Orðlaus - 01.08.2005, Blaðsíða 22
FARÐAR..
STORSTJORNURNAR
Karólína starfar sem förðunarfræðingur hjá MAC. Hún hefur ferð-
ast um allan heim, farðað fyrir auglýsingar, tískusýningar og unnið
með fremstu artistum heims á borð við Gucci, Naomi Campell og Yv-
es Saint Laurent. I stuttu stoppi sínu hér á landi gaf hún sér tíma til
að fræða lesendur Orðlaus um starfið og tískustraumana í vetur.
„Ég byrjaði i bransanum fyrir svona 23 árum. Eftir að hafa verið í skóla
fór ég að vinna fyrir Yves Saint Laurent í París sem var mér mikil lífs-
reynsla. Síðan hef ég fengið mikla þjálfun í vinnu minni hjá MAC" segir
Karólína, en hún hefur starfað sem förðunarfræðingur hjá þessu virta
meki í fjölmörg ár og kemur hingað til lans með reglulegu millibili til
að kenna íslenskum MAC-stelpum allt það nýjasta í förðuninni.
TIPS
Nú er samkeppnin gífurleg í þessum bransa og mik-
ið af ungu fólki nýkomið úr skóla sem vill starfa á
þessu sviði. Hvað er það mikilvægasta sem hafa ber
í huga ef maður vill ná langt?
Það eru margar mismunandi leiðir til þess að ná langt í
þessu fagi. Þegar þú kemur út úr skólanum átt þú eftir að
læra mikið og þarft að fara að hugsa vel og vandlega um
það hversu mikið þú vilt þetta. Margir byrja sem aðstoðar-
menn fyrir förðunarmeistara og læra þannig, en það er
mikil vinna. Þú þarft að hringja og hringja, vinna frítt í ein-
hvern tíma og vera ágeng, einbeitt og síðast en ekki síst
mjög raunsæ. Það kemur enginn og bankar uppá hjá þér
og bíður þér vinnu, þannig virkar þetta ekki. Þetta snýst
einnig mikið um að koma sjálfum sér á framfæri og til þess
verður þú að geta talað við fólk þar sem vinnan snýst um
að starfa með módelum, Ijósmyndurum og örðum förðun-
armeisturum.
En þetta hlýtur að vera erfitt.
Já, þetta er ekki eintómt glys og glamúr heldur mikil
vinna. Það getur verið erfitt að vinna á stórum tískusýn-
ingum þar sem er mikið stress og fólk fer að öskra á þig.
Þá er mikilvægt að vera sterkur því að það er alltaf einhver
sem vill fá starfið þitt ef þú gefst upp. Þegar ég var að
byrja að vinna í Þarís þá man ég að ég læddist inn á bað
og hágrét, en aldrei þannig að neinn sæi til. Af þessu lærir
maður samt alveg heilmikið. Þetta er bisness og þú lær-
ir af öllum mistökum sem þú gerir og verður færari fyrir
vikið. Ég elska þessa vinnu og ég myndi ekki vilja skipta á
henni og neinu öðru.
Hvað er mesta áskorunint?
Þetta er erfið spurning sem ég held að sé best að útskýra
með dæmi. Þegar ég var að vinna að tískusýningu með
Tom Pecheux, sem er stór meiköppartisti þá sá hann um
að hanna útlitið í sýningunni. Síðan þurfti ég að farða
módelin í stílnum sem hann bjó til sem getur verið svolítið
erfitt. Þá þurfti ég að skapa förðunina sem hann vildi fá
fram, og þar sem hver og einn förðunarmeistari er með
sinn eigin stíl getur verið erfitt að setja sig í spor annarra
og finna út hvað hann sé að hugsa.
Hvað eiga allar stelpur að eiga í snyrtibuddunni?
Mikilvægast af öllu er að hugsa vel um húðina og það ger-
irðu með góðu rakakremi. Til þess að gera húðina fallegri
er hægt að nota litað dagkrem ef þú vilt ekki nota meik
og setja bólu- og baugafelara á hökuna, undir augun og í
kringum nefið. Auk þess er gott að hafa varagloss og ma-
skara í buddunni.
Hvað verður „inn" í vetur?
Náttúrulegt útlit er málið í vetur. Sett er smá gljái á kinn-
arnar með sólarpúðri og mikið um brons og skugga. Einn-
ig verða sterkir varalitir vinsælir.
Karólína gefur lesendum Orðlaus nokkur góð
ráð að lokum.
• Mikilvægt er að æfa sig og finna út sjálf hvað virkar fyrir
þig. Þú þarft ekki alltaf að fylgja tískunni og ef þér finnst
ákveðnir litir sem eru „inn" ekki passa þér, ekki nota þá.
• Þú átt alls ekki að setja púður á allt andlitið á þér því þá
virkar húðin á þér eldri. Þú átt að setja púður á ennið og nef-
ið en alls ekki á kinnarnar. Það er mun fallegra að húðin virki
heilbrigð og glóandi.
• Ekki vera i öllum litum eins. Ef þú ert til að
mynda í bleikum kjól með bleikan augnskugga
og varalit þá lítur þú fremur skringilega út. Til
er nokkuð sem kallast litahjól sem sýnir þér
hvaða litir virka saman og þá er hægt að finna
út flott heildarútlit. (Sjá litahjólið hér til hliðar)
• Algengur misskilningur er að blár maskari dragi fram blá-
an lit í augunum sem er þó ekki raunin. Appelsínugulur litur
dregur mun meira fram blá augu og hægt er að ýkja augnlit-
inn með því að setja til dæmis einhvers konar appelsínu- eða
ferskjulitaðan tón á varirnar.
• Ef þú vilt að augun á þér virki stærri, ekki setja þá ælæn-
er í kringum augun. Settu hann bara ofaná augun og stækk-
aðu þau enn meira með því að setja smokey augnfarða á
augnlokin.
MOJITO kvöld
alla fimmtudaga á
Thorvaldsen Bar
flott tónlist, flott fólk og þú!
# DJ Ema & Ellen 11. ágúst
# DJ Palli 18. ágúst
# DJ Kobbi mastermix jr. 25. ágúst
FINLANDIA Hi0bna
p/'r’SfÁ'Ái/.'f/
Thorvaldsen Bar
.mg uaspiBAJOtu