margir til að kaupa dollara, til þess
eins að selja þá aftur þegar krónan
veikist. Ingólfur ráðleggur fólki að
bíða aðeins með slík viðskipti. „Hér
erum við með háa vexti í íslenskum
krónum sem er fórnað ef keyptir eru
dollarar. Ef það gengur eftir eins og
útlit er fyrir, að krónan verður sterk
næstu mánuði, þá er maður í raun
að tapa þessum innlendu vöxtum.
Þess vegna er mun betra að bíða þar
til kemur að því að krónan veikist,
þá getur maður gert góð kaup í doll-
urum. Peningamarkaðir hér heima,
svo dæmi sé tekið, eru öruggir og
gefa mjög góða ávöxtun,“ segir
Ingólfur.
ÞEKKIRÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Sea Shepherd hætta við komu sína að íslandsströndum
Upptekin við annað
Farley Mowat, skipi umhverfis-
verndaranna í Sea Shepherd, verður
ekki siglt að íslandsströndum, í bili
að minnsta kosti.
Að sögn Pauls Watsons, leiðtoga
samtakanna, sinna þau nú þörfum
verkefnum við verndun lífríkisins í
kringum og á Galapagoseyjum. Sam-
tökin munu hafa gert opinberan
samstarfssamning við stjórnvöld í
Ekvador um eftirlit með og verndun
á svæðinu.
Náttúruverndarsamtök Islands
sendu Watson bréf fyrr 1 sumar
þar sem hann var vinsamlegast
beðinn um að halda sig fjarri ís-
landi þar sem aðgerðir hans væru
málstaðnum síst til framdráttar.
Árni Finnsson, formaður NSl, segir
þessar fréttir góðar en hann hafi í
raun aldrei búist við því að Watson
léti verða af komu sinni.
elias@bladid.net
Keikur kafteinn Paul Watson
segir annir á öðrum vígstöðvum
fresta Islandsför