Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 42
41Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011
Ríkisstjórnin fjallaði á fundi
sínum 10. júní um ýmsar aðgerðir
í kjölfar eldgosa. Samþykkt var
að veita nú 54,3 milljónir króna
til úrbóta í kjölfar eldgosa í
Grímsvötnum, Eyjafjallajökli og
á Fimmvörðuhálsi. Ákvarðanir um
frekari fjárveitingar verða teknar
um leið og frekari úttektir á aðstæð-
um og fjárþörf liggja fyrir. Auk
þessa er sjóðsöfnun Samstöðusjóðs
vegna Grímsvatnagoss, sem Guðni
Ágústsson hefur verið í forsvari
fyrir, komin í um 30 milljónir
króna. Segir Guðni mikinn áhuga
meðal einstaklinga, félagasamtaka
og fyrirtækja fyrir söfnuninni en
henni lýkur um næstu mánaðamót.
Áður hafði ríkisstjórnin sam-
þykkt 867,7 m.kr. vegna ýmissa
þátta og viðbragða í kjölfar
eldgossins í Eyjafjallajökli og á
Fimmvörðuhálsi. Með þessari
samþykkt um 54,3 m.kr. til viðbót-
ar eru heildarframlög úr ríkissjóði
á árinu 2010 og 2011 vegna eld-
gosanna þriggja orðin 922 m.kr.
Þar að auki hafa Bjargráðasjóður
og Viðlagatrygging staðið straum
af umtalsverðum útgjöldum auk
þess sem ráðuneyti og stofnanir
hafa breytt forgangsröðun sinni og
verkefnum til þess að mæta afleið-
ingum eldgosanna. Eftirfarandi
verkefni voru samþykkt á fundi
ríkisstjórnarinnar 10. júní:
Fjárframlag til Landgræðslu
ríkisins
Samþykkt var að ríkisstjórnin veiti
aukafjárframlag til Landgræðslu
ríkisins til mikilvægra og brýnna
uppgræðsluverkefna til að hefta
öskufok og sandfok á gossvæð-
unum. Um er að ræða samtals
40,0 m.kr.
Búnaðarsamband Suðurlands
Ríkisstjórnin staðfesti 6 milljóna
kr. styrk til Búnaðarsambands
Suðurlands vegna aðstoðar
sambandsins við bændur á gos-
svæðinu í kjölfar eldgossins í
Eyjafjallajökli. Styrkbeiðnin er
sem nemur einu ársverki en sam-
bandið hefur lagt út kostnað vegna
aðstoðarinnar sem nemur vinnu-
framlagi upp á 3.843 stundir eða
rúmlega tvö ársverk. Þá hefur
sambandið jafnframt notið stuðn-
ings frá norskum bændum og frá
Bjargráðasjóði. Heildarkostnaður
sambandsins, sem það ber auka-
lega, er 15 milljónir króna.
Bjargráðasjóður
Samþykkt var að unnið verði
eftir reglum Bjargráðasjóðs nú í
kjölfar eldgossins í Grímsvötnum
eins og gert var í kjölfar gos-
anna í Eyjafjallajökli og á
Fimmvörðuhálsi. Sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðuneytið mun
fylgja þessu eftir og tryggja að
Bjargráðasjóður viðhafi sam-
bærilegt verklag og gert var í
fyrra og hefjist þegar handa við
tjónaskoðun á gossvæðinu.
Fjárþörf Vegagerðarinnar
Á síðasta ári veitti ríkisstjórnin
Vegagerðinni og fleiri stofnunum
viðbótarfjárheimildir til að mæta
hluta þess kostnaðar sem á þær
hafa fallið vegna neyðaraðgerða
og framkvæmda á gossvæðinu. Að
auki samþykkti ríkisstjórnin við-
bótarframlag til Vegagerðarinnar
vegna lagfæringa á bæjarhlöðum
og heimreiðum á fundi sínum 30.
nóvember sl. Innanríkisráðuneytið
og Vegagerðin áforma að verkið
verði framkvæmt í sumar.
Loftgæðamælingar
Samþykkt var að veita 6,2 m.kr.
fjárframlag vegna uppsetningar
annars svifryksmælis á gossvæðið
þannig að mæla megi loftgæði á
stærra svæði. Mælirinn mun koma
til landsins og verða tekinn í
notkun fyrri hluta næsta mánaðar.
Kostnaður vegna fyrstu viðbragða
í kjölfar eldgossins í Grímsvötnum
Unnið er að því að taka saman
helsta kostnað sem hefur fallið til
vegna fyrstu viðbragða í kjölfar
eldgossins í Grímsvötnum og
stefnt er að því að slík samantekt
liggi fyrir í lok þessa mánaðar.
Átaksverkefni vegna þjónustu við
ferðamenn
Iðnaðarráðherra og velferðarráð-
herra lögðu fyrir ríkisstjórn minn-
isblað varðandi átaksverkefni
vegna þjónustu við ferðamenn á
gossvæðum. Átakið snýr að mark-
aðssetningu, upplýsingaveitu,
Kötlusetri og Katla-geopark.
Slysavarnarfélagið Landsbjörg
Ríkisstjórnin samþykkti 2,1 m.kr.
fjárframlag til Landsbjargar
vegna kostnaðar á síðasta ári við
flutninga vísindamanna vegna
fyrstu viðbragða í kjölfar eld-
gosanna í Eyjafjallajökli og á
Fimmvörðuhálsi.
Í náttúruhamförum standa Íslendingar
saman. Grímsvatnagos olli íbúum á
gossvæðinu miklum erfiðleikum og tjóni,
því stendur fjársöfnun yfir til styrktar
íbúum þar sem tryggingum sleppir.
Söfnunin stendur út júnímánuð.
Stofnaður hefur verið reikningur í útibúi Arion-banka
á Kirkjubæjarklaustri fyrir söfnunina. Miðað er við
upphæðir frá fyrirtækjum á bilinu frá 100 þúsund
krónum til einnar milljónar en frjáls framlög almennings.
Samtök atvinnulífsins og verkefnisstjórn söfnunarinnar
hvetja almenning, fyrirtæki og félagasamtök til að
bregðast vel við þessu brýna verkefni.
Reikningsnúmer söfnunarinnar er: 317-26-2200
Kt.: 470788 1199
Sýnum
stuðning
í verki
V E R K E F N I S S T J Ó R N
S Ö F N U N A R I N N A R
*
!"#$$% %& '(#$$($$)*'(#+(,$#---.
Fjárveitingar vegna fyrstu aðgerða í kjölfar eldgossins í Grímsvötnum:
Ríkið ver 54 milljónum króna til úrbóta
- Búið að verja 868 milljónum vegna eldgosa í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi