Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 26
25Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011 Skemmtidagskrá Landsmóts hestamanna 2011 Mikið verður um að vera á landsmóti fyrir gesti. Barnagarður verður opinn á svæðinu fyrir yngstu gestina svo þau munu hafa nóg við að vera. Fjölþætt skemmtidagskrá verður svo í boði og fara helstu atriði hennar hér á eftir. Erling Ó. Sigurðsson eða Elli, hesta- maður og reiðkennari er flestum hestamönnum að góðu kunnur. Hann hefur um áraraðir tekið þátt í landsmótum hestamanna en fyrsta landsmót sem Elli kom að var 1958. Nú er hins vegar útlit fyrir að hann verði ekki með í fyrsta skipti síðan þá, þó ekki sé loku fyrir það skotið að hann muni dúkka upp í skeiðinu. Bændablaðið hafði samband við Ella og bað hann að spá aðeins fyrir um Landsmótið á Vindheimamelum, hverjir væru líklegir til afreka og hver gæti orðið stjarna mótsins. „Þegar ég var að byrja í þessu fór maður í fýlu ef maður var ekki einn af þremur efstu. Í dag er maður rosalega ánægður með að vera einn af tíu efstu. Það er gríðar mikið af góðum og jöfnum hestum og ég verð að segja að það er eiginlega útilokað að veðja á einhvern einn hest. Framfarirnar eru orðnar svo gríðar- legar að það eru eiginlega hamfarir.“ Veðjar á Stakk frá Halldórsstöðum Þegar blaðamaður gengur á Ella og biður hann að nefna þá nokkra líklega segir hann að þeir hestar sem stóðu efstir í gæðingakeppni Fáks í lok maí séu mjög líklegir til afreka. „Mótið er svona eins og míní-landsmót. Það er eitthvað sem segir mér að vinur minn og kunningi Sigurbjörn Bárðarson, sem aldrei hefur unnið A-flokk gæð- inga á landsmóti, jafn ótrúlegt og það nú er – það kæmi mér ekki á óvart að Stakkur frá Halldórsstöðum, sem hann er búinn að vera með í fjögur eða fimm ár, myndi hafa þetta. Það er sá hestur sem ég myndi veðja á í A-flokki gæðinga. Þetta er hins vegar svo rosalega jöfn keppni að það má lítið út af bregða. Þetta er dagsformið, þetta er stemmingin og það þarf í raun ekki nema smá blæbrigðamun hjá einum dómara til að velta þessu eða ein lítil mistök.“ Enginn sem stenst Tuma snúning í töltinu Elli segist eiga mjög erfitt með að veðja á B-flokkinn enda sé þetta svo svakalegur hópur góðra hesta. Sveigur frá Varmadal og Hulda Gústafsdóttir séu þó gríðarsterk en þau stóðu efst á gæðingamóti Fáks með 8,74 í ein- kunn. Þá er Sigurður Sigurðarson líka mjög sterkur á Kjarnorku frá Kálfholti. „Svo gæti orðið athyglisvert að fylgj- ast með töltkeppninni enda er alltaf stór stund þegar hún fer fram á lands- móti. Nú veit ég ekki hvað vinur minn Viðar Ingólfsson gerir með Tuma frá Stóra-Hofi. Tumi var að brillera á úrtökumóti fyrir heimsmeistaramót í Hafnarfirði og vann þá keppni með glæsibrag. Tumi er kominn inn á landsmót með sína punkta, hvort sem Viðar ákveður að mæta með hann eða ekki. Ef hann mætir þá held ég að það sé bara enginn hestur sem getur sigrað hann. Það þarf hins vegar ekki mikið að koma uppá til að allt sé búið. Það þarf ekki meira að gerast en að hesturinn rétt skeini í hófhlífina og skeifuna svo hún fari undan. Þá er hesturinn bara úr leik eins og gerðist hjá Didda [Sigurbirni Bárðarsyni, innsk. blm.] með Kolskegg á mótinu á Hellu síðast.“ Hinrik og Glymur gríðar sterkir Gæðin á mótinu nú verða jafnvel meiri nú en síðast, að mati Ella. Þar sem þrjú ár séu nú frá síðasta lands- móti séu mörg hross sem eigi eftir að blómstra. „Ég var í úrtökunum í Hafnarfirði í gær [15. júní, innsk. blm.] og það er ekki að sjá að þessi veiki eða það sem á undan er gengið hafi haft nein þannig áhrif að við séum að sjá hesta verr undirbúna. Til dæmis var unun að sjá vin minn Reyni Aðalsteinsson koma inn aftur, vel á sjötugsaldri. Hann var þarna að sýna Sikil frá Sigmundarstöðum í fimmgangi, sem er alveg nýr hestur að koma inn hjá honum. Það er líka alveg ljóst að fleiri koma sterk inn. Hinni Braga með Glym frá Flekkudal er gríðarlega sterkur. Þeir standa efstir í fimmganginum hjá Sörla eftir fyrri umferðina eins og stendur.“ Tóti og Þóra svaka sterkt par Hvað varðar kynbótahrossin verður slagurinn líka mikill að mati Ella. Þar er Þórður Þorgeirsson meðal annars að koma sterkur inn eftir keppnis- bann sem hann var dæmdur í vegna agabrota á heimsmeistaramótinu 2009. „Þeir verða líka sterkir Daníel Jónsson, Erlingur Erlingsson og fleiri. Ég var að heyra að Daníel væri búinn að koma hátt í þrjátíu hrossum í fyrstu verðlaun, takk fyrir takk. Fleiri má auðvitað telja til, Tóti Eymunds og Þóra frá Prestsbæ eru svaka sterkt par og gætu alveg skotið sér í efsta sæti. Svo er Þórður með Spuna frá Vesturkoti sem Finnur Ingólfsson á, fimm vetra hestur sem fór í 8,78 fyrir hæfileika. Það eru svakalegar tölur. Ég hef að vísu aðeins minna fylgst með kynbótahrossunum.“ Elli er því, eins og sjá má, afar spenntur fyrir komandi landsmóti. „Þetta verður algjör veisla.“ /fr Hulda Geirsdóttir, framkvæmda- stjóri Félags hrossabænda og Félags tamningamanna, segir að sér lítist mjög vel á hestakostinn sem búinn er að vinna sig inn á Landsmót hestamanna í ár. „Ég held að þetta verði rosalega sterkt, það er þorsti í fólki eftir fríið í fyrra. Ég á von á mjög sterkri gæðingakeppni og í töltinu. Síðan er alveg gríðarleg sprenging í kynbótahrossunum. Það er metfjöldi af stóðhestum að koma fram þarna. Ég held að þetta verði mikil gleði, það er gleðiefni fyrir hrossaræktendur að komast á þennan vettvang að nýju. Það hafa safnast upp hross á bæjum og tamningastöðvum sem þarf að koma á mót.“ Hvað varðar hápunkta mótsins seg- ist Hulda hlakka mest til að afkvæma- verðlaunin verði afhent. „Það er gríðarlega sterkt núna. Það eru sex hestar sem koma til greina í heiðursverðlaun og ellefu hestar sem koma til greina í fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Það er reyndar enn ekki vitað [16. júní, innsk. blm.] hvort allir þessir hestar munu mæta með afkvæmahópa á mótið en þeir eiga rétt á því. Þetta gæti orðið alveg meiriháttar sjónarspil. Mér persónulega finnst mjög gaman að sjá Arð frá Brautarholti efstan í fyrstu verðlaununum, það er hestur sem er að koma alveg gríðarlega sterkur inn. Hann er meðal annars faðir Dívu frá Álfhólum sem fékk tvær tíur í dómi í vor, fyrir tölt og vilja og geðslag. Það er til dæmis hross sem ég hlakka gríðarlega til að sjá á mótinu.“ Varðandi heiðursverð- launin þá segir Hulda Gára frá Auðsholtshjáleigu vera með yfir- burðastöðu. „Hann er bara klár, held ég, í að hampa Sleipnisbikarnum flotta. Það er samt rétt að nefna að það er meira en að segja það að setja saman svona sýningu. Það þurfa að vera tólf hross með heiðursverð- launahestunum og sex með fyrstu verðlaunahestunum. Það er auðvi- tað þannig með hross sem gefa góð afkvæmi að þau seljast, gjarnan úr landi. Hryssur eru settar í ræktun og stóðhestar eru kannski í notkun annars staðar. Þetta er mikil vinna og mikil kúnst og ég held að fólk meti það ekki alltaf að verðleikum hversu mikil vinna liggur þar að baki. Þetta hefur mikið gildi og þetta skiptir miklu máli inni á landsmótum. Við þurfum að hlúa vel að þessu.“ /fr Sunnudagur 26. júní Fimmtudagur 31. júlí Föstudagur 1. júlí Laugardagur 2. júlí Sunnudagur 3. júlí 20.00-21.00 20.00-21.00 22.00-23.30 15.00 15.00 Verðlaunaafhending í barna og unglinga- flokki Setningarathöfn Skagfirsk tón- listarveisla í tjaldi: Álftagerðisbræður, Karlakórinn Heimir, Geirmundur Valtýsson Söngvakeppni í Barnagarði með Magna og Siggu Beinteins Mótsslit 23.30-02.00 22.00-23.00 Dansleikur Hljómsveit Geirmundar Kvöldvaka í brekkunni Brekkusöngur í umsjón Magna o.fl. 23.00-02.00 Dansleikur í tjaldi Hljómsveitin Von ásamt gestum Skemmtidagskrá Landsmóts hestamanna Ómögulegt að segja hver verður stjarna landsmótsins „Verður algjör veisla“ Svo miklar framfarir að það eru eiginlega hamfarir Afkvæmaverðlaunin mest tilhlökkunarefni Erling Ó. Sigurðsson. Íþróttamaður Andvara 2009.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.