Orðlaus - 01.08.2005, Page 31
Gunnar: „Sjáðu þetta tæki, þetta litla tæki,
á stærð við sígarettupakka, gerði starf vita-
varðarins úrelt."
-Jahérna. Hvað er þetta, Ijósnemi?
Gunnar: „Já [setur hendina fyrir nemann,
vitinn blikkar í kvöldsólinni]. Það kom fleira
til, sólarorka og svona, en þetta er aðal-
ástæðan fyrir því að það er ekki vitavörður
hér lengur. Súrt að vera leystur af af svona
litlu rafmagnstæki"
There is a number
of small things
Ef þú leggur upp frá esso-nesti bensínstöð-
inni á Árvendarðu á (safirði. Og ef þú heldur
áfram þaðan, í svona tuttugu mínútur, ertu
staddur í Bolungarvík. Þaðan keyrirðu yfir
heiði, framhjá afleggjaranum að Bolafjallsr-
atsjárstöð, og kemur niður í fallegri vík, hún
heitir Skálavík. Á einum tíma, úti í vegkanti,
með bónuspoka í hönd, stendur brúnleitur
maður með húfu; kemur á daginn að hann
heitir Seiichiro lchikawa og er 21 árs gamall
ferðalangur frá Tókýó sem hefur dvalið ein-
samall í víkinni síðustu daga. Og haldirðu
áfram í tvo til þrjá tíma, yfir hamrabelti og
fjallagarð, handan hóla og hæða, finnur
þú Galtarvita. Leiðin er stutt ef lygnt er til
heiða og sólin skín, eða máninn. Þar dvelur
hljómsveitin múm - þarnæstfrægusta tón-
listarfólk Islands - yfir sumartímann, heil-
brigð og hraust í kjólum og buxum dunda
þau í húsinu við vitann í leit að lögum og
minningum. Og líka bara í fríi.
Green grass of tunnel
„Mooooom? Really? And we see them play
their instruments?"
-Yeah, I guess so...
„Really! Ahahahahaha!"
Eftir þessi orðaskipti ákvað Tókýóbúinn
Seiichiro lchikawa að slást í för með þeg-
ar-þreyttum ferðalöngum (undirrituðum,
ásamt íðilfagurri, íturvaxinni heitmey hans,
sem ákveðið höfðu að ganga yfir á Galtar-
vita og freista þess að ná tali af múmíum og
lagsfólki þeirra. Það er langt síðan heyrst
hefur í þeim af ráði í íslenskum fjölmiðlum,
þau eru áhugavert fólk og það sem það hef-
ur að segja á vissulega erindi við lesendur
tímarita. Og lchikawa San reyndist ágætis
ferðafélagi, þrautreyndur fjallamaður með
húmorinn í lagi, þrátt fyrir stöku vandræða-
leg tungumálaörðugleika augnablik (og
það eru í alvöru til tveir eða fleiri ólíkir
menningarheimar), var ekki hægt að hugsa
sér vinalegri eða betri mann til þess að eyða
allnokkrum klukkustundum af heiðargöngu
með.
Oh, how the boat drifts
-Eru þið vinsæl hljómsveit?
Gunnar: „Nei, við eigum enga óvini, en
þónokkra aðdáendahópa dreifða um heim-
inn; japanskar stelpur, Pólverja sem kalla
sig skrýtnum nöfnum eins og Björkcure [sú
er víst eindreginn aðdáandi Bjarkar og The
Cure]. Svo er fullt af einhverju liði í Portúgal
sem fílar okkur rosa vel."
Kristín: „Fyrirkomulagið okkar er svaka
skemmtilegt, við erum hjá litlu plötufyrir-
tæki sem sér þó um að koma tónlistinni út
til fólks sem hefur áhuga á henni, þannig
getum við ferðast um heiminn og spilað
fyrir fólk sem hefur áhuga á okkur, án þess
að vera eitthvað megafræg með tilheyrandi
vandræðum."
Gunnar: „Við stöndum ágætlega, held ég.
Peningalega, þá er mánaðarspursmál hvort
við þurfum að fara í bæjarvinnuna eða ekki,
við erum ekki að moka inn seðlum. Stærsti
kosturinn við þetta allt, eins og áður sagði,
er að við getum ferðast og spilað hér og
þar.
Á bakvið tvær hæðir
í stuttri bjór- og nestispásu uppi á heiði
Ijóstrar Japaninn upp um það að foreldrar
hans hafa ekki hugmynd um hvar hann er í
heiminum. Hann bókaði sér bara flugmiða
til íslands einn daginn, keypti sér hjól í
Reykjavík og fór af stað. Mánuðurinn hans á
landinu hefur verið skrýtinn, erfiður, mildur
og Ijúfur. Hann sér ekki eftir neinu. Við höld-
um göngunni áfram og þrátt fyrir að á tíma
virðist leiðin aldrei ætla að enda sjáum við
loks móta fyrir gulum vita í fjörunni, kvöld-
sólin skín og engir bátar þarfnast leiðsagnar
hans strax.
Það er um tíuleytið sem þessi fjölþjóðlegi
hópur ber að dyrum í litla húsinu við vitann.
Krakkarnir í múm (reyndar án trommuleikar-
ansSamuli Kominem, semnúerorðinnfastur
meðlimur í sveitinni) ásamt Erin, bandarískri
kærustu Gunnars, taka vel á móti okkur og
fyrr en varir erum við sest í eldhúskytru í
þessum gamla vitavarðarbústað sem knúinn
er áfram af lítilli díselrafstöð úti í gripahúsi.
múm reynast prýðilegir gestgjafar, boðið
er upp á kaffi og vodkastaup meðan Krist-
ín eldar Ijúffengan grænmetis- og tófúrétt
fyrir mannskapinn, svo meðan hann mallar
á pönnu sýna múmdrengirnir okkur hvernig
umhorfs er í vitanum og nágrenni. Ljúffeng-
ur maturinn er þá innbyrtur, sígarettur rúll-
aðarog þegarforláta rabbarbarakaka hefur
loks verið sett í ofninn hefst hið eiginlega
viðtal.
Random Summer
-Eruð þið að taka upp plötu hérna I vitan-
um?
Gunnar: „Við erum að semja plötu hérna,
ætluðum allavega að reyna það. Við vinnum
yfirleitt þannig að við tökum upp smátt og
smátt og þrengjum svo hringinn. Oft þegar
við höfum komið hingað áður höfum við ver-
ið komin lengra á veg, núna byrjum við bara
á núllinu, með engar lagahugmyndir eða til-
búna tónlist..."
Örvar: „Byrjuðum bara tabúlaraþa. Tabúla
raþa! Við erum búin að vera í sitthvorum
heimshlutum síðustu mánuði og höfum því
ekki hangið eins mikið saman og við erum
vön. Ég var í Tékklandi og Gunnar á íslandi,
Kristín var hér og þar, aðallega í Bandaríkj-
unum.
Kristín: „Ég var bara að gera hitt og þetta
þar. Ég var að spila á píanó á plötu með
hljómsveit sem heitir Animal Collective, ég
spila á píanó á plötunum þeirra. Svo var ég
að æfa og túra með annarri amerískri hljóm-
sveit, vinum okkar Mice Parade [sú er vænt-
anleg hingað á Krútthátíðina]. Við hittumst
svo loksins öll í Amsterdam í júní og vorum
saman í tíu daga þar að gera skemmtilegt
verkefni með þarlendri kammerorkestru."
Gunnar: „Það var mjög skemmtilegt verk-
efni. Kammersveitin spilaði verk eftir grískt
tónskáld sem heitir lanni Xenakis og við
sáum um millispilið, interlúdurnar. Þetta
var virkilega áhugavert, sérstaklega hvern-
ig tónlistin okkar tónaði við verk Xenakis,
sem eru mjög aggressíf og fókuseruð. Það
er aldrei að vita hvað við gerum við þetta,
allavega tók Hollenska ríkisútvarpið þetta
upp svo það gæti vel verið að þetta kæmi
einhverntíman á plast. En já, svo komum við
hingað fyrir svona þremur vikum og höfum
unnið að okkar tónlist síðan, ásamt öðru."
-Hvernig hefur gengið?
Kristín: „Bara ágætlega, takk fyrir. Veðrið
hefur verið leiðinlegt upp á síðkastið og því
höfum við eytt meiri tíma innandyra en hin
skiptin okkar hérna. Það hefur alltaf verið
magnað veður en núna er búið að vera brjál-
æðislega hvasst, blautt og skýjað. Það er
reyndar alveg frábært líka."
-Þið gerið nú varla mikla tónlist uiandyra?
Gunnar [hlæjandi]: „Jú það er nefnilega
alveg hægt. Við keyptum alveg sérstakar
græjur til þess núna, svona útitölvur. Gore-
tex útitölvur."
Nú snýr óttinn aftur
Talið berst að fyrstu stóru plötu sveitarinn-
ar, hinni mögnuðu Yesterday Was Dramatic,
Today is OK, sem hefur verið ófáanleg til
kaups í lengri tíma (og hversem hefur reynt
að afgreiða lopaklædda þýska eða franska
íslandsvini í bóka-, plötu- eða túristaversl-
unum getur vottað fyrir að það er alls, alls
ekki nógu gott). Upp úr krafsinu kemur að
ætlunin er að endurútgefa plötuna í haust,
nokkuð sem er múm mikið gleði- og fagnað-
arefni. Segir Gunnar: „Yesterday er einmitt
að koma út núna í haust, við vorum að vinna
réttinn að henni aftur frá Thule og erum ro-
salega ánægð með það. í þetta skiptið kem-
ur hún út hjá Morr music. Þetta er mjög heil-
brigt fyrir okkur, held ég, að fá hana gefna
út hjá vini okkar sem við treystum. Það eru
búin að vera svo mikil leiðindi í kringum allt
þetta Thule vesen.
-Já, það var eitthvað vesen þar. Hvernig
stóð á því?
G: Ja, sko, ætli sé ekki best að segja að sam-
starf okkar við Thulemusik hafi bara ekki
gengið upp sem skyldi og eins og við höfð-
um vonað. Það voru viss atvik sem gerðu úts-
lagið varðandi það."
Kristín: „Það særði okkur mjög mikið þeg-
ar fyrirtækið seldi lag frá okkur í auglýsingu
í Ameríku án þess að ráðfæra sig neitt við
okkur eða einusinni segja frá því. Við erum
alfarið á móti því að selja tónlist í auglýsing-
ar og því kom það eins og blaut tuska í and-
litið á okkur þegar vinur okkar í Ameríku
hringdi og sagði okkur af því að við værum
allt í einu farin að auglýsa Sony tölvur í sjón-
varpinu. Við náðum að stoppa þær af, en
ekki fyrr en það var búið að sýna þær í smá
tíma. Við tók eitthvað leiðindaferli sem loks
nú sér fyrir endann á."
The ballad of
the broken string
-Af hverju finnst ykkur slæmt að selja tón-
listina ykkar I auglýsingar?
Örvar: „Það eru margar ástæður fyrir því."
Gunnar: „í fyrsta lagi er auglýsingaiðnað-
urinn mjög vafasamur." Kristín tekur undir:
„Hann er bara algjörlega laus við allt sið-
ferði og móral. Þessi iðnaður er farinn að
vera svo aggressífur í samfélaginu okkar, í
Reykjavík tekurðu ekki strætó án þess að
þrjátíu símauglýsingum sé troðið í andlitið
á þér." Gunnar tekur aftur við og Ijóst er að
hljómsveitin múm hefur vægast sagt sterk-
ar skoðanir á auglýsingabransanum. „Það
er rosalega leiðinlegt fyrir fólk sem hefur
myndaðeinhverja nálægðviðtónlistinaokk-
ar ef við eyðileggjum það samband með því
að setja hana í samhengi við einhverja vöru
og gera hana sjálfa þannig að söluvöru eða
auglýsingu. Mér þótti t.d. voða leiðinlegt
að sjá Múgison í einhverri bílaauglýsingu
hérna um árið."
Kristín: „Þegar tónlistarfólki er farið að
bjóðast að selja lög í auglýsingar er það yfir-
leitt þegar komið á þannig stað aðfólk kaup-
ir plöturnar þeirra og mætir á tónleika. Það
er móðgun við það fólk að þú sért að taka
við einhverjum peningum frá auglýsingafyr-
irtæki, bara til að selja því meira dót. Að sjá
áheyrendur og aðdáendur sem markhóp."
„Svo er líka svo sorglegt að skapandi fólk
þurfi að vera að eyða allri orkunni í þetta,
safna styrkjum og semja bílastef. Fyrir svona
fjórum, fimm árum, þá voru allir sem mað-
ur þekkti að vinna á auglýsingastofu. Gott
og hæfileikaríkt fólk að eyða kraftinum í að
selja morgunkorn og heimabíó," segir Örvar
og Gunnartekurundir; „þaðersorgleg stað-
reynd að allir sem eru skapandi skuli vera að
vinna í því að gera eitthvað klám til að selja
fólki eitthvað sem það þarfnast ekki."
Kristín: „Þegar maður hugsar út í það, þá
er öll hvatningin að svona vinnu, hanna eitt-
hvað lógó eða skapa einhverja ímynd, sprott-
in af því að selja einhverja vöru og það verð-
ur aldrei neitt heilbrigt við svoleiðis hvata,
verkið verður alltaf afskræmt af því. Þú
"Það er rosalega leiðinlegt fyrir fólk sem hefur
myndað einhverja nálægð við tónlistina okkar ef
við eyðileggjum það samband með því að setja
hana í samhengi við einhverja vöru og gera hana
sjálfa þannig að söluvöru eða auglýsingu."
31