Fréttablaðið - 12.01.2012, Qupperneq 26
Framhald af forsíðu
Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16,
www.topphusid.is
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Í
Útsala - Útsala
allt að
50% afsláttur
Verð áður
34.900,-
Verð nú
17.450,-
ÚTSALA
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
www.lindesign.is
Sendum frítt úr vefverslun
dúnsængum
af öllum
30%
afsláttur
ÚTSALA HAFIN
Tösku og hanskabúðin Skólavörðustíg 7 101 Reykjavík Sími 551 5814 www.th.is
40% AFSLÁTTUR
Af þessum brúnu
hönskum
Takmarkað magn
Verð áður 5.800 kr.
Verð nú 3.400 kr.
Fyrirtækið Cintamani færir út
kvíarnar með opnun verslana í
Bandaríkjunum og Kanada.
Dreifingaraðili fyrir Cintamani-
vörur í Colorado í Bandaríkjunum
opnaði nýverið verslun undir merkj-
um fyrirtækisins í Silverthorne,
þekktu skíðasvæði í fylkinu. Dagný
Guðmundsdóttir, framkvæmda-
stjóri Cintamani, segir opnunina
vísbendingu um að vörumerkið
njóti vaxandi virðingar ytra.
„Auðvitað er jákvætt að erlendir
aðilar sækist eftir því að halda
okkar nafni á lofti. Það sýnir bara
að Cintamani hefur fest sig í sessi,“
bendir hún á og bætir við að aðrir
dreifingaraðilar hyggist opna
Cintamani-búðir í Bandaríkjunum
og Kanada er fram líða stundir.
Óhætt er að segja að með þessu
færi fyrirtækið enn frekar út
kvíarnar en það hefur þegar opnað
eigin verslanir, átján talsins, í
Þýskalandi. Er þá óupptalinn fjöldi
verslana sem selur Cintamani-
vörur í Evrópu.
Spurð hvað sé næst á döfinni hjá
Cintamani segir Dagný standa til að
kynna nýja útivistarlínu með sumr-
inu.
„Þetta verður allt frá úlpum
niður í nærföt, og miklu líflegra og
litríkara en áður hefur sést.“ - rve
Cintamani opnar í Colorado
Ný Cintamani-verslun hefur verið opnuð í Colorado. MYNDANÚMER: F14110112
Rafmagnað hár er hvimleitt en margir kannast við það vandamál
yfir vetrarmánuðina. Ráð við því er að úða hárspreyi á hárburstann
og renna honum í gegnum hárið frá rótum að enda.
Nýja merkið ber nafn hans sjálfs,
Boaskristjanson en Bóas sýndi
sína fyrstu fatalínu á tískuvikunni
í París árið 2010, prjónaföt fyrir
karlmenn. Hann segir nýja merkið
allt öðruvísi.
„Þetta er mun stærri lína og fjöl-
breyttari snið og efni. Við erum
í samstarfi við bæði íslenska og
erlenda aðila við að þróa efnin og
erum búin að þróa prjónaefni þar
sem við blöndum íslenskri ull við
vistvænan textíl, svo sem lífræna
bómull og mjólkurtrefjar. Það hefur
tekist mjög vel. Einnig erum við að
vinna með ofin ullarefni og notum
töluvert af leðri í línuna,“ útskýrir
Bóas en fyrirtækin Glófi og Sjávar-
leður eru meðal samstarfsaðila.
„Við notum hráefni sem fellur til,
til dæmis við matvælaiðnað, svo
það er ekki verið að rækta til að búa
til skinnin,“ útskýrir Bóas og seg-
ist finna fyrir stórauknum áhuga á
hönnun úr vistvænum efnum.
„Ég er búinn að vinna að þessu
verkefni síðan 2009 og finn fyrir
auknum áhuga, miklu meiri en var.
Það á þó almennt eftir að vinna
mikla kynningarvinnu á því um
hvað hönnun úr vistvænum efnum
snýst og sú kynning verður að koma
frá skapandi fólki. Vistvæn hönnun
þýðir að ekki er verið að ganga á
náttúrulegar auðlindir sem ekki
er hægt að endurnýja,“ útskýrir
Bóas. „Ég hugsa að staðan á þessum
málum sé svipuð og hún var fyrir
tíu árum með lífræn matvæli.“
Bóas hyggst opna heimasíðu
kringum nýja merkið síðar í mánuð-
inum og hægt verður að sjá línuna
fullunna á vefnum í mars. Í fram-
haldinu verður línunni dreift í
verslanir hér á Íslandi og erlendis
en Bóas er í samstarfi við kynning-
ar- og söluaðila bæði í New York og
París. Það eru því spennandi tímar
fram undan. „Þetta gæti verið byrj-
unin á einhverju stærra. Mér finnst
þetta allavega mjög spennandi.“
Hægt verður að fylgjast með á
www.boaskristjanson.com síðar í
janúar. heida@frettabladid.is
Bóas er á leiðinni til Parísar að kynna nýja fatalínu úr vistvænum textíl en hægt verður að fylgjast með á www.boaskristjanson.com. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hattar hafa gegnt
ýmsum hlutverkum.
Litir á höttum urðu
þannig einkennandi
fyrir vissar fjölskyldur
á Ítalíu, jakobínahúfan
varð tákn frönsku bylt-
ingarinnar
og svo
fram-
vegis.
Tíska aldanna.