Bændablaðið - 25.02.2010, Side 29
29 Bændablaðið | fimmtudagur 25. febrúar 2010
Hlakkar til fermingarinnar
Atli Snær Guðmundsson er 13
ára Kjósverji sem býr á bænum
Káraneskoti. Fyrsta minningin
er frá ferðum hans með pabba
sínum, Guðmundi Magnússyni,
í traktornum og er Atli ekki í
nokkrum vafa um það að hann
ætlar að feta í fótspor föður síns
og verða bóndi þegar hann verð-
ur fullorðinn.
Nafn: Atli Snær Guðmundsson.
Aldur: 13 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Káraneskot, Kjós.
Skóli: Klébergsskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hestur.
Uppáhaldsmatur: Nautakjöt.
Uppáhaldshljómsveit: Engin sér-
stök.
Uppáhaldskvikmynd: Avatar.
Fyrsta minningin þín? Að vera
með pabba í traktor.
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á
hljóðfæri? Nei, ég spila bara fót-
bolta á túninu og glamra stund-
um á gítar inni í herbergi.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Lesa um enska
boltann.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Bóndi.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar ég fékk fyrst að
rúlla með rúllusamstæðunni.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Læra stærðfræði.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í
vetur? Nei, bara ríða út með afa
og svo ætla ég að fermast í vor.
ehg
Atli Snær stundar tómstundir heima hjá sér með því að spila fótbolta á
túninu og glamra á gítar inni í herbergi.
Bændur!
Hugið tímanlega að vorverkunum
HiSpec haugsugur á flotmiklum hjólbörðum
Stærðir 10.000 til 12.000 lítra
Taðdreifarar, 2 stærðir
Öflug vacuumdæla
Fjöðrun á beisli
Vökvaopnun á topplúgu
Hraðtengi á barka
Sjálffyllibúnaður
Regnbyssa *
*
* Aukabúnaður
Bændur og búalið
Framleiðum hágæða einangrunargler sem sparar orku.
Sendum hvert á land sem er - stuttur afhendingartími.
Íslensk framleiðsla í 43 ár.
Glerskálinn - Smiðjuvegi 42 - Kópavogi - Sími 557 5580
Í útreiðartúr förum við
Á sunnudaginn næsta
Á helluskeifum að gömlum sið
Já verðið er það besta
Síminn er 8937050
Hestakerra til sölu