Bændablaðið - 25.02.2010, Side 22
22 Bændablaðið | fimmtudagur 25. febrúar 2010
Á markaði
Yfirlit um framleiðslu og sölu ýmissa búvara
Bráðabirgðatölur fyrir janúar 2010
jan.10 nóv.09 feb.09 Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild %
Framleiðsla 2010 jan.10 jan.10 janúar '09 3 mán. 12 mán. m.v. 12 mán.
Alifuglakjöt 591.944 1.804.166 7.191.018 8,2 16,7 -0,7 26,5%
Hrossakjöt 100.482 466.802 980.259 -27,4 -14,9 -2,0 3,6%
Nautakjöt 332.366 958.700 3.767.161 1,9 8,0 5,0 13,9%
Kindakjöt 266 197.257 8.841.068 0,0 -8,4 -1,0 32,6%
Svínakjöt 485.600 1.524.726 6.337.012 -7,2 -9,0 -5,0 23,4%
Samtals kjöt 1.510.658 4.951.651 27.116.518 -1,6 1,6 -1,1
Mjólk 10.304.428 29.830.271 125.104.515 -4,3 -2,3 -0,9
Sala innanlands
Alifuglakjöt 582.431 1.722.376 7.179.319 6,8 12,0 -0,8 29,7%
Hrossakjöt 82.649 259.647 664.901 4,2 -7,6 -3,9 2,7%
Nautakjöt 330.236 941.273 3.767.583 4,5 7,1 4,9 15,6%
Kindakjöt * 324.353 1.029.152 6.264.472 0,9 -16,0 -11,6 25,9%
Svínakjöt 485.707 1.519.168 6.319.520 -7,1 -9,3 -5,3 26,1%
Samtals kjöt 1.805.376 5.471.616 24.195.795 1,2 -2,3 -4,3
Mjólk á fitugrunni 9.307.805 27.970.117 117.481.883 -2,0 2,8 0,7
Mjólk á próteingrunni 8.209.416 29.507.619 115.194.456 -4,5 4,1 2,8
* Sala á kindakjöti í hverjum mánuði er sala frá afurðastöðum til kjötvinnsla og verslana.
Framleiðsla og sala búvara í janúar
Framleiðsla á kjöti var 1,6% minni en í janúar í fyrra. Mest vegur 7,2% samdráttur í svínakjötsframleiðslu. Á
móti var 8,2% aukning í alifuglakjötsframleiðslu. Síðastliðna 12 mánuði hefur kjötframleiðsla dregist saman um
1,1%. Kjötsala var 1,2% meiri í janúar en á sama tíma ífyrra. Sala jókst á öllum kjöttegundum nema svínakjöti,
mest á alifuglakjöti um 6,8%. Síðastliðna 12 mánuði hefur kjötsala dregist saman um 4,3%.
Sala mjólkur var minni í janúar en sama mánuði 2009 en á móti kemur að virkir dagar voru 20 samanborið við
21, þar á meðal bar nýársdag upp á föstudag./EB
Kornverð
fer lækkandi
Heimsmarkaðsverð á korni hefur
lækkað nú í byrjun árs 2010 sam-
kvæmt meðfylgjandi grafi sem
birtist í Internationella Perspektiv
þann 19. febrúar sl. Það liggur þó
enn ofanvið kornverð í september
sl. þegar það var hvað lægst á sl.
ári. Annað graf sýnir síðan verð á
innfluttu byggi og maís til fóðurs
á árinu 2009. Alls voru flutt inn
9.190 tonn af byggi (meðal cif
verð 25 kr/kg) og 20.452 tonn af
maís (meðal cif verð 28 kr/kgsam-
kvæmt verslunarskýrslum
EB
!"#$$$%&%
Bandaríska tímaritið Food and
Wine fjallar um íslenskan mat á
þremur síðum í marshefti sínu
sem er nýkomið út. Þar er varpað
fram spurningu til bandarískra
lesenda hvort þeir eigi að borða
eins og Íslendingar – Should You
Eat Like an Icelander? er fyr-
irsögnin. Fyrir því eru veigamikl-
ar ástæður að sögn blaðsins því
íslenskur matur sé einhver sá
hreinasti á jörðinni.
Food and Wine er enginn snep-
ill því það nýtur virðingar sem eitt-
hvert vandaðasta rit fyrir matgæð-
inga í heimi. Það er því ekki lélegt
fyrir íslenska matvælaframleiðslu
að fá þau meðmæli sem grein
blaðsins felur í sér.
Í inngangi segir blaðamað-
urinn að óblíð náttúran hafi neytt
Íslendinga til þess að nýta allan
mat sem til féll og þess vegna hafi
orðið til ýmsir undarlegir réttir á
borð við kæstan hákarl „sem er
eini maturinn sem ég hef látið inn
fyrir mínar varir sem kom út aftur
samstundis,“ hefur hann eftir landa
sínum, eiganda þekkts fiskiveit-
ingahúss í Virginíu. En svo heldur
hann áfram:
„Nú á dögum gerir einangrun
landsins, studd af ströngum reglum
hins opinbera, þeim kleift að fram-
leiða einhvern hreinasta mat á jörð-
inni.“ Skýringuna á því telur hann
ekki síst vera þá að hér á landi
sé landbúnaður stundaður á fjöl-
skyldubúum en ekki sem stóriðja.
Auk þess séu hér dýrakyn sem hafi
varðveist frá landnámsöld. Kýrnar
framleiði til dæmis mjólk sem er
auðug af beta karótíni og úr henni
sé unnið alveg einstakt smjör og
ostar, að ógleymdu skyrinu.
Greinin skiptist í fjóra kafla sem
fjalla um lax og bleikju, lambakjöt,
mjólkurvörur og íslenska matargerð
í nútímanum. Allt fær þetta blaða-
manninn til að draga fram stóru
og jákvæðu lýsingarorðin. Af öllu
þessu dregur hann svo þann lær-
dóm sem vísað var til í upphafi að
sennilega hefðu Bandaríkjamenn
gott af því að taka upp mataræði
Íslendinga. Nú ættu þeir auðveldara
með það en áður þar sem Whole
Foods verslanirnar væru farnar að
flytja inn íslensk matvæli. Og til
þess að undirstrika orð sín bendir
blaðamaðurinn á að Íslendingar séu
langlífir, heilsugóðir og hamingju-
samir. Leyndardómurinn að baki
því sé áreiðanlega maturinn. –ÞH
Borðum eins og Íslendingar
Food and Wine segir að íslenski maturinn sé einn
sá hreinasti á jörðinni
Vísitala neysluverðs miðuð við
verðlag í febrúar 2010 er 360,9
stig (maí 1988=100) og hækk-
aði um 1,15% frá fyrra mánuði.
Vísitala neysluverðs án húsnæð-
is er 342,4 stig og hækkaði hún
um 1,33% frá janúar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
7,3% en vísitala neysluverðs án
húsnæðis um 11,0%.
Verðbólgumæling Hagstof unn-
ar er nokkuð yfir spám sérfræð-
inga sem gerðu ráð fyrir að hún
yrði 6,8-6,9% í þessum mánuði.
Þessu til skýringar er helst að
nefna að húsnæðisliðurinn stendur
nú í stað eftir mikla lækkun und-
anfarið, áhrif af útsölulokum og
töluverðar hækkanir á húsgögnum
og stærri heimilistækjum.
Síðastliðna tólf mánuði hafa
búvörur og grænmeti hins vegar
aðeins hækkað um 1.3%, þar af
hefur kjöt lækkað um 2,82%.
Innlendar vörur án búvara hafa
hins vegar hækkað um 11,7% og
innfluttar vörur um 15,6%. EB
Vísitalan mælist 7,3% á ári