blaðið - 26.07.2007, Side 17
blaóió
FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2007
17
LÍFSSTÍLL48K
48k@bladid.net
Nariko er þó ekki ein í þessari hefndar-
för sinni því hún nýtur aðstoðar systur
sinnar, sem svipar í útliti mjög til Bjarkar
Guðmundsdóttur.
Væntanlegt á Playstation 3
Sveröaglamur og
stafræn skrímsli
48k gafst á dögunum
einstakt tækifæri til að
prófa fjóra væntanlega
stórleiki fyrir Playstation
3. Nú þegar hefur birst
umfjöllun um Uncharted
og Lair en nú er komið að
Heavenly Sword og Eye of
Judgement.
Eftir Viggó Ingimar Jónasson
viggo@bladid.net
Þegar maður horfir á Heavenly
Sword-leikinn í fyrsta sinn er erfitt
að koma því í orð hversu vel leikur-
inn lítur út og hversu mikil unun er
að spila hann. í leiknum fer leikmað-
urinn í hlutverk hinnar rauðhærðu,
og óendanlega kynþokkafullu, Na-
riko. Nariko á harma að hefna gegn
hinum illa konungi Botan með að-
stoð hins himneska sverðs. Nariko
er þó ekki ein i þessari hefndarför
sinni því hún nýtur aðstoðar systur
sinnar, sem svipar í útliti mjög til
Bjarkar Guðmundsdóttur.
Stórbrotið landslag
Þó svo að vinnslu við leikinn sé
enn ekki lokið þá lítur leikurinn
nú þegar mjög vel út. Hvert borð
skartar stórbrotnu landslagi og
borðin eru mörg hver flennistór. I
leik sem snýst mest megnis um að
berjast einn síns liðs á móti stærð-
arinnar herjum þá kemur það ekki
á óvart að ofbeldið sé í góðum
skammti. Blóðið sem Nariko út-
hellir í leiknum er hins vegar mjög
smekklega gert og í stað þess að
það frussist út um allt eins og rauð-
litaður Geysir þá koma fíngerðar
slettur sem líta vel út.
Þeir sem vilja sjá Heavenly Sword
í allri sinni dýrð er bent á að fylgj-
HEAVENLY SWORD
►
Fyrirtaekið Ninja Theory
framleiðir Heavenly Sword
en það fyrirtæki gerði einnig
Kung Fu Chaos-leikinn fyrir
Xbox.
►
Stórleikarinn Andy Serkis,
sem lék Gollri í Hringadrótt-
inssögu, sér um að túlka
hinn illa konung Botan en
hann vann einnig sem leik-
listarleiðbeinandi við gerð
leiksins.
►
Leikurinn var að hluta unnin
á Nýja-Sjálandi hjá Weta-fyr-
irtækinu sem bar ábyrgð á
öllum tæknibrellum í Lord of
the Rings-kvikmyndunum.
ast grannt með bresku PSN-búðinni
en demó af leiknum er væntanlegt
þangað í dag.
Dómsaugað
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum að undanfarinn áratug
hafa fyrirbæri á borð við Pokémon
tröllriðið öllu. Ungmenni víða um
heim hafa lagt ýmislegt á sig til að
koma sér upp góðu safni af skrímsla-
spilum og er því engin furða að
Sony-fyrirtækið vilji komast inn í
þennan pakka.
Eye of Judgement-leikurinn er
eins og hver annar spilaleikur. Leik-
menn skiptast á að leggja skrímsla-
niður á þar til gert spilaborð
sem er skipt i níu reiti. Hver reitur
skartar ákveðnu landslagi sem
getur annaðhvort magnað upp eða
veikt árásarstyrk, vörn eða líf hvers
skrímslis.
Það sem gerir leikinn frábrugð-
inn öðrum sambærilegum spila-
leikjum er notkun leiksins á Playst-
ation Eye myndavélinni. Um leið
og skrímslin eru lögð á spilaborðið
les myndavélin segulrönd á spil-
unum og lifna þá skrímslin við á
sjónvarpsskjánum.
Miklir möguleikar
Grafíklega séð er leikurinn ekk-
ert meistaraverk en hugmyndin er
engu að síður stórsniðug. Þegar leik-
urinn er keyptur mun fylgja með
startpakki af spilum sem skartar
ákveðnu magni af skrímslum en
svo munu leikmenn líka geta keypt
sér staka pakka til að eignast öfl-
ugri skrímsli. Þessi leikur hefur
alla burði til þess að geta orðið einn
af vinsælustu leikjum Sony næsta
árið ef fyrirtækið heldur rétt á
spilunum.
Miðaldra pípari í boltaleik
Feitur miðaldra pípari er ekki
það fyrsta sem maður hugsar um
í fótbolta, lifandi sveppir,
drekar og górillur ekki
heldur. Mario Strikers
tekst þó einhvern veginn
að blanda þessu öllu saman
og gera það skemmtilegt,
ekki bara fyrir aðdáendur
Marios, eða aðdáendur fót
bolta heldur fyrir hvern sem er.
Sem verður að teljast ágætlega
heppnað, þegar einhver sem ekkert
veit um fótbolta skemmtir sér kon-
unglega yfir fótboltaleik.
Galdur leiksins, eins og við flesta
Wii-leiki, er fjölspilun. í sjálfu sér er
leikurinn ekkert það skemmtilegur
til lengdar þegar hann er spilaður í
einrúmi, það er ekki fyrr en maður
fer að keppa við einhvern sem leikur-
inn verður virkilega skemmtilegur.
Mario Strikers er langt frá því að
vera hefðbundinn fótboltaleikur,
af óþekktri ástæðu eru vell-
irnir girtir af með rafgirðingum
og gildrur út um allt á vellinum, í
stað bolta er glóandi járnkúla sem
varla getur verið gott að sparka í.
Þetta gerir þó leikinn áhugaverðari
og spurning hvort skipuleggjendur
hefðbundins fótbolta gætu lært eitt-
hvað af Mario Strikers.
Grafíkin er stórgóð, einföld en
lítur vel út. Sýnir að það þarf ekki
mikið afl til að líta vel út. Hljóðið
er líka fínt, sérlega skemmtilegar
raddirnar og tónlistin hjá Wario og
Waluigi. Leikurinn nýtir þó stýrip-
inna Wii-tölvunnar ekkert sérlega
vel, hvaða stýripinni sem er myndi
í raun virka í leiknum.
Mario Strikers er í raun fínasti
leikur sem hægt er að skemmta sér
konunglega yfir, það má þó velta
fyrir sér hversu sniðugt það er fyrir
miðaldra pípara að spila fótbolta við
górillu, hvað þá eldspúandi dreka.
KÍLÓBÆT
• Manhunt-áhrifin Það hefur
ekki farið fram hjá neinum að
útgáfu á Man-
hunt tvö hefur
verið seinkað
um óákveð-
inn tíma svo
að unnt sé
að draga úr
ofbeldinu í
honum. Nú
hafa framleiðendur leiksins Con-
demned 2: Bloodshot ákveðið að
draga úr ofbeldinu i leiknum. Á
meðal þess sem fjarlægt verður
úr leiknum eru nokkrar gerðir
afhöfðana.
• Ratchet á leiðinni Uppáhalds-
loðinkjammi Sony fyrirtækisins,
Lombax-inn
Ratchet, og
hinn vélræni
vinur hans
Clank eru
samkvæmt
áreiðanlegum
heimildum
á leiðinni
á PSN. Heimildir herma að
prufuborð úr þeirra nýjasta leik,
Ratchet & Clank Future: Tools of
Destruction, muni birtast í Playst-
ation-búðinni í dag eða á morgun.
• AT&T græðir á iPhone iPhone
er án efa heitasta græjan í dag
enda engin
furða þar sem
síminn sá arna
er hreint út
sagt stórkost-
legur. í Banda-
ríkjunum
hefur AT&T-
fjarskiptafyrirtækið grætt einstak-
lega vel á iPhone en fyrirtækið
tilkynnti á dögunum að hagnaður
milli ársfjórðunga hafi aukist um
61 prósent. Þar að auki jókst sala
fyrirtækisins um 29,5 milljarða
dollara. Mikið af þessum gróða
kemur beint frá sölu iPhone.
• Sjötta kynslóð iPod? Nýlega
komst Macrumours-heimasíðan
yfir mynd- ......
skeiðsemþeir Aason#.
fullyrtu að
væri viðmótið í
næstu kynslóð
iPod spilara.
Ekki leið á
löngu fyrr en
lögfræðingar
Apple létu fjarlæga myndskeiðið,
sem aðeins ýtir undir að það hafi
í raun verið nýtt viðmót. Ekki
var þó um stórvægilegar breyt-
ingar að ræða, en allt var mynd-
rænna þar sem meira er gert úr
plötuumslögunum.
RubberSoul
I 20Songs
• Playstation-uppfærslur Nú
er kominn út ný hugbúnaðarupp-
færsla fyrir
Playstation 3,
rneðal helstu
breytinga eru
t.d. að hægt er
að skipta um
bakgrunna í
XMB-kerfinu
og að hægt er
að breyta video-stillingum bæði í
leikjum og meðan horft er á video
án þess að það þurfi að endurræsa.
Hugbúnaður PSP var einnig upp-
færður, en þó engar stórvægilegar
breytingar þar á ferð.
• Epísk vandræði Þrátt fyrir að
Unreal Tournament 3 komi fyrst
út á Playst-
ation 3 gengur
ekki allt sem
skyldi að klára
leikinn fyrir
tölvuna. Playst-
ation 3 er ansi
frábrugðin
öðrum tölvum
og leikjatölvum og þykir það ansi
flókið mál að láta allt virka rétt.
Sony brást hratt við og sendi hóp
af sínum bestu forriturum til að
aðstoða forritara Epic.
MEGABÆT
Eru tölvuleikir list?
Þótt ótrúlegt megi virðast er
enn til fólk sem álítur tölvuleiki
vera tímasóun og sér ekki þá
miklu iist sem felst í því að búa
til tölvuleik. Um þessar mundir
stendur kvikmyndarýnirinn Ro-
ger Ebert í harðri deilu við Clive
Barker sem hefur bæði unnið að
kvikmyndum og tölvuleikjum
en nýjasti leikur Barkers, Jericho,
er væntanlegur í verslanir í
september.
Deila Barkers og Eberts hófst
fyrir rúmu hálfu ári þegar Ebert
lét þau orð falla að tölvuleikir
væru ekki list og væru í raun og
veru lítið annað en tímasóun.
Barker vildi að sjálfsögðu ekki
gleypa við því og í síðasta mán-
uði svaraði hann Ebert fullum
hálsi. „Þú verður að nálgast þetta
með opnum huga. Roger Ebert
er greinilega mjög þröngsýnn
varðandi stöðu þessa miðils og
möguleika hans.“
Eins og sönnum gagnrýnanda
sæmir vill Ebert eiga síðasta
orðið og á heimasíðu sinni skrif-
aði hann að svör og rök Barkers
eigi betur við vel máli farið fjög-
urra ára barn. Þarna er áhuga-
verð ritdeila í uppsiglingu.
Auglýsingasíminn er
510 3744