Bændablaðið - 29.04.2008, Page 2

Bændablaðið - 29.04.2008, Page 2
2 Bændablaðið | Þriðjudagur 29. apríl 2008 Fréttir Frá aðalfundum eggja- og kjúkl- ingabænda Aðalfundur Félags eggjafram- leiðenda var haldinn 21. apríl síðastliðinn. Gestir fundarins voru Halldór Runólfsson yfirdýralæknir og Sig- urður Eyþórsson framkvæmda- stjóri. Stjórn Félags eggjaframleið- enda skipa: Þorsteinn Sigmundsson Elliðahvammi, formaður. Geir Gunnar Geirsson, Gísli Grímsson, Jón Hermannsson og Haukur Hall- dórsson. Aðalfundur Félags kjúklinga- bænda var haldinn 21. apríl síðast- liðinn. Ný stjórn var kjörinn og skipt- ir hún með sér verkum. Formaður stjórnar er Skúli Einarsson Tann- staðarbakka. Meðstjórnendur: Jón M. Jónsson, Matthías H. Guð- mundsson, Helga Hólm og Eggert Gíslason. Framkvæmdastjóri Félags eggjaframleiðenda og Félags kjúk- lingabænda er Hildur Traustadóttir. Með hækkandi sól margfaldast notkun á gasi þegar fólk fer í úti- legu, hvort heldur er á bílum með húsvagna, fellihýsi eða tjaldvagna í eftirdragi, eða bara í tjaldi upp á gamla mátann. Því miður hafa alvarleg slys átt sér stað vegna þess að fólk hefur ekki farið rétt að við notkun á gasi. Bændablaðið ræddi við Ágúst Ágústsson hjá Vinnueftirliti ríkisins um þessi mál. Vinnueftirlitið hefur eftirlit með ákveðnum atriðum er varða notkun á gasi. Ágúst segir Vinnueftirlitið sjá um að gaskút- arnir séu eftir lögum og reglum og sömuleiðis áfyllingarstöðvarnar, sem sjá um að fylla á kútana. Hann segir nú aðallega tvær stöðvar sjá um áfyllingu á gaskúta, en það eru Gasfélagið og Ísaga. Vegna þess, hve reglur um gasáfyllingu séu orð- nar stífar, hafi stöðvunum fækkað. Reglur um gaskúta Til eru reglur um kútana sjálfa og eru þeir skoðaðir einu sinni á ári og séð um að allt sé eins og það á að vera. Áfyllingarstöðvarnar þurfa að fara eftir ákveðnum reglum þegar kútar koma inn til áfyllingar. Kannað er hvort allt sé eins og það á að vera með ástand kútanna, bæði aldur þeirra og útlit, og hvort þeir hafi orðið fyrir hnjaski. Ágúst segir að þótt menn haldi að gaskútar end- ist í það óendanlega sé raunin sú, að þeir endist ekki nema í 10 ár eða svo. Vinnueftirlitið hefur sem sé eftirlit með kútunum, áfylling- arstöðvunum og öllum gaslögnum, þar sem þarf að fara eftir ákveðnum reglum og stöðlum. Varðandi inn- flutning á gastækjum eru til reglur „um tæki sem brenna gasi“. Vinnueftirlitið hefur eftirlit með þessum tækjum, fer í þær verslanir, sem selja búnaðinn, skoðar hann og gerir kröfur um að honum fylgi leið- beiningar á íslensku. Leiðbeiningar á íslensku eiga að fylgja öllum gasbúnaði, hvaða hluta af honum sem er. Vinnueftirlitið hefur einnig eftirlit með atvinnueldhúsum sem nota gaseldavélar. Séð er til þess að þar séu gasskynjarar, rétt loftræst- ing og fleira. Eldvarnaeftirlitið Þegar kemur að einstaklingum úti í bæ lýkur valdsviði Vinnueftirlitsins og við tekur Eldvarnaeftirlit Brunamálastofnunar. Ef menn setja upp gaseldavélar heima hjá sér eru til sérstakar reglur hjá byggingafulltrúa, sem fara verður eftir, og Eldvarnaeftirlitið kemur þar að. Það er líka með leiðbein- ingarbæklinga um meðferð gas- tækja, til að mynda í húsbílum og húsvögnum. Varðandi bifreiðar sem ganga fyrir gasi hefur Vinnueftirlitið ekk- ert í sínum reglum hvað þær varðar, enda þótt víða sé vilji til þess að Vinnueftirlitið taki þetta undir sinn væng. Nú líður að því að gasknúnir bílar hér á landi fari í skoðun sam- kvæmt alþjóðlegum stöðlum. Þá þarf Umferðarstofa að vera komin með í sínar handbækur hvernig það skuli gert. Ágúst segist vonast til að þá verði tekið á öllum gasmálum, alveg út í hörgul.-S.dór Kjúklingabændur, rétt eins og svínabændur, munu lenda í mikl- um erfiðleikum þegar innflutn- ingur til landsins á hráu kjöti verður leyfður haustið 2009. Matthías H. Guðmundsson er framkvæmdastjóri Reykjagarðs og fyrrverandi formaður Félags kjúklingabænda. Hann segir að kjúklingabændur þurfi að nýta tímann vel fram til haustsins 2009 til að skoða sín mál, því að ákveðna þætti þurfi að laga áður en innflutningurinn hefst. „Við búum við töluvert hærra fóðurverð en kjúklingabænd- ur innan ESB. Þá erum við með ákveðna einangrunarskyldu varð- andi eggjainnflutning, sem er kostnaðarsamara en hjá kollegum okkar ytra. Svo í þriðja lagi eru sjúkdómavarnir hér á landi meiri en annars staðar. Þessum miklu sjúk- dómavörnum verður kastað fyrir róða þegar farið verður að flytja inn kjúklingakjöt frá Evrópulöndum. Það er margt sem þarf að takast á við vegna þessa og það verður erf- itt,“ segir Matthías. Erfitt að standast samkeppnina Aðspurður hvort hann telji íslenska kjúklingaframleiðendur standast samkeppnina þegar að innflutn- ingnum kemur segir Matthías að hann óttist að það verði afar erfitt. Hann á allt eins von á því að fækka muni í greininni hér á landi ef ekki verði létt af þessum mikla kostnaði í rekstrarumhverfi kjúklingabænda. „Þá óttast ég að greinin sé dauðadæmd frá fyrsta degi,“ segir Matthías. „Varðandi fóðurbæt- inn er verið að afnema kjarnfóð- urgjaldið sem á honum hefur verið til verndar fyrir fóðuriðnaðinn. Hann fellur niður 1. maí. Við bindum vonir við að geta flutt inn tilbúnar blöndur. Hvort það verður ódýrara kemur svo bara í ljós en menn skoða þetta hver fyrir sig. Menn eru að skoða hvort og þá hvernig sé hægt að aðlagast þessu. Við fáum ekki nema rétt rúmlega ár til að laga okkur að aðstæðum. Svo þurfa menn úr öðrum kjöt- greinum að skoða sína stöðu, því þegar farið verður að flytja inn ódýrt kjúklingakjöt mun það hafa áhrif á aðrar kjötgreinar líka. Það er há spilaborg í þessu sem getur auðveldlega hrunið,“ sagði Matthías H. Guðmundsson.-S.dór Matthías H. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Reykjagarðs „Sjúkdómavörnum kastað fyrir róða þegar farið verður að flytja inn kjúklingakjöt“ Notkun á gasi getur verið vara- söm, sé ekki rétt að öllu staðið Vinnueftirlitið segir að þó menn haldi að gaskútar endist í það óendanlega sé raunin sú, að þeir endist ekki nema í 10 ár eða svo. Ljósm. TB. Miklar umræður hafa átt sér stað um væntanlegan innflutn- ing á hráu kjöti til landsins. Sitt sýnist hverjum í þessu máli eins og öðrum en þó munu þeir vera fleiri sem óttast þennan innflutn- ing, vegna hættu á dýrasjúkdóm- um og því, að innflutningurinn muni leika íslenska bændur grátt og ekki síður úrvinnsluiðnaðinn. Ingvi Stefánsson, formað- ur Svínaræktarfélags Íslands, var spurður hvort svínabændur væru farnir að undirbúa sig fyrir inn- flutninginn og sagði hann svo ekki vera. Ekki hægt að bregðast við þessu „Ég veit heldur ekki hvernig við ættum að taka á móti þessu enda er svo margt óljóst í málinu. Það eina sem er ljóst er, að þetta mun draga úr neyslu á íslensku kjöti. En samt sem áður getum við á þess- ari stundu ekki gert okkur grein fyrir því hversu mikil áhrif inn- flutningurinn mun hafa á íslenska kjötframleiðslu. Það er hins vegar ljóst að innflutningurinn mun hafa áhrif á okkar samkeppnisstöðu. Áhyggjuefnið í þessu er að það er svo margt í rekstrarumhverfi landbúnaðarins, og þar af leiðandi úrvinnsluiðnaðarins, sem er að breytast á sama tíma og innflutn- ingur á hráu kjöti er leyfður. Það er ekki nema rúmt ár síðan tollarn- ir voru lækkaðir um 40%,“ segir Ingvi. Hann bendir líka á að þegar matvælalöggjöfin taki að fullu gildi árið 2009 verði útflutnings- skylda á lambakjöti afnumin. Fram til þessa hafi innlendi markaðurinn gefið mun betra verð en fengist hafi fyrir lambakjöt á erlendum markaði. Þegar útflutningsskyldan verði afnumin muni því enn bæt- ast í samkeppnina á innlendum kjötmarkaði. Sjúkdómahætta „Hvað varðar okkur svínabændur, þá erum við með eftirlit á salmo- nellu í saursýni inni á búunum og stöndum sjálfir straum af kostnaðin- um. Svo erum við með tvíþætt eftir- lit á kjötinu í sláturhúsunum. Svona mikið eftirlit held ég að menn finni hvergi annars staðar. Það kom fram á heimasíðu Matvælastofnunar að þótt vottorð um salmonellulaust kjöt fylgi, sé ekki alltaf að marka það. Finnar keyptu bæði kjúklinga- og svínakjöt frá Evrópulandi í fyrra og því fylgdu vottorð um að kjötið væri alveg heilbrigt, en samt kom salmonella með þessu kjöti. Við óttumst að svona lagað geti gerst hér á landi,“ segir Ingvi. Varðandi væntanlegan innflutn- ing á kjöti segir hann mega gera ráð fyrir að smásöluverslanir muni sjá um hann. Nú er það svo, að þær eru með skilarétt á innlenda kjötinu þegar kemur að síðasta leyfilegum söludegi. Þetta kostar úrvinnslu- iðnaðinn fleiri hundruð milljóna kr. á hverju ári. Það mun ekki verða skilaréttur á innflutta kjötinu og Ingvi segist óttast að erlenda kjöt- inu verði því stillt upp fremst í hill- unum, en það innlenda notað til uppfyllingar fyrir aftan. Úr því sem komið er verður að leggja áherslu á að gildistöku frum- varpsins verði frestað og sá tími nýttur til að athuga hvaða áhrif inn- flutningur á fersku kjöti muni hafa á landbúnaðinn og úrvinnsluiðn- aðinn. „Þetta er grafalvarlegt mál, ekki bara fyrir bændur heldur allan úrvinnsluiðnaðinn og landbúnaður- inn hér á landi verður óhagkvæmari ef hann verður fyrir svona búsifj- um,“ sagði Ingvi Stefánsson.-S.dór Ingvi Stefánsson, formaður Svínaræktarfélags Íslands Innflutningur á hráu kjöti er graf- alvarlegt mál fyrir bændur Ingvi Stefánsson formaður Svínaræktarfélags Íslands um auk- inn innflutning á hráu kjöti: "Þetta er grafalvarlegt mál, ekki bara fyrir bændur heldur allan úrvinnsluiðn- aðinn og landbúnaðurinn hér á landi verður óhagkvæmari ef hann verður fyrir svona búsifjum". Franklín Georgsson matvæla- og örverufræðingur hjá Matís segir ómögulegt að segja til um hvort hætta sé á að staðfestum tilfellum salmonellu og kamfýlóbakter muni fjölga þegar farið verður að flytja inn ósoðið kjöt til landsins. Hann segir það alveg öruggt að í kjúk- lingum á markaði hjá Evrópusambandinu sé mun meira um þessa sjúkdóma en hér á landi. Þá sé spurning hvort við getum sett fyrirvara um þetta vegna þess hve ástandið varðandi salmonellu sé gott hér á landi, þá með þeim rökum að fá ekki mengað kjöt inn á markað sem sé ekki mengaður. Svíar og Finnar notuðu þau rök, þegar löndin gengu í Evrópusambandið, að þeir ættu ekki að þurfa að flytja inn kjöt frá löndum þar sem mengunin væri meiri en hjá þeim sjálfum og var tekið tillit til þeirra raka. Franklín segir því vera haldið fram að meiri hætta sé á salmonellu og kamfýlóbakter í löndum S-Evrópu. Þar séu fáar tölur til um þessi mál og Suður- Evrópubúar viti varla hvað kamfýlóbakter er. Hann segir að líklega séu staðfest tilfelli undir 10% af því sem raunverulega eigi sér stað. Það séu aðeins verstu tilfellin sem leitað sé með til læknis og eins geti fólk ætlað að liggja þetta úr sér, en fengið svo einhver eft- irköst. Varðandi eftirlit með innfluttu kjöti eru til ákveðnar reglur hjá ESB sem farið er eftir og þá á ekki að þurfa að skoða kjötið frekar þegar það er hingað komið. Það sama á að gilda varðandi matvæli sem flutt eru héðan til landa Evrópusambandsins. -S.dór Matarsjúkdómar Meira um sjúkdóma á meginlandinu

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.