Fréttablaðið - 12.01.2012, Page 32
4 •
Ein stærsta tónlistarfrétt síðasta
árs var samningur hljómsveitar-
innar Of Monsters and Men við
útgáfurisann Universal. Fljótlega í
kjölfarið byrjuðu hjólin að snúast
og hljómsveitin sendi frá sér
stuttskífuna Into the Woods í
desember í gegnum iTunes. Skífan
fór fljótlega á lista yfir vinsælustu
plötur vefverslunarinnar og situr í
dag í efsta sæti Heatseekers lista
Billboard, sem einblínir á hljóm-
sveitir og tónlistarmenn á uppleið.
Magnaður árangur það.
Ragnar Þórhallsson, söngvari
og annar gítarleikari Of Monsters
and Men, er ánægður með
árangurinn en ánægðastur með
ferðalögin sem eru fram undan.
Nýja árið fer nefnilega að miklu
leyti í útrás Of Monsters and Men.
Endurbætt útgáfa plötunnar My
Head is an Animal, sem kom út
á Íslandi á síðasta ári og seldist í
meira en 5.000 eintökum, kemur
út á vegum Universal og í kjölfarið
heldur hljómsveitin í tónleika-
ferðalag sem hefst á tónlistarhá-
tíðinni South by Southwest í
Texas í Bandaríkjunum í mars.
Þaðan liggur leiðin til fleiri ríkja
Bandaríkjanna í sendibíl og eftir
það er Evrópa og jafnvel Ástralía
á dagskránni. „Að geta ferðast
út um allt er algjör snilld,“ segir
hann. „Ég hlakka mest til þess.
Allt annað gerist eða gerist ekki.
Við erum að fá tækifæri til að sjá
heiminn og gera það sem okkur
finnst gaman.“
Spurður hvort þetta sé líf sem
hann hafi látið sig dreyma um
segist Ragnar svo ekki vera, enda
sé Of Monsters and Men fyrsta
hljómsveitin hans. „Og ég er 24
ára,“ segir hann. „Sumir í hljóm-
sveitinni hafa verið með þennan
draum frá því að þeir voru litlir.
Ég leyfi mér að dreyma þetta
núna og mig dreymir vel.“
Hlutirnir hafa gerst hratt hjá
Of Monsters and Men sem vann
Músíktilraunir árið 2010, skömmu
eftir að hún var stofnuð. Nú er
svo komið að meðlimir hljóm-
sveitarinnar hafa tekið sér frí frá
námi og störfum til að geta sinnt
hljómsveitinni og tekið að fullum
krafti þátt í starfinu sem er fram
undan. „Þetta er búið að gerast
hratt og maður nær ekki að pæla
mikið í því. Ég hef stundum orðið
hræddur og stressaður, en svo
fatta ég hvað þetta er mikil snilld
og leyfi mér að rúlla með,“ segir
hann.
Útgáfusamningur var ekki það
eina sem rak á fjöru Of Monsters
and Men í fyrra því bandaríski um-
boðsmaðurinn Heather Kolker tók
hljómsveitina að sér. Hún starfar
hjá umboðsskrifstofunni Paradigm
Agency í New York. Þar sér hún
meðal annars um tónleikabók-
anir fyrir hljómsveitir á borð við
MGMT og Edward Sharpe & The
Magnetic Zeros. Of Monsters and
Men er fyrsta hljómsveitin sem
hún tekur að sér umboðsmennsku
fyrir. Í viðtali við Fréttablaðið í
apríl sagði hún umboðsmennsk-
una vera nýja upplifun fyrir sig.
„Ég hafði lengi leitað að hljóm-
sveit, en vildi ekki vera umboðs-
maður nema ég myndi finna
mjög sérstaka hljómsveit sem
ég elska á allan hátt,“ sagði hún.
„Ég vildi ekki bara dá tónlistina,
heldur líka sjá möguleika á því að
hljómsveitin yrði farsæl. Þá vildi
ég elska fólkið í hljómsveitinni,
en slíkt er ekki auðvelt að finna í
þessum bransa.“
Ragnar er mjög ánægður með
samstarfið. „Það er mikið pælt
í öllu og málin rædd áður en
ákvarðanir eru teknar. Hún hjálpar
okkur í því. Hún þekkir þetta allt.“
Það er eitthvað traustvekjandi
við að hafa konu í þessu.
„Já, ég elska að vinna með
konum, frekar en körlum. Hún
er ekki í einhverjum svörtum
jakkafötum, eða eitthvað.“
Of Monsters and Men er nú
í hljóðverinu Sýrlandi ásamt
upptökustjóranum Jacquire
King. Hann er enginn aukvisi í
bransanum og stýrði til dæmis
upptökum á plötunni Good
News for People Who Love Bad
News með Modest Mouse og
Aha Shake Heartbreak, Only
by the Night og Come Around
Sundown með Kings of Leon.
King segir í samtali við Popp að
árangur Of Monsters and Men á
vinsældalistum komi sér ekki á
óvart. „Þetta er samt æðislegt
og sjaldgæft, en þau eiga þetta
skilið að mínu mati,“ segir hann.
Ragnar segir mjög gaman að fá
tækifæri til að vinna með King.
„Þetta er öðruvísi vinkill á að taka
upp, síðast voru það bara við.
Nú erum við komin með annað
auga og eyra. Þetta er mjög gott.
Við erum að prófa hann í fimm
lögum, ekki allri plötunni, sem er
gott fyrir okkur til að sjá hvort
við fílum þetta. Og þetta er al-
gjörlega að virka eins og er. Þetta
er lærdómsríkt fyrir svona unga
hljómsveit eins og okkur.“
POPPSKÚRINN
Horfðu á Of
Monsters and
Men flytja
lög í Popp-
skúrnum á
Vísi.is.
Sumir urðu syfjaðir í myndatökunni.
Of Monsters and Men er heitasta hljóm-
sveitin á Íslandi í dag. 2011 var annað
starfsár hljómsveitarinnar, en þrátt fyrir það
landaði hún útgáfusamningi við Universal,
umboðsmanni og kórónaði árið með gull-
plötu fyrir sölu á fyrstu plötunni, My Head
Is an Animal. Nú vinnur hljómsveitin að því
að betrumbæta plötuna fyrir útrás sem á
ekkert skylt við það sem við Íslendingar
tengjum við það orð.
Orð: Atli Fannar
Myndir: Stefán
ALLT ÖÐRUVÍSI
ÚTRÁS HEFST
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR
ENSKI BOLTINN
STÆRRI EN ALLT