Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 25

Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 25
24 Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011 Landsmót hestamanna hefst næstkomandi sunnudag, 26. júní á Vindheimamelum í Skagafirði. Þá hefst forkeppni í unglinga og barnaflokkum og standa forkeppnir og milliriðlar yfir til fimmtudagsins. Samhliða verða dómar á kynbótavelli frá sunnudegi til miðvikudags. Yfirlitssýning á hryssum verður svo á fimmtudag og á stóðhestum á föstudag. Verðlaunafhending fer síðan fram á laugardeginum. Hér að neðan eru stiklur úr dagskrá mótsins þar sem tæpt er á helstu hápunktum. Guðlaugur Antonsson, hrossa- ræktar ráðu nautur Bænda- samtakanna, segist hafa afar góða tilfinningu fyrir landsmótinu. „Það hefur mjög lítið verið afboðað af hrossum sem náðu inn á mótið. Það voru 249 hross sem náðu inn á einstaklingssýningu landsmóts. Síðast þegar landsmót var haldið á Vindheimamelum voru 258 hross sem náðu inn til dóms og þau voru 50 sem ekki komu. Nú er hins vegar bara búið að afboða níu hross í kynbótasýninguna, þannig að það er útlit fyrir að þetta verði alveg metþátttaka.“ Mikill fjöldi stóðhesta kemur nú til greina í afkvæmaverðlaunin og að sögn Guðlaugs eru líkur til að fleiri stóðhestar en nokkru sinni fyrr mæti á landsmót. „Það eru fjórir stóðhestar sem mæta til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi, af þeim fimm sem eiga rétt á því. Svo munu mæta hvorki fleiri né færri en tíu af ellefu hestum í fyrstu verðlaunin. Það er með því mesta sem maður hefur nokkurn tíma séð. Mætingin er geysilega góð í hrossunum og þetta lítur bara vel út.“ Sökum þessa mikla fjölda verður afkvæmahestunum dreift á nokkra daga en efstu hestar í 1. verð- launum verða laugardaginn 2. júlí og sömuleiðis Sleipnisbikarinn, sem er heiðursverðlaun afkvæmahesta. Uppsafnað síðan í fyrra Guðlaugur segir að mikill fjöldi hrossa hafi beðið með að koma í dóm frá því í fyrra vegna frestunar landsmótsins þá. „Það er alveg ljóst. Langstærsti hópurinn sem kemur til dóms núna á landsmót eru fimm vetra hryssur og það er ábyggilega uppsafnað töluvert af þeim sem voru bestar í fyrra. Af þessum 249 hrossum sem náðu inn í kynbótadóm eru 62 fimm vetra hryssur, lang stærsti hópurinn. Af þeim hrossum sem eru að koma inn núna sýnist mér að gæðin séu bara nokkuð svipuð og verið hefur en fjöldinn er gríðarlegur. Um það er ekkert nema gott að segja.“ Guðlaugur segist eiga von á góðri mætingu á mótið. „Það er að segja ef veður verður okkur hliðhollt. Við vitum að það munu koma heldur færri útlendingar en verið hefur vegna frest- unarinnar á mótinu í fyrra. Ef að veður verður gott á ég von á að Íslendingar fjölmenni á mótið.“ /fr Allt á áætlun og rúmlega það Hægt að fylgjast með Landsmóti hestamanna í beinni útsendingu á netinu „Þetta gengur bara glimrandi. Allt er á áætlun og meira að segja rúmlega það,“ segir Haraldur Örn Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Landsmóts hestamanna 2011. Þéttur hópur hafi verið á fullu síðustu daga við að hnýta lausa enda og tjöldin séu komin upp á mótssvæðinu. Allt lítur út fyrir að góð mæting verði á mótið, að sögn Haraldar. Búist er við heldur færri útlend- ingum nú en verið hefur vegna frestunarinnar í fyrra og vegna þess að heimsmeistaramót íslenska hestsins fer einnig fram nú í sumar. „Ef veður verður gott gerum við ráð fyrir níu til tíu þúsund manns á mótið. Eins og staðan er núna erum við ánægð með aðsóknina. Sömuleiðis verður mjög góð mæt- ing hrossa sem hafa unnið sér rétt inn á mótið og það gefur okkur góðar vonir um þetta. Það mætir auðvitað fólk með hverjum hesti og það er það sem er burðurinn í þessu. Það sem býr til landsmót eru hestarnir og ef þeir mæta vel þá mætir fólkið líka.“ Rammskagfirsk skemmtun Vegleg skemmtidagskrá er í boði á mótinu og er hún rammskagfirsk. „Það eru heimamenn sem sjá um þá dagskrá alfarið, í samvinnu við mig, og þannig á þetta auðvitað að vera. Það verður stuð á landsmóti, því get ég lofað.“ „Verður algjör veisla“ Ein þeirra nýjunga sem verður í boði á á landsmóti nú er sú að dagskrá mótsins verður streymt í beinni útsendingu á vef landmóts- ins, landsmot.is. „Ef menn eru að koma á fimmtudegi t.a.m., þá geta þeir fylgst með fram að því. Með þessu erum við að auka þjónustuna og sýnileika mótsins. Það eru 120 þúsund manns skráðir í íslands- hestafélög erlendis og þarna er kominn gluggi fyrir það fólk að fylgjast með, komist það ekki á mótið sjálft. Þetta er gríðarleg auglýsing fyrir hrossaræktendur,“ segir Haraldur. „Þetta verður algjör veisla. Þetta mót verður alveg frábært fyrir þá sem þangað koma, umgjörðin verður góð. Ég get alveg lofað því,“ segir Haraldur að lokum. /fr Búast má við góðu veðri við setn- ingu landsmóts, að óbreyttu. Um helgina er spáð austlægri átt og þokkalega hlýju, einkum í inn- sveitum. Líklega verður þurrt og nokkuð bjart að sögn Haraldar Eiríkssonar veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Þegar líður á næstu viku má búast við að vindur snúist í norð- austanátt eða n o r ð a n á t t . M ö g u l e g a gæti fylgt því l í t i l s h á t t a r úrkoma en enn er líklegt að þokkalega hlýtt verði. Þegar lengra líður fram í vikuna er ómögulegt að spá fyrir um veður. /fr Landsmót hestamanna – Fer fram á Vindheimamelum í Skagafirði dagana 26. júní til 3. júlí Búist við góðu veðri við upphaf landsmóts Þurrt og bjart Haraldur Örn Gunnarsson. Miðvikudagur 29. júní Fimmtudagur 30. júní Föstudagur 1. júlí Laugardagur 2. júlí 20.00-21.00 15.30-16.30 14.00-14.30 10.00-10.45 Skeið 150, 250 2 sprett Afkvæmahestar, 1.verðlaun B-úrslit börn Afkvæmahestar, 1. verðlaun 16.45-18.45 14.30-15.15 10.45-12.30 Forkeppni tölt B-úrslit B-flokkur Verðlaun hryssur 20.00-21.00 15.45-16.30 13.30-14.15 Setningarathöfn B-úrslit unglingar A-úrslit börn 21.00 16.30-17.15 14.15-15.45 Skeið 150, 250 m. B-úrslit A-flokkur Verðlaun stóðhestar 17.15-18.30 16.30-18.00 B-úrslit ungmenni Afkvæmahestar, 1. verðlaun, efstu þrír hestar 18.30-19.15 17.15-18.00 Afkvæmahestar, 1. verðlaun Heiðursverðlaun stóðhestar, sæti 2-4 20.00-21.00 20.00-20.30 Ræktunarbússýningar Skeið 100 m. 21.15-22.00 20.30-21.00 B-úrslit tölt Sleipnisbikarinn 21.15-22.00 A-úrslit tölt Landsmót hestamanna 2011 – Aðalvöllur Frábær mæting kynbótahrossa – Aldrei verið annar eins fjöldi stóðhesta í afkvæmaverðlaunum

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.