Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 22
21Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011 Óvissa framundan vegna breytinga á stuðningskerfi ESB Bæði Alan og Kenneth töldu veru- lega óvissu framundan í landbúnaði á eyjunum vegna róttækra breytinga á stuðningskerfi ESB samkvæmt land- búnaðarstefnu þess, CAP. Fráhvarf frá framleiðslutengingu til landteng- ingar væri áhyggjuefni sérstaklega í slíkum eyjabyggðum á jaðarsvæðum ESB. Minni ástæða væri til að hafa áhyggjur af þróuninni á öðrum svæðum með hagstæðari skilyrði. Svipaðar áhyggjur hef ég orðið var við á Möltu, Sikiley og Krít, og hvað t.d. mjólkurframleiðslu varðar er talið að við afnám núgildandi kvótakerfis eftir tæp fjögur ár verði eyja- og fjallabyggðir í ESB í mjög erfiðri stöðu samanborið við önnur svæði. Við ræddum líka um ESB- umsókn Íslands og báðu þeir mig að hafa í huga að ekki mætti reikna með eins miklum stuðningi við land- búnað í nýjum aðildarlöndum og áður tíðkaðist. Auk þess að breyta um form stuðningsgreiðslna væri markvisst verið að draga úr stuðn- ingnum. Þá virtust stærri búin, ekki síst þau allra stærstu, ná til sín stærri og stærri hlut á kostnað hinna smærri sem einkenndu jaðarsvæðin. Ábendingar og ályktanir Mér varð ljóst eftir þessi viðtöl, og skoðun á gögnum, að í raun væri erf- itt að bera saman reynslu orkneyskra bænda af landbúnaðarstefnu ESB um 40 ára skeið, annars vegar, og líkleg áhrif gjörbreyttrar stefnu á íslenskan landbúnað ef eða þegar Ísland gengi inn í sambandið, hins vegar. Þó tel ég rétt að bend á eftirtalin atriði: 1) Þótt efnahagslegt vægi land- búnaðarframleiðslu hafi minnkað mikið á Orkneyjum frá lokum seinni heimsstyrjaldar er það nú um 15% mælt sem atvinna, og skiptir verulegu máli í efnahag eyjanna. Sjávarútvegur hefur aftur á móti nær horfið síðustu áratug- ina og er ljóst að ESB aðildin hefur ekki verið til bóta í þeirri atvinnugrein. 2) Heil kynslóð bænda og emb- ættismanna á Orkneyjum þekkir ekki annað umhverfi í landbúnaði á eyjunum en það sem landbún- aðarstefna ESB hefur mótað. Samanburður við fyrri tíma er því erfiður. Engu að síður telja þeir áhrifin hingað til hafa verið jákvæð í flestu tilliti. 3) Sú tiltölulega sterka staða sem landbúnaður á Orkneyjum er í byggist að mínum dómi mest á tvennu: a) Markvissri byggðastefnu Skota. b) Eflingu heimastjórnar í Skotlandi. Sé þetta rétt ályktað hlýtur það að vera áhyggjuefni að á Íslandi hefur ekki enn verið mótuð mark- viss byggðastefna og baklandið hér því veikara en æskilegt væri miðað við inngöngu í ESB. 4) Landupplýsingar og kortlagn- ing á skilyrðum til landbúnaðar og skógræktar á öllu Skotlandi, og þar með á Orkneyjum, eru til fyrirmyndar og mikilvæg hjálpargögn við mótun og viðhald byggðastefnunnar. Skortur á áætl- unum um landnýtingu, svo sem á ræktanlegu landi, hér á Íslandi, gerir það að verkum að mjög erfitt er að fella íslenskan landbúnað að því er virðist framtíðarstefna ESB í landbúnaði, þ.e.a.s. land – fremur en framleiðslutengd. Þar við bætist ýmis sérstaða íslensks landbúnaðar, jafnvel saman borið við hinar norðlægu Orkneyjar. 5) Þegar litið er til þróunar land- búnaðar á Bretlandseyjum eftir aðild að ESB skal haft í huga að um áratuga skeið fyrir aðild naut landbúnaðurinn mikils stuðnings. Þótt iðnaður væri löngu orðinn undirstöðuatvinnugrein, var og er enn, lögð mikil áhersla á fæðuöryggi. Þeirri áherslu óx fiskur um hrygg á stríðstímum, sérstaklega í Seinni heimsstyrj- öldinni. Prófessorar, sem ég var í læri hjá í landbúnaðardeild Háskólans í Aberstwyth í Wales á árunum 1966-1972, sögðu okkur nemendum stoltir frá sérstöku átaki sem þeir tóku virkan þátt í til að auka framleiðslu matvæla á erfiðum tímum. Þá var um skeið m.a. plægt upp land í velsku hæð- unum þar sem burkni var ríkjandi vegna þess að jarðvegurinn þar var kalíríkur og hentaði vel til kartöfluræktar. Sömu viðhorf giltu um allar Bretlandseyjar, einnig í Skotlandi, og þar með á Orkneyjum sem voru í mikilli nálægð við átökin á Norður- Atlantshafi. 6) Túlkun mín á þeim viðhorfum til framtíðarþróunar í landbúnaði sem fram komu hjá viðmæl- endum mínum á Orkneyjum, að viðbættum öðrum upplýsingum, er sú að nú ríki veruleg óvissa. Stuðningskerfið er flókið, draga á úr greiðslum til landbúnaðar og ástæða er til að hafa sérstakar áhyggjur af stöðu jaðarbyggða. Fram komu áhyggjur um skert fæðuöryggi í Skotlandi vegna samdráttar í stuðningsgreiðslum frá ESB. ÞÓR HF | Reykjavík : K rók hálsi 16 | Sími: 568-1500 | Akureyri : Lónsbak k a | Sími 461-1070 | www.thor. is ÞÓR HF REYKJAVÍK - AKUREYRI KRONE V 150 XC rúlluvél COMPRIMA V 150 XC rúlluvélin frá KRONE er fastkjarnavél með breytilegri baggastærð 90 cm -150 cm. Vario fastkjarnavélarnar frá KRONE eru þær fastkjarnavélar sem reynst hafa hvað best við íslenskar aðstæður. Breytileg baggastærð á einfaldan hátt. Baggastærðir frá 90 cm upp í 150 cm. Gúmmíbelti í stað keðjunnar á baggahólfinu – minni hávaði. Sterkbyggð og afkastamikil rúlluvél - ódýrt viðhald. Lítil aflþörf, eingöngu 50 hestöfl. COMPRIMA V 150 XC Fastkjarna rúlluvél. Rúllustærðir frá 90 cm – 150 cm. Netbindibúnaður 2,15 m Easy-Flow sópvinda. Mötunarvals með 17 hnífa skurðarbúnaði Drop floor stíflulosunarbúnaður Gúmmíbelti í stað keðja, minni hávaði Sjálfvirk smurning á keðjum. Miðlægir smurstútar á legum. Flotdekk (500/50-17 10PR) Einföld stjórntölva með góðum skjá. Erum einnig að fá í hús eftirfarandi vélar úr nýju COMPRIMA línunni af rúlluvélum frá KRONE: COMPRIMA CV 155 XC - Lauskjarna rúlluvélasamstæða með breytilegri baggastærð 120 cm -150 cm COMPRIMA CV150 XC - Fastkjarna rúlluvélasamstæða með breytilegri baggastærð 90 cm - 150 cm Hjá okkur er sýning á landbúnaðartækum innan dyra allt árið um kring! COMPRIMA V 150 XC verður til sýnis að Krókhálsi 16, Reykjavík næstu daga. Hágangur frá Narfastöðum Tekur á móti merum á Eyrarbakka eftir Landsmót. Hágangur er hátt dæmdur ein- staklega geðgóður klárhestur með 8.31 í aðal- einkunn. Þar af 8.41 fyrir byggingu og 8.25 fyrir hæfileika (9 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið). Verð á folatolli er 85.000 + vsk og girð- ingargjald með sónar er 25.000 krónur. Tekið verður á móti hryssum 6-9 júlí. Upplýsingar hjá Siggu Pje í s: 8997792 eða á siggapjeturs@ simnet.is Flögri frá Sólvangi Tekur á móti merum á Sólvangi við Eyrarbakka eftir Landsmót. Flögri er hátt dæmdur ein- staklega fallegur klárhestur með 8.23 í aðal- einkunn. Þar af hvorki meira né minna en 8.68 fyrir byggingu (9.5 fótagerð, 9 háls/herðar/ bógar og prúðleiki) og 7.92 fyrir hæfileika (9 fyrir Stökk, hægt tölt og hægt stökk, 8.5 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag og fegurð í reið). Verð á folatolli og girðingu er 50.000 + vsk. Tekið verður á móti hryssum 6-9 júlí eða eftir samkomulagi. Upplýsingar hjá Elsu í s: 8927159 eða á elsa-m@islandia.is Fáni Orkneyja gæti varla verið nor- rænni.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.