blaðið - 12.09.2007, Síða 30
38
MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007
blaóiö
FOLK
folk@bladid.net
Já, það er alltaf
brosað í gegnum
tárin, því þetta eru
gleðitár.
Brosirðu í gegnum tárin?
Elínu Gestsdóttur var um daginn
sagt upp störfum sem framkvæmda-
stjóra hjá Ungfrú ísland en hún hafði
starfað þar síðastliðin tólf ár.
HEYRST HEFUR
Hann var einkennilegur tölvu-
pósturinn frá G. Pétri Matthías-
syni, upplýsingastjóra Vega-
gerðarinnar í gær, sem barst til
allra helstu fjölmiðla landsins.
Þar voru reifaðar skákfréttir
af skákmóti í Laugalækjaskóla,
sem verður að teljast ansi langt
seilst út fyrir verksvið Vegagerð-
arinnar. Ekki er vitað hvort vega-
málastjóri hefur
ávítað G. Pétur
fyrir þetta hlið-
arspor, en ljóst
er að það fellur
enn sem komið er
í skugga Grims-
eyjarferju-
málsins...
Hinn sykursæti Skjöldur Eyfjörð
er hugsanlega að fara að vinna
fyrir hið virta snyrtivörufyrir-
tæki Balmain frá París. Felst
starf hans í að selja hárleng-
ingar um allan heim og hönnun
á tískulínum og klippingum.
Þetta kemur fram á bloggi
hans. Skjöldur hefur eimitt
nýopnað flott
tískuhús og
snyrtistofu
að Pósthús-
stræti 13 og
spurning
hvort hann
geti sinnt
báðum
störfum í
einu...
Heimildir herma að eitt glæsi-
legasta par landsins til margra
ára, Þorsteinn J og María
Ellingsen, séu skilin að borði og
sæng. Hafa þau um langt skeið
prýtt fjölmiðla á Fróni en nú
virðist hamingjan hafa runnið
sitt skeið. Við taka nýir tímar
og mun Þorsteinn stýra nýjum
þætti í vetur á RÚV ásamt
Andreu Róberts, sem mun fjalla
um kvik-
myndir og
leikhús
og nefnist
hann
07/08...
María Reyndal segist frekar
vilja leikstýra heldur en leika
María Ingibjörg Reyndal hefur slegið í gegn í lottó-auglýsingunum
Vill heldur leikstýra
María Ingibjörg Reyndal
er einn reyndasti leik-
stjóri okkar íslendinga af
yngri kynslóðinni. Hún
hefur meðal annars leik-
stýrt barnasöngleiknum
Abbababb! og Beyglum
með öllu og framundan
er leikritið Ökutímar,
sem verður frumsýnt á Ak-
ureyri þann 2. nóvember.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Þeir sem ekki þekkja nafnið ættu
samt að þekkja Maríu í sjón, en hún
leikur einmitt eiginkonu Lýðs Odds-
sonar, Björgu, í hinum margrómuðu
Lottóauglýsingum sem sýndar hafa
verið í sjónvarpi að undanförnu.
Þótt María sé menntuð leikkona og
hafi alið með sér þann draum sem
barn, hefur hún að mestu haldið sig
við leikstjórnina.
„Ég hélt alltaf að ég ætlaði að
verða leikkona. En sú menntun
hefur þó nýst mér ágætlega, og
kannski einstaklega vel í þessum
Lottóauglýsingum! “
Leiklistin
„Ég ólst upp í Norðurmýrinni og
fór í Háteigsskóla, sem reyndar hét
þá Æfingaskólinn. Þar lærði ég fyrst
leiklist, en það var einmitt hún Halla
Margrét, nú óperusöngkona á Ítalíu,
sem opnaði heim leiklistarinnar
fyrir mér. Eftir grunnskólann fór ég
í Menntaskólann við Hamrahlíð og
fór auðvitað beint í leikfélagið þar
sem ég hitti fyrir Benedikt Erlings-
son, Pál Óskar, Atla Rafn, Brynhildi
Björns, Völu Þórs og fleiri góða leik-
ara sem ég er eflaust að gleyma! Eftir
menntó fór ég að kenna unglingum
leiklist í Tónabæ og leikstýrði til
dæmis Jóhönnu Jónas í einleik eftir
Dario Fo. Það gekk voða vel og ég
fékk mjög fína dóma í blöðunum.
Eftir það ákvað ég að fara í leiklist-
arskóla í Englandi sem var mjög
skemmtilegur tími. Þar kynntist ég
fólki sem er enn góðir vinir mínir í
dag og alltaf gaman að sjá sumum
þeirra bregða fyrir í sjónvarpsþáttum
hér heima. Það er nú enginn þeirra
eitthvað „mega-frægur“ en þó var
rauðhærði gaurinn með stutta hárið
í The Office, sem var einnig mynd-
inni í Love Actually, í bekknum fyrir
ofan mig!“
Heim á Frón
„Eftir námið var ég aðeins lengur
í London, eða um eitt og hálft ár,
þar sem ég var að leika og reyna
fyrir mér. Ég lék til dæmis í Royal
Albert Hall og fékk meira að segja
fínan umboðsmann eftir að hafa
leikið í Birninum eftir Tsékov! En
á þessum tíma hafði ég kynnst
manninum mínum, Orra Vésteins-
syni fornleifafræðingi, sem vildi
óður komast heim á Klakann til
að fara að grafa eitthvað í jörðina.
Við komum heim til íslands árið
1999 og þá tók ég til við að leikstýra
KONAN
►
►
María er fædd árið 1970
Meðal verka sem hún hefur
leikstýrt eru Lína Langsokk-
ur, Best í heimi og Beyglur
með öllu.
►
Hún útskrifaðist sem leik-
kona frá The Central School
of Speech and Drama árið
1997
menntaskólum í ákveðnum verk-
efnum. Svo tók ég við Kaffileikhús-
inu og leikstýrði Ævintýri um ást-
ina en fór þá til Leikfélags íslands i
Iðnó og leikstýrði þar Trúðleik eftir
Hallgrím H. Helgason. Þá fórum
við Magnús Geir, leikhússtjóri fyrir
norðan, einmitt að tala um leikritið
Ökutíma eftir Paulu Vogel, sem við
ætlum að setja upp í haust á Akur-
eyri. Það er því búinn að vera langur
undirbúningur að þessu verki, sem
fjallar um forboðna ást ökukenn-
ara til ungrar frænku sinnar. Þetta
er dramatískt verk með kolsvartri
kómík og skartar einvalaliði leik-
ara. Sjálf Lay Low semur tónlist og
verður á staðnum til að flytja hana.
Annars er ég alltaf með Abbababb!
líka, þennan frábæra barnasöng-
leik, sem vann einmitt Grímuna
fyrir bestu barnaleiksýningu ársins
og þá hef ég verið að semja atriði
fyrir Stelpurnar á Stöð 2, ásamt því
að leika aðeins í þeim líka. Ég lofa
alveg þrusugóðu handriti í vetur og
góðu gríni einnig!“
BLOGGARINN...
Davíð og evran
„Þótt Evrópusambandið sé ekki fullkomið
og evran ekki fullkomin, eigum við að
vera með. Þótt embættismenn séu
fyrirferðarmiklir í sambandinu, eru þeir
ekki vanhæfír eins og þeir islenzku. Þeir
evrópsku kunna stjórnsýslu, en íslenzkir
embættismenn kunna ekkert íhenni. Þótt
lýðræði sé lítið í sambandinu, erþað enn
minna hér á landi. Mestu máli skiptir, að
krónan er orðin hættuleg hagkerfinu. Hún
rambar út og suður, viðkvæm fyrir árásum
fjárglæframanna. Sem betur fer er þjóðin
loksins eftir dúk og disk að átta sig á, að
fullyrðingar Davíðs Oddssonar i evrópu-
málum eru hlægilegar."
Jónas Krístjánsson
www.jonas.is
Tepruskapur
„Sóley Tómasdóttir hefur kvartað til Jafn-
réttisstofu undan auglýsingu Veiðiportsins
þar sem stúlka íbikini heldur á veiðistöng.
Á sama tíma birtir Linda Pétursdóttir
mynd af allsnakinni konu iauglýsingu
fyrir Baðhúsið sitt. [...] Stundum minna
íslensku femínistastelpurnar á íranska erki-
klerka ífurðulegum tepruskap sinum. Og
það er nú einu sinni þannig að þó maður
telji sig hafa kynjapólitiskar forsendur
fyrir því að amast við Ijósmynd af stúlku
í bikini þá verður slíkt alltaf flokkað undir
tepruskap og smámunasemi - á meðan
verið er að murka lifið og sálina úr konum
i öðrum heimshlutum. “
Ágúst Borgþór Sverrisson
blogg.visir.is/agustborgthor
Ráðvilltir karlar
„Talandi um karlmenn. Þeireru ekki bara
ráðvilltir í snyrtivörudeildunum. Þeir eru
enn umkomulausari i kvenfatabúðunum.
Standa vandræðalega ímiðri verslun þeg-
ar konan er að skoða og kaupa - eða bíða
misþolinmóðir fyrír utan. Vinur minn
sagði mér eitt sinn frá bragði sem hann
beitti þegar honum leiddist biðin. Og það
virkaði alltaf. Hann segði við konuna þegar
hún værí að máta flik: Hún klæðir þig illa.
Stuttu siðar væru þau á hraðri leið heim..."
Ama Schram
http://arna.eyjan.is/
ALLIR DAGAR
Auglýsingasíminn
ORÐLAUSLÍFIÐ
510 3744 blaðiö=
Su doku
6 5 1 7
8 6
2 3 6
3 7 9 5 8 2
9 2 4 8 7
7 1 3
3 8 4
1
4 7 9 1
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
HERMAN
eftir Jim Unger
Geturðu skipt 50-kalli? Ég þarf
að skilja eftir eitthvert þjórfé.