Fréttablaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 22
22 12. janúar 2012 FIMMTUDAGUR
Starfsemi deildarinnar hefur þjónað öldruðum íbúum Akraness
og nágrennis um áratuga skeið.
Meginhlutverk starfseminnar er
að veita umönnun, hjúkrun og lækn-
ingu á sviði öldrunar. Lögð er áhersla
á endurhæfingu aldraðra.
Í dag eru á deildinni 14 legurými
sem skiptast í þrjú rými fyrir endur-
hæfingarsjúklinga, eitt fyrir hvíldar-
innlagnir og 10 rými fyrir skamm-
tíma- og langtímainnlagnir.
Endurhæfing: Sýnt hefur verið
fram á að endurhæfing þar sem
skjólstæðingar fara í endurhæfingar-
áætlun eykur færni aldraðra og bætir
andlega líðan þeirra svo um munar
og gerir þeim kleift að búa lengur á
heimilum sínum.
Hvíldarinnlagnir: Þjóna þeim ein-
staklingum sem hafa með aðstoð ætt-
ingja getað búið heima. Mikið álag
hvílir á herðum ættmenna sem hjúkra
öldruðum og veikum einstaklingum.
Með þessu fyrirkomulagi er þeim
einnig gert kleift að búa lengur heima.
Skammtíma- og langtímainn-
lagnir: Eru fyrir einstaklinga sem
hafa fengið vistunarmat og bíða vist-
unar á öðrum öldrunarstofnunum.
Sumir þeirra hafa dvalið á deildinni
í langan tíma vegna þess að hjúkrun-
ar- og dvalarheimilisrými hafa ekki
verið nægilega mörg til þess að mæta
vaxandi þörf.
Kemur eitthvað annað í staðinn?
Með þessum upplýsingum viljum
við vekja bæjarbúa og íbúa á Vest-
urlandi til umhugsunar um hvað
lokun á deildinni hefur að segja fyrir
landshlutann allan. Á síðastliðnu ári
þjónustaði deildin 105 einstaklinga
og eru þá ótaldir þeir ættingjar sem
njóta þjónustu um leið. Með lokun-
inni mun endurhæfing fyrir fólk
með skerta getu til að sinna þáttum
daglegs lífs verða felld niður í þeirri
mynd sem hún er núna. Hvíldarinn-
lagnir verða færðar á aðrar deildir
stofnunarinnar ásamt skammtíma-
og langtímainnlögnum með öllum
þeim óþægindum sem því fylgir fyrir
alla sem að þessum málum koma.
Ekkert annað þjónustustig innan
heilbrigðiskerfisins getur komið í
staðinn fyrir þá þjónustu sem öldr-
uðum er veitt á sérhæfðum öldrunar-
lækningadeildum. Á deildinni starfar
metnaðarfullur og samheldinn hópur
sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga
ásamt öðru starfsfólki. Starfsfólkið
hefur lagt metnað sinn í að sækja sér
þekkingu í formi símenntunar skjól-
stæðingunum til hagsbóta. Meirihluti
starfsfólksins hefur áratuga reynslu
af umönnum aldraðra og hefur leit-
ast við að veita þeim og fjölskyldum
þeirra góða þjónustu.
Atvinnumissir og áhrif á fjöl-
skyldur á Akranesi
Þann 1. febrúar nk. standa hátt í þrjá-
tíu konur með uppsagnarbréf í hönd-
unum. Þessi ráðstöfun hefur áhrif á
líf og afkomu hátt í eitt hundrað ein-
staklinga á Akranesi sem tengjast
þessu starfsfólki fjölskylduböndum
auk hinna öldruðu og aðstandenda
þeirra. Nýbygging á Dvalarheim-
ilinu Höfða er því miður ekki ljós í
myrkrinu. Ekki er fyrirséð að þar
verði fjölgun á störfum né rýmum í
náinni framtíð, þrátt fyrir viðbygg-
ingu, því hún er eingöngu ætluð til
þess að skapa einbýli fyrir heimil-
isfólkið sem fyrir er. Heimahjúkr-
un mun varla ráða við fjölgun sjúk-
linga í heimahúsum því álag er mikið
á þeirri þjónustu fyrir og engin
umræða er um að ráða bót á því.
Það segir sig sjálft að skerðing á
þjónustu við aldraða á Vesturlandi er
óumflýjanleg þrátt fyrir yfirlýsing-
ar stjórnenda HVE um að svo verði
ekki.
Ingibjörg Hulda
Björnsdóttir
trúnaðarmaður
sjúkraliða
Forsetakosningar verða snemm-sumars og því er nú rætt um
hvernig kjörið fari fram. Í 5. gr.
gildandi stjórnarskrár segir að sá
sé rétt kjörinn forseti „sem flest
fær atkvæði“. Bent er á að fram-
bjóðandi geti náð kjöri með litlu
fylgi samkvæmt þessari reglu.
Því hefur verið kastað fram að
nær tugur frambjóðenda kunni
að verða í boði og dreifist atkvæði
mjög á milli þeirra geti svo farið
að nýr forseti verði kjörinn með
stuðningi svo sem fimmtungs
kjósenda.
Aðeins einn af forsetum lýð-
veldisins hefur náð stuðningi
meirihluta kjósenda við fyrstu
kosningu í embættið. Það var í
forsetakosningunni 1968 þegar
Kristján Eldjárn var kjörinn
með nær tveimur þriðjuhlutum
atkvæða. Yfirlit yfir stuðning við
kjörinn forseta er sýnt í 1. töflu.
Kjörnir forsetar hafa að jafn-
aði skjótt aflað sér stuðnings
þjóðarinnar og það óháð kjörfylgi.
Þannig varð Vigdís strax vinsæl
enda þótt enginn af þjóðkjörnu
forsetunum fjórum hafi hlotið
minna fylgi við upphaflegt kjör
en hún. Engu að síður er æskilegt
að forseti njóti ótvíræðs stuðn-
ings meirihluta kjósenda. Sums
staðar tíðkast að endurtaka kjör-
ið ef enginn frambjóðandi nær
meirihluta í fyrstu atrennu. Er
þá að jafnaði kosið á milli tveggja
efstu manna á ný og nær þá annar
þeirra hreinum meirihluta.
Stjórnlagaráð leggur til í frum-
varpi sínu einfaldari aðferð að
sama marki. Hún er sú að sam-
eina fyrstu og aðra umferð með
því að beita forgangsröðunarað-
ferð. Kjósendur raða þá frambjóð-
endum í forgangsröð: Þennan vil
ég helst, en nái hann ekki kjöri þá
þennan o.s.frv. Fái enginn fram-
bjóðenda meirihluta að fyrsta
vali kjósenda er sá þeirra sem
fær minnst fylgi dæmdur úr leik
og atkvæði hans færð til hinna í
samræmi við annað val viðkom-
andi kjósenda, o.s.frv. allt þar til
meirihluti liggur fyrir.
Írar hafa um langan aldur notað
þessa aðferð í öllum almennum
kosningum, þar á meðal í for-
setakosningum. Einu sinni hefur
reynt á það á Írlandi að sá for-
setaframbjóðandi hafi ekki náð
kjöri sem þó fékk flest atkvæði að
fyrsta vali. Þetta dæmi er rakið í
2. töflu.
Brian Lenihan hlaut vissulega
flest atkvæði í fyrstu en þó ekki
meirihluta. Kjósendur Austin
Currie gerðu því útslagið. Eins
og sjá má í töflunni tóku flest-
ir þeirra Mary Robinson fram
yfir Brian Lenihan svo að það
var Mary sem náði kjöri en ekki
Brian. Trúlega hefði það sama
orðið upp á teningnum ef kosið
hefði verið aftur á milli þeirra
tveggja.
Nýr forseti var kjörinn á Írlandi
á sl. ári. Óvenjumargir, eða sjö,
voru í kjöri. Úrslitin og talningar-
hrinurnar eru sýndar í 3. töflu.
Fram kemur í töflunni að
enginn frambjóðenda náði í
fyrstu hreinum meirihluta. Þá
eru tveir þeir atkvæðarýrustu
dæmdir úr leik og atkvæði þeirra
færð að 2. vali kjósenda. (Írar
spara sér talningar með því að
slá tveimur hrinum saman eftir
vissum reglum, sem er þó fræði-
lega ekki alveg kórrétt!) Fyrst við
4. talningu er orðið ljóst hver er
sigurvegarinn. Það var Michael
D. Higgins. Þótt hann hafi ekki
hlotið meirihluta í upphafi sótti
hann í sig veðrið við hverja taln-
ingarhrinu og var því með traust
umboð í lokin.
Í forsetakosningunni hér á landi
árið 1996 féllu atkvæði eins og
sýnt er í 4. töflu.
Hefði valið á forseta orðið
annað með forgangsröðunarað-
ferð, eða ef forsetakjörið hefði
farið fram í tveimur umferðum
þar sem kosið hefði verið á milli
þeirra Ólafs Ragnars og Péturs
Kr. í seinni umferð? Því verður
ekki svarað eftir á.
Forgangsröðunaraðferðin
tryggir að rétt kjörinn forseti
njóti meirihluta stuðnings kjós-
enda en sneiðir hjá ókostunum við
kjör í tveimur umferðum sem eru
m.a. eftirfarandi:
● Kostnaður við tvær kosningar.
● Áhugaleysi almennings á þátt-
töku í báðum umferðunum. Sé
t.d. talið ljóst að enginn muni
ná kjöri í fyrri umferð og ein-
sýnt hverjir nái að vera í kjöri í
þeirri seinni, kunna kjósendur
að bíða seinni umferðarinnar.
● Flokkadrættir og hrossakaup
frambjóðenda eftir fyrri kosn-
inguna, þar sem hinir tveir
efstu kunna að biðla með óvið-
eigandi hætti til stuðnings-
manna þeirra sem eru úr leik.
Stjórnlagaráð leggur til skýrar
valdheimildir handa forsetanum.
Þær eru fáar en ótvíræðar. Það er
því mikilvægt að kjósendur vandi
valið. Því miður er næsta ólíklegt
að búið verði að breyta stjórnar-
skránni fyrir næstu forsetakosn-
ingar. Forseti verður því kjörinn
til næstu fjögurra ára með gamla
laginu. Vonandi lukkast valið
samt vel.
Hvernig á að kjósa forsetann?
Forseti Kosningarár Hlutfall af gildum atkv. Mótframbjóðendur
Sveinn Björnsson 1944 þingkjörinn
Ásgeir Ásgeirsson 1952 48,3% 2
Kristján Eldjárn 1968 64,3% 1
Vigdís Finnbogadóttir 1980 33,8% 3
Ólafur Ragnar Grímssson 1996 41,4% 3
1. tafla Fylgi kjörinna forseta við fyrstu kosningu
Atkvæði Atkvæði í
Frambjóðandi að 1. vali Færð atkvæði 2. talningu
Austin Currie 267.902 -267.902 0
Brian Lenihan 694.484 36.789 731.273
Mary Robinson 612.265 205.565 817.830
2. tafla Forsetakosning á Írlandi 1990
Frambjóðandi Hlutfall
að 1. vali Talningarhrinur
1. talning 2. talning 3. talning 4. talning
Michael D. Higgins 39,6% 701.101 730.480 793.128 1.007.104
Seán Gallagher 28,5% 504.964 529.401 548.373 628.114
Martin McGuinness 13,7% 243.030 252.611 265.196
Gay Mitchell 6,4% 113.321 127.357 136.309
David Norris 6,2% 109.469 116.526
Dana Rosemary Scallon 2,9% 51.220
Mary Davis 2,7% 48.657
3. tafla Úrslit og talning í forsetakosningum á Írlandi 2011
Hlutfall
Frambjóðandi Gild atkvæði af gildum atkvæðum
Ástþór Magnússon Wium 4.422 2,7%
Guðrún Agnarsdóttir 43.578 26,4%
Ólafur Ragnar Grímsson 68.370 41,4%
Pétur Kr. Hafstein 48.863 29,6%
4. tafla Forsetakosning 1996
Forseta-
embættið
Þorkell
Helgason
sat í stjórnlagaráði
Stjórnlagaráð leggur til skýrar valdheim-
ildir handa forsetanum. Þær eru fáar
en ótvíræðar. Það er því mikilvægt að
kjósendur vandi valið.
Ólafur Ragnar Grímsson er svo dularfullur í tali um fram-
boð til eða fráhvarf frá forseta-
embætti að hann hefur reynst
einkar verkefnaskapandi fyrir
kollega sína stjórnmálafræð-
ingana. Þeir hafa ærinn starfa við
að túlka véfréttarsvör frá Bessa-
stöðum. Stéttvís maður að þessu
leyti, Ólafur.
Nú eru ýmsir að spá því að
Ólafur Ragnar vilji tefla svo, að
á einhverjum tímapunkti verði
efnt til mikillar herferðar meðal
íslenskrar þjóðar til að skora á
hann að sitja áfram í embætti
- hvað sem hann svo gerir við
þær áskoranir. Í því samhengi
má ekki gleyma því að Ólafur
Ragnar hefur jafnan haft mikinn
áhuga á ævisögum mikilmenna
og því er freistandi að skoða þær
ýmsar ef þar mætti finna mynst-
ur í pólitískri hegðun sem hann
kynni að máta sig við. Og þá
mætti til dæmis nefna snilldar-
taflmennsku Ívans keisara hins
grimma í Moskvu á ofanverðri
sextándu öld.
Ívan hafði ríkt um hríð og átti
í basli við ýmsa höfðingja sem
vildu ráða einhverju líka sem og
kirkjuna sem bað þeim stundum
vægðar sem hann vildi losna við.
Hann átti sumsé við að glíma
ýmsar hömlur eða hindranir í
embætti þjóðhöfðingja, eins og
nú myndi sagt. Þá bregður Ívan
á það ráð að segja af sér höfð-
ingdómi, ég er hættur að stjórna
þessum þvermóðskufulla lýð,
sagði hann, hættur og farinn.
Og hann yfirgaf höfuðborg sína
Moskvu með lítilli hirð og sett-
ist að í plássi sem heitir Alexand-
rovskaja sloboda. Nú greip skelf-
ing mikil um sig meðal lýðsins
í Moskvu, ekkert fannst mönn-
um, segir sagnfræðingurinn
Karamzin, verra en höfðingja-
leysi. Við förumst, vældi hver
upp í annan, hver mun nú vernda
okkur fyrir útlenskum, hvernig
getur hjörð verið án hirðis? Og
svo fór að biskupar og bojarar,
kaupmenn og borgarar aðrir
gerðu út sendinefnd til Ívans.
Þeir menn slógu ennum í gólf,
eins og sagt var þá, grátbiðjandi
Ívan um að yfirgefa þá ekki.
Ívan lét þá engjast um hríð, en
eftir dágóða umhugsun tilkynnti
hann að hann mundi láta svo lítið
að snúa aftur til Moskvu og taka
við embætti. En - það mundi hann
gera með vissum skilyrðum.
Skilyrðin voru þau, að héðan í
frá yrðu engar hömlur settar á
hann í hans háa embætti, hann
mætti gera hvað sem honum
sýndist.
Og var það samþykkt.
Þetta var um áramótin 1564-
1565. Og nú eru aðrir tímar, eins
og skáldið sagði. En bæði er að
taflmennska er gömul og vel æfð
íþrótt og svo má svo vel sé vitna
í skarpan Fransmann sem fyrir
um 200 árum sagði: „Því meir
sem allt breytist því meir fáum
við af því sama”.
Taflmeistarar ólíkra tíma Lokun öldrunar-
lækningadeildar
Heilbrigðismál
Erla Linda
Bjarnadóttir
formaður
Vesturlandsdeildar
Sjúkraliðafélags Íslands
Forseta-
embættið
Árni
Bergmann
rithöfundur
Við förumst, vældi hver upp í annan,
hver mun nú vernda okkur fyrir útlensk-
um, hvernig getur hjörð verið án hirðis?