blaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 27

blaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 27
blaóió FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2007 27 Nýstimi vikunnar hjá Reykjavík FM Sigruðu með lánssöngvara Strákarnir í hljómsveitinni Shogun urðu þess heiðurs aðnjótandi að vera valdir nýst- irni vikunnar af útvarpsstöðinni Reykjavík FM. Hljómsveitin hóf göngu sína í fyrra en gerði sér lítið fyrir og vann Músíktilraunir 2007 síðastliðið vor. „Bandið var stofnað í fyrra en var í rauninni ekki fullmótað fyrr en rétt fyrir Músíktil- raunir. Það var auðvitað mjög skemmtilegt að sigra og gaman að segja frá því að við unnum með lánssöngvara. Góður félagi okkar gerði okkur greiða og söng með í stað aðalsöngv- arans, sem þurfti að bregða sér til útlanda,“ segir Andri Freyr Þorgeirsson, trommuleikari hljómsveitarinnar. „Þetta var ótrúlega gaman og mikill heiður að vera í sama flokki og önnur bönd sem hafa unnið, eins og til dæmis Mínus, Andlát og fleiri. Metnaðurinn óx um helming og við fórum að vinna af miklu meiri krafti í kjöl- farið,“ bætir Andri við. Nýkomnir úr hringferð Að sögn Andra hefur hljómsveitin verið að átta sig á eigin stíl undanfarin misseri og er nú að komast að niðurstöðu um tónlistarlegar áherslur. „Við höfum alltaf kallað þetta met- alcore, en erum ekki alveg vissir lengur. Það má frekar kalla þetta metal með breakdown- ívafi,“ segir Andri og bætir við að senn leggist hljómsveitin í vinnslu átta laga breiðskífu. „Við erum að leggja lokahönd á efnið svo að við byrjum væntanlega á upptökum á næstunni.“ Hljómsveitin hélt nýverið í hringferð um Island og spilaði víðs vegar um landið „Við spiluðum á Höfn, Egilsstöðum og Akureyri og það gekk mjög vel. Hljómsveitirnar Gordon Ri- ots og We made God komu með, en þær lentu báðar í 3. sæti Músíktilrauna núna í ár og fyrra. Annars stendur 17. júní á aðalsviðinu á Arnarhóli eiginlega upp úr enda er það okkar stærsta gigg til þessa," segir Andri að lokum. Fjölskylda söngvarans Magna verður í farar- broddi á tónlistarhátíð- inni Bræðslunni um helg- ina. Systirin mun syngja fyrir gesti hátíðarinnar og móðir Magna hyggst elda ofan í tónlistarfólkið. Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur halldora@bladid.net Það verður mikið um að vera á tónlistarhátíðinni Bræðslunni sem fram fer á Borgarfirði eystra á laugardaginn. Hátíðin er haldin í þriðja skiptið og munu nokkrir vinsælustu tónlistarmenn landans stíga á svið. Má þar nefna Magna Ásgeirsson, sem halda mun útgáfu- tónleika vegna nýrrar plötu sinnar, söngkonuna Lay Low og Megas auk þess sem systir Magna, Aldís Fjóla Ásgeirsdóttir, ætlar að ljá gestum rödd sína. „Þetta verður allsvaðalegt partí. Systir mín ætlar að syngja með danska helmingnum í hljómsveit Jónasar Sigurðssonar. Hún er búin að búa síðustu árin í Danmörku þar sem hún hefur stundað söngnám í Kaupmannahöfn," sagði Magni í samtali við Blaðið í gær. Hann seg- ist þess fullviss að Aldís eigi eftir að standa sig vel á sviðinu og segir hana afar músíkalska eins og aðra í fjölskyldunni. „Ég hef að sjálfsögðu mikla trú á henni. Við komum frá mjög mús- íkalskri fjölskyldu og flest frænd- fólk spilar á eitthvert hljóðfæri. Þú kemur allavega ekki að tómum kofanum á ættarmótum hjá okkur. Síðast héldum við brekkusöng og þá voru held ég fimmtán gítarar með.“ Stolt af Magna „Magni hefur náttúrlega haft áhrif á tónlistargáfur mínar með því að láta mig hlusta á hitt og þetta í gegnum tíðina en ég var löngu búin að ákveða að feta þessa braut og ætl- aði mér frá unga aldri að verða söng- kona,“ segir Aldís Fjóla aðspurð hvort hún hafi viljað feta í fótspor Tónlistarhátíðin Bræðslan fer fram á laugardaginn Systi r Magna treðu r upp Syngur á Bræðslunni á laugar- dagur Aldís Fjoia. syst-r Magna As- geirssonar, hyggst syhgja fynr gesti tonlístarhátiöirinnar Bræðslan 2007 Magna með því að leggja land undir fót og sækja söngnám í Danmörku. „Ég geri þetta algjörlega á eigin for- sendum þó svo að ég fái leiðsögn frá Magna og bræðrum mínum. Annars er ég auðvitað mjög stolt af Magna og virkilega hrifin af nýju plötunni hans. Ég heimsótti hann í stúdíóið í Danmörku þar sem hann tók plöt- una upp og get sagt með fullri vissu að fólk getur verið spennt að heyra meira af plötunni," bætir Aldís við. Hún er að vonum full tilhlökkunar fyrir komandi helgi og spennt fyrir því að spila fyrir sitt heimafólk. „Það er svolítið öðruvísi að koma fram í sinni heimasveit. Ég er búin að syngja aðeins í Danmörku og þar náttúrulega þekkja færri mann en Megas mætir á svæðið Tónlistarmað- urinn Megas mun stíga á stokk á Bræðsl- unni næstkomandi laugardag. hérna. Þetta verður kannski stress- andi í fimm mínútur áður en ég fer upp á svið, en um leið og ég byrja að syngja verður þetta örugglega allt í lagi og mjög skemmtilegt Athyglissjúk fjölskylda Magni og Aldís eru ekki einu fjöl- skyldumeðlimirnir sem taka þátt í Bræðslunni því bróðirinn Áskell Heiðar hefur umsjón með hátíð- inni og móðirin, Jóhanna Borgfjörð, hyggst elda ofan í listamennina sem koma fram. „Mamma er með veitingasöluna hérna og verður með listamennina í fæði og gistingu. Þannig að það má kannski kalla þetta fjölskyldu- hátíðina okkar,“ segir Aldís og bætir við að athyglissýkin renni í æðum fjölskyldumeðlima. „Þetta er athyglissjúk fjölskylda, UM A/IAGNA OG ALDÍSI Aldís nemur söng í Comp- lete vocal Institute í Dan- mörku. ► Fyrsta sólóplata Magna kemur út miðvikudaginn 1. ágúst næstkomandi. W* Magni heldur útgáfutónleika ^ annað kvöld í Borgarfirði eystri og leikur svo á Bræðsl- unni á laugardeginum. það er alveg greinilegt. Mér líður allavega mjög vel uppi á sviði og ég held að það hafi sannast á síðasta ári að það sama er uppi á teningnum hjá Magna.“ JÁ/NEI Elskum sólina sem er búin að sleikja vanga okkar síðustu daga. Við elskum sumarstemninguna sem myndast meðal landsmanna og alla íslend- ingana sem hressast upp í góða veðrinu og gefa frá sér góða orku. Það er fátt betra! Líkar við gömlu góðu útileguna. 1 kjölfar aukningar í tjaldvagna, fellihýsa- og húsbílasölu virðist tjaldmenn- ingin eitthvað hafa farið fyrir bí. En það er einfaldlega enginn maður með mönnum nema gista í það minnsta eina nótt á ári í forláta tjaldi úti á landi. Svo er það bara prímusinn, gítarinn og góða skapið! Langar til þess að skella okkur í golfið. Vandamálið er einfaldlega tíma- leysið auk þess sem maður þorir ekki að arka á völlinn og gera sig að fífli með því að fleygja kylfunni á næsta mann í einhverju mislukk- uðu högginu. Vitum ekki með margra daga útihátíðir. Þær eru, jú, ógurlega skemmtilegar og henta eflaust mörgum en stundum spyr maður sig hvar fólk fær orkuna til að skemmta sér í 4-5 daga í senn. Tölum nú ekki um ef rigningin er allsráðandi og drullupollar úti um víðan völl. Er ekki nóg að gefa þessu tvo daga baja? Bless, bless, ljósabekkir. Fyrirbæri sem er fyrir löngu farið að syngja sitt síðasta og auk þess afskaplega heilsuspillandi. Þar fyrir utan er ekki lengur smart að vera óeðlilega brúnn og gervi- legur eins og oft vill verða þegar ljósabekkjanotkun er óhófleg. Þolum ekki skatta. Hvernig stendur á því að maður þarf að svitna á hverjum mánuði vegna óhóflegrar skattfjár- hæðar sem af okkur er dregin. Það er með öllu óþolandi að þurfa að greiða um þriðjung launa sinna í skatt á mánuði. j \ : WWW i IM3IIÍ feKKJU III. IH

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.