blaðið - 12.09.2007, Síða 7
biaóiö
MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007
FRÉTTIR
Björgunarsveitir
Sóttur á
fjallstind
Átta björgunarsveitarmenn
auk læknis og þriggja sjúkra-
flutningamanna sóttu í
gærkvöld mann upp á Sóma-
staðatind sem er beint fyrir
ofan álver Alcoa á Reyðarfirði.
Talið var að maðurinn væri
hjartveikur. Sómastaðatindur
er í um 900 metra hæð yfir
sjó og leiðin upp á tindinn
torfarin.
STUTT
• Dómstólar Héraðsdómur
Austurlands dæmdi stúlku í 30
daga skilorðsbundið fangelsi
fyrir að hafa ásamt karlmanni
brotist inn í sumarbústað í
Stafafellsfjöllum í Lóni og stolið
þar geisladiskum, álgrillbökkum,
tjaldlukt, 6 kertum, Yatsy spili
og tannkremstúpu. Var þýfið
metið á 5439 krónur.
• Vestfirðingar vilja að
háskóli verður stofnaður
á Vestfjörðum og að þar
hefjist kennsla strax næsta
haust. Þetta var samþykkt á
Fjórðungsþingi Vestfirðinga
um síðustu helgi. RÚV greindi
frá því að stjórn sambandsins
hafi verið falið að kalla
þegar til fulltrúa allra þeirra
stofnana og fyrirtækja sem að
málinu gætu komið.
Með farsíma á leið í skóiann Þeg
ar nemendur tala í farsíma í kennslu-
stundum, senda SMS eða taka
myndir eru símarnir teknir af þeim.
Truflun í kennslustundum
Taka þarf farsíma af
grunnskólanemendum
Sænsk yfirvöld hafa nú heim-
ilað kennurum að taka farsíma af
nemendum og annað sem truflar
skólastarfið. Á íslandi setur
hver skóli sínar eigin reglur um
farsímanotkun.
Sænsku kennararnir fagna þess-
ari heimild þar sem víða hafa nem-
endur hunsað tilmæli kennara
um að afhenda þeim símana. Þess
eru dæmi að nemendur hafi tekið
myndir af öðrum nemendum sem
svara spurningum kennara rangt
og sett á Netið. Þannig hefur ein-
eltið verið víkkað út. Nemendur
hafa einnig tekið myndir af kenn-
urum og sett á Netið.
Formaður sænska kennarasam-
bandsins bendir á að kennari megi
ekki taka farsíma af nemanda með
valdi. „En því miður óttast ég að
sú regla eigi eftir að verða brotin,“
segir aMetta Fjelkner í viðtali við
Aftonbladet.
Fortölur duga oftast hér
Hreiðar Sigtryggsson, skólastjóri
Langholtsskóla, segir að yfirleitt
dugi fortölur. „Ég kannast ekki við
að það hafi orðið átök um farsíma.
Við megum ekki beita valdi en vilji
nemandi ekki afhenda farsímann
sinn, sem truflun hefur stafað af,
kemur yfirleitt skólastjórnin til sög-
unnar. Oftast dugir að taka síma af
nemanda og hann fær hann í lok
kennslustundar. Ef um ítrekuð brot
er að ræða er kallað í foreldra til
að ná í símana.“ Að sögn Hreiðars
er nemendum ekki bannað að hafa
farsíma innan á sér séu þau ekki að
senda SMS, tala i símann eða taka
myndir með honum.
Stundum koma nemendur með
vasahnífa í skólann. Verði kennarar
varir við það eru hnífarnir teknir.
„Þetta er ekki markviss vopnaburður.
Mörg börn eiga vasahníf og mega
nota hann heima,“ tekur Hreiðar
fram. Hann segir kennara ekki af-
henda nemendum hnífana aftur,
heldur verði foreldrar að sækja þá.
Stórir hnífar eru hins vegar afhentir
lögreglu. ingibjorg@bladid.net
V G vill fund
um leikskóla
í ljósi ummæla formanns
leikskólaráðs, bæði í borgar-
stjórn og í fjölmiðlum, um
mögulegar brey tingar á rekstr-
arformi leikskóla borgarinnar
hefur fulltrúi Vinstri grænna
í leikskólaráði óskað eftir
að boðað verði til fundar í
ráðinu hið fyrsta. VG telur að
vandi leikskólanna verði ekki
leystur með breytingum á
rekstrarformi, heldur fyrst og
fremst með því að bæta kjör
þeirra stétta sem þar starfa.
Strætó
Fleiri farþegar
í ágúst
Farþegar fóru 36 þúsund fleiri
ferðir í strætó í ágúst 2007 en
í ágúst 2006 og var aukningin
því 5%. Ferðum fjölgaði úr 755
þúsund f 791 þúsund. Fram-
haldsskólanemendur notuðu
fríkortin sín síðustu vikuna
í ágúst og má rekja vöxtinn á
milli ára til þess.
„Almenn ánægja ríkir meðal
námsmanna með Frítt í strætó-
verkefnið, við erum því mjög
þakklát fyrir viðtökurnar,“
segir Pálmi Freyr Randvers-
son, sérfræðingur í samgöngu-
málum hjá umhverfissviði.
l—EG/XdN'
SUBARU
Sjálfskiptur Sedan 2.680.000,- Sjálfskiptur Wagon 2.830.000,-
Subaru eigendur vita ad veturnir geta
oft verid hardir hér á landi. Þad er því
mikilvægt ad vera med drif á öllum
þegar keyrt er íhálkunni.
Boxer vélin liggur lárétt í vélarrýminu svo
þyngdarpunktur bílsins er mjög lágur sem
gerir hann miklu stödugri í öllum akstri.
AWD sídrifid tryggir ad aflid dreifist jafnt
og örugglega til hjólanna.
Þeir sem kaupa sér Subaru einu sinni
halda áfram ad kaupa Subaru. Þeir vita
ad hann er allt ödruvísi en adrir bílar.
Subaru hefur verid seldur á íslandi í yfir
30 ár. Reynslan af bílnum vid þær erfidu
og óvenjulegu adstædur sem hér eru
hefur gert Subaru ad samnefnara fyrir
endingu, hörku og úthald. Raunar er
hvergi selt meira af Subaru midad vid
höfdatölu en einmitt á íslandi.
Subaru Legacy eru klárlega bestu kaupin
í dag. Þú finnur varla bíl med þessa
eiginleika í þessum verdflokki,
Þad ætti því enginn ad kaupa sér bíl án
þess ad koma fyrst og reynsluaka Subaru
Legacy. Spurdu bara Subaru eigendur.
Þeir vita af hverju Subaru eru sennilega
gáfulegustu bílakaup sem þú gerir.
Svo er hann ekki bara flottur
á veturna, heldur allt árið!
Ingvar Helgason Sævarhöfða 2 Sími 525-8000 Opið: Mán. 10-18, þri.-fös. 9 -18, lau. 12 -16.
Umboðsmenn Akureyri Njarðvlk Höfn I Homafiröi
um land allt 464-7940 421-8808 478-1990