blaðið - 26.07.2007, Page 19

blaðið - 26.07.2007, Page 19
blaóiö FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2007 19 LÍFSSTÍLLMATUR matur@bladid.net Því litríkari sem diskur- inn er þeim mun hollari er hann. Það er ekki flóknara en það. Guðjón Birgisson ræktar fjögur tómataafbrigði Litadýrð og hollusta Guðjón Birgisson, garð- yrkjubóndi á Melum á Flúðum, er sá eini hér á landi sem ræktar svokall- aða lýkópentómata. Eftir Einar Örn Jónsson einar.jonsson@bladid.net Eins og nafnið gefur til kynna eru þeir ríkir af andoxunarefninu lýk- ópeni sem talið er vinna gegn hjarta- sjúkdómum og krabbameini. Lýk- ópen er jafnframt efnið sem gefur tómötum rauða litinn og er þrefalt meira magn af því í lýkópentóm- ötum en hefðbundnum tómötum. Guðjón segir að bragðið að þeim sé svolítið ólíkt bragðinu að þeim hefðbundnu. „Mér finnst þeir mjög góðir og þeir eru bragðmeiri af því að það er meira lýkópen í þeim. Þeir fá að hanga lengi á plöntunni og við tínum þá þegar þeir eru orðnir mjög bragðmiklir og góðir,“ segir hann. Auk lýkópentómata ræktar Guð- jón þrjú önnur tómataafbrigði: hefð- bundna, konfekttómata og gula tómata. „Ég rækta örlítið af gulum tómötum til gamans en þeir virðast samt seljast ágætlega," segir Guðjón og bætir við að þeir setji skemmti- legan svip á salatið. „Bragðið er það sama og á venju- legum tómötum en þetta er meira fyrir augað. Fólki finnst gaman að setja þetta í salatið," segir Guðjón sem tekur undir að litadýrð skipti máli þegar grænmeti er annars vegar. „Það er það sem þetta bygg- ist á. Því litríkari sem diskurinn er þeim mun hollari er hann. Það er ekki flóknara en það,“ segir Guðjón Birgisson. Hér að neðan er uppskrift að pikkl- uðum lýkópentómötum úr fórum Hrefnu Sætran matreiðslumanns sem hún segir að séu góðir í salatið. 08 tómatar • íoo ml. hrisgrjónaedik 0 50 g púðursykur • r laukur 01 rauður chili-pipar 0i tsk. sinnepsfræ 0i tsk. svartur pipar 01 tsk.fennelfræ Aöferð: Skerið tómatana í báta. Leysið púðursykurinn upp í edikinu. Saxið laukinn og chilipiparinn, merjið þurrkryddin í morteli og blandið sman við edikið. Hellið leg- inum yfir tómatana og leyfið þeim að standa í að minnsta kosti þrjár klukkustundir eða eftir smekk. Því lengur sem þeir standa, þeim mun súrari verða þeir. Leit að veitingastað Þeir sem vita ekki hvert þeir eiga að fara út að borða í kvöld geta skellt sér á vefsíðuna veitingastadir.is þar sem er að finna upplýsingar um nær alla veitingastaði hér á landi. Þar getur fólk enn fremur leitað að veitingastað eftir tilteknum skilyrðum svo sem tegund staðar, matargerð, staðsetn- ingu og verði. Þar að auki er hægt að leita eftir stöðum sem bjóða upp á heimsendingu auk þess sem veitinga- staðir sem bjóða upp á matseðla eða borðapöntun á netinu eru merktir sérstaklega. Þá geta gestir einnig látið álit sitt á veitingastöðum í ljós og gefið þeim einkunn til að auðvelda öðrum valið. Á vefnum er enn fremur að finna uppskriftir, umsagnir sérfræðinga, myndir frá veitingastöðum og margt annað. Restaurants.is, systursíða veiting- astadir.is, er á ensku og er einkum ætluð erlendum ferðamönnum, útlendingum búsettum hér á landi og ferðaskrifstofum. Ferskt grænmeti í verslunum Tími fyrir grænmeti Á sumrin fyllast matvöruversl- upp á ýmsa möguleika í matreiðslu anirafnýjuogferskuíslenskugræn- og nýverið tók Hrefna Sætran meti og því upplagt að njóta þess á landsliðskokkur saman fáeinar meðan kostur er. Grænmeti býður uppskriftir fyrir íslenska garðyrkju- bændur. Hér að neðan eru fáeinar uppskriftir úr smiðju Hrefnu sem eiga án efa eftir að kitla bragðlauka landsmanna á næstunni. Karríkryddaöir paprikubitar - góðir í pastarétti • ‘á tsk. rifið engifer 02 msk. karríduft 0 /2 tsk. madras karríduft 0i stk. hvítlauksrif (fíntsaxað) 0 olía til steikingar 0 salt og cayenna-pipar Aðferð: Skerið paprikuna í bita. Hitið olíu á pönnu og léttbrúnið smátt saxað engi- ferið, karríið og saxaðan hvítlaukinn. Bætið papr- ikunni út á og eldið í eina mínútu. Smakkið til með cayennapipar og salti. Mozzarellafylltir konfekttómatar 0i askja konfekttómatar 01 poki litlar mozzarellakúlur 0gróft sjávarsalt ogsvartur pipar (efþið œtlið að steikja tómatana) 02greinar rósmarín 0 ólífuolía Aðferð: Skerið tómatana í tvennt og kjarnhreinsið þá. Setjið mozz- arellaostinn inn í miðjuna og stingið tannstöngli í gegnum tómatinn. Kryddið með salti og pipar. Einnig er hægt að léttsteikja tómatana á pönnu upp úr olíu með smá rósm- arín. Þá bráðnar osturinn aðeins og það kemur skemmti- legt bragð að rósmaríninu. Paprikusalsa 02 rauðar paprikur 0i rauðlaukur 0i hvítlauksrif 0i búnt afkóriander 01 stk. sítróna 01 msk. hunang 030 ml. balsamikedik 0ioo ml. ólífuolía 0salt ogpipar Aðferð: Skerið paprikuna, rauð- laukinn og hvítlaukinn smátt niður. Setjið safann úr sítrónunni, balsamedikið og hunangið saman í skál. Bætið grænmetinu út í lögin og marinerið í 20 mínútur. Bætið ólífuolíunni út í. Saxið kór- íander niður, bætið því út í og kryddið með salti og pipar. í ágúst frá aðeins kr. 49.990 í 2 vikur Heimsferðir bjóða frábær tiiboð til Rhodos í ágúst. Stökktu tilboð í 2 vikur 11. ágúst og sértilboð á Forum (búðahótelinu 18. og 25. ágúst. Á Rhodos upplifir þú þrjú þúsund ára gamla sögu á einum sólríkasta stað í heimi, frábært loftslag og frábærar aðstæður fyrir ferðamenn. Mjög takmarkaður fjöldi sæta í boði á þessum frábæru kjörum. Verð kr. 49.990 - 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í 2 vikur. Stökktu tilboð, 11. ágúst. Verðkr. 49.990 - Forum m/hálfu fæði Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 böm, 2-11 ára, í íbúð I viku. Sértilboð á Forum 18. og 25. ágúst. Aukavika kr. 15.000 (ath. aukavika er aðeins í boði I brottför 18. ágúst). Verð kr. 59.990 - 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/ibúð í 2 vikur . Stökktu tilboð, 11. ágúst. Verð kr. 59.990 - Forum m/hálfu fæði Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð í viku. Sértilboð á Forum 18. og 25. ágúst. Aukavika kr. 15.000 (ath. aukavika er aðeins í boði i brottför 18. ágúst). Heimsferðir Muniö Mastercard Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.