Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 10

Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 10
10 Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011 Oft velti ég því fyrir mér hvort Samkeppniseftirlitið, Neytendasamtökin, Neytenda- stofa, Talsmaður neytenda og einhver hluti Verkalýðs- hreyfingarinnar þrífist á mjög flóknum reglum sem erfitt er að skilja. Stundum eru ákvarð- anir teknar og sagðar í þágu neytenda, sem almenningi finnst að séu sér alls ekki til hjálpar eða upplýsandi. Nýjasta dæmið er afleiðing af aðgerðum Samkeppniseftirlitsins gegn for- verðmerkingum matvara. Nú vill enginn forverðmerkja af ótta við háar sektir og refsivöndinn. Nú eru hillumerkingar taldar full- nægjandi með kílóaverði og til þess er ætlast að neytandinn rogist með oststykkið eða lambalærið undir skanna til að sjá hvað bitinn kostar og reikna svo út stykkjaverðið. Verslunin sagðist vera á móti þessari breytingu, vegna þess að hún væri neytandanum óþægileg og best að gera samning við afurða- stöðina, um leið og samið er um kaupin á vörunni, um að verðmerkja hvert stykki þá því er pakkað. Verslunin taldi jafnvel að hún yrði þá að forverðmerkja hjá sér og það þýddi minnst 6 til 7% hækkun á afurðaverði til neytenda. Fokreiðir kúnnar Svo er hin hliðin að nú geti versl- unin leikið sér að verðlagi vörunnar frá morgni til kvölds, sé þannig hugarfar til staðar. Eftir breytinguna hef ég séð afleiðingarnar í bakaríinu mínu og verslunum. Þar hefur niður- felling forverðmerkinga á ostum og áleggi gert það að verkum að ég hef séð fokreiða kúnna skamma unglingana sem eiga að reikna verðið á handreiknivél, sem hefur staðið í afgreiðslufólkinu að klára og afgreiðslan tafist með biðröðum, sem Íslendingar þola alls ekki. Svo spyrja menn, hvaðan koma þessar reglur – eru þær frá ESB? – Nei, þær koma ekki þaðan. Koma þær frá Alþingi? – Nei, lögin standa enn og reglugerð í gildi sem kveður svo á að hvert stykki skuli verð- merkt. Er þá Samkeppniseftirlitið komið með löggjafarvald? Von er að spurt sé. Hækkar þetta verðið? Jæja, við búum í þjóðfélagi þar sem enginn má tala saman og allir eru grunaðir um svik eigi þeir samræð- ur,við líðum alltaf fyrir þessa fáu sem stela og hrekkja. Vonandi leiðir þessi breyting ekki af sér verðhækk- anir til neytenda. Ég skora á eftirlitsaðilana og verkalýðshreyfinguna að fylgjast vel með hvað breytingin hefur í för með sér. Hækkar hún verðið eða eykur hún samkeppnina og lækkar verðið til neytenda? Ég bíð spenntur og vil sem neytandi fá verðkönnun um málið fyrr en síðar. Fjársöfnun til styrktar íbúum Í Grímsvatnagosinu sem dundi á Skaftfellingum með öskumyrkri og miklu tjóni var stofnaður samstöðu- sjóður til fjársöfnunar til styrktar íbúunum á gossvæðinu þar sem tryggingum sleppir. Í náttúruham- förum standa Íslendingar saman og sýna stuðning í verki. Hér er ástæða til að minna á og þakka allt það mikla sjálfboðastarf björgunar- sveita, almennings og vinnufélaga sem gengu til verka með bændum og búaliði og íbúum á gossvæðinu. Ég fann það glöggt á íbúafundi á Kirkjubæjarklaustri hvað fólkinu fannst vænt um allan þann stuðning sem kom frá fólki og fyrirtækjum allsstaðar að af landinu. Stofnaður hefur verið reikningur í útibúi Arion banka á Kirkjubæjarklaustri fyrir söfnunina. Miðað er við upphæðir frá fyrirtækjum á bilinu 100 þúsund krónum til ein milljón. Þá er ein- staklingum velkomið að leggja fram frjáls framlög. Reikningsnúmer söfnunarinnar er: 317-26-2200. Kt.: 470788 1189. Að gefa gerir okkur öll að betra fólki, svo líður öllum svo vel að verki loknu. Ég þakka undirtektir og framlög fyrirtækjanna sem þegar eru búin að tilkynna um sín framlög. Guðni Ágústsson, framkvæmdastjóri SAM Þrífast þau á flóknum reglum? Fréttir Gómsæt, íslensk jarðarber eru aðeins brot af markaðssölunni hérlendis: Markaðurinn þolir vel aukna innlenda framleiðslu, að mati eigenda Silfurtúns Í Garðyrkjustöðinni Silfurtúni á Flúðum rækta hjónin Eiríkur Ágústsson og Olga Lind Guðmundsdóttir jarðarber, tóm- ata og rauðkál. Nú stendur yfir aðaluppskerutíminn á jarðarberj- unum en í heild eru framleidd í Silfurtúni um 8 til 10 tonn af jarðarberjum á ári og um 35 til 40 tonn af tómötum. Árlegur innflutningur á jarðar- berjum er verulegur. Á árinu 2010 voru flutt inn, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands, samtals rúm 246 tonn af ferskum jarðarberjum og ríflega 204 tonn af sykruðum (niður- soðnum) og frystum jarðarberjum. Samtals nemur jarðarberjainnflutn- ingurinn því um 450 tonnum á ári. Hjónin keyptu garðyrkjustöð- ina árið 2002 en garðyrkja hófst í Silfurtúni á sjöunda áratugnum. Fyrstu jarðarberin frá stöðinni komu á markað síðla sumars 1996. Jarðarberjaræktin í Silfurtúni þekur nú um 4000 fermetra gróðurhúsum. Eiríkur og Olga hafa undanfarin ár verið einu garðyrkjubændurnir á Íslandi sem hafa ræktað jarðarber fyrir íslenskan markað en það er nú að breytast. Fleiri garðyrkjubændur eru nú að prófa sig áfram í slíkri ræktun og þar á meðal er garðyrkju- stöðin Dalsgarður í Mosfellsdal, sem greint var frá í síðasta blaði. Aðeins brot af markaðsþörfinni „Það eru margir að fara út í að prófa jarðarberjaræktina. Innlenda fram- leiðslan er þó enn aðeins lítið brot af jarðarberjasölunni á Íslandi. Þá erum við ekki inni á markaðnum nema frá því í byrjun maí og fram í október, eða í um sex mánuði. Við náum því ekki inn á stór sölutímabil eins og stórhátíðir um jól og áramót. Ég veit ekki betur en að öll íslenska fram- leiðslan seljist strax og hún kemur á markað. Markaðurinn þolir því mun meiri framleiðslu hér innanlands og þá sérstaklega vor og haust,“ segir Eiríkur. Tvær uppskerur á sex mánuðum Jarðarberjaræktunin í Silfurtúni fer öll fram í gróðurhúsum sem flest eru plasthús án lýsingar. Við þessar aðstæður getur Eiríkur náð tveim uppskerum á sex mánuðum með því að víxla plöntum. Eftir fyrstu uppskeru er plöntunum skipt út og taka þá aðrar við sem gefa næstu uppskeru. Þá er hann að gera tilraunir með tegund sem gefur af sér stöðuga uppskeru allan tímann og þarf ekki að skipta út fyrir nýjar plöntur, sem sparar mikla fyrirhöfn. Hann segir að þessi tegund geti þó ekki komið alfarið í staðinn fyrir aðrar jarðar- berjaplöntur þar sem þær gefa ekki af sér eins stór og góð jarðarber. Stærstu vikurnar í jarðarberja- uppskeru Silfurtúns eru um og eftir miðjan júní. „Ætli við séum ekki að framleiða 8 til 10 tonn í góðu ári. Þetta er þó aðeins lítið brot af markaðsþörfinni.“ Eiríkur telur þó vel mögulegt að lengja framleiðslutímabilið með því að nota lýsingu. Til þess að það borgi sig telur hann þó að framleiðslan þurfi að vera mun stærri í sniðum og með betri nýtingu á hverjum fermetra en nú er. Bendir hann á að framleiðsla t.d. Hollendinga á jarðarberjum sé mun meiri á hverja flatareiningu en hér næst í takmark- aðan tíma ársins. Ástæðan er fyrst og fremst að tímabil nægilegrar dags- birtu í Hollandi er lengra. Mikil handavinna Jarðarberin eru töluvert viðkvæm í ræktun, berin eru því handtínd og flokkuð strax í umbúðir og send sam- dægurs í verslanir. Mikil handavinna er í kringum ræktunina allan tímann og er jarðarberjaræktin því verulega atvinnuskapandi. Hraðar hendur þarf síðan að hafa þegar uppskerutíminn nær hámarki, sem er frá miðjum júní og fram í júlí. Býflugur sjá um frjóvgunina Ræktunin er vistvæn en býflugur sjá um að frjóvga jarðarberjablómin. Tilbúnum áburði er haldið í lágmarki og lífrænum vörnum beitt í stað lyfja. Aðkoma býflugnanna skiptir því miklu máli varðandi hvernig til tekst með frjóvgun plantnanna. Eiríkur hefur ekki farið út í að nýta sér hunangsframleiðslu býflugnanna en segist hafa hugleitt að bjóða verðandi býflugnabændum að setja upp bú sín í gróðrarstöðinni og setja þannig á fót samvinnuverk- efni sem efldi hag beggja greinanna. Býflugur sjá einnig um að frjóvga tómataplönturnar en tómataræktin í Silfurtúni þekur um 1.500 fermetra í gróðurhúsum. Eins og í jarðarberja- ræktuninni eru tómatarnir handtíndir og er það gert jafn óðum og þeir ná réttum þroska eða annan hvern dag. Þá eru þeir flokkaðir og þeim pakkað í neytendaumbúðir sama dag og þeir eru tíndir og sendir beint í verslanir. „Ég er ekki með lýsingu í tómata- ræktinni heldur og uppskerutíminn er því mjög svipaður og í jarðarberja- ræktinni, eða frá enduðum apríl og út október. Ætli tómatauppskeran hjá mér sé ekki um 34 til 40 tonn á ári.“ Sjálfsafgreiðslumarkaður Silfurtún rekur einnig sjálfsaf- greiðslumarkað á jarðarberjum og tómötum í gróðrarstöðinni en þó aðeins í smáum stíl. Þar kemur fólk hvenær sem er dagsins, afgreiðir sig sjálft úr kæli stöðvarinnar og greiðir fyrir í kassa. Eiríkur segir ekki borga sig að vera með manneskju bundna yfir sölunni og þess í stað leggi hann einfaldlega traust á heiðarleika þeirra sem vilji versla við hann. Auðvitað hafi þó komið fyrir að óheiðarlegir einstaklingar hafi komið til hans til að næla sér í jarðarber og tómata, en það hafi helst gerst á nóttunni. Hann vill þó ekki gera mikið úr því og segir að vel yfir 99% þeirra sem komi í stöðina séu strangheiðarlegt fólk. Hindberin áhugaverð Auk jarðarberjaræktar hafa tilraunir hafist með ræktun hindberja hér- lendis. Eiríkur segist vissulega hafa áhuga á slíku enda ættu hindber að henta vel til ræktunar á Íslandi. Hann vill þó bíða og sjá hvernig frum- kvöðlunum reiðir af áður en hann fer út í slíka ræktun. „Ef það er hægt að rækta þetta hér þá eigum við að sjálfsögðu að gera það. Ég vona að það gangi vel hjá þeim sem eru að prófa þetta. Eftir því sem fleiri fara út í berjarækt hér- lendis þá gefur það frekar tækifæri á að fá til okkar erlenda ráðgjafa,“ segir Eiríkur. /HKr. Eiríkur Ágústsson garðyrkjubóndi á Flúðum hefur ræktað jarðarber um árabil með mjög góðum árangri. Mynd HKr. Í safni með Síðumönnum - DVD DVD, heimildarmynd um smölun á Síðumannaafrétti í Vestur-Skaftafellssýslu. Lengd: 53 mín, tal: Íslenska. - Texti: íslenska/enska/danska Verð: 2.900,- kr. Diskinn er hægt að panta á vera@vala.is Fæst einnig í vefverslun: www.vala.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.