blaðið - 18.09.2007, Síða 23

blaðið - 18.09.2007, Síða 23
blaöió ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEIVIBER 2007 35 ORÐLAUSTÍSKA tiska@bladid.net mn Ég fór á sýningu í fyrra og var í hálfgerðu sjokki. Ég tók varla eftir fötunum því mér fannst þær svo grannar. Flottastar á hátíðinni Katherine Heigl Stjarnan úr sjónvarps- þáttunum Grey's Anatomy þótti bera af í hvítum kjól frá Zac Posen. Emmy-verðlaunaafhendingin fór fram á sunnudagskvöldið með pompi og prakt en á hátíðinni eru verðlaunaðar stærstu sjónvarpsstjörnurnar vestanhafs. Að vanda var rætt um best og verst klæddu leikkonurnar og þóttu nokkrar bera af að þessu sinni. Eva Longoria Desperate Housewives- leikkonan vekur alltaf athygli en hún klæddist pallíettukjól frá Kaufman Franco. America Ferrera Úr sjónvarpsþáttunum Ugly Betty þótti afburða smekkleg í blá- um kjól frá Monique Lhuillier. Elísabet Davíðsdóttir finnur íyrir breytingum í fyrirsætubransanum Fékk sjokk vegna mjórra fyrirsætna Fyrirsætan Elísabet Dav- íðsdóttir kveðst ánægð með vakningu varðandi ofurgrönnu fyrirsætuna og Ásta Kristjánsdóttir fagnar framtaki tísku- ráðs Bretlands varðandi áherslu á aukið heilbrigði. Eftir Haildóru Þorsteinsdóttur halldora@bladid.net Eftir dauða suðurafrísku fyrir- sætunnar Luisel Ramos, sem lést af völdum lystarstols á síðasta ári, hefur umræða um ofurgrannar fyr- irsætur verið áberandi og spjótin hafa beinst að fyrirsætubrans- anum varðandi miklar kröfur til holdafars. Umræðan hefur kallað fram mikil viðbrögð og nokkrar umboðs- skrifstofur og hönnuðir hafa beitt sér fyrir vakningu í þessum efnum. Þannig komst tískuvikan í Bret- landi í hámæli sökum nýrra reglna þess efnis að fyrirsætur undir 16 ára aldri séu bannaðar á sýningar- pöllunum, en áður höfðu ítalskir og spænskir fatahönnuðir ákveðið að sniðganga fyrirsætur undir þyngd- arstuðlinum 18. (sjokki á tískusýningu Fyrirsætan Elísabet Davíðsdóttir segist finna mikinn mun frá því sem áður var þegar kemur að kröfum til holdafars fyrirsætna. „Það hefur orðið mikil breyting frá því ég byrjaði í þessu. Fyrirsæt- urnar eru yngri og grennast með hverju ári. Ég fór á sýningu í fyrra og var í hálfgerðu sjokki. Ég tók varla eftir fötunum því mér fannst þær svo grannar," segir Elísabet og bætir við að tískuvikurnar séu hættulegastar. „Þá taka fyrirsæturnar 2-3 mánaða törn, sem getur verið ansi hættulegt því þér getur fundist þú Of langt gengið á köflum Fyrirsætan Elísabet Davíösdóttir segist finna mikinn mun á útliti fyrirsætna í dag. feit innan um þessar stelpur. Sumar léttast um tíu kíló á þessum tíma.“ Foreldrar þurfa að vera meðvitaðir Aðspurð um íslenska fyrirsætu- bransann segist Elísabet þess fullviss að hér á landi sé allt annað uppi á teningnum. „Eg held að þær séu yfirhöfuð frekar heilbrigðar. Þar er þetta líka miklu minna en í New York og öðrum borgum, auk þess sem við erum ekki með þessar stóru tísku- sýningar sem gera mestu kröfurnar um mjóar fyrirsætur. Ég hef alla- vega ekki séð neitt á íslandi eins og maður sér úti,“ segir Elísabet. Hún bendir á mikilvægi þess að foreldrar sendi stelpur ekki ungar út til fyrirsætustarfa. „Ég hef persónulega alltaf verið ósammála því að senda stelpur of ungar út. Ég hef séð margar stelpur fara illa út úr því vegna þyngdar- innar, eiturlyfja eða annars.“ Fagnar framtakinu Ásta Kristjánsdóttir, einn eigenda fyrirsætuskrifstofunnar Eskimo, segist fagna framtaki Tískuráðs Bretlands varðandi áherslu á aukið heilbrigði fyrir- sætna og lágmarksaldur. „Auðvitað vonar maður að þetta sé að breytast og kröfurnar verði minni. Reyndar hefur breiddin aukist þannig að bæði er verið að nota mjó módel og stærri módel og allt þar á milli. Sem dæmi eru reknar svokallaðar plus size-deildir í mörgum erlendum stofum sem ganga mjög vel,“ segir Ásta. „Varðandi tískuvikuna í Bret- landi þá finnst mér þetta frábært framtak, enda getur þetta haft þau áhrif á auglýsendur að þeir biðji síður um ofurgrannar fyrir- sætur. Hingað til hefur krafan á tískusýningum erlendis verið 90 cm mjaðmir og 60 cm mitti, en ef erlendir fatahönnuðir fara að bóka fólk í öðrum málum þá er það hið besta mál. Auðvitað kemur krafan frá kúnnunum og við þurfum þá að svara eftirspurninni. Hins vegar má ekki gleyma því að lang- flestar fyrirsætur eru einfaldlega grannar frá náttúrunnar hendi og það verður að passa sig á því að tala ekki alltaf um átröskun þegar kemur að mjóum konum,“ segir Ásta að lokum. Ánægð með framtakið Ásta Krist- jánsdóttir hjá Eskimo segir ákvörðun Tískuráðs Bretlands frábært framtak. Lily heimildar- laus í Chanel Poppstjarnan Lily Allen ætlaði að bæta við fataskápinn á dög- unum en varð svo sannarlega ekki kápan úr því klæðinu. Söngkonan heimsótti Chanel-verslun og tók saman góðan fatabunka, en þegar afgreiðslustúlka ætlaði að taka við greiðslu var kortinu hafnað sökum heimildarleysis. Allen mun hafa falast eftir láni fram á næsta dag og gekk á braut eins og epli í framan. „Kortinu mínu var hafnað og þegar ég ætlaði að hringja í bank- ann varð síminn minn batteríslaus. Þetta var mjög niðurlægjandi og ég þurfti að koma aftur næsta dag með greiðslu," sagði söngkonan í samtali við The Sun og bætti við að óheppnin elti hana á röndum þegar kemur að tísku. „Ég á þvílíka sögu um óheppni þegar kemur að fötum og öllu tískutengdu. Nokkrir hönnuðir eru hættir að lána mér föt því að ég lendi alltaf í einhverju. Christian Louboutin vill ekkert lána mér af því að hundurinn minn nagaði skóna sem hann lánaði mér og svo setti ég leðju í kjól sem Julien Macdonald lánaði mér. Hann var heldur ekki mjög ánægður.“ llbelladonnaii Flottar jyfirhafnir Stærðir 42-56 Jk U 4 I © Skeifan 11 d • 108 Reykjavík sími 517 6460 www.belladonna.is Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Gl.e:raugnave:rsl.«jn G A RÐ A B Æ J A R Garðatorg 1 SfMI 534 2661 OPIÐ KL. 10-18 ALLA VIRKA DAGA Laugardaga KL. 11-14 Sjónmæli ngar — Linsum át u n Líttu við hjá okkur ug fáðu faglega ráðgjöf BjDöum barna-

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.