Fréttablaðið - 12.01.2012, Qupperneq 4
12. janúar 2012 FIMMTUDAGUR4
VIÐSKIPTI „Upphæðirnar sem við
höfum frétt af eru afar háar og
gætu í einhverjum tilvikum veitt
fyrirtækjunum náðarhögg,“ segir
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins (SA),
um endurálagningar vegna gjalda-
breytinga sem embætti ríkisskatt-
stjóra hefur verið að senda út til
fyrirtækja. Fréttablaðið greindi
frá því í síðustu viku að gjalda-
breytingarnar hefðu alls numið
sex milljörðum króna á árinu 2011.
Á meðal þeirra sem hafa fengið
tilkynningar um endurálagningu
eru Skipti, móðurfélag Símans,
sem þarf að greiða á bilinu 800
til 1.800 milljónir króna og Húsa-
smiðjan sem þarf að greiða allt að
700 milljónir króna. Á meðal þeirra
mála sem hafa leitt til endurálagn-
ingar eru skuldsettar yfirtökur þar
sem gjaldfærslu á vöxtum lána sem
tekin voru til að fjármagna yfir-
tökuna var hafnað. Slík mál eru oft
kölluð öfugir samrunar, þar sem
einkahlutafélagi sem kaupir rekstr-
arfélag er rennt inn í það með eign-
um og skuldum.
Vilhjálmur telur að margir tugir
fyrirtækja hafi fengið endurálagn-
ingu vegna slíkra samruna. „Við
höfum fengið allnokkrar tilkynn-
ingar um þetta. Frá því sem ég hef
heyrt þá myndi ég álykta að þetta
væru einhverjir tugir fyrirtækja.
Þetta er eftirá-herferð hjá ríkis-
skattstjóra gegn þessum öfugu
samrunum og það er farið mörg
ár aftur í tímann. Í ýmsum tilvik-
um hafa umrædd fyrirtæki skipt
um hendur og nýir eigendur keypt
þau í góðri trú um að það sé ekk-
ert athugavert með skattskil þeirra.
Þetta er því afar bagalegt.“
Endurálagning RSK
getur veitt náðarhögg
Sum þeirra fyrirtækja sem þurfa að greiða endurálagningu skatta gætu farið
á hausinn. Greiða þarf skattaskuldina áður en endanleg niðurstaða fæst um
lögmæti endurálagningarinnar. Vilhjálmur Egilsson segir málið bagalegt.
FRAMKVÆMDASTJÓRI „Í ýmsum tilvikum hafa umrædd fyrirtæki skipt um hendur
og nýir eigendur keypt þau í góðri trú um að það sé ekkert athugavert með skatt-
skil þeirra“ segir Vilhjálmur Egilsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Til viðbótar við gjaldabreytingar sem lagðar hafa verið á félög og fyrir-
tæki lækkaði ríkisskattstjóri yfirfæranlegt tap sem þau ætluðu að nýta sér
til skattafrádráttar um 46,7 milljarða króna. Sú lækkun nam einungis 86
milljónum króna á öllu árinu 2010 og því ljóst að um gríðarlega aukningu
er að ræða. Heimildir Fréttablaðsins herma að ástæða þess að upphæðin
hafi verið svona há í fyrra sé að fjölmörg félög og fyrirtæki sem hafi farið
illa út úr bankahruninu, en hafi síðan verið fjárhagslega endurskipulögð og
haldið lifandi þrátt fyrir að bera ekkert nema tap, hafi ætlað að nýta tapið til
frádráttar. Því hafi ríkisskattstjóri hafnað.
Nýtanlegt tap lækkað um 47 milljarða
Að sögn Vilhjálms hefur hann
meðal annars heyrt af sjávarút-
vegsfyrirtækjum sem hafa feng-
ið háar endurálagningar vegna
öfugra yfirtaka. „Hér á árum áður
voru mörg sjávarútvegsfyrirtæki
tekin af markaði í kjölfar yfirtaka.
Þá var þessi leið oft farin. Þau eru
nú að lenda í endurálagningu.“
Ágreiningur um skattakröfu
leiðir ekki til þess að gjaldandinn
fái frest til að greiða hana. Því
þurfa fyrirtækin sem um ræðir að
greiða ætlaða skattaskuld sína jafn-
vel þótt þau kjósi að vísa ákvörð-
uninni um endurálagningu til yfir-
skattanefndar. Vilhjálmur segir
það bagalegt að fá ekki úr lögmæt-
inu skorið fyrst. „Það er ekki gott
þegar fyrirtækin þurfa að leggja
út fyrir þessu og verða fyrir mikl-
um kostnaði, jafnvel gjaldþroti, en
síðan kemur í ljós að þetta hefur
verið ólöglega gert allan tímann.
Við höfum rætt við ríkisskattstjóra
um þessi mál. Hann er ekki að fara
að draga aðgerðir sínar til baka.
Því er spurning um hversu hratt
yfirskattanefnd úrskurðar í mál-
unum og hvað ríkisskattstjóri mun
gera ef hún úrskurðar skattgreið-
endum í vil.“ thordur@frettabladid.is
GENGIÐ 11.01.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,625
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,94 124,54
191,31 192,25
158,12 159,00
21,256 21,380
20,666 20,788
17,961 18,067
1,6099 1,6193
189,34 190,46
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
www. tengi.is
ALMAR ECO STURTUSETT
GÆÐI,ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ
- ÞAÐ ER TENGI
6.550.- kr
Tilboðsverð
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
16°
8°
9°
8°
8°
6°
8°
8°
21°
12°
18°
10°
22°
1°
10°
15°
4°
Á MORGUN
8-15 m/s.
LAUGARDAGUR
8-13 m/s.
0
-5
0
-5
2
-10
-7
-4
-3
-2
-2
6
6
5
4
3
5
3
3
2
3
4
6
4
4
6
5
4
5
6
3
2
HLÝNANDI VEÐUR
Það gengur í stífa
suðaustanátt í
kvöld með úrkomu
og heldur hlýnandi
veðri. Rigning og
stíf sunnanátt á
morgun í 4-10
stiga hita og því
verður hláka víða
um land. Nokkuð
svipað veður á
laugardag en
kólnar um tíma.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
VEIÐI Leigusamningur fyrir Þverá
og Kjarrá í Borgarfirði var undir-
ritaður í gær. Samningurinn er
til fimm ára eða frá næsta sumri
til ársins 2017.
Leigutaki árinnar er nýtt félag,
Starir ehf. í eigu þeirra Davíðs
Mássonar, sem er jafnframt
stjórnarformaður, Halldórs Haf-
steinssonar og Ingólfs Ásgeirs-
sonar.
Starir greiða Veiðifélagi Þver-
ár 111,7 milljónir króna á ári.
Átta tilboð bárust í leigu ánna í
nóvember, en 30 ár voru þá síðan
leiga í Þverá og Kjarrá var boðin
út. Veiðifélagið Sporður hafði ána
á leigu en tók ekki þátt í útboð-
inu nú.
Næsthæsta tilboðið kom frá
Lax-á ehf., og hljóðaði upp á 111,2
milljónir. - shá
Þverá og Kjarrá í Borgarfirði:
Gengið frá
leigusamningi
Í HÖFN Kristján F. Axelsson, formaður
Veiðifélags Þverár, og Ingólfur Ásgeirs-
son handsala samninginn í gær.
MYND/STARIR
BANDARÍKIN, AP Mitt Romney
vann næsta öruggan sigur í for-
kosningum repúblikana í New
Hampshire-ríki í fyrrakvöld.
Hann hlaut 39% atkvæða en þing-
maðurinn Ron Paul kom honum
næstur með 23% fylgi.
Romney var einnig hlutskarp-
astur í fyrstu rimmunni í Iowa
í síðustu viku, en næsti slagur
verður í Suður-Karólínu um aðra
helgi og svo í Flórída tíu dögum
síðar. Þrátt fyrir að slagurinn sé
nýhafinn er staða Romneys sterk
og hann er almennt talinn líkleg-
astur til að hljóta útnefninguna
og keppa við Barack Obama í for-
setakosningunum í haust. - þj
Romney vann í annað sinn:
Slagurinn fær-
ist til S-Karólínu
SIGURREIFUR Mitt Romney leiðir
slag repúblikana um útnefningu fyrir
forsetakosningarnar. NORDICPHOTOS/AFP
KÓPAVOGUR Bæjarstjórn Kópavogs
samþykkti á fundi sínum á þriðju-
dag að friðlýsa þann hluta Skerja-
fjarðar sem er í landi bæjarins.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá
stóð nokkur styr um málið. Svo
fór að kosið var um friðlýsinguna í
tvennu lagi. Allir samþykktu frið-
lýsingu Kópavogs en friðlýsingu
Kársness norðanverðu í Fossvogi
samþykkti aðeins meirihlutinn.
Þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
greiddu atkvæði gegn friðlýsing-
unni, sá fjórði sat hjá ásamt full-
trúa Framsóknarflokks. - kóp
Bæjarstjórn Kópavogs:
Friðýsingin var
samþykkt
SVEITARSTJÓRNIR Skipulagsnefnd
Reykhólahrepps hefur samþykkt
fjórar nýjar lóðir fyrir sumarhús
í Flatey.
Ýmsar athugasemdir bárust
vegna nýju lóðanna. Skipulags-
nefndin sagði þær vera minni-
háttar. Meðal annars benti nefnd-
in á að samkvæmt eldra skipulagi
hafi verið gert ráð fyrir allt að
fimmtán húsum. Þá verði gerðar
ráðstafanir varðandi takmarkað
aðgengi að vatni og rafmagni.
Einnig sé dregið nokkuð úr bygg-
ingarmagni á stærstu lóðinni. - gar
Umdeild skipulagsbreyting:
Heimila nýjar
lóðir í Flatey
Á inniskóm í snjónum
Umhyggjusamur borgari hafði sam-
band við lögregluna á höfuðborgar-
svæðinu í fyrradag og greindi frá
manni sem var illa á sig kominn í
miðborginni. Maðurinn var hríð-
skjálfandi þegar lögreglumenn komu
á vettvang, afar illa klæddur og í inni-
skóm. Hann var fluttur á slysadeild til
aðhlynningar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
DÓMSMÁL Skilanefnd Glitnis tókst
ekki að sýna fram á réttmæti kröfu
um kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar og Lárusar Welding
þegar krafan var lögð fram hjá
sýslumanni.
Þessu héldu lögmenn Jóns
Ásgeirs og Lárusar fram við mál-
flutning um kyrrsetningarkröfuna
í Hæstarétti í gær. Jón Ásgeir og
Lárus áfrýjuðu dómi héraðsdóms,
sem staðfesti kyrrsetningarúrskurð
sýslumanns.
Einu gögnin sem lágu til grund-
vallar þeirri ákvörðun sýslumanns
að kyrrsetja eignirnar voru full-
yrðingar í kröfu skilanefndarinn-
ar, sagði Gestur Jónsson, lögmaður
Jóns Ásgeirs. Hann sagði það ekki
uppfylla skilyrði fyrir kyrrsetningu
eigna.
Hróbjartur Jónatansson, lögmað-
ur skilanefndarinnar, sagði öll skil-
yrði fyrir kyrrsetningu uppfyllt.
Málið sé í raun skólabókardæmi um
mál þar sem kyrrsetning eigi við.
Skilanefndin hefur höfðað skaða-
bótamál á hendur Jóni Ásgeiri og
Lárusi vegna sex milljarða láns frá
Glitni til félags í eigu Pálma Har-
aldssonar sem aldrei fékkst greitt.
Krafist var kyrrsetningar á öllum
eignum Jóns Ásgeirs og Lárusar
hér á landi svo þeir geti ekki komið
eignunum undan verði þeir dæmdir
til að greiða skaðabætur. - bj
Tekist á um kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Lárusar Welding:
Segja ekki sýnt fram á réttmæti kröfu
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON
LÁRUS WELDING