Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 17

Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 17
16 Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011 Grasagarður Reykjavíkur fagnar 50 ára starfsafmæli sínu í sumar. Hann var formlega stofnaður 18. ágúst 1961, á 175 ára afmæli Reykjavíkurborgar, en hugmyndir um grasagarð í Reykjavík höfðu verið á kreiki frá 1905. Hildur Arna Gunnarsdóttir, fræðslustjóri Grasagarðsins, segir tildrögin að stofnun garðsins hafa verið þau að árið 1961 hafi hjónin Jón Sigurðsson, skólastjóri Laugarnesskóla, og Katrín Viðar píanókennari, gefið Reykjavíkurborg safn með 200 íslenskum plöntum sem þau höfðu safnað víðsvegar um landið. „Plöntunum var svo komið fyrir í tveimur aflöngum beðum á 700 fermetra svæði, sunnan við gróðurhús Ræktunarstöðvarinnar í Laugardal, og voru beðin afmörkuð og hólfuð með handhöggnum götusteinum. Þetta íslenska safn varð vísir að Grasagarði Reykjavíkur og miðast stofndagur garðsins við afmælisdag borgarinnar þegar tekið var við plöntunum.“ Nýtt svæði formlega opnað á afmælisdaginn Grasagarðurinn hefur á þessum tíma verið í stöðugri þróun. „Fyrst stækkaði hann hægt og rólega til vesturs í átt að Laugatungu – sem nytjajurtagarðurinn umlykur. Á áttunda áratugnum fékk garðurinn svo stóraukið rými – auk gróðurhúsa og uppeldisreita – þegar starfsemi Ræktunarstöðvarinnar var flutt til í dalnum. Aftur stækkaði garðurinn árið 1990 þegar trjásafnið í kringum tjarnirnar var opnað. Þá tvöfaldaðist garðurinn að stærð og hefur undanfarin ár verið um 2,5 ha að stærð og varðveitt um 5.000 tegundir, afbrigði og yrki. Þessa dagana er unnið að því að opna nýtt 2,4 ha svæði til viðbótar við safndeildir garðsins og verður nýja svæðið opnað almenningi í sumar í tilefni 50 ára afmælisins. Á nýja svæðinu verður bætt við trjásafn garðsins en þar verður tegundunum plantað saman eftir heimkynnum þeirra og raðað frá austri til vesturs. Þegar fram líða stundir er áætlað að auk trjásafnsins verði á svæðinu skipulagður fuglagarður, steinhæð og ný lyngrósabeð. Óformlega verður nýja svæðið opnað gestum á næstu dögum en svæðið er enn í mótun og ekki frágengið að fullu. Svæðið verður svo opnað formlega með viðhöfn á afmælisdaginn 18. ágúst.“ Fjölþætt starfsemi Starfsemi og hlutverk Grasagarðsins er fjölþætt og þar er í mörg horn að líta. Hildur segir Grasagarðinn varðveita stóran hluta af íslensku háplöntuflórunni ásamt fjölbreyttu úrvali erlendra plantna. „Í garðinum eru átta safndeildir sem hver um sig geymir tegundir sem eiga eitthvað sameiginlegt – til dæmis uppruna, skyldleika eða notagildi.“ Að sögn Hildar eru allar átta safn- deildirnar áhugaverðar og mynda saman þennan sérstaka stað sem Grasagarðurinn er – og er mörgum svo kær. Safndeildirnar eru Flóra Íslands, fjölærar jurtir, rósir, lyng- rósir, skógarbotnsplöntur, trjásafn, steinhæð og nytjajurtagarðurinn þar sem finna má mat-, krydd- og lækningajurtir. Meginhluti tegundanna í Grasagarðinum kemur úr frælistum erlendra grasagarða. Ræktunin fer fram í sáningarhúsi, uppeldisgróður- húsum, vermireitum og uppeldis- beðum. Kerfisbundin tölvuskráning er yfir alla plöntueinstaklinga og í garðinum eru merkispjöld við hverja einstaka tegund sem sýnir íslenskt og latneskt heiti tegundarinnar sem og upplýsingar um náttúruleg heim- kynni hennar.“ Fræðsluhlutverk „Eitt meginhlutverk Grasagarðsins er fræðsla. Á hverju skólaári tökum við á móti fjölda leik- og grunn- skólanemenda. Nýlega tókum við einnig í gagnið grænan fræðslubak- poka fyrir leikskólahópa. Í pokanum er ýmiskonar fræðsluefni og leið- beiningar um náttúruleiki og hefur bakpokinn reynst afar vinsæll. Á sumrin er almenningi boðið upp á fræðsludagskrá, þá er tekið á móti fjölmörgum innlendum og erlendum hópum sem óska eftir leiðsögn. Markmið fræðslunnar er að nýta hin margvíslegu plöntusöfn í garðinum til fræðslu um umhverfið, garðyrkju, grasafræði, fuglalíf, garðmenningu, grasnytjar og til listsköpunar. Þá á Grasagarðurinn í góðu sam- starfi við fjölmarga aðila sem stunda rannsóknir á sviðum grasafræða og ræktunar,“ segir Hildur. Grasagarðurinn starfar sam- kvæmt íslensku safnalögunum og samþykktri stofnskrá. Unnið er eftir lögum um náttúruvernd, öðrum íslenskum lögum og reglugerðum er varða starfsemina og alþjóðlegum samþykktum um líffræðilegan fjöl- breytileika. Grasagarður Reykjavíkur tilheyrir Skrifstofu náttúru og útivistar sem er hluti af Umhverfis- og sam- göngusviði Reykjavíkurborgar og fer umhverfis- og samgönguráð með mál- efni Grasagarðsins. Líflegt afmælisár „Á veturna starfa í garðinum 8 starfs- menn í 6,5 stöðugildum. Yfir sumarið bætist sumarfólkið í hópinn alls tíu manns sem sjá um aðstoð við útplönt- un, umhirðu og slátt,“ segir Hildur. Hún segir að afmælisárið verði með líflegra móti og hafi dagskráin í raun byrjað strax í janúar með fræðslu- kvöldi í garðskálanum. „Svo tókum við þátt í Grænum apríl af krafti og buðum leikskólabörnum í skógar- leiðangur hér í garðinum í samstarfi við Náttúruskóla Reykjavíkur. Á Degi umhverfisins í apríl vorum við með náttúruleiki og rathlaup í samstarfi við Rathlaupsfélagið Heklu sem hefur útbúið varanlega rathlaupsbraut hér í dalnum.“ Fjölbreytt sumardagskráin „Afmælisdagskráin var svo sett formlega í byrjun maí með lúðraþyt blásarasveitar Skólahljómsveitar Auður Óskarsdóttir hefur umsjón með matjurtagarðinum. Hún útskrifaðist af blómaskreytinga- braut Garðyrkjuskólans 1994 og vann í blómabúðum í tæp 8 ár áður en hún kom til vinnu í Grasagarðinum. Hún tók við umsjón matjurtagarðsins árið 2007 og fór í millitíðinni aftur í Garðyrkjuskólann til að læra sér- staklega um matjurtir. Hún segir að Þórólfur Jónsson garðyrkjustjóri hafi teiknað mat- jurtagarðinn. „Vinnan við hann hófst árið 2000 og síðan þá hefur hann verið í óbreyttri mynd að öðru leyti en því að ég hef breytt hluta af beðunum úr ferköntuðu formi í mýkri form til að sýna fram á fjöl- breytileika. Aðalbreytingarnar eru þó árvissar og ganga út á það að rækta matjurtir sem ekki hafa verið áður hjá okkur. Á ári kartöflunnar vorum við t.d. með sex mismunandi yrki af kartöflum auk þess sem við reynum að finna eitthvað nýtt á hverju ári. Ég held vinnudagbók þar sem ég skrái sáningardaga, prikklunardaga og þá daga þegar plönturnar fara út í garð og þá bæti ég við staðsetningu og fjölda hverrar tegundar. Svo er bara að fylgjast með vexti og skrá athugasemdir sem nýtast á nýju ári. Hingað koma sjálfboðaliðar á hverju ári og oftar en ekki taka þeir þátt í vinnunni við garðinn. Við erum með lífræna ræktun sem byggist á því að við notum einungis búfjáráburð og áburð unnum úr sjávarfangi – auk þess sem við eitrum ekki. Þá erum við með skiptiræktun sem gengur út á það að rækta jarðveginn – sem er for- senda árangurs í ræktun eins og gefur að skilja. Með skiptiræktun nýtist betur næringin í jarðveginum og sjúkdómar eiga erfiðara uppdráttar. Auður segir tilganginn með mat- jurtagarðinum að sýna hvað hægt sé að rækta og með hvaða hætti. „Þó eru ræktendur víða á Íslandi með tegundir sem ekki hafa gengið hjá okkur og má þar t.d. nefna gulrótina, en gulrótarflugan hefur verið skæð hér og komið í veg fyrir uppskeru hingað til.“ Fegurðin í matjurtagörðunum Auður leggur mikið upp úr því að prýði sé af matjurtagarðinum. „Stundum staðsetur fólk matjurta- garða norðanmegin við hús vegna þess að það heldur að þeir geti ekki verið fallegir. Sól og birta er hluti af forsendu þess að matjurtirnar vaxi og því um að gera að velja þeim góðan vaxtarstað og hafa svolitla fjölbreytni í tegundavali. Það er líka um að gera að forma beðin og fegra með blómum eins og t.d. dúkablómi, flauelsblómi, morgunfrú og skjald- fléttu. Ilmur blómanna getur komið í veg fyrir að kálfluga finni sér varp- stað.“ Djásnin eru sólberja- og rabarbarayrki „Við erum með tíu mismunandi yrki af sólberjum og fjögur yrki af stikilsberjum. Svo varðveitir Grasagarðurinn 14 yrki af rabarbara fyrir Erfðalindasetur, en það er Íslandsdeild Norræna Genabankans. Rabarbarayrkin eru mjög mismun- andi að stærð, grófleika og lit; Erly Red er t.d. fínlegur og fagurrauður á meðan Ráðherrafrú og fleiri yrki eru grænleit og gróf. Rabarbarinn er vissulega ein af þessum gömlu góðu matjurtum sem var til í flestum mat- jurtagörðum. Hann er alltaf vinsæll og afar auðveldur í ræktun,“ segir Auður. Uppskeruhátíð Grasasagarðsins er 27. ágúst og þar gefst fólki tækifæri til að skoða, smakka og spyrja og um að gera að nýta tækifærið til þess að auka þekkingu og skiptast á skoðunum og reynslu. Auður segir ánægjulegt til þess að vita að áhugi á matjurtarækt- un hafi stóraukist síðustu ár og vonast til að starfsfólk Grasagarðsins geti vakið enn frekar áhuga og bætt við vitneskju fólks á öllum aldri. Matjurtagarðurinn Varðveitir 14 yrki af rabarbara Grasagarðurinn í Laugardal Vin í borgarlandinu – 50 ára starfsafmæli fagnað í sumar Hér má sjá hvar leiðin liggur inn á nýja svæðið, upp til hægri. Myndir | smh

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.