Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 37

Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 37
36 Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011 Líf og starf Á nýafstöðnum fundi fagráðs í nautgriparækt voru kynntar nýjustu niðurstöður afkvæma- rannsókna nauta nautastöðvar Bændasamtaka Íslands. Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar ber að hafa í huga að viðmið- unarárgangurinn hefur verið færður til um 5 ár, er nú árgang- ur 2005. Þar sem framfarir hafa verið umtalsverðar síðustu ár hefur þetta í för með sér að ein- kunnir allra gripa hafa lækkað talsvert. Nú liggur fyrir endanlegur afkvæmadómur fyrir nautaárgang- inn 2004. Alls var lokið afkvæma- rannsóknum á 24 nautum. Þessi árgangur er mun jafnari að gæðum en árgangurinn 2003. Afurðsemi er í góðu lagi, og sömuleiðis júgur- og spenagerð en mjaltir eru mismunandi, í sumum til- vikum afburða góðar en í öðrum tilvikum mjög slæmar. Alls voru 11 naut valin til framhaldsnotk- unar úr árgangnum og þar af 3 sem hlutu A-dóm, Stássi 04-024, Stíll 04-041 og Ári 04-043. Besta nautið í þessum árgangi var valið Stássi 04-024 frá Syðri Bægisá undan Stíg 97010 og Stássu 304, sem er dóttir Frísks 94-026. Yfirlit yfir kynbótamat árgangsins er að finna í töflu 1. Þau naut sem fengu A-dóm búa yfir mikilli afurðagetu og gefa góða júgur og spenagerð en mjalt- ir eru aðeins í meðallagi. Það sem hinsvegar einkennir nautin sem hlutu B-dóm er fyrst og fremst sterk júgurgerð, góðir spenar og góðar mjaltir og í sumum tilvikum afbragðsgóðar. Þau naut munu því nýtast mjög vel og gagnast rækt- unarstarfi í flestum hjörðum. Nú liggja fyrir fyrstu niður- stöður vegna nautaárgangsins 2005. Það var mjög stór árgangur og var lokið afkvæmarannsókn á 31 nauti. Flest naut í árgangn- um eru synir Stígs 97010 eða 23 talsins, 6 eru undan Teini 97001og eitt undan Byl 97002 og Hersi 97033. Það virðist sem þessi nautaárgangur gefi miklar afurðir og sterk júgur og spena en misjafnar mjaltir og sum þeirra afleitar mjaltir. Það bendir þó margt til þess að nautaárgangur 2005 verði svipaður og árgang- urinn 2004. Það er greinilega að nást mikill árangur í afurðasemi stofnsins sem endurspeglast í kynbótaeinkunnunum fyrir bæði mjólkurmagn og afurðaeinkunn þessara tveggja árganga. Þá eru miklar framfarir í júgur- og spenagerð. Mun misjafnari er árangurinn í mjöltum, frjósemi og frumutölu þó í heildina sé um að ræða erfðframfarir í stofninum. Það þarf því sérstaklega að gæta að þessum eignleikum við val á kynbótagripum framtíðarinnar. Þar sem yngri nautin í árgangi 2005 hafa ekki nægilega margar dætur á skýrslum til þess að unnt sé að kveða upp endanlegan dóm um stöðu þeirra ákvað fagráð að fresta ákvörðun um notkun á 18 nautum en tekin er ákvörðun um 13 naut. Hlaut eitt þeirra Stöðull 05-001 frá Brekkukoti A-dóm, 5 önnur B-dóm og 7 C-dóm. Yfirlit yfir niðurstöðurnar eru birtar í töflu 2. Það er ávallt áhugavert að skoða hvernig eldri nautin eru að standa sig í samkeppninni við yngri árgangana. Þegar kynbóta- matið er skoðað kemur berlega í ljós að nautin sem hafa verið í toppsætunum undanfarið verma þau mörg hver ennþá en þó er einnig ánægjulegt að sjá hversu mörg yngri nautanna standa sig vel. Í töflu 3 er birt yfirlit yfir hæst dæmdu kynbótanautin. Þar eru nú Stígur 97-010 frá Oddgeirshólum efstur og síðan fylgja í kjölfarið Punktur 94-032 frá Skipholti og Kaðall 94-017 frá Miklagarði. Af eldri kunnum nautum er staða Þráðar 86-013 frá Lauardælum ennþá mjög sterk en kynbótaeinkunn hans er nú 107 síðan er Almar 90-019 frá Ytri -Tjörnum með 105 í kynbótaein- kunn. Í kjölfar þessa nýja mats verða allmiklar breytingar á næstu nautaskrá, mörg af eldri nautunum detta út þar sem sæðisbirgðir úr þeim eru á þrotum. Þannig eru nær öll nautin úr árgangi 2002 fallin út af þeim sökum. Þá hafa önnur lækkað í kynbóteinkunn svo rétt þykir að hætta notkun þeirra. Þau naut sem verða notuð áfram sem nautsfeður eru Tópas 03-027, Stássi 04-024 og Stíll 04-041 og nýir nautsfeður verða Hegri 03-014 sem er að styrkja sig í kynbótamati og Stöðull 05-001 sem er nýr úr árgangi 2005. Hér að neðan er yfirlit yfir þau reyndu naut sem verða í notkun nú á næstu mánuðum. Kynbótamatið verður svo keyrt að nýju með haustinu og þá verður unnt að taka endanlegar ákvarðanir varðandi 2005 árgang- inn og vonandi sjá fyrstu niður- stöður fyrir nautaárganginn 2006. Til þess að hraða upplýsingum til bænda er hér yfirlit yfir nautin í næstu nautaskrá. Nautaspjald verður sent til bænda innan tíðar en síðan verður unnin ný nauta- skrá með nánari upplýsingum um nautin sem nú koma í notkun. Nýjar niðurstöður afkvæmarannsókna Fjóstíran Naut- númer Fæðingarbú Staða Ófeigur 02-016 frá Þríhyrningi Þrymur 02-042 frá Tóftum Ás 02-048 frá Sumarliðabæ Gyllir 03-007 frá Dalbæ, Hrun. Hegri 03-014 frá Hamri nautsfaðir Máni 03-025 frá Drumbodds- stöðum Tópas 03-027 frá Króki, Flóa nautsfaðir Skandall 03-034 frá Nýja Bæ Salómon 04-009 frá Hundastapa Hlaupari 04-010 frá Hríshóli Hjálmur 04-016 frá Hjálmholti Rauður 04-021 frá Túnsbergi Stássi 04-024 frá Syðri Bægisá nautsfaðir Stíll 04-041 frá Syðri Bægisá nautsfaðir Ári 04-043 frá Stóra Ármóti Jaki 04-044 frá Eystra Hrauni  Stöðull frá Brekkukoti nautsfaðir  Bauti frá Miðfelli V  Hryggur frá Bryðjuholti  Standur frá Skálpastöðum  Renningur frá Lambhaga  Gussi frá Dagverðareyri Yfirlit yfir reynd naut í notkun Nafn Númer Faðir nafn númer Fæðingabú Afurðir Frjósemi Frumu tala- Júgur Spenar Mjaltir Skap Ending Kynb.- einkunn Dómur Eldur 04-001 Sproti 95036 Laugaból 110 90 104 105 84 100 106 98 103 C Bursti 04-003 Hófur 96027 Bryðjuholt 103 99 87 90 110 104 98 110 101 C Grikkur 04-004 Fróði 96028 Neðri Hóll 107 107 86 107 109 103 76 107 103 B Þorri 04-005 Hófur 96027 E. Gegnishólar 104 112 85 110 118 96 95 102 103 C Þinur 04-006 Fróði 96028 Ytri Tjarnir 111 78 109 109 109 116 66 108 104 B Farsæll 04-007 Hvítingur 96032 Daufá 96 111 103 89 99 68 81 85 93 C Salómon 04-009 Prakkari 96007 Hundastapi 107 82 88 110 122 114 107 117 106 B Hlaupari 04-010 Hófur 96027 Hríshóll 101 119 97 102 127 100 83 116 104 B Ingjaldur 04-011 Prakkari 96007 Ingjaldsstaðir 101 106 83 109 99 111 92 107 101 C Þrumari 04-015 Hófur 96027 Ystihvammur 93 107 98 127 117 101 100 107 101 B Hjálmur 04-016 Pinkill 94013 Hjálmholt 115 90 103 110 110 100 107 88 107 B Kútur 04-018 Fróði 96028 Vaglir 95 86 107 112 122 116 70 110 100 C Rauður 04-021 Hófur 96027 Túnsberg 103 94 81 124 133 129 89 107 106 B Stássi 04-024 Stígur 97010 Syðri Bægisá 117 90 135 129 115 100 85 110 113 A Búsæll 04-025 Hófur 96027 Litla Ármót 97 104 98 98 125 89 86 98 98 C Bloti 04-026 Hófur 96027 Eystra Hraun 105 96 96 102 123 112 89 105 104 C Jaxl 04-027 Stígur 97010 Egilsstaðakot 104 89 95 123 116 114 83 115 104 C Dagur 04-035 Prakkari 96007 Dagverðareyri 93 107 86 108 104 78 96 101 95 C Hengill 04-037 Túni 95024 Lambhagi 92 79 113 106 82 93 91 105 94 C Fjalli 04-040 Hófur 96027 Fjall 87 107 100 112 131 115 102 108 100 C Stíll 04-041 Stígur 97010 Syðri Bægisá 116 82 127 130 121 98 92 118 112 A Ári 04-043 Stígur 97010 Stóra Ármót 119 96 129 105 99 99 107 99 111 A Jaki 04-044 Prakkari 96007 Eystra Hraun 106 89 91 115 106 113 112 104 105 B Þjálfi 04-047 Stígur 97010 Birtingaholt I 109 111 99 95 104 98 99 104 105 C Nafn Númer Faðir nafn númer Fæðingarbú Afurðir Frjósemi Frumu- tala Júgur Spenar Mjaltir Skap Ending Kynb.- einkunn Dómur Stöðull 05-001 Stígur 97-010 Brekkukot 119 102 120 128 116 92 90 111 113 A Bauti 05-002 Teinn 97-001 Miðfell V 100 91 109 121 138 108 97 113 106 B Oddgeir 05-006 Stígur 97-010 Oddgeirshólar 110 95 114 79 90 70 76 87 97 C Sláni 05-007 Teinn 97-001 Tröð 99 94 116 108 113 91 96 106 101 C Hryggur 05-008 Teinn 97-001 Bryðjuholt 102 86 104 107 110 90 123 114 104 B Hnappur 05-009 Stígur 97-010 E. Seljaland 119 88 108 100 123 75 87 110 108 C Hávarður 05-010 Stígur 97-010 Skeiðháholt 109 97 110 111 117 94 84 104 105 C Ferðalangur 05-011 Teinn 97-001 E. Brúnavellir II 95 92 94 98 108 95 95 113 97 C Gegnir 05-012 Stígur 97-004 E. Gegnishólar 92 99 119 112 113 94 90 109 99 C Standur 05-013 Teinn 97-001 Skálpastaðir 104 97 114 116 112 111 98 107 106 B Renningur 05-014 Stígur 97-010 Lambhagi 114 95 112 119 122 102 88 102 109 B Grallari 05-017 Stígur 97-010 Hjarðarfell 102 104 113 104 99 103 98 102 103 C Gussi 05-019 Stígur 97-010 Dagverðareyri 102 109 110 113 132 97 94 116 107 B Tafla 1. Akvæmadómar nauta fæddra 2004. Stöðull. Hegri. Nafn Númer Faðir - númer Fæðingabú Afurðir Frjósemi Frumutala Júgur Spenar Mjaltir Skap Ending Kynbóta- einkunn Dómur Stígur 97-010 Óli - 88002 Oddgeirshólar 120 106 119 123 108 101 84 120 114 A Punktur 94-032 Þráður - 86013 Skipholt 119 98 112 101 129 102 118 104 113 A Kaðall 94-017 Þráður - 86013 Miligarður 114 104 98 113 121 112 122 119 113 A Stássi 04-024 Stígur - 97010 Syðri Bægisá 117 90 135 129 115 100 85 110 113 A Ás 02-048 Kaðall - 94017 Sumarliðabær 121 104 99 108 112 113 89 118 113 A Lykill 02-003 Kaðall - 94017 Hæll II 121 123 84 94 118 112 111 107 113 A Fontur 98-027 Almar - 90019 Böðmóðsstaðir 115 98 128 118 114 90 91 127 112 A Stíll 04-041 Stígur - 97010 Syðri Bægisá 116 82 127 130 121 98 92 118 112 A Skandall 03-034 Soldán - 95010 Nýi Bær 133 95 92 85 102 89 95 104 112 B Magnús B. Jónsson Ráðunautur í nautgriparækt Tafla 3. Yfirlit yfir hæst dæmdu kynbótanautin. Tafla 2. Fyrstu niðurstöður afvæmadóma nauta fæddra 2005.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.