Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 23

Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 23
22 Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011 Hjónin í Garðyrkjustöðinni Kvistum þátttakendur í berjarækt á norðurslóðum: Fyrstu íslensku hindberin á markað í sumar Hafin er tilraunaræktun á hind- berjum hérlendis. Meðal braut- ryðjenda í þessari ræktun eru hjónin Hólmfríður Geirsdóttir garðyrkjufræðingur og Steinar Á. Jensen rafvélavirki sem eiga og reka Garðyrkjustöðina Kvista í Reykholti í Biskupstungum. Hólmfríður segir verkefnið lofa góðu og munu plönturnar sem sáð var í fyrra gefa fyrstu uppskeru á næstu vikum. „Þetta er tilraun hjá okkur og fyrsta húsið sem við ræktum þetta í. Við höfum til þessa fyrst og fremst verið í skógarplöntuframleiðslu og ræktað fyrir landshlutabundnu skógræktarverkefnin. Fyrstu íslensku hindberin ættu að koma á markað núna í lok júní. Þessi hindber verða stór og falleg og bragðgóð en eru eins og frekar smá jarðarber. Svo er ég líka með nokkrar sólberjaplöntur hér inni í húsi sem líta vel út,“ segir Hólmfríður. Ræktun berja á norðlægum slóðum Þetta er hluti af samnorrænu verk- efni um ræktun berja á norðlægum slóðum. Þar er norsk tækni nýtt til að ryðja brautina fyrir berjarækt á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum en hlýnandi loftslag og ný fram- leiðslutækni frá Vestur-Noregi hafa opnað nýja möguleika til berjarækt- unar í þátttökulöndunum fjórum. Norðmenn hafa náð mjög góðum tökum á hindberjaræktuninni en hafa samt komið og skoðað gróður- húsin hjá Kvistum í leit að hent- ugum húsum fyrir berjaframleiðslu á norðurslóðum. Stofnuð árið 2000 Garðyrkjustöðin Kvistar var stofnuð árið 2000 og voru þá ein- göngu framleiddar skógarplöntur í fjölpottabökkum. Garðyrkjustöðin hefur frá upphafi framleitt plöntur fyrir landshlutabundnu skógræktar- verkefnin, s.s. Suðurlandsskóga, Vesturlandsskóga, Skjólskóga á Vestfjörðum og Hekluskóga. Kvistar hafa því sérhæft sig í framleiðslu skógarplantna og plantna í sumar- bústaðalönd. Í dag eru framleiddar og til sölu ýmsar tegundir garð- og skógarplantna, ýmist ungplöntur í bökkum eða eldri plöntur í pottum. Af illri nauðsyn Hólmfríður segir að Kvistar hafi komið inn í þetta hindberjaverkefni af illri nauðsyn, vegna samdráttar í fjárveitingum til skógræktar á Íslandi. „Þar er verulegt bakslag. Hér voru öll hús full af skógarplöntum en vegna sparnaðar hjá ríkinu voru þau mörg orðin tóm. Þessa vegna ákváðum við að reyna eitthvað nýtt fremur en að gefast upp. Ef þetta gengur vel þá höldum við bara áfram og sér í lagi ef fer fyrir skógarplöntu- verkefninu eins og nú stefnir í.“ Sérkennilegur sparnaður Þarna er um að ræða eina af afleið- ingum efnahagskreppunnar á Íslandi en þar var m.a. gripið til harkalegs niðurskurðar á fjárveitingum til skógaverkefnanna. „Það er búið að skera niður um 50-60%,“ segir Steinar. „Þetta er mikil skammsýni því með þessu detta út nokkur ár í útplöntun. Neikvæðu áhrifin eru ekki bara á framleiðslu á plöntum eins og hjá okkur, því þetta á eftir að hafa veruleg áhrif síðar. Þegar menn horfa til vinnslu á við úr þessum skógum þá kemur nokkurra ára eyða í nýtinguna með tilheyrandi vandræðum fyrir timburvinnsluna.“ Hólmfríður tekur undir þetta og segir að með þessum vanhugsaða sparnaði séu menn líka að valda þeim skaða sem koma til með að fjárfesta í tækjum og tólum til timburvinnslu í framtíðinni. „Þá erum við mjög fá á landinu í skógarplönturæktun og þetta getur hæglega gengið af einhverjum þess- ara fyrirtækja dauðum. Ef það á svo að fara að starta svona starfsemi aftur er hugsanlegt að þeir sem hafa sér- hæft sig og hafa reynsluna séu hættir eða komnir í annarskonar ræktun. Þetta var komið á gott skrið og við farin að tækjavæða okkur og sér- hæfa í samræmi við vaxandi kröfur kaupenda. Þá er þetta einkennilegur sparnaður hjá ríkisstjórn sem hefur stöðugt hamrað á því að byggja þurfi upp mannaflsfrekar atvinnugreinar. Trjáplönturækt og útplöntun er fyrst og fremst handavinna og mjög vinnuskapandi. Sparnaður á þessu sviði er því þvert á yfirlýsta stefnu stjórnvalda,“ segir Hólmfríður. Steinar segir þetta enn furðulegra i ljósi þess að það fólk sem missir vinnuna við þennan svokallaða sparnað í ríkisútgjöldum fari beina leið á atvinnuleysisbætur. Þar þiggi fólkið bætur frá ríkinu en skili engri vinnu á móti. Það verði dapurt og jafnvel veikt vegna aðgerðarleysis, sem skapi enn meiri kostnað fyrir ríkið í gegnum heilbrigðiskerfið. Styrkt af NORA Berjaverkefni á Norður- Atlantssvæðinu, sem svo er nefnt, er styrkt af Norrænu Atlantsnefndinni NORA, sem stofnuð var árið 1996 og heyrir undir Norrænu ráðherranefnd- Hjónin Steinar Á. Jensen rafvélavirki og Hólmfríður Geirsdóttir garðyrkjufræðingur segja ræktun hindberja í Garðyrkjustöðinni Kvistum lofa góðu. Myndir / HKr. Í þessum gróðurhúsum voru áður ræktaðar skógarplöntur en nú eru þar gerðar tilraunir með hindberjaræktun. Hindber talin vera margra meina bót Hindber eru af rósaætt og heita á latínu Rubus idaeus Linne eða Rubus idæus L. Hafa hindber verið sögð duga vel gegn marg- víslegum kvillum. Rannsóknir hafa m.a. verið gerð- ar á áhrifum hindberja á framvindu ýmissa kvilla í músum og voru nið- urstöður birtar á alþjóðlegum fundi The American Chemical Society. Eru hindberin (black raspberry‘s) m.a. sögð hindra vöxt krabbameins- frumna í ristli, en þau duga hins vegar skammt til að verja offóðraðar mýs fyrir offitu. Svört hindber eru rík af A-, C- og E-vítamínum, einnig fólínsýru og steinefnum, t.d. seleni, sinki og kalki. Ekkert skal því fullyrt hér um áhrif hindberjaáts á mannslíkamann en í öllu falli þykja þau lostæti. „Hér voru öll hús full af skógarplöntum en vegna sparnaðar hjá ríkinu eru þau mörg orðin tóm. Þess vegna ákváðum við að reyna eitthvað nýtt fremur en að gefast upp.“ Hreindýraveiðar: Árleg skotpróf og skýrari kröfur til leiðsögumanna Alþingi samþykkti í byrjun júní breytingar á lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Breytingarnar varða reglur um hreindýraveiðar, leiðsögumenn með hreindýraveiðum og skipt- ingu arðs af hreindýraveiðum. Samkvæmt lögunum er hrein- dýraveiðimönnum skylt að gang- ast undir verklegt skotpróf árlega, líkt og tíðkast annars staðar á Norðurlöndunum, í því skyni að tryggja að veiðimaður hafi færni til að fella dýrið á réttan hátt og án óþarfa þjáningar. Tekur þetta ákvæði laganna gildi 1. janúar 2012 en frestur veiðimanna til að skila stað- festingu á verklegu skotprófi inn til Umhverfisstofnunar verður 1. júlí ár hvert. Þó er stofnuninni heimilt að veita veiðimanni, sem fær úthlutað leyfi til hreindýraveiða eftir 1. júlí, frest til að skila inn staðfestingunni. Þá er í lögunum kveðið á um hlutverk leiðsögumanna með hrein- dýraveiðum og gerðar eru skýrari kröfur til þekkingar þeirra en áður. Loks kveða lögin á um að aðeins verði heimilt að úthluta arði af hreindýraveiðum til þeirra sem leyfa hreindýraveiðar á landi sínu allt veiðitímabilið. Veiðitímabilið er tiltölulega stutt og getur hrein- dýrakvóti verið stór og er mark- miðið með þessum breytingum að dreifa álagi á veiðisvæðin og draga úr líkum á því að fjöldi leiðsögu- manna og veiðimanna sé á sama stað undir lok veiðitímabilsins.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.